Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 74
74 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
í
'50)j ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
simi
551 1200
Stóra si/iðið kt. 20.00
LANDKRABBINN — Ragnar Arnalds
I kvöld mið. 14/6 síðasta sýning.
DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT eftir William Shakespeare
Fim. 15/6 nokkur sæti laus. Síðustu sýningar leikársins.
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuel Schmitt
Aukasýning fös. 16/6. Allra síðasta sýning.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Sun. 18/6 kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning leikársins.
Litla sóiSiS kt. 20.30:
HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir
I kvöld mið. 14/6 og fös. 16/6, 30. sýning. Allra síðustu sýningar.
Miðasalan er opin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200.
thorev @theatre.is — www.Ieikhusid.is
FOLKI FRETTUM
5 LEIKFELAG í
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
Stóra svið:
Kysstu mig Kata
Söngleikur eftir Cole Porter,
Sam og Bellu Spewack
fim. 15/6 kl. 20.00 uppselt
lau. 24/6 kl. 19.00 örfá sæti laus
sun. 25/6 kl. 19.00 örfá sæti laus
Ath. Allra síðustu svninaar
Sjáið allt um Kötu á
www.borgarieikhus.is
Ósóttar miðapantanir seldar
a
Tónleikaröð Norræna hússins
Bjartar nætur
FiMMTUDAGlNN 15. JÚNÍ
Gunnar Kvaran...
sello
Jens Bang-RasrnussenoKi
gitar
Kvöldverður með norrænum réttum frá
kl. 20.30, tónleikar kl. 22.00.
Kynnir: Edda Heiðrún Backman leikkona.
Bs tlppl. og miOar s. 551 7030
WíisHiu nh@nordice.is
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi 568 8000, fax 568 0383.
I.E1KFELAG ISLANPS
Katfileibliúsié
Vesturgötu 3 ■BM
Bannað að blóta í
brúðarkjól
5. sýn. miðvikudag 14.6 kl. 21
6. sýn. föstudag 16.6 kl. 21
7. sýn. miðvikudag 21.6 kl. 21
8. sýn. föstudag 23.6 kl. 21
9. sýn. sunnudag 25.6 kl. 21
Ljúffengur málsverður fyrir sýninguna
Ath. Sýningar verða aðeins út júni
MIÐASALA í síma 551 9055.
lMsENn
3000
Sjeikspír eins og hann leggur sig
fim 15/6 kl. 20 laus sæti
lau. 24/6 kl. 20
fös. 30/6 kl. 20
Panódíl fyrir tvo
fös 16/6 kl. 20.30 laus sæti
Síðustu sýningar i sumar
530 3030
Stjörnur á morgunhimni
sun 18/6 kl. 20 laus sæti
fim 22/6 kl. 20 laus sæti
Siðustu sýningar í sumar
Hádegisleikhús: LEIKIR
fös 16/6 kl. 12
Síðasta sýning
Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka daga,
kl. 14-18 augardaga og fram að sýningu sýningar-
daga. Miðar óskast sóttir í viðkomandi leikhús
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
Stuð, stuð,
þrumustuð
TÖIVLIST
H I j 6 m 1 e i k a r
TÓNLISTARHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
Skautahöllin 1 Laugardal, sunnu-
daginn 11. júní 2000. Fram komu
Sóldögg, Skítamórall, Land og syn-
ir, ATB, Selma, Sash, Luke Slater
ásamt hljómsveit og DJ Darren Em-
merson.
MÖRGUM fannst Skautahöllin
hýsa afar ólíka listamenn á sunnu-
dagskvöldið.
Rauði þráðurinn var þó áhersla á
stanslaust stuð og sú varð og raunin.
Það var deginum helst til vansa að
dagskrá hátíðarhaldara riðlaðist
fram úr hófi og tímasetningar stóð-
ust ógjaman. Þetta gerði að verkum
að hljómsveitin Sóldögg hafði lokið
leik sínum er undirritaður mætti á
staðinn á tilsettum tíma.
Á eftir henni tróðu Einar Ágúst og
félagar í Skítamóral upp og veittist
þeim létt að halda uppi öskrandi
stuði, enda er sveitin efalaust með
þeim þéttari á landinu, búin að spila
sig sundur og saman í gegnum tíð-
ina. Sveitin hefur samsvarað tónlist-
arlegri köllun sinni vel og samnefnd
plata hennar sem kom út á síðasta
Indverskir sítartónar
og pólfarafarangur
TONLIST
HI j ó m 1 e i k a r
Tónleikar í Skautahöllinni, laugar-
daginn 10. júni. Fram komu Bang
Gang, Quarashi, Emiliana Torrini,
Laurent Garnier, Asian Dub
Foundation, Herbalizer og Gus
Gus.
ÞOLINMÆDIN þrautir vinnur
allar og svo \úrtist sem áhorfendur
dyrnar opnuðust inn í Skaútahöllina á
laugardagskvöldið. Tafir hofðu vcrið
á hljóðprufum hljómsveita ug áhorf-
endur því látnir bíða fyrir utan í rúm-'1
an hálftíma.
Bang Gang fékk það óöfundsverða
hlutskipti að láta fyrstu tónana
streyma yfir áhorfendur sem þau
gerðu með jafnaðargeði. Barði sá sig
jafnvel tilneyddan til þess að lýsa því
yfir hve sérstaklega hressandi þessi
upplifun væri.
Það var strax greinilegt að Skauta-
höllin er prýðisstaður til þess að
halda tónleika, t.d. með erlendum
sveitum sem ekki fylla Laugardals-
höllina. Þó svo að hún sé ekki galla-
laus og má helst nefna hve endurvarp
er mikið þar inni. Það var svolítið
klaufalegt af hátíðarhölduram að
hafa ekki sett upp einhvers konar
tjöld á vegginn sem var bak við áhorf-
endur.
Quarashi stigu næstir á svið, voru
nokkuð lengi að koma sér í rétta
skapið en á þriðja lagi þegar hljóm-
burðurinn var orðinn góður vora þeir
félagar ekki lengi að ná flugi. Sérstak-
lega er skemmtilegt að sjá hve föngu-
lega Ómar, nýjasti meðlimur hópsins,
fangar rímið. Þeh- framfluttu nýtt lag
á tónleikunum sem inniheldur eitt
mesta gæsahúðarviðlag sem þeir fé-
lagai- hafa smíðað.
Emiliana Torrini hefði ef til vill
frekar átt að spila í Laugardalshöllinni
því það er álit blaðamanns að tónlist
hennar nái til breiðari hlustunarhóps
Hún hefur rödd söngléikjáengiis og,
það er dulin ósk niín að fá að heyra
hana s.vngja titillag’ í framtíðm-kvik-
■■ nd um njrrinarunn breska sem vill
Laurten Garnier er Frakki sem nýt-
ur nokkuiTar hylli meðal hörðustu að-
dáenda raftónlistar hér á landi og það
var ekki annað að sjá en þeir væru
flestir mættir þetta kvöldið. Ánægju-
brosin á vöram þeirra gáfu til kynna
að Garnier ylli ekki vonbrigðum. Hins-
vegar var ég ekki jafn hrifinn. Ég skal
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Ein danssliílkan hjá Laureiit
Garnier að leila að úti-
vislarvöru;
að .
sveiflajl
ki’inJÉP>
iun
llössi úr Quarashi sýii/
ir héi'.áliorWhidiiin
Itvað þeir lélagar eigi
við nieð „S( ick'em
im1“
• ■ ~
- *mmSSsw,f Wiý
jjiigover'.
ári var einkar vel uppbyggt popp-
verk.
Áhorfendur um þetta leytið vora
flestir í yngri kantinum og nær ein-
ungis kvenkyns. Þeir vora líka held-
ur en ekki með á nótunum og sungu
hátt og snjallt með öllum lögum.
Skítamórall þræðir annars undar-
legt einstigi í íslenskri poppnáttúra
um þessar mundir. Meðlimir eru
hættulegir ásýndum, líta út eins og
olíusmurðir leðurrokkarar, hlaðnir
gaddaglingri, húðflúram og hana-
kömbum. Tónlistin sjálf er hins veg-
ar fremur léttvægt og fágað popp.
Mórallinn er þó stöðugt að þyngj-
ast og hver veit hvað framtíðin ber í
skauti sér. Mínus og Mórallinn sam-
an á túr?
Næsta sveit, Land og synir, gíraði
stemmninguna niður í poppið og það
var hrein unun að fylgjast með leik
hennar. Hreimur söngvari vafði
salnum um fingur sér og glógirtar
stúlkumar kunnu alla texta utan að.
Persónulega saknaði ég fram-
sæknari laganna sem er að finna á
seinni plötu sveitarinnar, en það
hafði greinilega verið tekin ákvörðun
um að keyra á stuðið og
stemmninguna, líklega í ljósi upp-
byggingar áhorfendahópsins. AÍlar
þyngri stemmur voru því skildar
eftir úti í kuldanum og fannst mér
það miður þar sem þær popptil-
raunir, sem sveitin hefur verið að
Selma söng við góðar undir-
lekl.ii’ á sunniidaginn i
Skanla- u
liöllinni i‘ii
líkl og mai’gir v
aðrirmissti \
Arnar Eggerl
af finlningi heuiiar ve$púPW
rangrar dagskrár.
I.and og synir sköpuðu
svo mikla sleminniugu
á liálíðiiuii að Arnar
Eggerl hafði uiiimi af.
stunda, hafa verið vel heppnaðar.
Þá var komið að evrapoppsveitinni
ATB ef sveit skyldi kalla. Á sviðinu
vora þrír þolfimidansarar og öll tón-
list virtist spiluð af bandi. Það var
tekið til við hopp og hí og áhersla lögð
á að peppa upp sem mesta stemmn-
ingu enda er það grannforsenda til-
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
vistar evrusveitanna. Það var farið
fjálgri tungu um setningar eins og
„Era ekki allir í stuði?“, „erað þið til-
búin?“, „það er frábært að vera
héma“, og „við elskum ykkur heitt“.
Frammistaða ATB vai' ekki upp á
marga fiska og heróp „meðlima“ lítt
sannfærandi.
þó fúslega taka það fram að ég hef
aldrei heyrt tónlist hans fyrr en þetta
kvöld. Mér fannst hljómur hans var
frekar gamaldags og hreyfði hann því
lítið við mér. Ekki bætti úr skák þeg-
ar nokkrar stúlkur klæddar „over-
lock“-saumuðum lörfum skriðu inn á
sviðið í þeim tilgangi að bæta sjón-
ræna hlið framkomu hans með dansi,
sveillandi einhverju sem leit út eins
ogþaðjíffinibeint úrbakpoka Hara-
Idm'Arnarpólfai-a. í
Asian Dub Foundation stigu na:st-
ír á svið og var það sú hljómsveit sem
flestir biðu spenntastir eftir að sjá.
Þeirra kokteill er bragðsterk blanda
af iiidvi’rskum sítartónum, hörðum
rítftöktum og hráu rokki. Þeir hafa
sitthvað að segja í textum sínum en á
tónleikum þeirra skilar það sér ekki.
Þeir segja líka sjálfir að á tónleikum
fangi þeir eyra sem svo sannfæra
seðlaveski um að geisladiskakaupin
borgi sig. Svo loks þegar geisladiska-
eigandinn er í einrúmi heima hjá sér
með hugann og hjartað opið, þá fari
hann að hugsa. Ef þetta er í raun her-
bragðið standa þessir menn vel að
vígi því tónleikar þeirra vora stór-
kostlegir. Þeir gáfu sig alla til þess að
heilla áhorfendur og meintu hvern
einasta tón. Það ætti því ekki að
móðga neinn þegar ég segi að þarna
hafi hápunkti kvöldsins verið náð.
Það hentaði mjög vel að hafa Herb-
alizer á eftir slíku adrenalínflæði því
tónlist þeirra fer mjög vel við öll sælu-
andvörpin sem fylgja slíkum köstum.
Tónlist þeirra er afar lipur og dreym-
in blanda fönks og „house“-tónlistar.
Stemmningin í húsinu var sérstak-
lega þægileg og afslöppuð enda vai'
nánast hver einasti maður á sviðinu
skælbrosandi. Hljómsveitin mætti
með blásturshljóðfæraleikara með
sér og allt virtist ganga upp.
Söngvaralausir Gus Gus stigu síð-
ast upp á svið og komust afar vel frá
sínu. Þeir fluttu mikið af nýju efni en
létu einnig nokkur lög af nýjustu
plötu sinni, j,Gus Gus vs. T-world“,
fljóta með. Áhorfendur virtust bara
ánægðir með strákahljómsveitina og
lifðu sig vel inn í nýju taktana þeirra.
Birgir Orn Steinarsson
Áframhaldandi dagskráiTÍðlun
gerði að verkum að sýning Selmu fór
framhjá mér. Þetta er synd og
skömm en það er svo sem engin ný-
lunda að tímasetningar standist ekki
á íslenskum skemmtisamkomum.
Súrkálspopparinn Sash sveik þó
engan með glæstri sýningu sinni.
Fyi-ir það fyrsta var hann með fimm
dansara ólíkt ATB sem var aðeins
með þrjá (vá!!l) og leiðtogi sveitar-
innar var sýnilegur á sviðinu, stóð
fyrir aftan hljóðgervil sem hann
hamraði af einlægni og ástríðu hins
sanna evrapoppara. Hann var og
óþreytandi á að spjalla við áhorfend-
ur og náði upp þessari líka rokna
stemmningu. Meira evrapopp segi
ég nú bara. Hvenær koma Eiffel 65
til landsins?
Næst var komið að hinum flug-
glaða íslandsvini Luke Slater1. Það
var auglýst að hann myndi spila
ásamt hljómsveit en ekki varð ég nú
var við það. Hann stóð einn á bak við
tölvur og önnur ámóta tól ásamt ein-
hverjum síðhærðum hippa. Luke
Slater var þrasugóður, spilaði pump-
andi stáltæknó og stemmningin í
höllinni jókst með hverjum takti.
Það var svo enginn annar en Darr-
en Emmerson, fyrrverandi meðlim-
ur Underworld, sem lauk kvöldinu
með skííúþeytingum. Emmerson
hélt nokkum veginn sama þræði og
Slater, taktföst tæknótónlist í myrk-
ari kantinum var allsráðandi og fólk-
ið í salnum var vel með á nótunum.
Emmerson sjálfur var skælbrosandi
á bakvið spOarana, ánægður með að
vera laus úr viðjum hljómsveitar-
báknsins. Það var því sannarlega út
og suður, þramustuð sem réð ríkjum
í Skautahöllinni á sunnudaginn.
Arnar Eggert Thoroddsen