Morgunblaðið - 25.06.2000, Blaðsíða 64
*
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
Á HEIMSMÆLIKVARÐA
SAP
r
cO>
NÝHERJI
S: 569 7700
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIBSLA 6691122, NETFANG:RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Gert við
á Klifínu
* í Eyjum
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar og
þyrla frá Þyrluþjónustunni voru
notaðar til að flytja menn og tæki
upp á Kliflð í Vestmannaeyjum í
gær. Þar hrundi úr berginu og jarð-
vegur sópaðist í burtu í jarð-
skjálftunum. Vararafstöð og ljós-
leiðarastrengur voru flutt upp á
Klifið þar sem sendar Símans, RÚV
og fleiri útvarpsstöðva eru.
Jafnréttis-
stofa til
Akureyrar
JAFNRÉTTISSTOFU hefur
verið valinn staður á Akureyri
og er það staðarval að sögn
Páls Péturssonar félagsmála-
ráðherra í samræmi við
byggðaáætlun ríkisstjórnar-
innar og ákvörðun Alþingis um
að opinberar stofnanir verði á
landsbyggðinni.
Páll segir að meðal annarra
staða hafi verið litið til Húsa-
víkur, Egilsstaða, Borgamess,
Vestmannaeyja og fleiri staða,
en Akureyri hafi orðið fyrir val-
inu, ekki síst vegna nálægðar
við Háskólann á Akureyri sem
koma mun stofunni til góða við
þau rannsóknastörf sem þar
munu fara fram.
Morgunblaðið/Sigurgeir
500 millj-
ónir til
trúfræðslu
og fornleifa
SAMKOMULAG hefur náðst milli
þingflokka á Alþingi um tillögu sem
lögð verður fyrir þingfund á kristni-
hátíð. Tillagan er um að stofna sjóð
sem styrki tvö málefni, annars vegar
fomleifarannsóknir og hins vegar
fræðslu um trú, kristin gildi og sið-
ferði í samfélaginu. Tillagan kveður á
um að við trúfræðsluna verði haft
samráð við öll trúfélög.
Tillagan gerir ráð íyrir að í þessi
verkefni fari 100 milljónir á ári í fimm
ár eða samtals 500 milljónir. Sjóður-
inn er sambærilegur við þann sem A-
þingi stofnaði á Þingvöllum árið 1994
þegar haldið var upp á 50 ára afmæli
lýðveldisins. Þá var stofnaður svo-
kallaður Lýðveldissjóður sem var
varið til efiingar íslenskri tungu og til
rannsókna á lífríki hafsins. Stjóm
sjóðsins sá um úthlutun fjármunanna,
en þeim var skipt í tvennt tfl þessara
tveggja málefna. Sjóðuiinn fékk 500
milljónir til ráðstöfunar á fimm árum.
Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra á sambandsþingi SUF
Efasemdir um að EES-samn-
ingur standist stj órnarskrá
Fjöldi ferða-
manna í
Borgarfírði
MIKILL ferðamannastraumur hef-
ur verið um Borgarfjörð frá því um
miðjan dag á föstudag og hefur
straumurinn legið jafnt um héraðið
sjálft sem og norður yfir heiðar eða
vestur á Snæfellsnes.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi hefur verið „myljandi umferð“
um héraðið, en hún hefur gengið vel
og engin óhöpp orðið. Tjaldstæði í
Húsafelli em orðin þétt skipuð, en
eftir því sem starfsmenn ferðaþjón-
ustunnar þar segja má með góðum
vilja lengi bæta einum við.
Dæmalaus veðurblíða
. Að sögn lögreglunnar er það hin
dæmalausa veðurblíða sem helst lað-
ar fólk að Borgarfirðinum en einnig
geta menn sér þess til að fólk taki
frekar stefnuna þangað en austur
fyrir fjall vegna jarðskjálftanna.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanrflds-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, lýsti því yfir á sambands-
þingi Sambands ungra
framsóknarmanna (SUF) á
föstudagskvöld að hann hefði efa-
semdir um að samningurinn um
evrópska efnahagssvæðið stæðist
stjómarskrá íslands. Sjálfur sagðist
hann aldrei hafa útilokað það að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu og lýsti ánægju með að SUF tæki
Evrópusamstarf á dagskrá með svo
afgerandi hætti.
Þingi SUF lýkur í dag, en þar verð-
ur m.a. borin upp tillaga um að stefna
beri að því að skilgreina nánar samn-
ingsmarkmið íslands með aðildarvið-
ræður að ESB í huga.
Halldór sagði það skoðun sína, að
opna þyrfti umræðuna frekar um
þessi mál. Hann tók þó fram að undir-
búa yrði slíka leið afar vel og við Is-
lendingar værum ekki tilbúnir að
sækja um aðild að svo stöddu.
Utanríkisráðherra lýsti efasemd-
um um að EES-samningurinn stæðist
stjómarskrá, sérstaklega í ljósi
hnignunar samningsins vegna innri
breytinga á ESB, og taldi jafnvel að í
Tryggðu þér betri vaxtakjör og lægri þjónustugjöld með því að sameina
kosti Heimilislínu og Heimilisbanka.
0 BÚNAÐARBANK3NN
HEIMILISLÍNAN
Traustiir baiiki
www.bUs
framtíðinni þyrfti að setja inn sér-
stakt ákvæði vegna þessarar laga-
setningar. Hann varpaði einnig þeirri
spumingu fram hvort þeir aðilar sem
hafa lýst sig andvíga því að ræða þessi
mál opinskátt væm tilbúnir að ljá
máls á þess háttar breytingu á stjóm-
arskránni. Hann kvaðst þess fullviss
að Norðmenn gengju inn í ESB á
næstu árum og í ljósi þess þyrfti að
ræða aðildarkostinn og kosti þess og
galla að sækja um aðild, því annars
væmm við að bregðast framtíðinni.
„Við emm Norðurlandaþjóð og
Evrópuþjóð. Við eigum efnahagslega
og menningarlega samleið með þess-
um þjóðum og án þessarar samvinnu
getum við lítið,“ sagði Halldór.
I ræðu sinni sagði Halldór það vera
grandvallarstefnu Framsóknar-
flokksins að tryggja jafnrétti til náms
án skólagjalda. Hann sagði að þótt
menntamálin væm ekki á hendi
Framsóknar í núverandi ríkisstjóm
fylgdist flokkurinn grannt með á því
sviði.
„Vegna umræðu um gjaldtöku
Endurmenntunardeildar Háskólans
fyrir MBA-menntun vil ég taka fram
að ég hef áhyggjur af þessari þróun
og eins og kom fram í sérstakri bókun
í Háskólaráði má slík gjaldtaka ekki
verða upphaf að þróun sem endar í
skólagjöldum. Við munum koma í veg
fyrir slíkt,“ sagði Halldór og tók fram
að þetta mál væri á gráu svæði og
hann hygðist standa vörð um þetta
grundvallaratriði.
Halldór ræddi að lokum um sam-
starf Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokks í rfldsstjóm. Sagði hann
að frá því flokkamir hófu samstarfið
hafi átt sér stað gífurleg uppbygging í
atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar,
en þrátt fyrir þann góða árangur hafi
Framsóknarflokkurinn mætt nokkr-
um andbyr.
„Margir segja að við stöndum í
skugga Sjálfstæðisflokksins og það er
rétt, enda þarf ekki mikla skarp-
skyggni til að sjá aðstöðumun þess-
arra tveggja flokka þegar skoðuð em
ítök þeirra og áhrif í fjölmiðlum og
víðar í þjóðfélaginu.“
Halldór sagði að vegna þess að
stjómarsamstarfið hefði gengið vel
hafi einnig heyrst að á stundum geti
verið erfitt að átta sig á stefnu og sér-
stöðu Framsóknarflokksins. „Smám
saman tel ég skilning vera að vakna á
því sem við höfum fengið áorkað í rík-
isstjóm og á mismun þessara tveggja
flokka, sem er mikill," sagði hann.
Draumur þyrlukarla
TíU manna hópur áhugamanna um
þyrluflug kynnti í gær fyrstu
heimasmíðuðu þyrlu landsins,
„Karlrembuna" sem er tveggja
sæta af gerðinni Exec I62-F.
Þeir félagar festu sér þyrluna ár-
ið 1998 og kom hún til landsins f sex
kössum. Tóku menn þá til við að
smíða þyrluna og liggja að baki
a.m.k. 1500 vinnustundir. Alls hef-
ur ævintýrið kostað um 6 miHjónir
króna.
Nafn þyrlunnar er dregið af heiti
hópsins, en þeir kalla sig „Karlrem-
buklúbbinn" að sögn Árna Sæberg,
eins tímenninganna. Ámi sagði að
með smfði þyrlunnar gætu þeir
„flogið fyrir lftinn pening" auk þess
sem allir í hópnum væru ineð þessu
að láta gamlan draum rætast.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigurður Ásgeirsson reynsluflýgnr þyrlunni.
■ Karlrembur/B6