Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 40

Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 40
áO MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Klárum Náttúrufræðihúsið HÁSKÓLI íslands er ört vaxandi skóli. Nemendum hefur fjölg- að jafnt og þétt undan- farin ár, t.d. fjölgaði nemendum um rúm- lega 800 síðastliðinn vetur. Háskólinn hefur alla burði til að vera í forystu alþjóðlegra há- skóla. Til þess þarf hinsvegar að verða grundvallarstefnu- breyting hjá yfirmönn- um menntamála og fjárveitingavaldið verð- ur að gera sér grein fyrir því að fjársvelti undanfarinna ára geng- ur ekki til frambúðar. Fjársveltið hefur margvíslegar afleiðingar og ætla ég hér stuttlega að gera hús- næðismál Háskólans að umtalsefni. Aðstöðuvandinn vex sífellt Háskóli íslands á við verulegan að- stöðuvanda að stríða. Uppbygging háskólasvæðisins hefur engan veg- inn fylgt þeirri miklu nemendafjölg- un sem orðið hefur undanfarin ár og umtalsverður skortur er á lesað- stöðu, kennsluaðstöðu og tölvuað- stöðu. Ástandið kom berlega í ljós í fyrravet- ur, þegar haldin voru 600 manna námskeið í sal 1 í Háskólabíó og tekin var upp kennsla í Valsheimilinu. Þjóðar- bókhlaðan svaraði ekki hinni miklu eftirspum og nemendur áttu í miklum erfiðleikum með að útvega sér les- aðstöðu og tölvuað- stöðu. Fyrirséð er að aðstöðuvandinn verði enn meiri næsta vetur, enda mun háskólanem- um án efa halda áfram að fjölga. Sjálfsaflaféð dugir ekki eitt sér Ástæða þessa vanda er mjög ein- föld, Háskólanum er eftirlátið að út- vega nánast allt fé til bygginga sjálf- ur. Happdrætti Háskóla íslands hefur skilað miklu til uppbyggingar og algjörlega lagt grunninn að þeim byggingum sem risið hafa. En þótt happdrættið hafi skilað miklu verður framtíðaruppbygging Háskólans ekki byggð á happdrættisfénu einu saman. Nauðsynlegt er að bygginga- Háskólinn Nauðsynlegt er, segír Eirfkur Jónsson, að byggingarfé fáist úr rík- issjóði ef Háskólinn á ekki að dragast aftur úr. fé fáist úr ríkissjóði ef Háskólinn á ekki að dragast aftur úr. Það er ein- föld staðreynd að ekki er hægt að koma hinum sífjölgandi nemendum öllum inn í þær byggingar sem fyrir eru. Óklárað Náttúrufræðihús Undanfarin ár hafa stúdentar mátt horfa upp á hið ókláraða Nátt- úrufræðihús í Vatnsmýrinni. Bygg- ingu hússins miðar afar hægt og mið- að við óbreytta fjármögnun tekur nokkur ár að Ijúka því. Á meðan fer allt byggingafé i þetta verkefni og önnur uppbygging verður að sitja á hakanum. Forgangsverkefni Háskólans Eiríkur Jónsson Nettoú^ INNRÉTTINGAR VORTILBOÐ 20-30% afsláttur riform | HÁTÚNI6A (í húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420 s Nettöúu ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Friform | Babinnréttingar i miklu úrvali HÁTÚNI6A ? húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420 G Nýjtf flðicni hreinsunin gsm897 3634 Þrif á rimlagluggatjöldum. Stúdentar hafa í vetur með marg- víslegum hætti vakið athygli á þeim aðstöðuvanda sem Háskólinn á við að etja, enda fyrirséð að vandamálið aukist stöðugt. Rektor Háskóla ís- lands hefur lýst því yfir að eitt af for- gangsverkefnum skólans sé að fá fjárveitingu til að Ijúka við Náttúru- fræðihúsið á næstu tveimur árum. Um það ríkir víðtæk samstaða innan háskólasamfélagsins, enda er það forsenda þess að uppbyggingu verði haldið áfram. Ríkisframlags er þörf Ég skora á ráðamenn að taka vel í beiðni háskólayfirvalda og stúdenta, enda er hér um einhvern mest aðkall- andi vanda Háskóla íslands að ræða. Vandinn verður ekki leystur nema með ríkisframlagi, enda ekki hægt að gera þá kröfu á 7.000 nemenda þjóð- skóla, að allar byggingaframkvæmd- ir grundvallist á sjálfsaflafé. Höfundur er formaður Stúdentaráðs Háskóla fslands. S^'568 1044 Hvað heitir þú? - hverra manna ertu? Er ættarmót í UPPSIGLINGU? Á stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn þátttakenda (barm þeirra. ( Múlalundi færð þú barmmerki fyrir þetta eða önnur tilefni. Einnig fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir Ijósmyndirnar. Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 562 8501 eða 562 8502. Múlalundur Vínnustofa SÍBS Slmar: 562 8501 og 562 8502 Framfaraskref í kennslu í leik- skólafræðum HINN 5. maí sl. var stigið stórt skref í leik- skólamálum í Kópavogi þegar undirritaður var samningur milli Kópa- vogsbæjar og Háskól- ans á Akureyri um fjarkennslu í leikskóla- kennaranámi við Há- skólann á Akureyri. Námið er ætlað leið- beinendum sem starfa á leikskólum Kópavogs og munu nemendur stunda nám sitt með starfi. Er áætlað að það taki fjögur ár og þeir útskrifist sem leik- skólakennarar árið 2004. Undirbúningur að þessu námi hefur staðið í nokkurn tíma en Kópa- vogur átti frumkvæðið að samning- num. Þessi samningur hefði þó aldrei orðið að veruleika nema vegna jákvæðra undirtekta menntamálar- áðherra og fjármálaráðherra og eiga þeir þakkir skildar fyrir sinn þátt í þessu framfaramáli. Nám með starfí Meginmarkmið Kópavogs með þessu samstarfí við Háskóla Akur- eyrar er m.a. að koma til móts við þá starfsmenn leikskóla Kópavogs sem hafa áhuga á að læra og starfa sem leikskólakennarar en hafa ekki séð sér fært að hætta vinnu og fara út í slíkt nám. í þessu fjarnámi fer kennsla fram síðdegis og munu kennarar við Háskólann á Akureyri annast kennsluna í gegnum fjar- kennslubúnað. Kópavogsbær og leikskólar bæjarins munu í samráði við Háskólann á Akureyri sjá um verklega kennslu. Með þessari fjar- kennslu geta nemendur því stundað vinnu með náminu. Inntökuskilyrði í námið er stúdentspróf eða sambæri- leg menntun og að nemandi starfi í leikskóla í Kópavogi. Þegar hafa fjölmargir leiðbeinendur sýnt áhuga á þessu námi en hámarksfjöldi er áætlaður um 25 nemendur. Öruppbygging Stjómvöld Kópavogsbæjar gera sér grein fyrir mikilvægi leikskóla- starfsins og því uppbyggjandi starfi sem þar fer fram. Til að flest börn böm tveggja ára og eldri geti notið leikskóladvalar og til að uppfylla kröfur íbúanna um aukið leikskóla- rými hefur verið sett fram metnað- arfull stefna í uppbyggingu leik- skóla. Á síðasta ári hófu tveir nýir leikskólar starfsemi sína, Arnar- smári og Dalur, og um síðustu ára- mót var opnaður nýr leikskóli, Núp- ur, í Lindunum. í Kópavogi em nú starfandi þrettán leikskólar en þeg- ar er hafin bygging fjórtánda leik- skólans við Urðarbraut, sem hefur hlotið nafnið Urðarhóll, en það er gamalt ömefni. Urðarhóll verður opnaður nú í haust og einnig er fyrir- hugað að hefja undir- búning að nýjum leik- skóla í Sölunum nú í haust. Þessi mikla upp- bygging leikskóla sem á sér stað í bænum krefst aukins fjölda sérmenntaðs starfs- fólks. Leikskólar Kópa- vogs hafa átt því láni að fagna að hafa á að skipa mjög hæfu starfsfólki. Um helmingur starfs- manna er uppeldis- menntaður og hefur það hlutfall sjaldan verið hærra. Ekki má heldur líta fram hjá því að auk uppeldismenn- Nám Með þessu námsfram- boði, segir Sigurrós Þorgrímsdóttir, leggur Kópavogur í samvinnu við HA sitt lóð á vogar- skálarnar til að leiðbein- endur geti sérmenntað sig 1 leikskólafræðum. taðs starfsfólks hefur ráðist til starfa á leikskólum bæjarins mjög hæft starfsfólk, sem hefur lagt sitt af mörkum til þess að gera leikskóla Kópavogs að þeim góðu skólum sem þeir eru. Með þessu námsframboði í leikskólafræðum leggur Kópavogur í samvinnu við HA sitt lóð á vogar- skálarnar til að leiðbeinendur geti sérmenntað sig í þessum fræðum og um leið lagt grunninn að því að fleiri sérmenntaðir starfsmenn starfi á leikskólum Kópavogs. Því er það nauðsynlegt að leikskólarnir hafi á að skipa sérmenntuðu starfsfólki til að geta sinnt því mikilvæga hlut- verki sem þeim er ætlað. Ósk um farsæld Til að koma til móts við þarfir leik- skólanna, leiðbeinendur og ekki síð- ur nemendur og foreldra þeirra ákvað Kópavogsbær að stíga þetta framfaraskref og fara út í þessa sam- vinnu við Háskólann á Akureyri. Það er ósk okkar og von, sem staðið hafa að þessum samningi, að þetta nám eigi eftir að efla enn frekar það góða starf sem unnið er í leikskólum Kópavogs. Ég óska leikskólum Kópavogs til hamingju með þennan samning og óska tilvonandi nemend- um farsældar í náminu. Höfundur er fomrnður leikskólanefndar Kópavogs. Sigurrós Þorgrfmsdóttir Fréttir á Netinu S mbl.is ALLTAf= eiT7-H\SA£> NÝTl ^öökaupsvelslur—úllsamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýnlngar—kynnlngar og fl. og fl. og fl. i -og ýmsir fylgihlutir ^ Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggþ á eftirminnilegan viðburð - Trygglð ykkur og leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. TJöld af Öllum stœrðum frá 20 - 700 m* Elnnlg: Borð, stólar, tlaldgólf og tjalahitarar. lOfite sBsðta ..meo skótum á helmavelll slml 5621390 • fax 552 6377 • bls@scout.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.