Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Kristnihátíð
NÚ ER að styttast í
kristnihátíð og hafa
sumir undrast að lút-
erska ríkiskirkjan á
íslandi skuli setja sig
þar í öndvegi þar sem
hún kom hvergi að
hinni friðsömu kristni-
töku á Islandi fyrir
1000 árum svo vísað sé
til forustugreinar í DV
nýlega. Menn eru
þannig ekki á eitt sáttir
hverjir skuli standa
fyrir hátíðinni og hvers
sé aðallega að minnast.
Forseti sameinaðs Al-
þingis kveður kristni-
tökulögin merkustu
löggjöf á íslandi og menn virðast
fagna því að þjþðin hafi öll kristnast
á einum degi. A þessu máli eru auð-
vitað íleiri sjónarhorn.
íslenska þjóðveldið
Eftir að víkingar fundu Island
byggðist landið fólki af germönskum
þjóðstofni. Þetta fólk var ásatrúar,
sem var hin forna trú allra germana.
Áður en þessi trúarbrögð fóru að
lúta í lægra haldi fyrir kristninni var
Ólafur
Sigurgeirsson
trúin einráð í Evrópu
norðan Alpafjalla og
náði með sænskum
flökkuþjóðum allt frá
Eystrasalti að Svarta-
haíl. Trúin barst til
Englands með Englum
og Söxum á 5. öld og
síðar til víkingabyggða
á öðrum hlutum Bret-
landseyja á 9. öld.
Þjóðfélag ásatrúar-
manna hérlendis var
með þeim hætti að Is-
lendingar minnast þess
sem gullaldar. Islend-
ingasögumar fjalla ein-
mitt um fólk og atburði
á þessu tímabili og núl-
ifandi mönnum fmnst merkilegast að
þjóðfélagið gekk hnökralaust með
einn opinberan starfsmann í hluta-
starfi (lögsögumaður) í stuttan tíma
ár hvert. Benda má í þessu sambandi
á að Grikkir og Rómverjar áttu sína
gullöld einnig á tíma fjölgyðistrúar,
er var keimlík ásatrú.
Undanfari kristnitöku
Árið 1000 var ásatrúin orðin feig.
Jafnt og þétt hafði hún látið undan
Ritlist
Hefði ritlistin borist til
—7------------------------
Islands með kaþólskri
trú, segir Ólafur Sigur-
------------------7-------
geirsson, hefðu Islend-
ingar ritað á latínu, en
ekki á eigin máli.
síga og sömuleiðis voru margir
blendnir í trúnni á þann hátt að hvíti
kristur hafði verið tekinn inn sem
nýr guð meðal guða. Þetta var ekki
vegna boðskaparins, heldur var
kristnun þjóðanna helsta úrræðið til
að koma á sterku konungsvaldi. Ása-
trúarmenn trúðu á jafna stöðu
manna og þeir réðu því hvaða höfð-
ingja þeir fylgdu og hvort þeir færu í
stríð. Um miðja 4. öld kristnast flest-
ir Gotar við Svartahaf og sama gerð-
ist á næstu tveimur öldum hjá öðrum
germönskum flökkuþjóðum. Stund-
um voru trúskipti knúin fram með
vopnavaldi, eins og þegar Saxar voru
O
5. nammaáætlun ESB
Kynningarfundur um
Upplýsingatæknisamfélagið (IST)
auglýst er eftir umsóknum í eftirfarandi lykilsvið:
• Upplýsingakerfi og þjónusta fyrir þegnana • Nýir vinnuhættir og rafræn viðskipti
• Margmiðlunarefni og tól • Nauðsynleg grunntækni og innviðir
• Rannsóknamet • Framtíðartækni • Sértækar stuðningsaðgerðir
Umsóknarfrestur er fram í október 2000
Nánari upplýsingar er aö finna á www.ist.hi.is
Morgunverðarfundur
Fimmtudaginn 15. júní 2000, kl. 08:15 -10:00, Borgartúni 6
YFIRLIT YFIR UPPLÝSINGATÆKNIÁÆTLUN ESB
Almennt yfirlit yfir IST áætlunina og vinnuáætlun IST fyrir árið 2000.
Helgi Þorbergsson, dósent við Háskóla Islands
GRUNNTÆKNIOGINNVIÐIR: Lykilsvið 4
Sértæk umræða um lykilsvið 4, enda er sérstök áhersla lögð á það í verkeíhalýsingunni.
Snœbjörn Kristjánsson, verkfr., RANNÍS
AÐSTOÐ VIÐ UMSÆKJENDUR
Ráðstefnur, upplýsingadagar og samstarfsleit. Styrkir til undirbúnings verkefna
með íslenskri þátttöku
Eiríkur Bergmann Einarsson, Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands
UMRÆÐUR OG FYRIRSPURNIR
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku
fyrirfram hjá Eiríki Bergmann í síma 525 4900 eða með tölvupósti: ee@rthj.hi.is.
<§)
SAMTÖK
IÖNAÐARINS
'•jíl
Rannsóknaþjónusta
wmammm
n
löntæknistofnun
RAMHIÍS
brytjaðir niður þúsundum saman.
Hér urðu trúskiptin með löggjöf,
en vart verður sú löggjöf talin merk
þegar haft er í huga að úti í Noregi
voru höfðingjasynir í gíslingu. Þeir
biðu aftöku ef ekki væri farið að kon-
ungsboði. Eins var staðið að málum
með gíslatöku á 13. öld, er íslending-
ar voru knúnh- til að ganga Noregs-
konungi á hönd. Lík var staðan á
Kópavogsfundinum á 17. öld, er
vopnaðir hermenn knúðu íslendinga
til að játast undir einveldi Danakon-
ungs.
Hvað gerðist árið 1000?
Árið 1000 var svo komið að stór
hluti þjóðarinnar taldist hafa tekið
kristna trú. Verður það ráðið af frá-
sögnum af ílokkadráttum á Alþingi.
Hvað gerðist þá með hina? Móttóku
þeir fagnaðarerindið við hina nýju
löggjöf, þannig að segja megi að Is-
lendingar hafi kristnast árið 1000.
Hafí svo verið mætti auðvitað gera
alla að framsóknarmönnum með lög-
gjöf. Það er auðvitað fjarri lagi.
Menn taka trú með innrætingu boð-
skaparins á sama hátt og skoðun í
stjórnmálum verður ekki til með
boðvaldi. Það eina sem gerðist í raun
árið 1000 var að kristnum mönnum
var veitt opið veiðileyfí á allt sem
tengdist ásatrú. Þetta leyfi var svo
vel nýtt að hof og skurðgoð fóru í eld
og allir gripir, er tengdust gömlu
trúnni voru eyðilagðir. Islendingar
gengu í þessum efnum miklu lengra
fram en aðrar þjóðir við sömu trú-
skipti, því hér var nöfnum daga
breytt einnig. Enn eru gömlu goða-
nöfnin notuð í dagaheitum á ensku,
þýsku og í Norðurlandamálunum.
Bókabrennur
Þegar ólíkir menningarheimar
mætast eru bókabrennur algengar.
Þegar vestrænir kaþólskir krossfar-
ar tóku Miklagarð árið 1204 héldu
þeir mikla bókabrennu. Allur hinn
forni gríski bókmenntaarfur borgar-
innar fór forgörðum í einu vetfangi.
Svona aðgerðir eru ekki bundnar við
kristna menn, því meðan Gotar voru
ásatrúar á 3. öld tóku þeir margar
borgir herskildi í Grikklandi. I þein-i
merkustu þeirra átti mikill bóka-
kostur að fara á bál, en með miklum
fortölum góðra manna tókst að forða
því.
Rúnaletrið var sameign ásatrúar-
manna og talið gjöf frá Oðni. Með
þessu letri var skorið í tré og stein.
Þetta sanna fornleifar. Engar bók-
menntir hafa fundist með þessu letri
og því hefur sú ályktun verið dregin
að ásatrúarmenn hafi ekki dregið
rúnir á kálfskinn og ritlistin verið
eignuð kristninni.
Þegar Gotar voru að kristnast um
miðja 4. öld var tekið til við að þýða
bibhuna yfír á gotnesku. Á það verk
þótti óhæfa að nota letur Óðins, rún-
irnar. Þá varð gotneska letrið til.
Þannig voni rúnirnar svo tengdar
ásatrúnni að kristnir menn töldu
rúnir forneskju og helgispjöll.
Hafí hér við kristnitökulögin verið
kálfskinnsbækur með rúnaletri er
næsta víst að þær hafi farið á bóka-
brennur kristinna manna. Það er
auðvitað engin skynsemi í því að þrá-
stagast á þeirri firru að íslenskur
bókmenntaarfur, sem á rætur allt
aftur á tíma Gota, Húna og Herúla
við Svartahaf á 5. öld sé til kominn
vegna munnlegrar geymdar margra
kynslóða. Auðvitað voru hér kálf-
skinnbækur við kristnitöku, sem
sumum var forðað undan bóka-
brennum og síðar afritaðai'. Kyn-
bræður Islendinga, Gotar, Lang-
barðar og Frankar rituðu sögur
sínar á eigin máli mörg hundruð ár-
um fyrir nám Islands.
Mál víkinganna var kölluð dönsk
tunga. ísland byggðist fólki með
þetta tungumál. Islenskar heimildir
segja að Ari fróði hafí fyrstur manna
ritað á norrænu á Islandi. Þetta seg-
ir auðvitað ekkert um það hvort Ari
fróði ritaði hér á kálfskinn fyrstur
manna. Hefði ritlistin borist til ís-
lands með kaþólskri trú hefðu Is-
lendingar ritað á latínu, en ekki á
eigin máli.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.