Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ATOMSKJALFTI
TOJVLIST
i; I d b o r g
TÓNVERKAKYNNING
Mist Þorkelsdóttir: Til heiðurs
þeim; Kvinnan fróma. Þorkell Sig-
urbjörnsson: Flökt; ÚSAMO; Rúnir.
Hljóðritun af kammersveit Ffl-
harmóníuhljómsveitarinnar í Riga
undir stjórn Guðmundar Emilsson-
ar. Kynnir: Þorkell Sigurbjörnsson.
Umsjón: Guðmundur Emilsson.
Föstudaginn 9. júní kl. 17:30.
VEÐRIÐ lék í lyndi á tónskálda-
þingi á vegum Menningar- og lista-
hátíðar Grindavíkur í Eldborg á
Svartsengi á föstudaginn var, ólíkt
því sem gerðist fimm dögum fyrr,
þegar landsynningurinn hvein í
hverju tré. Úndirrituðum gafst að
þessu sinni betra tóm en áður til að
skoða aðstæður í og við hið nýlega
safn- og samkomuhús Hitaveitu Suð-
urnesja sem enn virðist furðuókunn-
ugt fólki á faraldsfæti þótt standi að-
eins steinsnar frá hinni hejmskunnu
heilsulind Bláa lónsins. í kjallara
Eldborgarhússins er að finna alltil-
komumikla margmiðlunarsýningu á
undraöflunum úr iðrum jarðar og
uppi er notalegur lítill salur sem sýn-
ist skapaður til fyrirlestra og kamm-
erhljómleikahalds, búinn nýjum
flygli. Síðar um kvöldið kom svo í ljós
að veitingasalur hótelsins við Bláa
lónið er óvenju vel hljómandi til bæði
Ijóða- og djassflutnings. Möguleikar
til tónlistarlegrar uppbyggingar á
svæðinu virðast því miklir og ekki er
að efa að fjárhagslega vel stætt sveit-
arfélag nýti sér tækifærið til að gera
þessa sérstæðu ferðamennskuperlu
að n.k. Karlsbad norðursins, þar sem
gestir geti leitað sér heilsubótar
jafnt út- sem innvortis.
Tilgangur þessa tónskáldaþings
var sem fyrri daginn að kynna og
frumflytja hljóðrit á væntanlegum
geisladiskum af verkum tónskálda í
meðförum kammersveitai' Baltnesku
Fílharmóníuhljómsveitarinnar undir
stjórn Guðmundar Emilssonar. I
þetta sinn eftir feðginin Mist Þor-
kelsdóttur og Þorkel Sigurbjörns-
son, auk þess sem höfundar fylgdu
verkum sínum úr hlaði með nokkrum
orðum. Þorkell mælti íyrir munn
dóttur sinnar í íjarveru Mistar áður
en hljómflutningur hófst með tveim-
ur fremur stuttum strengjaverkum
hennar. Fyrst var „Til heiðurs þeim“
(..er leita á vit hins ókunnuga"),
samið fyrir rúmum áratug að tilhlut-
an bandarískrar strengjasveitar í
Minneapolis í tilefni af degi Leifs
Eiríkssonar. Verkið hófst á drama-
tísku tremólói „sul ponticello“ en
rann síðan áfram á líðandi hómófón-
ískri undiröldu með viðkomu í m.a.
dulúðugu strengjaplokki, tignarleg-
um legato-söng og ljóðrænum hug-
hrifalýsingum af víðáttum úthafsins,
oft með stuttum retorískum þögnum
milli hendinga, eins og upp úr göml-
um sagnaþul en óháð viðjum tímans.
Verkið kvað að hluta unnið úr sálma-
laginu forna „Jesú, mín morgun-
stjarna" og kom fallega og gegnsætt
út í næmum flutningi eystra-
saltnesku strengjanna, enda mun
það þegar hafa farið víða og m.a. ver-
ið leikið í Frakklandi og á Norður-
löndum auk Bandaríkjanna.
Seinna strengjaverk Mistar,
„Kvinnan fróma“, var samið fyrir ári
eftir pöntun frá Baltnesku Ffl-
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausnardagur 15. júní 2000.
4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 9.360.663 kr. 1.872.133 kr. 187.213 kr. 18.721 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.582.160 kr.
1.000.000 kr. 1.516.432 kr.
100.000 kr. 151.643 kr.
10.000 kr. 15.164 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.269.440 kr.
1.000.000 kr. 1.453.888 kr.
100.000 kr. 145.389 kr.
10.000 kr. 14.539 kr.
1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.226.230 kr.
100.000 kr. 122.623 kr.
10.000 kr. 12.262 kr.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og Liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 | 105 Reykjavi'k | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
harmóníunni undir yfirskriftinni
„Voyages“ (Siglingar) í tengslum við
tíaldarafmæh landafunda og flutt í
Brown háskóla í New York og víðar
vestan hafs. Verkið vísar jöfnum
höndum til Guðríðar Þorbjarnardótt-
ur og sérkennilegs þjóðlags úr Mel-
odiu í safni Bjarna Þorsteinssonar,
„kvinnan fróma/klædd með sóma/
kvæðin og strengjaleikur", sem skar
sig þó ekki áberandi úr við fyrstu
heym. Olíkt fyrra verkinu bar hér
mjög á sterkum púlsrytma, fyrst
tvískiptum, síðar þrískiptum, og virt-
ist heldur skerpa tilfinningu fyrir
framvindu miðað við hægfara raps-
ódíska ferlið í hinu. Heildarsvipurinn
var að sama skapi atgangsmeiri, þó
að einnig hér skiptust á ólíkar
stemmningar, allt frá liggjandi pedal
og einradda samsöng yfir í energíska
taktfestu eða vaggandi öldugang og
hljómabeitingin var yfirleitt fremur
blíð burtséð frá léttkrydduðum
tvíundum og állka, áður en fjaraði
eftirminnilega út á liggjandi tómum
fimmundum og fortóni, þegar Guð-
ríður stendur loks „ein eftir“.
Líkt og Hlými Atla Heimis fimm
dögum áður hafði sinfóníuhljóm-
sveitarverkið Flökt eftir Þorkel Sig-
urbjömsson ekki heyrzt hér frá því
er það var frumflutt í Háskólabíói
1962. Það var valið til flutnings á
ISCM í Amsterdam sama ár undir
stjóm Brunos Maderna og kvað m.a.
hafa farið fyrir brjóstið á ekki
óþekktari tónhöfundi en Igor Strav-
insky, sem hélt að það snerist aðal-
lega um þagnir og amaðist við þess-
um „þögnum Niflunga" úr norðrí.
Flökt birtist hlustandanum sem
furðuhvasst og ágengt verk miðað
við afkláraðan stfl höfundar frá síð-
ustu áratugum. Þó sló mann ekki sízt
hvað það hitti tilurðartímann beint í
mark með lýsandi endurómi sínum af
tæknidýrkun, visindaskáldsögum og
mótmælahreyfingu ungmenna á við-
sjárverðustu ögurstund atómaldar,
þegar Kúbudeilan kenndi vestur-
landabúum að skjálfa. Einmitt sama
ár gerði Harmljóð Pendereckis um
fórnarlömbin í Hiroshima raunar
usla í heimi nýrrar tónlistar, tíma-
mótaverk sem menningarfulltrúa
Grindavíkur mun ekki með öllu
ókunnugt, enda kom tilfinning
stjómandans fyrir því sem mestu
skiptir í módernísku tóntaki eftir-
stríðsára vel fram í nærri því geisla-
virkum flutningi Fflharmóníunnar.
Orgelkonsertinn ÚSAMO (stytt-
ing á lakónískri færslu í fornum ann-
ál fyrir árið 1329: „Útkoma séra Arn-
gríms með organum") var saminn
fyrir Orthulf Prunner og íslenzku
hljómsveitina. Hann var frumfluttur
1984 en kvað á síðustu misserum
hafa orðið vinsæll í lettnesku höfuð-
borginni og mikið leikinn. Tónskáldið
veltir þai’ fyrir sér hvað úthjara-
klerkurinn íslenzki kunni að hafa
heyrt leikið á slíkt undraverkfæri
suður í Frans - e.t.v. ísórytmískt
rondeau eftir Machaut? - og semur
þar af leiðandi fantasíu fyrir kamm-
ersveit og lítið trépípuorgel út frá
slíkum bollaleggingum. I fyrsta hluta
lá rísandi fjórtóna lýdískur skah til
grundvallar, í síðasta fallandi, með
notalega ógnljúfri útleggingu á
gotneskri „basse danse“ fótmennt
skotið inn í miðju. Sérkennileg en
hlustvæn blanda af fornu og nýju,
rofin fáeinum stuttum orgelkad-
enzum og endaði á herskáum
bumbuslætti og örstuttum loka-
hljómi.
Síðasta verk Þorkels að sinni var
hornkonsertinn Rúnir, saminn fyrir
bernskuvin hans Ib Lanzky-Otto.
Heimdallur Asgarðsvörður og gjall-
arhornþeytir átti sér níu mæður og
því er konsertinn gerður úr níu til-
brigðum við lúðrakalls-frumið so so
do do la ta- (auðvitað í dýraveiðitakt-
tegundinni 6/8:: .. |—.- !) sem gengur
sem rauður þráðm- gegnum allt verk-
ið. I heild fjörugt og glaðvært verk,
oft með heiðríku nýklassísk-ný-
rómantísku yfirbragði sem stundum
gat minnt mann ofurlítið á ljóðrænu
augnablik Lars-Erik Larssons,
stundum á þyrlandi ítalska tar-
antellu eða silalegan þursavals. Aft-
arlega í verkinu mátti heyra söng-
ræna strengjaútgáfu á lúðra-
mottóinu í anda norrænna þjóðlaga.
A einum stað virtist jafnvel broti úr
„Sumri hallar" bregða snöggvast
íýrir, en kynni að hafa verið ofheyrn.
Úndir lokin jókst verkinu ákefð með
sterkum frásagnarblæ sem reis hæst
í fyrrnefndu strengja-„þjóðlagi“ og
endaði karlmennskulega á smellandi
mottóinu í lúðrum. Baltarnir léku
verkið af þrótti og smitandi lífslöng-
un sem ætti að tryggja þessu hressi-
lega verki langa lífdaga fram undan.
Ríkarður O. Pálsson
Stöðugt ný fyrirtæki
- mikil sala
1. Gott og fullkomið bakarí í eigin húsnæði og með íbúð til sölu í
góðum kaupstað og stórri sveit. Mikil velta og miklir aukamöguleik-
ar. Laust strax ef vill. 30 ára gamalt fyrirtæki. Mikill rekstrarhagnað-
ur.
2. Glæsileg gjafavöruverslun með einar fallegustu glervörur í heimi.
Flytur inn sjálf frá framleiðslulöndunum. Verslun sem gaman er að
eiga og vinna í.
3. Sportvöruverslun sem er í mjög stóru hverfi og fjölmennu í Rvik.
Endalausir möguleikar, sérstaklega fyrir þá, sem þekkja til íþrótta
eða eru þekktir íþróttamenn sjálfir. Græðið á þekkingunni.
4. Ljósmyndastofa, sem er mjög þekkt og góð, til sölu í Rvík. Mikið
safn af filmum fylgir með. Ein besta útbúna Ijósmyndastofa lands-
ins.
5. Verktakafyrirtæki sem sami eigandi hefur átt í 9 ár. Steinsögun,
kjarnaborun og smámúrbrot. Mörg föst og góð viðskiptasambönd
fylgja með. Vel tækjum búið. Tækjalisti á staðnum, mikið að gera.
6. Verslun sem selur notuð og ný húsgögn að stórum hluta til í um-
boðssölu. Stórt og gott húsnæði á miklum verslunarstað.
7. Matvöruverslun sem hefur verið á sama stað í áratugi. Sömu eig-
endur nú í 15 ár. Selur allar helstu nauðsynjar. Góð velta.
8. Ein stærsta, þekktasta og fullkomnasta snyrtistofa landsins til sölu.
Einstaklega vel tækjum búin og fallega innréttuð. Góð staðsetning.
Nokkur þúsund viðskiptavinir á skrá. Frábærttækifæri til að eignast
fyrirtæki í fullum gangi fyrir snyrtisérfræðing.
Mikið af stórum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SUOURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
M-2000 *W
Miðvikudagur
14. júní.
Salurinn. Kl. 20.30. W
Ungir einsöngfvarar. *
Islenska einsöngslagið frá miðbiki
aldarinnar í öndvegi. Fram koma
Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur
Kjartan Sigurðarson, Sigríður Jóns-
dóttir og Jónas Ingimundarson.
Tónleikarnir eru jafnframt hluti af
Tónskáldahátíðinni og Listahátíð.
www.listir.is.
Transplant/HEART - Elliðaárnar.
Transplant/HEART er eitt af
þeim verkefnum sem þróaðist í
Helsinki í samvinnu við hinar borg-
irnar átta sem skarta titlinum Menn-
ingarborg Evrópu í ár. Hugmyndin
miðar að því að byggja upp sam-
vinnu til lengri tíma meðal mynd-
höggvara í borgunum níu. Hluti
verkefnisins er sýning á tveimur
mynd- og hljóðverkum þeirra Sal-
óme Valborgar Ingólfsdóttur og
Maríu Duncker frá Finnlandi.
Varmárþing - Mosfellsbær.
Menningardagskrá Mosfellinga,
sem einnig er hluti af samstarfsverk-
efni Menningarborgarinnar og sveit-
arfélaga stendur til 17. júní. Meðal
viðburða eru tónleikar þar sem
Diddú kynnir unga tónlistarmenn úr
Mosfellsbæ kl. 20:00 í Varmárskóla.
www.reykjavik2000.is. wap.olis.is.
-----------------
Tónleikar
til styrktar
Spánarferð
„VIÐ söngvanna hljóma“ er yfirskrift
sumartónleika Unglingakórs Tónlist-
arskólans á Isafirði sem haldnir
verða í ísafjarðarkirkju í kvöld, mið-
vikudagskvöld, kl. 20.30. Stjórnandi á
tónleikunum er Margrét Geirsdóttir,
en undirleikari á píanó Sigríður
Ragnarsdóttir. A efnisskrá kórsins
eru m.a. trúarleg og veraldleg lög frá
ýmsum löndum og tímum, sum ný-
stárleg en önnur eru garnlir kunn-
ingjar - stundum í nýjum búningi.
Unglingakórinn tók til starfa árið
1997 í framhaldi af starfi Bamakórs
Tónlistarskólans, sem stofnaður var
árið 1984, og hefur Margrét Geirs-
dóttir stjórnað honum frá upphafi.
í kórnum em nú 28 stúlkur á aldr-
inum 13-17 ára, sem flestar hafa
sungið í kór frá barnsaldri, en marg-
ar þeirra leggja einnig stund á hljóð-
færa- eða söngnám við skólann. Tón-
leikamir á miðvikudagskvöldið eru
þáttur í undirbúningi kórsins íyrir
þátttöku í kórahátíð og kórakeppni í
bænum Cantonigros skammt frá
Barcelona á Spáni dagana 13.-16. júlí
í sumar. Kórinn mun einnig halda
tónleika í Háteigskirkju í Reykjavík
11. júlí með stuðningi Isfirðingafé-
lagsins í Reykjavík.
Miðaverð á tónleikana er kr. 600 og
rennur aðgangseyrir óskiptur í ferða-
sjóðinn.
------♦-♦-♦------
*
Islenskt vatn
á ljósmynda-
sýningu
DÓRA Magnúsdóttir opnar ljós-
myndasýningu í sýningarsal bóka-
safnsins í Nakskov á Lálandi í dag,
miðvikudag. Sýningin heitir Aqua
Islandica. Ljósmyndirnar, 18 talsins,
sýna íslenskt vatn mismunandi
ástandi; ferskt, frosið, fljótandi, jök-
ulvatn og sjóðandi hveravatn. Sam-
hliða sýnir Dóra á tölvuskjá marg-
miðlunarverkefnið Aqua Islandica,
ljósmyndir, ljóð og ljóðmyndir, þar
sem hún fléttar saman eigin ljós-
myndum, fmmsömdum ljóðmynd-
um, rómantískum 19. aldar ljóðum
og tónlist, þrenns konar listformum
sem sækja hughrif í vatn.
Dóra hefur á undanförnum árum
lagt stund á ljósmyndun samhliða
starfi sínu sem blaða- og leiðsögu-
maður. Myndir hennar hafa birst á
prenti, m.a. fyrh- Flugleiðir, MAN
B&W í Holeby í Danmörku og
Ferðablað Morgunblaðsins svo og á
Netinu. Hún er um þessar mundir að
ljúka margmiðlunarnámi í Dan-
mörku. Sýningin í Nakskov er fyrsta
ljósmyndasýning Dóru.
L
i
'
t
: /
k ;
t