Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 72
72 MIÐVIKUDAGUR 14. JIJNÍ 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Sigurbjörn
Björnsson
skákmeistari
Hafnarfjarðar
SKAK
Tónlistarskóli
llainari'jarðar
Meistaramót Hafnar-
fjarðar í skák
9.-11. júní 2000
SIGURBJÖRN J. BJÖRNSSON
sigraði á Meistaramóti Hafnarfjarð-
ar í skák sem fram fór heigina 9.-11.
júní. Hann varð jafn
Sigurði Daða Sigfús-
syni að vinningum, en
báðir hlutu 6 vinninga í
7 umferðum. Sigur-
bjöm varð hins vegar
hærri á stigum og tald-
ist því sigurvegari
mótsins, auk þess að
hljóta titilinn skák-
meistari Hafnarfjarðar
2000. Þetta er í fimmta
sinn á jafn mörgum ár-
um sem Sigurbjörn
vinnur þennan titil.
Hann á þó enn langt í
land með að ná meti
Ágústs Sindra Karls-
sonar, sem hefur unnið
þennan titil oftast allra,
eða alls 11 sinnum. Þar
af vann Ágúst titilinn 9
sinnum í röð. Röð efstu
manna varð sem hér
segir: 1. Sigurbjöm
Bjömsson 6 v. (23,0) 2.
Sigurður Daði Sigfús-
son 6 v. (22,5) 3. Páll
Þórarinsson 5 v. 4.
Halldór Brynjar Hall-
dórsson 4'Æ v. 5. Jó-
hann H. Ragnarsson 4
v. 6. Stefán Bergsson
3V2V. 7.-10. Dagur Arn-
grímsson, Vigfús Ó.
Vigfússon, Guðmundur
Kjartansson og Ingvar
Þór Jóhannesson 3 v.
Keppni þeirra Sigur-
björns og Sigfúsar
Daða um efsta sætið
var æsispennandi. Sigurður Daði
náði forystu strax í þriðju umferð,
en missti niður hálfs vinnings for-
ystu í sjöttu og næstsíðustu umferð
þegar hann gerði jafntefli við Akur-
eyringinn Halldór B. Halldórsson.
Reyndar mátti Sigurður Daði þakka
iyrir jafnteflið. í síðustu umferð lá
svo við að annar skákmaður að norð-
an hefði afgerandi áhrif á úrslit
mótsins. Þar var á ferðinni Stefán
Bergsson sem tefldi gegn Sigur-
birni, en að lokum tókst Sigurbirni
þó að svíða skákina af Stefáni. Skák-
stjóri var Gunnar Bjömsson. Skák-
þing Hafnarfjarðar var liður í Bikar-
keppninni í skák, sem 5 taflfélög
standa að. Tvö mót eru eftir í keppn-
inni: Meistaramót Kópavogs og
Meistaramót Grandrokk, auk Boðs-
mótsins sem nú stendur yfir.
Hraðskákkeppni taflfélaga
Taflfélagið Hellir stendur nú fyrir
Hraðskákkeppni taflfélaga á Suð-
vesturlandi í sjötta skipti. Að þessu
sinni taka 12 lið þátt í keppninni, en
hingað til hafa þau verið átta.
Keppnin er mjög vinsæl meðal fé-
laganna og jafnan taka flestir
stórmeistarar okkar þátt í henni.
Fjögur efstu liðin frá keppninni í
fyrra (SH, TR, Hellir og TG) komast
beint í átta liða úrslit. Hin átta liðin
berjast um þau fjögur sæti sem eftir
eru. í tólf liða úrslitum varð niður-
staðan þessi:
Skákfélag Grandrokk
- Skákfélag Akureyrar 2014-51 'Æ
Taflfélag Kópavogs
-SkákdeildKR 34-20
TaflfélagAkraness
- Skákfélag Reylqanesb. 72-0*
Skákfélag Selfoss og
nágr.
- Tafld. Bolungarv. 25-47
Viðureign Kópavogs
og KR var stytt úr 12
umferðum í 9 og Skák-
félag Reykjanesbæjar
gaf viðureignina við
Akranes án keppni.
Nú hefur verið
dregið i átta liða úrslit
og þar eigast við eftir-
talin lið (heimalið talið
fyrst):
Taflf. Kópavogs
—Taflf. Reykjavíkur
Skákf. Hafnarfj.
- Skákf. Akureyrar
Taflf. Hellir
- Taflf. Akraness
Taflf. Garðab.
-Tafld. Bolungarv.
Þessum viðureign-
um á að vera lokið á
morgun, fimmtudag-
inn 15. júní.
Bergsteinn efstur
á Boðsmötinu
Fjórum umferðum
af sjö er nú lokið á
Boðsmóti TR í skák.
Bergsteinn Einarsson
er efstur eftir fjórar
umferðir á mótinu,
sem er hluti af Bikar-
keppninni í skák. Röð
efstu manna er annars
sem hér segir: 1. Berg-
steinn Einarsson 4 v. 2.
Kjartan Maack 3'/2 v.
3.-5. Stefán Kristjánsson, Arnar
Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson 3
v. 6.-8. Ólafur Kjartansson, Ólafur í.
Hannesson og Einar K. Einarsson
2‘/2 v. 9-13. Jóhann Hjörtur Ragn-
arsson, Guðmundur Kjartansson,
Ingvar Jóhannesson, Guðni Stefán
Pétursson og Björn Þorfinnsson 2 v.
o.s.frv. Fimmta umferð fer fram í
kvöld, miðvikudaginn 14. júní.
Frankfurt-skákhátíðin
að hefjast
Frankfurt-skákhátíðin verður
haldin 16.-25. júní. Sex athyglisverð-
ir viðburðir mynda hátíðina. Athygl-
isverðastur þeirra er er Fujitsu
Siemens mótið þar sem 6 af sterk-
ustu stórmeisturum heims tefla
tvöfalda umferð, allir við alla. Mótið
fer fram 22.-25. júní. Þátttakendur
eru Anand, Kasparov, Kramnik,
Leko, Morozevich og Shirov.
Skákmót á næstunni
22.6. SÍ. Guðmundar Arnlaugs-
sonar mótið
23.6. Hellir. Jónsmessumót kl. 22
Daði Örn Jónsson
Sigurbjöm J.
Björnsson
Sigurður Daði
Sigfússon
viiA\k\rvm
Svarað ísfma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Frasier aftur
á skjáinn
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og vildi
taka undir með Víkverja
Morgunblaðsins föstudag-
inn 9. júni sl. um að endur-
sýna Frasier þættina, ef
ekki eru til nýir, þá að end-
ursýna þá gömlu. Þessir
þættir væru alveg frábær
skemmtun.
Sjónvarps-
þátturinn HNN
ÞÁTTUR með þessu nafni
hóf göngu sína mánudaginn
12. júní sl. á besta útsend-
ingartíma Stöðvar 2. Mér
fannst þátturinn vera hrein
móðgun við áskrifendur
Stöðvar 2. Hann var hvorki
fyndinn né fróðlegur,
stjómendur kepptust
þarna við að vera fyndnir
og virðulegir en skutu yfir
markið. Eg vona að hann
verði ekki langlífur.
Erla Ingvarsdóttir.
Þroskaheftir
í VELVAKANDA 9. júní
sl. talar kona um að sér
leiddist að þroskaheftir
væru kallaðir fatlaðir.
„Sonur minn er með Downs
heilkenni og hann er
þroskaheftur og sannarlega
fatiaður. Það eru allir ör-
yrkjar eitthvað fatlaðir
hvort sem um er að ræða
hreyfihömlun, vangefni,
geðsjúkdóma, hjartasjúk-
dóma, blindu eða heyrnar-
leysi svo fátt eitt sé nefnt.
Sumir sem ekki eru öryrkj-
ar geta komið fram sem
fatlaðir á hjarta og vits-
munum eins og ýmsir ráða-
menn þessarar þjóðar hafa
sýnt. Máhð sem um ræðir
snýst ekki um landsbyggð-
arstefnu heldur hreppa-
flutninga. Það geta ekki all-
ir átt lögheimili á
Norðurlandi en búið á höf-
uðborgarsvæðinu.
Inga Dröfn
Ármannsdóttir.
Pilturinn og fáninn
SÍÐDEGIS á hvítasunnu-
dag leit ég út um gluggann
og sá þrjú ungmenni, eina
stúlku og tvo stráka ganga
um í Hátúni. Allt í einu tók
einn strákurinn sig úr
hópnum og stökk inn í garð-
inn hjá Hátúni 8 og elds-
nöggt tók hann niður fán-
ann og fór með hann í
burtu. Drengurinn er
vinsamlegast beðinn að
skila fánanum í Hátúni 8.
Ibúi við Hátún.
Tilvitnun í ljóð
INDRIÐI G. Þorsteinsson
vitnar í ljóð Guðmundar
Friðjónssonar skálds á
Sandi í sjónvarpsgagnrýni
sinni í Morgunblaðinu laug-
ardaginn 10. júní sl.
Heiðursverðlaunahöfund-
inum bregst minnið í til-
vitnun sinni. Skáldbóndinn
á Sandi kvað ekki um
„buskann" heldur „bláinn".
Kvæðið er frægt og var því
trúað að það hefði reynst
áhrínsorð og vinur skálds-
ins hefði hætt við vesturför.
En svo gleymast ljóðlínur
sem sögur og sagnir. Hver
man til dæmis „Söguna af
mínum manni“ sem Indriði
G. Þorsteinsson skrifaði og
flutt var í útvarpsþætti sem
ég stóð fyrir um miðja síð-
astliðna öld? Indriði ritaði
þar upphafskafla og lauk
síðan sögunni eftir að all-
margir aðrir höfundar
höfðu skrifað hver sinn
þátt, meðal þeirra voru
Ásta Sigurðardóttir, hjónin
Jökull Jakobsson og Jó-
hanna Kristjónsdóttir (í
Sýrlandi), Kristmann Guð-
mundsson og Guðmundur
G. Hagalín. Ágnar Þórðar-
son rithöfundur var einn
höfunda og er enn á lífi til
frásagnar auk Indriða
sjálfs.
Pétur Pétursson þulur.
Fress fæst gefins
KELINN og vel upp alinn
fjögurra mánaða fress fæst
gefins á gott heimili. Upp-
lýsingar í síma 553-0939 eða
697-6993 hjá Hrafnhildi.
Handtaska tapaðist
SVÖRT handtaska tapaðist
8. júni sl. við færibandið í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Dönsk kona lagði hana frá
sér rétt á meðan hún tók
töskumar sínar af færi-
bandinu. Taskan var
ómerkt, en í henni var um-
slag með nafninu hennar á
og heimilisfang í Dan-
mörku. I töskunni var
skreyting sem hún ætlaði
að setja á leiði móður sinnar
hér á Islandi. Upplýsingar í
síma 551-4845. Ánna Lund.
Norskur skógar-
kettlingur óskast
ÓSKA eftir norskum skóg-
arkettlingi gefins. Má vera
blendingur. Upplýsingar í
síma 690-1222.
Tapað/fundið
Perla er týnd
PERLA er 12 ára gömul
læða. Hún hvarf 31. maí sl.
frá heimili sínu að Hrísmó-
um 1 í Garðabæ. Hún er
þrílit, hvít, brún og svört og
með svart nef. Hún er
eymamerkt og gegnir nafn-
inu sínu. Ef einhver hefur
orðið hennar var, vin-
samlegast hafið samband í
síma 565-9508 eða 698-
4730.
Með morgunkaffinu
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-1100,
sent i bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins telur nú, að
ekki þurfi frekari vitnanna við
um tregar gáfur og jafnvel slakt upp-
eldi íslenzkra unglinga. Vinkona Vík-
verja varð óvart fyrir þeirri raun að
sjá tónleika bandarísku hljómsveit-
arinnar The Bloodhound Gang, eða
Blóðhundagengisins, í Laugardags-
höll sl. sunnudagskvöld. Vinkona
Víkverja kom í höllina til að hlýða á
leik annarra hljómsveita er léku á
undan Blóðhundagenginu, og hafði
gaman af. Þegar svo kom að hinum
bandaríska flokki ákvað vinkonan að
heyra stuttlega í honum líka. Þá
fylltist salurinn af unglingum sem
„fíluðu“ tónlist og ekki sízt fram-
komu Bandaríkjamannanna „í botn“.
Óþarfi er að rekja hér helztu atriðin í
leikþætti hljómsveitarinnar, en þau
miðuðu að því að hneyksla áheyrend-
ur fremur en skemmta þeim með
hijómlist.
XXX
HÉR á árum áður, þegar Víkveiji
var ungur, vakti hljómsveitin
The Who athygli fyrir skelfilega
framkomu - meðlimir sveitarinnar
eyðilögðu hótelherbergi er þeir gistu
á og reyndu með öðrum hneykslandi
hætti að vekja á sér athygli. Núorðið
heitir það markaðssetning þegar
menn vekja á sér athygli, og segja
má að Blóðhundarnir bandarísku
hafi notað íslenzka unglinga í
markaðssetningarskyni með fram-
komu sinni við þá. En það sem er
kannski verst, er að hinir íslenzku
unglingar virtust meira en til í að
vera notaðir með þessum hætti og
fannst þetta bara „kúl“. Það er ekki
sérlega góður vitnisburður um gild-
ismat íslenzkra unglinga að þeir
skyldu hafa gaman af framkomu
hljómsveitarmeðlimanna og vera
meira en til í að taka þátt í fíflaskapn-
um. Víkverji er þeirrar skoðunar að
þetta sé til marks um heimsku ís-
lenzkra unglinga, það er að segja
stórs hluta þeirra, en því miður er
einsýnt að þeir unglingar sem af
innlifun tóku þátt í dýrsskapnum á
tónleikum Blóðhundanna munu
koma óorði á íslenzka unglinga yfir-
leitt, og var þó varla á það óorð bæt-
andi.
xxx
AF ÞEIRRI staðreynd, að ungl-
ingunum virtist virkilega falla í
geð ömurleg framkoma hljómsveit-
arinnar, dregur Víkverji ennfremur
þá ályktun að lítið muni duga að
bjóða þessum sömu unglingum upp á
Kristnitökuhátíð í sumar. Ungt fólk,
er nýtur þess að sjá og heyra vel-
sæmi og skikkanlega framkomu
hafða að háði og spotti, er ekki líklegt
til þess að meta að verðleikum þann
boðskap sem er kjarni kristninnar,
það er að segja, að maður eigi að
bera virðingu fyrir hverri einustu lif-
andi veru og koma fram við hana
samkvæmt þvi. Blóðhundamir komu
fram við tónleikagesti af lítilsvirð-
ingu. En þeir gerðu það vegna þess
að þeir vita að slíkt finnst unglingum
gaman og þetta eykur því sölu á disk-
um hljómsveitarinnar. Víkverji telur
að þessir sömu unglingar séu ekki
sérlega líklegir til að fara og kaupa
sér Biblíu, eða hafa áhuga á kristileg-
um kærleíksboðskap. Því telur Vík-
verji ljóst að varla þurfi að gera ráð
fyrir mörgum unglingum á Þingvelli.
X x x
EN Víkveiji velti því fyrir sér, í
framhaldi af frásögn vinkonu
hans af tónleikunum, að varla hefði
verið við öðru að búazst af íslenzku
unglingunum, en háttarlagi sem
þessu. Þeir, líkt og unglingar al-
mennt, reiða ekki vitið í þverpokum
og eru þar af leiðandi auðveld bráð
manna sem vilja græða á auðveldan
máta með því að selja rusl. Með
þessu er Víkverji þó alls ekki að
segja að við unglingana sjálfa sé á
nokkum hátt að sakast. Það er eðli
unglinga að vera ginnkeyptir fyrir
nýjungum, hafa ómótaða hugsun og
vera þannig fremur þunnir. Þegar
Víkverji rifjar upp sín eigin ungl-
ingsár getur hann eiginlega ekki
annað en furðað sig á því að hann
skuli yfirleitt hafa komizt til manns.