Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VTKAN 18/6-24/6 ► EIÐUR Smári Guðjohn- sen skrifaði undir fimm ára samning við enska knattspyrnufélagið Chel- sea sem greiddi hans fyrra félagi, Bolton, 460 milljón- ir króna fyrir hann. Eiður Smári er þar með langdýr- asti knattspyrnumaður Is- lands frá upphafi. ► UPPGJÖR fyrir rekstur Landspítalans fyrstu fjóra mánuði ársins bendir til þess að 300 milljóna kr. halli verði á rekstrinum á þessu ári, sem er um 2% af veltu. ► ÁHRIFjarðskjálftanna eru mjög góð fyrir vatns- búskapinn, að mati Orku- stofnunar, þrátt fyrir tíma- bundnar truflanir á vatnsbúskap á Suðurlandi. Jarðslgálftarnir gætu jafn- vel orðið til þess að lækka hitunarkostnað húsa á Suðurlandi. ► ÚTLIT er fyrir að far- þegar með skemmtiferða- skipum verði fleiri en nokkru sinni áður hér á landi í sumar. Von er á 41 skemmtifcrðaskipi til Reykjavíkur i' sumar með um 25.000 farþega en flest urðu skemmtiferðaskipin í Reykjavíkurhöfh árið 1995 þegar 51 skip hafði við- komu í Reykjavík. Eignatjón í jarðskjálftum SUÐURLANDSSKJÁLFTI sem tal- inn er vera af stærðinni 6,5 á Richter reið yfir kl. 15:40 á þjóðhátíðardaginn. Upptök sjálftans voru í Kaldárholti í Holtum á jarðhitasvæði Hitaveitu Rangæinga. Mikið tjón varð í jarð- skjálftanum, einkum á Hellu og í Holt- um og Landsveit. Á milli 60-70 manns voru heimilislausir og enn fleiri yfir- gáfu heimili sín um helgina af ótta við annan skjálfta. Annar Suðurlands- skjálfti, sem mældist 6,5 til 6,6 stig á Richter, reið yfir vestanvert Suurland laust fyrir kl. 1, aðfaramótt sl. mið- vikudags og er talið að upptökin hafi verið í austanverðu Hestfjalli í Gríms- nesi. Skemmdir urðu á Suðurlandsvegi frá Bitra austur undir Þjórsárbrú. Á annað þúsund tjónatilkynningar hafa borist vegna jarðskjálftanna og starfs- menn Rauða krossins hafa leitað hús- næðis á Hellu til að hýsa þá sem misst hafa hús sín vegna jarðskjálftanna. Töluvert brottkast áafla NIÐURSTÖÐUR mælinga Fiskistofu á aflasamsetningu átta dragnóta- og netabáta gefa vísbendingu um töluvert brottkast á afla. í öllum tilvikum var niðurstaðan sú að minni fiskur kom síður að landi þegar eftirlitsmaður Físlfistofu var ekki um borð en stærðardreifingin var meiri þegar eftirlitsmaður var um borð. ► HÆSTIRETTUR hefur dæmt að spænskum föður tveggja drengja sé heimilt að fá þá tekna úr umsjá móður hér á landi og af- henta sér með beinni að- farðargerð ef móðirin hef- ur ekki áður fært þá til Spánar innan tveggja mán- aða. Sleipnismenn hafna undanþágum BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGINU Sleipni berast fjöldi beiðna um undan- þágur frá verkfalli á hverjum degi og hefur verkfallsnefnd ákveðið að hafna þeim öllum framvegis. Fundur var í kjaradeilunni í allan gærdag. Ríkisstjórn Baraks stendur SHAS-flokkurinn í ísrael ákvað á fimmtudag að sitja áfram í samsteypu- stjóm Ehuds Baraks forsætisráð- herra og kom þannig í veg fyrir að stjómin tapaði þingmeirihluta sínum. Öldungaráð flokksins gaf ráðherrum hans fyrirmæli um að draga til baka afsagnarbréf sem þeir höfðu afhent forsætisráðherranum fyrr í vikunni. Daginn áður hættu ráðherrar Meretz- flokksins, sem em á öndverðum meiði við Shas, þátttöku í stjóminni og gerði það ráðherram Shas kleift að sitja áfram í stjórninni. Brotthvarf ráðherra Meretz þýðir að Barak hefur misst þingmeirihlut- ann, en ráðherrarnir íyrrverandi hafa sagst munu veita stjóminni stuðning áfram. Kváðu þeir afsögn sína hafa verið einu leiðina til að bjarga friðar- umleitunum ísraela og Palestínu- manna. Rætt um varnarsam- starf á fundi ESB LEIÐTOGAR Evrópusambandsins, ESB, ræddu á tveggja daga fundi sín- um í Portúgal m.a. um tillögur sem gera ráð fyrir að því að þeim ríkjum Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem ekki eiga aðild að sambandinu verði gert kleift að taka þátt í vamarsam- starfi þess. Tillagan var lögð fram af Portúgal og gerir ráð fyrir því að reglulegt sam- ráð verði haft við NATO-ríkin sem standa utan ESB um framkvæmd sameiginlegrar öryggis- og varnar- málastefnu sambandsins. Halldór Ás- grímsson, utanríkisráðherra íslands, segist þó óttast að boðið samráð verði ófullnægjandi. Þá náðist á leiðtogafundinum sam- komulag um aðgerðir til að stemma stigu við fjármagnstekjuskattsflótta milli aðiidarríkja sambandsins. ► FIMMTIU og átta lík ólöglegra kínverskra inn- flyljenda fundust í flutn- ingabíl í borginni Dover í Bretlandi á sunnudags- kvöldið. Tveir menn fund- ust á Iífi í bflnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús en talið er að fólkið hafi látist vegna kæfandi hita og loft- leysis í flutningavagninum. Breska lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins. ► RÍKISSTJÓRN Banda- ríkjanna greindi frá því á mánudag að viðskipta- þvingunum gegn Norður- Kóreu hefði verið aflétt og að sendinefnd bandarískra kaupsýslumanna hygðist heimsækja ríkið síðar á ár- inu til að kanna íjárfest- ingamöguleika. Þá greindi seðalbanki Suður-Kóreu frá því á þriðjudag að já- kvæð þróun hefði mælst í norður-kóreskum efnahag á síðasta ári og töldu sér- fræðingar bankans líkur á áframhaldandi jákvæðum hagvexti í landinu. ► OPEC, Samtök olíuút- flutningsríkja, tilkynntu á miðvikudag að þau myndu auka olíuframleiðslu sína um 700.000 olíuföt á dag. Olíuverð hélt áfram að hækka í vikunni. ► MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, heimsótti Pek- ing, höfuðborg Kina, á fimmtudaginn og ræddi við kínverska ráðamenn. Talið er að aðalumræðuefnið hafi verið eldflaugavarnar- áætlanir Bandarikjamanna í Ijósi þeirrar þíðu sem vart hefur orðið í samskiptum Kóreurflganna. Oddviti sjálfstæðismanna gagnrýnir harðlega stjórnarkjör í Linuneti Segir vinnubrögö R-lista fáheyrð og ráðast af geðþótta ÞRIR borgarfulltrúar Reykjavíkur- listans vora kjörnir í stjórn Línunets á aðalfundi félagsins sl. fimmtudag. Borgarfulltrúarnir Alfreð Þorsteins- son og Helgi Hjörvar voru endur- kjörnir til eins árs, en Steinunn Val- dís Óskarsdóttir kom ný inn í stjórn fyrirtækisins. Fulltrúar minnihlut- ans í borgarstjórn misstu sæti sitt í stjórn félagsins og gagnrýnir oddviti sjálfstæðismanna í borginni, Inga Jóna Þórðardóttir, vinnubrögð meirihlutans og borgarstjóra harð- lega í þessu máli. Segir hún þau ein- kennast af valdahroka og lítilli virð- ingu fyrir lýðræðinu. Fjarskiptafyrirtækið Línunet var stofnað fyrir einu ári síðan og segir Inga Jóna að þá þegar hafi verið vilji sjálfstæðismanna að tilnefna frekar fulltrúa úr atvinnulífinu fremur en borgarfulltrúa í stjórn fyrirtækisins. Borgarstjóra, sem fer með hluthafa- vald í fyrirtækinu, hafi verið kunnugt um þetta en ekki viljað fara þessa leið með tilnefningar fulltrúa R-list- ans og því hafi orðið að samkomulagi að Inga Jóna gengi í stjórn ásamt þeim Alfreð og Helga fyrsta árið. Frekar fulltrúa úr atvinnulífínu „Ég skýrði borgarstjóra frá því að mér þætti eðlilegt að í stjórn svona fyrirtækja sem væra að fara að starfa á almennum markaði sætu menn úr atvinnulífinu en ekki borgarfulltrúar. Almennt finnst mér að við ættum að nota þá reglu og hún tók undir þessi sjónarmið og áréttaði það á fundi borgarstjórnar nú í vet- ur,“ segir Inga Jóna. Klukkustund fyrir aðalfund var fundur haldinn í stjórn Línunets og þai- segir Inga Jóna að Alfreð Þor- steinsson, formaðm- stjómar, hafi spurt hvort allir stjórnarmenn gæfu kost á sér til endurkjörs. „Ég spurði hvort það væri hlutverk stjórnar að stinga upp á sjálfri sér og hvort hlut- hafinn ætti ekki að gera slíkt. Ég tjáði honum að minnihlutinn myndi leita til utanaðkomandi aðila um setu í stjórn og að við ættum von á hinu sama af meirihlutanum." Inga Jóna segir að Alfreð hafi staðfest að slíkar breytingar stæðu ekki til af hálfu meirihutans og þeir Helgi gæfu kost á sér áfram, en bragðist hart við þegar hún hafi skýrt frá því að Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri Þórsbranns, væri tilnefndur sem fulltrúi minnihlutans. „Hann brást illa við og hreytti út úr sér að það myndi hann aldrei styðja. Sá maður færi aldrei í stjóm fyrir- tækisins," segir Inga Jóna og bætir við að hún hafi undrast mjög þessi ummæli og lýst þeim sem dylgjum og meirihlutinn hefði ekkert að segja hvern minnihlutinn veldi sem full- trúa sinn í stjóm fyrirtækisins eða stjóma fyrirtækja almennt. Við það hafi Alfreð hins vegar ekki getað sætt sig og því hafi málið verið tekið af dagskrá og hún lagt fram bókun um málið í fundarlok. Þegai- kom að stjómarkjöri á aðal- fundi Línunets segir Inga Jóna að einn listi hafi verið borinn fram, en enginn fulltrúa sjálfstæðismanna hafi verið á honum. „Ég spurði á fundinum hvort borgarstjóri stæði að þessari tillögu og fulltrúi hans, borg- arlögmaður, staðfesti að svo væri. Ný stjórn Línunets til eins árs er skipuð sjö aðilum; auk þriggja borgarfulltrúa R-listans, þeim Hreini Jakobssyni, forstjöra Skýrr, Kristjáni Gíslasyni frá Islandssíma og Guðmundi Þóroddssyni og Þor- keli Finnssyni frá Orkuveitu Reykja- víkur. Inga Jóna segir vinnubrögð Reykjavíkurlistans í þessu máli vera fáheyrð. Svo virðist sem borgarfull- trúar listans telji sig geta skorið úr um hverjir séu þeim þóknanlegir og hverjir ekki og gefi engar efnislegar ástæður fyrir mati sínu og traðki á lýðræðislegum rétti minnihlutans. „Hér ræður einhver geðþótti og borgarstjóri ber fulla ábyrgð á hon- um. Þetta er því miður talandi dæmi um þá stjómarhætti sem tíðkast í borginni og þessi stefnubreyting er vitnisburður um hversu litla virðingu R-listinn ber fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum. Hér er verið að snið- ganga sjálfsagðan rétt minnihlutans til að koma að málum,“ segir Inga Jóna Þórðardóttir. Morgunblaðið/Sigurgeir m ISLAND t B KORTABOK BOAO ATLAS STRABENATLAS ATLAS ROUTIER 1 : 300 000 Kortabók Máls og menningar er ómissandi í bílinn • Nákvæm landshlutakort • Hentug blaðskipting • Fjöldi þéttbýliskorta • Söfn og sundlaugar • ítarleg nafnaskrá Mál og menningl malogmenning.isl Laugavegl 18 • Sfmi 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sfml 510 2500 Minnst sjö helsingja- hreiður VEL horfir með helsingjavarp hér á landi á þessu sumri, en að sögn Björns Arnarsonar fuglaathugun- arnianns á Homafirði voru a.m.k. sjö hreiður á suðausturhominu. Síðasta sumar er helsingjum í sár- um var smalað til merkinga, náðust milli 40 og 50 fuglar. Tugþúsundir helsingja hafa við- dvöl á íslandi vor og haust á leið til og frá varpstöðvum sínum á Græn- landi og vetrarstöðvum á Bret- landseyjum, en tegundin er með sjaldgæfustu varpfuglum fslands. Örfá helsingjapör byijuðu að verpa íBreiðafíarðareyjum árið 1964. Árið 1988 hófst svo varp á Suðausturlandi,en samtímis hættu helsingjar að verpa í Breiðafjarðar- eyjum og telja sérfræðingar þvi að um sömu fugla hafí verið að ræða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.