Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dr. Ragnar Sigbjörnsson forstöðumaður Rannsdknarmiðstöðvar Háskóla íslands
Fræðsla og forvarn-
ir skipta sköpum
Rannsóknarmiðstöð Háskóla íslands í jarð-
skjálftaverkfræði hefur á undanförnum ár-
um haft umsjón með rannsóknum á áhrifum
jarðskjálfta á íbúðarhús á Suðurlandi. Arna
Schram ræðir við Dr. Ragnar Sigbjörnsson,
prófessor off forstöðumann stofnunarinnar,
um verkefnið og áhrif jarðskjálftans síðustu
daga á byggingar á Suðurlandi.
DR. RAGNAR Sig-
bjömsson, prófessor
og forstöðumaður
Rannsóknarmiðstöðv-
ar Háskóla íslands í
jarðskjálftaverkfræði, segir ómögu-
legt að vita hvort þær byggingar
sem sluppu án teljandi sýnilegs
tjóns undan stóru jarðskjálftunum
á Suðurlandi síðustu daga muni
standast aðra eins áraun aftur án
þess að verða fyrir tjóni. Óvissan
sé alltaf mikil jafnvel þótt þættir á
borð við aldur, byggingarefni og
byggingartækni geti gefið einhverj-
ar vísbendingar. „Eg hef séð það
sjálfur hvernig tvö eins hús, sitt
hvoru megin við sömu götu í San
Francisco í Bandaríkjunum, hafa
farið í jarðskjálfta. Annað húsið
hrundi til grunna og myndir af því
birtust á síðum dagblaða víða um
heim en hitt húsið lét ekki á sjá,“
segir Ragnar og kveðst ekki geta
skýrt þennan mun á þoli húsanna
með neinum einföldum hætti frekar
en læknavísindin geti skýrt það
með einföldum hætti hvers vegna
tveir bræður sem lifi áþekku lífi
deyji á mismunandi aldursskeiði,
annar um sjötugt en hinn á tíunda
tugnum. Vísindin hafi með öðrum
orðum ekki svör við öllu.
Ragnar bendir þó á að þrátt fyr-
ir þessa staðreynd sé full ástæða
fyrir íbúðareigendur, sem búa á
jarðskjálftasvæðunum, að láta
tækni- og verkfræðinga yfirfara
byggingarnar því í þeim gætu
leynst skemmdii- sem ekki er auð-
velt að sjá. Vænlegasta leiðin á
hinn bóginn til þess að koma í veg
fyrir manntjón í stórum jarðskjálft-
um hér á landi sé að tryggja að
innanstokksmunum sem og tækni-
kerfum hússanna, svo sem vatns-
lögnum og ofnum, sé komið þannig
fyrir að ekki hljótist tjón af. „Menn
deyja af tveimur meginástæðum í
jarðskjálftum í þeim löndum þar
sem hús eru vel byggð,“ segir
hann. „Annars vegar vegna þess að
þeir verða fyrir fallandi hlut í íbúð-
inni eða detta um brak þegar þeir
reyna að komast út, en hins vegar
vegna þess að þeir fá áfall á borð
við hjartaáfall," útskýrir Ragnar.
Fræðsla og forvamir, segir
Ragnar, geta því skipt sköpum
þegar jarðskjálftar eru annars veg-
ar. Það hafi reyndar komið á dag-
inn eftir jarðskjálftana sem nú hafa
gengið yfir Suðurland. Bendir hann
í því sambandi á verkefni um vam-
ir og viðbúnað gegn jarðskjálftum
sem Rannsóknarmiðstöðin tók þátt
í á ámnum 1996 til 1998. Verkefnið
gekk undir nafninu SEISMIS og í
kjölfar þess vora gefnar út almenn-
ar leiðbeiningar til íbúa á Suður-
landi um það hvernig draga megi
úr tjóni af völdum jarðskjálfta. Tel-
ur Ragnar að þær leiðbeiningar
hafi skilað sér í minna tjóni í jarð-
skjálftunum síðustu daga en ella
hefði orðið. Bendir hann á að í leið-
beiningunum hafi mönnum m.a.
verið ráðlagt að festa betur lausar
hillur, skápa og rafmagnstæki svo
dæmi séu nefnd, sem og að ganga
betur frá ofnum og huga að inn-
bústryggingu en tjón á innan-
stokksmunum fæst alla jafna því
aðeins bætt af Viðlagatryggingu ís-
lands að innbústrygging liggi fyrir.
Aðspurður segist Ragnar hafa
vissu fyrir því að ýmsir hafi farið
eftir þessum leiðbeiningum og vís-
ar m.a. í símtal sem hann hafi feng-
ið frá húseiganda í vikunni. Sá
hefði skýrt frá því að hann hefði
farið eftir öllum leiðbeiningunum
nemi einni sem hefði gleymst. Bak-
araofninn hefði ekki verið festur
sem skyldi og því hafi hann eyði-
lagst í jarðskjálftunum um síðustu
helgi.
Flest húsanna byggð
eftir 1940
Verkefnið um varnir og viðbúnað
gegn jarðskjálftum sem minnst var
á hér að ofan hafði það að mark-
miði að draga úr tjóni af völdum
jarðskjálfta á Suðurlandi. í því
skyni var gerð úrtakskönnun á
ástandi 170 íbúðarhúsa á Suður-
landsundirlendinu til þess að hægt
yrði að gera sér grein fyrir því
hvað betur mætti fara. Úrtakið,
húsin 170, var valið með það í huga
að það endurspeglaði sem best ald-
ur, landfræðilega dreifingu og
byggingargerð þeirra íbúðarhúsa
sem finna mætti á svæðinu og tek-
ur Ragnar fram að engin hús hafi
verið skoðuð án samþykkis og sam-
ráðs eigenda. Húsin sem lentu í úr-
takinu vora flest frá Hveragerði,
Hellu og Selfossi en önnur vora frá
nærliggjandi sveitum. Rúmlega
2.400 íbúðarhús voru skráð á þessu
svæði árið 1996 þegar verkefnið hóf
göngu sína. Um 59% þeirra voru
steinsteypt, 28% þefrra timburhús,
10% hlaðin úr steini og 3% þeirra
voru hús af annarri gerð. Meiri-
hluti þeirra var byggður á áranum
eftir 1940.
Meginniðurstöður verkefnisins
vora þær að um það bil 30% hús-
eigenda í þéttbýli og 13% húseig-
enda í dreifbýli hefðu ekki trygg-
ingu sem tæki til tjóns á
innanstokksmunum. Þá kom í ljós
að miðstöðvarofnar sem og hitalag-
nir væru ekki alltaf nægilega vel
fest, en tekið var fram í því sam-
bandi að skemmdir á heitavatns-
lögnum með þeim afleiðingum að
allt að áttatíu gráða heitt vatn gæti
lekið út gæti valdið töluverðum
eignaspjöllum. Að síðustu var bent
á að í húsunum væra innanstokks-
munir á borð við rafmagnstæki,
bókahillur, skápa, þungar vegg-
myndir og styttur, sem ekki væra
nægilega vel festir og tekið fram að
slíkt gæti valdið slysum og jafnvel
dauða í öflugum jarðskjálftum.
I verkefninu var einnig sérstak-
lega litið á þol bygginga í jarð-
skjálftum á borð við þá sem nú
hafa gengið yfir Suðurland og er í
niðurstöðunum m.a. greint frá því
að timburhús séu þau hús sem
hvað best standist áraun af völdum
jarðskjálfta. Þá standi járnbent
steinsteypt hús sig nokkuð vel í
slíkum jarðskjálftum. Var í niður-
stöðunum talið að þessar tvær teg-
undir húsa myndu ekki hljóta meiri
skaða en svo af völdum jarðskjálfta
að hagkvæmt væri að gera við þau
eftir mikla áraun. Öðru máli gegndi
hins vegar um þau steinsteyptu hús
sem ekki væra járnbent. Þau
myndu væntanlega í sumum tilfell-
um verða fyrir það miklu tjóni að
hagstæðara yrði að byggja þau upp
að nýju en að reyna að gera við
skemmdirnar. Að síðustu var tekið
fram um þennan þátt niðurstaðn-
anna að of fá hlaðin hús hefðu verið
í úrtakinu til þess að hægt hefði
verið að draga ályktanir um þol
þeirra í jarðskjálftum. Almennt
mætti þó halda því fram að þau
þyldu jarðskjálfta með sambærileg-
um hætti og óbent steinsteypt hús.
Hægt að draga úr tjóni með
einföldum aðgerðum
í verkefninu var reynt að áætla
það tjón sem yrði á byggingum
íbúðarhúsa á Suðurlandi í öflugum
jarðskjálftum og bent á að umfang
þess færi eftfr því hversu langt
væri í upptök jarðskjálftans. Yrðu
upptökin á austurhluta svæðisins
myndi tjónið verða lítið en yrðu
þau hins vegar nálægt bæjunum
Hveragerði, Hellu eða Selfossi
myndu allar byggingar verða meira
eða minna fyrir einhverju tjóni.
Sumar þeirra myndu eyðileggjast
alveg. Sem dæmi nefnir Ragnar að
áhættugreining giundvölluð á svið-
settum jarðskjálfta (svipuðum þeim
sem varð hinn 26. ágúst 1896) hafi
benti til þess að tjón á byggingum
á Hellu myndu nema að meðaltali
um 25% af endurstofnverði þeirra.
„Þessi niðurstaða sýnist ekki fráleit
í ljósi þeirra atburða sem nú hafa
gerst,“ segir Ragnar.
Þá voru í verkefninu kannaðir
þeir þættfr sem helst gætu valdið
slysum á fólki í jarðskjálftum á
borð við Suðurlandsskjálftann og
kom í ljós að það væra síður sjálfar
byggingarnar sem slíku gætu vald-
ið heldur miklu fremur innanhúss-
munir, fallandi hlutir, rústir, rusl,
brak og glerbrot. Þótti því ljóst
samkvæmt þessum niðurstöðum að
draga mætti úr tjóni af völdum
jarðskjálfta með einföldum og
ódýrum aðferðum. Aðgerðum sem
fælust fyrst og fremst í frágangi
innanhússmuna á þann hátt sem
lýst hefur verið hér að ofan.
Ragnar segir í samtali við blaða-
mann að í kjölfar þessarra niður-
staðna hafi verið gefnar út leiðbein-
ingar, almenns eðlis eins og fyrr
var greint frá, um varnir og við-
búnað gegn jarðskjálftum og að
þær leiðbeiningar hafi m.a. verið
Vidbúnaður fyrir jarðskjálfta
i
HÆGT er að draga úr tjóni og
minnka slysahættu í hugsanlegum
jarðskjálftum með ýmsum ráðstöfún-
um. Rannsóknarmiðstöð í jarð-
skjálftaverkfræði við Háskóla íslands
tók saman eftirfarandi ábendingar
fyrir nokkrum áram en þær eiga er-
indi til allra húseigenda.
Tryggingar
Farið yfir tryggingar eða fáið full-
trúa tryggingafélagsins ykkar til að
gera það. Miklu skiptir að vátrygg-
ingarapphæðir séu sem næst raun-
verulegu verðmæti innbús þannig að
tjónið verði bætt á réttlátan hátt. Sér-
staklega er bent á að bætur Viðlaga-
tryggingar Islands á fasteignum era
miðaðar við branatryggingar og bæt-
ur á innbúi við innbústryggingar.
Branatrygging er skyldutrygging en
ekki innbústrygging.
Merkingar
Komið fyrir í anddyri teikningu
sem sýnir hvar inntakslokar fyrir
heitt og kalt vatn og rafmagnstafla
era í húsinu. Merkið inntaksloka fyrir
kalt og heitt vatn. Hafið lokana að-
gengilega þannig að auðvelt sé að
loka fyrir vatnið ef með þarf. Slíkt
dregur úr líkum á vatnstjóni í hugsan-
legum jarðskjálftum.
Frágangur hítaveituofna
ogforhitara
Tryggið að hitaveituofnar geti ekki
losnað af festingum og fallið niður.
Mælt er með að fagmaður kanni í
hveiju tilfelli hvaða lausn er heppileg-
ust til að festa ofnana tryggilega.
Tryggið að forhitarar (varmaskipt-
ar) séu vel festir. Mælt er með að fag-
maður kanni í hveiju tilfelli hvaða
lausn er heppilegust til að festa for-
hitara tryggilega.
Svefnherbergi
Komið í veg fyrir að hlutir geti
dottið á rúm og meitt þann sem í því
sefui'. Haldið útgönguleið auðri og
tryggið að hlutir geti ekki dottið og
lokað henni.
Forðist að hafa rúm undir stórum
glugga eða undir hlöðnum milliveggj-
um. Bókahillur, skápa og aðra þunga
hluti ber að festa þannig að ekki sé
hætta á að þeir detti, til dæmis yfir
rúm, skapi hindranir eða loki út-
gönguleiðum.
Myndir undir gleri á alls ekki að
hengja fyrir ofan rúm. Forðast ber að
hengja myndir og ski-aut nálægt rúm-
um.
Náttlampa og aðra brothætta hluti
sem geta dottið nálægt rúmi ber að
festa. Það dregur úr hættu á að gler-
brot valdi óþarfa meiðslum þegar
stigið er fram úr rámi. Gluggatjöld
draga úr hættu við hugsanlegt ráðu-
brot.
Vasaljós ber að hafa á aðgengileg-
um stað þannig að hægt sé að ná í það
áður en stigið er fram úr rámi og inni-
skór eiga að vera tiltækir við rám og
þá á skilyrðislaust að nota þegar faiið
er fram úr rámi eftir jarðslqálfta.
Eldhús og þvottahús
Isskápa, bakaraofna og örbylgju-
ofna ber að festa þannig að ekki sé
hætta á að þeir falli út úr innrétting-
unum. Efri eldhússkápar eru allvíða