Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 6
6 SlilNiNUi»ÁGUit26. JlliNlZUOU
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
i
!
Endurskipu-
lagning þýska
sambandshersins
Eftir Cristoph Bertram
© Project Syndicate
HVERJAR eru hinar hemaðarlegu
ógnir sem stafa af Evrópuríkjum
nú um stundir? Hvernig er hægt að
mæta slíkum ógnum? Hversu miklu
eru ríkisstjómir reiðubúnar að
kosta til? Umræðan um þessa mála-
flokka hefur nú beinst að fjölmenn-
asta her Evrópu, þýska sambands-
hemum og niðurstaða þeimar
umræðu snertir ekki eingöngu
Þjóðverja heldur einnig banda-
menn þeirra innan Evrópusam-
bandsins (ESB) og Atlantshafs-
bandalagsins (NATO).
Umræðan sem nú fer fram í
Þýskalandi kemur helst til seint.
Kalda stríðinu lauk íýrir áratug síð-
an og flestir bandamenn Þjóðverja
hafa þegar lokið umfjöllun um þessi
mál. Ef umræðan í Þýskalandi er
seint á ferðinni em fyrir því tvær
ástæður. Annars vegar hefur
öryggisumhverfi Þýskalands
breyst meira í samanburði við
önnur ríki og hins vegar hafa Þjóð-
verjar ætíð verið afar háðir lög-
bundinni herskyldu.
Byltingar geta gerst snögglega
en það tekur þó tíma að laga sig að
þeim breytingum sem þær stuðla
að. í um hálfa öld var Þýskaland
staðsett þar sem mestar líkur voru
á að upp úr syði í kalda stríðinu.
Síðan, um vorið 1990, sameinuðust
þýsku ríkin tvö, Varsjárbandalagið
var lagt af og Sovétríkin liðuðust í
sundur og ríkin í austurvegi sem
þangað til höfðu hýst skriðdreka
Sovétmanna, urðu skyndilega vina-
ríki og síðar bandamenn. Árið 1994
yfirgaf síðasti rússneski hermaður-
inn þýska grund.
Á þeirri stundu hefði verið rétti
tíminn að endurskoða hemaðarlega
stöðu Þýskalands. En þess í stað
óttaðist ríkisstjórn Helmuts Kohls
kanslara að slík rýni myndi vinda
ofan af meginforsendu sambands-
hersins - sem stofnaður var á miðj-
um sjötta áratugnum - og rýra skiJ-
yrðin sem stuðluðu að útbreiddri
sátt landsmanna við tilurð hans:
herskylduna. Hernaðaryfirvöld
hafa staðið vörð um herskylduna
þar eð hún tryggir sambandshem-
um hæfa hermenn og sterk tengsl
við hinn almenn borgara. Stjóm-
málamenn halda tryggð við her-
skylduna vegna þess að með því
móti er gagnsæi sambandshersins
tryggt. Og stofnanir félagslega Það mikilvægasta í þessu sam-
kerfisins líta herskylduna jákvæð- hengi er sá fjöldi hersveita sem
um augum þar eð án hennar, væru hægt er að beita með skjótum hætti
engir sem mótfallnir væru því að auk magns og gæða hergagna sem
gegna herþjónustu, en starfkraftar nauðsynleg era slíkum aðgerðum. í
þeirra koma að góðum (og kostnað- dag era tæplega 60.000 hermenn
arlitlum) notum við alls kyns störf í sem uppfylla öll skilyrði slíkra
þágu samfélagsins. hernaðaraðgerða en Weizsácker-
Að sambandshernum er því nefndinlagðitilaðþeimyrðifjölgað
þrengt á tvo vegu. Endalok kalda í 140.000 alls og að unnt yrði að
stríðsins kölluðu á samdrátt í hern- beita hersveitum þessum á tveimur
aðarútgjöldum og aukin útgjöld til hættusvæðum á sama tíma. Á sama
sameiningarmála. Opinber útgjöld tíma fer nefndin fram á mikla fækk-
til varnaimála lækkuðu snarlega og un mannafla í sambandshernum
mun hraðar en meðal bandamanna eða frá þeim 320.000 sem gegna þar
Þjóðverja. En á hinn bóginn hefur herþjónustu nú, í ekki meira en
viðhald herskyldunnar fært lands- 240.000 hermenn og konur (já, kon-
mönnum umsvifamikinn og kostn- ur sem munu geta tekið þátt í öllum
aðarsaman sambandsher sem eyðir stigum hemaðaraðgerða). Þá er
háumfjárhæðumtilviðhaldsmann- lagt til að fjöldi herskyldra her-
afla síns á kostnað nývæðingar manna, sem gegna herþjónustu í tíu
hergagna. Útkoman er sú að herinn mánuði, verði skorinn niður í 30.000
hefur hvorki mannafla né búnað á ári, úr þeim 130.000 hermönnum
sem unnt er að beita gegn ógnum sem gegna herskyldu í dag.
samtímans og samvinna við banda- Með öðram orðum er lagt til að
menn er erfiðleikum háð. samhliða því að auka þurfi við íjölda
Endurskipulagning er því óhjá- hermanna er geta sinnt sértækum
kvæmileg og vegna þess að íhalds- aðgerðum, verði fækkað í sam-
mönnum undir stjóm Kohls kansl- bandshernum í heild sinni. Sparn-
ara láðist að hrinda slíku í aðinn sem af þessum breytingum
framkvæmd lendir það nú á vinstri- hlýst er ætlað að nýta í kaup á nýj-
stjórn Gerhards Schröders, núver- um vopnum og hergögnum sem
andi kanslara. Fyrir um ári setti gera munu hersveitum kleift að
stjómin á laggirnar óháða nefnd er takast á við komandi verkefni. Og á
taka átti á málum er varða „sameig- sama hátt og hermenn og vopn
inlegt öryggi og framtíð sambands- þeirra munu fylgja nýju skipulagi
hersins“, undir formennsku þá er nauðsyn á að einfalda her-
Richards von Weizsáckers, fyrrver- stjómina sjálfa svo tryggt verði að
andi forseta Þýskalands. Fyrir unnt sé beita hersveitum með skjót-
stuttu var niðurstaða skýrslunnar um hætti í náinni samvinnu við heri
birt og loks hefur síðbúin umræða bandamanna. Þá er pólitísk yfirsýn
um þessi mál hafist í landinu. ein meginforsenda þessara breyt-
I skýrslunni sem er 179 síður á inga.
lengd er ekki skafið utan af hlutun- Nefndin áætlai’ að það muni taka
um. Sambandsherinn á sér enga um sex ár að breyta sambandshern-
framtíð samkvæmt núverandi íyrir- um samkvæmt tillögum þeim sem
komulagi. Yfir Þýskalandi vofir fram koma í skýrslunni og leggur
ekki lengur hættan á innrás fjöl- nefndin til fjárhagsáætlun sem
menns landhers. Landið er umlukið tryggja ætti að breytingamar nái
bandamönnum í NATO og ESB og fram að ganga. Ef svo fer munu
sá herfræðilegi veraleiki mun verða Þjóðverjar geta gengist að fullu við
til staðar um ókomna framtíð. í stað skuldbindingum sínum gagnvart
þess að hafa yfir að ráða hemaðar- NATO og ESB. Þá er einnig víst að
getu til að hrinda umfangsmikilli endurskipulagningin muni auka
innrás inn fyrir landamærin, verður hreyfinguna í átt að nánai’a örygg-
sambandsherinn að hafa hemaðar- is- og varnarsamstarfs Evi’ópuríkja
getu til að beita beinni íhlutun á og hvetja til sameiginlegra vopna-
hættusvæðum og hafa stjóm á slíku og hergagnakaupa auk samþættrar
ástandi. Gildir þá einu hvort um er vopnaframleiðslu.
að ræða sameiginlegar aðgerðir Nú hafa stjórnmálin tekið við og
NATO við hættuástandi innan eða hefur umræðan snúist að veralegu
utan hefðbundins athafnasvæðis leyti um tvö mál: hversu nærri
bandalagsins. niðurskurðurinn gengur stjóm-
Reuters
Þýskir hermenn á æfingu í Feldkirchen í suðurhluta Þýskalands.
Sambandsherinn hef-
ur hvorki mannafla
né búnað sem unnt er
að beita gegn ógnum
samtímans
málamönnum og hversu mikill póli-
tískm’ vilji liggur á bak við slíkan
niðurskurð.
Niðurskurðurinn mun kosta
fórnir og þó nýi sambandsherinn
mun verða skilvirkari hvað kostnað
varðar þá munu breytingarnar
kosta fjármuni - meiri fjánnuni en
ríkisstjórnin gerir ráð íyrir lofs-
verðri fjárlagaáætlun sinni. Er
Schröder viljugur til að setja stel'n-
una á endurbætur er fyrst munu
bera ávöxt eftir næstu kosningar?
Lögbundin herkvaðning er annað
mál. Um þriðjungur nefndarmanna
kaus að hafa atvinnumannaher en
meirihlutinn studdi hei’skylduna,
þótt fjöldi herskyldra skyldi vera
minni en nú tíðkast. Forsendur
þeirra vora á þessa leið: Þar eð
framtíðin er óljós er ráðlegt að við-
halda þeim sveigjanleika sem fólg-
inn er í herskyldunni. Þannig er
unnt að bregðast bæði við
ófyrirsjáanlegum breytingum á
öryggisumhverfinu og hættunni af
því að of smár hópur fólks kjósi sér
hermennsku að starfi. í þessu felast
einmitt erfiðleikar þeirra banda-
manna er gefið hafa herskylduna
upp á bátinn og eru því víti til varn-
aðar. Fjöldi þeirra nýliða sem
kvaddir era til hermennsku er háð-
ur eftirspurn sambandshersins og
þar af leiðir að nefndin hefur lagt til
að nýliðar gegni alla vega tíu mán-
aða langri herskyldu. Þetta skýrir
hinn mikla niðurskurð herskyldra
sem fram kemur í tillögunum.
Það er þessi hluti skýrslunnar
sem hlotið hefur mesta gagnrýni.
Flestir stjómmálaflokkanna hafna
þessum tillögum og kjósa að fjöldi
herskyldra verði mun meiri. Þá hef-
ur gagnrýnin beinst að tillögum
nefndarinnai’ um val á hermönnum
sem gegna eigi herskyldu og slíkt
sagt brjóta í bága við stjórnar-
skrána þar eð fyrirkomulagið
myndi gefa miklum meirihluta
ungra manna færi á að komast und-
an herþjónustu.
Þetta er efalaust ekki síðasta
orðið í þessaii umræðu. Röksemda-
færsla þeirra sem segja að her-
skyldan er því aðeins réttlát ef allir
era kallaðir til, án tillits til eftir-
spurnar, er afar ótrúverðug. Of-
framboð á hermönnum er kostnað-
arsamur múnaður og er sú
staðreynd óðum að ná skilningi
stjórnmálamanna, einkum stjóm-
ai’liða. Rudolf Scharping, varnar-
málaráðheiTa, sem vinnur nú að
eigin tillögúm um endurskipulagn-
ingu sambandshersins sér einnig
fram á mikinn niðurskurð á fjölda
herskyldra þótt tillögur hans séu
meira í hóf stilltar en tillögur
Weizsacker-nefndarinnar.
Minna fjármagn og aukinn fjöldi
herskyldra manna mun að öllurh
líkindum hægja á eða eyðileggja
endtu-bætur Weizsackers. En að
þessu sögðu er ljóst að nefndir
leggja til, stjórnmálamenn hrinda í
framkvæmd. Þeir era undir meiri
þiýstingi en óháðir nefndarmenn
og ábyi’gðin er að lokum þeiiTa. Það
væri því skammsýni að ætla stjóm-
málamönnum að taka tillögur
Weizsácker-nefndarinnar og
hrinda þeim óbreyttum í fram-
kvæmd.
Það er rangt, eins og sumir
hveijir gera, að líta á skýrsluna sem
ófullburða óskalista. Eftir eins árs
erfiði hefur Weizsácker-nefndin
gert nokkuð sem hvorki þinginu né
nokki-um öðrum stjórnarstofnun-
um hefur tekist, þ.e. að skilgreina
forsendm- nauðsynlegra breytinga.
Stjórnmálamenn munu gera tilslak-
anir en jafnframt því munu þeir
bera ábyrgð á þeim. Með sanni má
því segja að endurskipulagning
■sambandshersins sé loks hafin.
Crístoph Bertram er einn nefndar-
manna Weizsacker-nefndarinnar
ogstarfarsem forstöðumaður Vís-
inda- og stefnumótunarstofnunar-
innar í Ebenhausen.
Afganistan
Varað við
hungursneyð
Genf. AFP.
TALSMAÐUR Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNHCR),
Ron Redmond, sagði í gær að allt að
tvær milljónir Afgana gætu orðið
fórnarlömb hungursneyðar vegna
mestu {mrrka sem herjað hafa á
landið í 30 ár. Redmond hvatti til
þess að ríki heims gripu til viðeig-
andi ráðstafana ella gæti farið svo að
flóttamenn flykktust til grannland-
anna, Irans og Pakistans. I síðar-
nefnda landinu era fyrir 1,2 milljónfr
afganskra flóttamanna og um 1,4
milljónir í íran. UNHCR segir að
hópar fólks ráfi nú um í örvæntingu
milli þorpa í Afganistan í leit að
drykkjarvatni. Sums staðar í landinu
hefur uppskera brugðist algerlega
vegna þurrkanna og annars staðar
hafa allt að 35% búfjár drepist. Ekki
er búist við regni íyrr en í nóvember.
„Osið-
læti“
í Iran
SNYRTIVÖRUFYRIR-
TÆKIÐ Givenehy kynnir
hér ilmatnið Indecence,
eða Ösiðlæti, á auglýsinga-
skilti sem komið hefur ver-
ið fyrir í höfuðborg frans,
Teheran.
Margir íbúar fran not-
færa sér í dag hið aukna
frelsi til að aðlagast vest-
rænum lifnaðarháttum sem
vart hefur orðið í stjórnar-
tíð Mohammads Khatamis,
Iransforseta. Auglýsingar
á borð við ilmvatnsauglýs-
ingu Givenchy hefðu fyrir
nokkrum ái’um verið tald-
ar ósiðsamlegar og þar af
leiðandi verið bannaðar af
ríkisstjóminni.
Græningjar
skipta um
talsmenn
lierlín. AI'T.
ÞÝSKIR Græningjar kusu sér tvo
nýja samstarfsleiðtoga á þingi
flokksins í Múnster í gær, þau Rena-
te Kúnast og Fritz Kuhn. Era þau
bæði 44 ára að aldri og voru kjörin
mótatkvæðalaust.
Kúnast og Kuhn koma í stað
Gunda Röstel og Antje Radeke sem
samstarfsleiðtogar eða talsmenn
flokksins. Röstel, sem er frá Austur-
Þýskalandi og tilheyrir hófsömum
armi flokksins, tilkynnti fyrr á árinu,
að hún ætlaði ekki að sækjast aftur
eftir embættinu en Radcke, einn
helsti talsmaður hinna „bókstafstrú-
uðu“, ætlaði að bjóða sig fram að
nýju en hætti við er þingið sam-
þykkti með miklum meirihluta áætl-
un stjórnarinnar um að loka kjarn-
orkuverunum í Þýskalandi í
áföngum. Vildi hún, að þeim yrði lok-
að á skömmum tíma.
..... ........_......................................................................................................................................-............................ _ _________________________________________________________________________ ________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________.................................................................................................................. ,