Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 62

Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 62
^2 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÆUNN HALLDÓRSDÓTTIR frá Miðdal, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju í dag, miðvikudaginn 14. júní, kl. 13.30. Margrét Tryggvadóttir, Einar Tryggvason, Kristín Yngvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, KOLBEINN FRIÐBJARNARSON, Hvanneyrarbraut 2, Siglufirði, lést á heimili sínu hvítasunnudaginn 11. júní síðastliðinn. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðný Þorvaldsdóttir. + Hjartkær eiginmaður minn, OTTO A. MICHELSEN, Miðleiti 5, Reykjavík, lést á hvítasunnudag 11. júní. Gyða Jónsdóttir. + Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengda- dóttir og systir, SIGRÚN HULDA LEIFSDÓTTIR, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 13. júní. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn 16. júní kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Sjálfsbjargar eða MS-félagsins. Hólmgeir Guðmundsson, Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Steingrímur Hólmgeirsson, Leifur Steinarsson, Ingibjörg Brynjólfsdóttir, Arndís Bjarnadóttir, Dagný Hildur Leifsdóttir. + Ástkær eigninkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÞURÍÐUR SKARPHÉÐINSDÓTTIR Fornhaga 11, Reylgavík, lést í Landspítalanum að morgni mánudagsins 12. júní. Guðmundur Ellert Erlendsson, Skarphéðinn Kristján Guðmundsson, Kristín G. Guðmundsdóttir, Edvard G. Guðnason, Berglind Hrönn Edvardsdóttir, Sólveig Dögg Edvardsdóttir, Guðni Ellert Edvardsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Hellisgötu 19, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum sunnudaginn 11. júní. Elías Arason, Guðný Sigríður Elíasdóttir, Guðmundur Grétar Bjarnason, Sigurður Ari Elíasson, Sigríður Ágústsdóttir, Erna Björk Elíasdóttir, Gissur Skarphéðinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ÞORLEIFUR KJARTAN KRIS TMUNDSSON var gott að eiga að vini, engum brást hann né því, sem honum var fyrir trúað. Mun hann því hafa fengið að heyra orðin, sem okkur eru kær um hinn trúa þjón, sem leiddur er inn til fagnaðar herra síns. Ólafur Skúlason. Kveðja frá stjórn Guðfræði- stofnunar Háskóla Islands. Um það leyti sem séra Þorleifur Kristmundsson lét af embætti sókn- arprests í Kolfreyjustaðarpresta- kalli eftir langa og farsæla þjónustu þar, kom hann að máli við undirritað- an og bað þess að fá að afhenda Guð- fræðistofnun „fáeinar bækur“ sem honum ættu ekki eftir að nýtast. Þessar fáeinu bækur sem hann nefndi svo reyndust vera gott safn bóka um guðfræði Austurkirkjunn- ar, en séra Þorleifur hafði lagt sig eftir að kynnast þeirri kirkju og kenningum hennar. Hann hafði m.a. dvalist við guðfræðiskóla rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í Bandaríkj- unum, St. Vladimir Seminary í New York. Þar kynnti hann sig vel og naut ég þess er ég nokkrum árum síðar sat ráðstefnu sem rektor þess skóla sat einnig. Þá leitaði hann mig sérstak- lega uppi sem íslending og samlanda séra Þorleifs og ítrekaði oft við mig að ég mætti ekki gleyma að bera honum kveðju sína og starfsfólks skólans. Stjórn Guðfræðistofnunar þakkar séra Þorleifí ræktarsemi hans í garð stofnunarinnar. Bækur þær sem hann gaf hafa þegar komið að notum og eiga eftir að nýtast hverjum þeim sem vill kynna sér guðfræði og trú- rækni Austurkirkjunnar. Eftirlif- andi eiginkonu hans, frú Þórhildi Gísladóttur og fjölskyldu sendum við einlægar samúðarkveðjur og biðjum þeim öllum blessunar Guðs. F.h. Guðfræðistofnunar, Einar Sigurbjömsson, forstöðumaður. Sá sem áfram sækir áandansþymibraut og stoltur störf sín rækir hann storkar hverri þraut Þessi orð Davíðs frá Fagraskógi koma í hug mér er ég minnist góðs vinar, sr. Þorleifs Kjartans Krist- mundssonar, sem lést fyrir fáum dögum. Við höfum þekkst lengi og bundist traustum vináttuböndum. Sr. Þorleif hitti ég á prestastefnu fljótt eftir hann gerðist prestur. - Eg veitti þessum stóra og myndarlega manni athygli og hlýddi á mál hans er hann hóf upp rödd sína. En kynni okkar hófust fyrst er hann kom á kirkju- þing haustið 1964. Við störfuðum síð- an saman á næstu þingum og brátt kunni ég að meta hann og vinátta tókst með okkur. Sr. Þorleifur var góður félagi og kunni vel að segja frá og var fróður vel. Hann var prestur á Kolfreyjustað alla sína prestskapartíð. Og þau hjón Þórhildur og sr. Þorleifur sátu þetta foma höfuðból með reisn. Það var gott að heimsækja þau. Höfðinglegar móttökur og hlýjar. Heimilið fagurt og listrænt. Bókasafn átti sr. Þorleif- ur gott og stórt. - Heimilið var mann- margt því þau hjón eignuðust sex böm og fimm þeirra komust upp og eru foreldrum sínum til sóma. Einnig ólu þau hjón upp tvo fóstursyni. Vel var að öllum búið er í Kol- freyjustað komu, bæði heimamönn- um og gestum. Lengi stunduðu þau búskap á jörðinni og sinntu vel um æðarvarpið og lögðu í það mikla vinnu. Við hjónin komum í Kolfreyjustað nokkrum sinnum og eigum góðar minningar frá þeim stundum, því þar var vinum að mæta. Einnig komu þau oft til okkar bæði á Grenjaðar- stað og í Hóla. Var þá oft glatt á hjalla og margt spjallað. Sr. Þorleif- ur var kosinn síðar aftur á kirkju- þing og tókum við þá aftur upp þráð- inn frá fyrri tíð. - Hann talaði oft og mikið á þingfundum, lá hátt rómur og var hreinskiptinn í málflutningi öllum. Það var hans eðli. Hann lá ekki á skoðunum sínum og lét þær óspartí Ijós. Við unnum saman í mörgum nefndum og alltaf var gott með hon- um að starfa. Sumum fannst hann hrjúfur, kannski var hann það. En ég þekkti hann vel og reyndi hann að heiðarleika og sanngirni í hverju máli. Hann var viðkvæmur og til- finningaríkur. - Gott var ætíð að blanda geði við hann. í nokkur ár starfaði sr. Þorleifur mikið í Lionshreyfingunni og var umdæmisstjóri og ferðaðist þá milli allra Lionsklúbba. Ég minnist þess er hann heimsótti Lionsklúbbinn Náttfara í Þingeyjarsýslu hve glaður hann var og uppörvandi íyrir starf klúbbsins. Hann var einnig fjöl- umdæmisstjóri og mætti á þingum víða um heim og gat sér þar gott orð. Sr. Þorleifur varð prófastur í Aust- fjarðaprófastdæmi eftir að sr. Trausti Pétursson, bekkjarbróðir minn lét af störfum. Sumarið 1988 visiteraði ég prófastdæmi hans sem settur biskup Islands. - Þá tóku prófastshjónin á móti mér og fylgdarliði mínu við suð- urmörk prófastsdæmisins og fylgdu okkur og leiðbeindu allt til enda. - Ég gleymi ekki hve vel hann hafði skipulagt allt ferðalagið í stóru og smáu. Ekkert brást í allri ferðinni. Vinátta okkar styrktist enn þessa góðu daga. - Áður höfðu þau hjón Þórhildur og Þorleifur gert okkur mikinn greiða. - Sumarið 1987 var ég settur biskup íslands í rúmlega hálft ár og okkur hjón vantaði hús- næði. Þá buðu prófastshjónin á Kolfreyjustað okkur að láni íbúð er þau áttu í Kópavogi. Var það vel boð- ið og vel þegið. Arin liðu og við urðum að hætta störfum. - Þau Þórhildur og Þorleif- ur fluttu suður en áður höfðum við Aðalbjörg flutt til Akureyrar. Þau fluttu í Hveragerði og bjuggu vel um sig þar. Hann saknaði Austurlands og margra vina þar en þótti gaman að rifja upp margt er þar hafði gerst. Árin urðu of fá er hann gat notið að lesa og íhuga margt er hann ætl- aði. Hann veiktist fyrir fáum árum, en náði sér furðanlega. Við hjónin komum nokkrum sinnum til þeirra í Hveragerði og nutum þess sem fyrr að hitta þau. Símtöl nokkur fóru á milli okkar þessi ár. Síðast nú í vor hringdu þau til okkar. Rödd hans var styrk og skír, - hlýja í rómnum. Við kvödd- umst með þökk í huga. Þannig vil ég muna sr. Þorleif, kátan og reifan en um leið hlýjan og traustan vin. Við Aðalbjörg þökkum samvistir allar og vináttu. - Sendum Þórhildi og bömum þeirra hlýjar samúðar- kveðjur og þökkum öll samskipti og samstarf liðinna ára. Sigurður Guðmundsson. • Fleiri minningargreinar um Þor- leif Kjartan Kristmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er tU að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. r Blómobúðin > (S~\aú5sKom l v/ PossvogsUi^Ujwga^ð j V Simit 554 0500 Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri I “Bl blómaverkstæði 1 IjSlNNA*] Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. + Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, BRYNJAR BRAGI STEFÁNSSON, Spóahólum 14, er lést á heimili sínu 4. júní sl., verður jarðsung- inn frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 15. júní kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á styrkt- ar- og minningarsjóð SÁÁ. Fyrir hönd ættingja og vina, Bylja Bragadóttir, Guðmundur Stefánsson, Stefán G. Háifdánarson, Rigmor Rössling, Ásdís Elva og Ásta Lára, Jódís Stefánsdóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓRUNN JÓNHEIÐUR HRÓLFSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Eyvindarstöðum, Eyrarvegi 29, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 15. júní kl. 13.30. Valgerður Eiríksdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Guðmundur Frímannsson, Laufey Eiríksdóttir, Svavar Sveinsson, Hrólfur Eiríksson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.