Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Tónleikar í fslensku óperunni í kvöld í tónleikaröðinni Nordvest Musik Skilar sér í auknum sam- böndum í kvöld spila sænski klarinettuleikarinn Martin Fröst og píanóleikarinn Þorsteinn ■ ■ ^ Gauti Sigurðsson á tónleikum í Islensku óperunni. Dagskráin verður fjölbreytt og inniheldur m.a. frumflutning á verki eftir færeyska tónskáldið Kristian Blak. Martin mun flytja stytta útgáfu af klarinettu- konsert Hillborgs þar sem hann notar hreyfilist og ljósahönnun. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Martin Fröst og Þorsteinn Gauti í stuttu hléi frá æfingu. „NORDVEST Musik tónleikaröðin er hugsuð til að leiða saman norræna tónlistarmenn sem ekki hafa spilað saman áður,“ segir Þórarinn Stefánsson forsvarmaður Nordvest Musik. Þeir Martin Fröst klarinettuleik- ari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari höfðu aldrei spilað sam- an á tónleikum fyrir þetta verkefni en segjast hafa verið rétt málkunn- ugir áður en æfingar hófust. Martin og Þorsteinn Gauti koma fram í íslensku óperunni í kvöld en þeir ræddu við blaðamann áður en þeir héldu sína fyrstu sameiginlegu tónleika í Færeyjum á fostudag. Þessir tvennir tónleikar eru hluti af tónleikaröðinni Nordvest Musik sem haldin er á Islandi, Færeyjum og á Grænlandi. Tónleikunum sem áttu vera á Grænlandi 21. júní hefur verið frestað. Á efnisskránni tónleikanna eru sónötur eftir Poulenc og Brahms og verk eftir Debussy og Lovreligo. Einnig mun Martin spila stytta út- gáfu af klarinettukonsert Anders Hillborg. Báðir hafa sigrað í Biennal norrænna einleikara Þeir Martin og Þorsteinn Gauti eiga það sameiginlegt að hafa sigrað í Biennal norrænna einleikara sem haldinn er árlega. Þorsteinn vann þá keppni 1984 en Martin árið 1991. Þorsteinn Gauti er Islendingum kunnur fyrir píanóleik sinn enda hef- STARFSMAÐUR uppboðsfyrirtæk- isins Christie’s kemur hér fyrir kyrralífsmynd 19. aldar lista- mannsins Paul Cézanne „StiII Life with Fruit and a Pot of Ginger,“ sem útleggja má sem „Kyrralífs- mynd með ávöxtum og engifer- krukku." ur hann komið víða fram, bæði hér heima og erlendis. Hann hefur kom- ið fram sem einleikari með hljóm- sveitum á Norðurlöndum og marg- sinnis með Sinfóníuhljómsveit Islands. Martin Fröst hefur ekki síður náð að skipa veigamikinn sess sem tón- listarmaður þrátt fyrir ungan aldur. „Martin er einn af þessum ungu upp- rennandi einleikurum sem eru lýs- andi á alþjóðamarkaði,“ segir Þór- arinn og bætir við að hann sé einn þekktasti einleikari á Norðurlöndum og því svo sannarlega tímabært að íslendingar fái að heyra hann á tón- leikum. Leikið um ailan heim Martin hefur komið fram sem ein- leikari um allan heim og leikið með hljómsveitum á borð við Philhar- monia Orchestra í London, Shinsei Symphony Orchestra í Tokyo, BBC hljómsveitina í Wales og Skotlandi auk flestra stærstu hljómsveitanna á Norðurlöndum. Martin hefur ekki leikið með Sin- fóníuhljómsveit íslands en hann seg- ist hafa mikinn áhuga á því í framtíð- inni. „Ég vildi fá Martin hingað svo hann myndi kynnast íslensku tónlist- arlífi með svolítið dýpri hætti,“ segir Þórarinn. „Einnig vonast ég til að samvinna að þessum hætti eigi eftir að skila sér í auknum samböndum fyrir íslenska tónlistarmenn, bæði flytjendur og tónskáld." Verkið er talið hafa verið málað árið 1895 og er áætlað söluverð þess á bilinu 9-12 milljónir punda, eða á milli einn og 1,4 milljarðar króna er það verður boðið upp ásamt öðrum verkum frá tímum impressionistanna f London næst- komandi miðvikudag. Á ferli sínum hefur Martin getið sér orð fyrir sérstæða sviðsfram- komu. Hann vinnur gjarnan með dönsurum, látbragðsleikurum og ljósahönnuðum. Hann mun sýna ís- lenskum áhorfendum hvers hann er megnugur á því sviði í verki Anders Hillborg þar sem hann notar lát- bragðsleik og ljós til viðbótar við tónlistarflutninginn. „Verkið er reyndar skrifað fyrir hljómsveit,“ segir Martin. „Vanalega tekur það um 35 mínútur í flutningi en hér mun ég flytja styttri útgáfu af verkinu og nota hljóðgervilshljóð af geisladiski með undirleiknum." Hann segist hafa gaman af að fara ótroðnar slóðir þegar kemur að framkomu. „Ég reyni samt að fara varlega og ofgera ekki hlutunum.“ MYJVDLIST Hallgrímskirkja MYNDVERK KARÓLÍNA LÁRUSDÓTTIR Opið á tímum kirkjunnar. Til 1. september. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ var Karólína Lárusdóttir sem reið á vaðið með myndlistar- verk í forhúsi Hallgrímskirkju á sín- um tíma. Voru það nokkrar litauð- ugar vatnslitamyndir sem vöktu drjúga athygli og varð vel heppnað framtakið til þess að framhald varð hér á og hefur fjöldi ólíkra mynd- listarmanna sýnt á staðnum síðan við misjafnar undirtektir eins og gengur. í heildina hefur þetta tekist með ágætum, en mikilvægast er þó að listaverkin taka á móti gestunum, kirkjan sjálf enn fátæk af mynd- skreytingum, þau gegna þannig stóru hlutverki þar til úr verður bætt en hér liggur lítið á, öllu skiptir að vel takist til. Nú er annar heildarsvipur yfir myndum Karólínu en fyrrum, óheftrar litagleði sér einungis stað í myndinni „Fyrirheit" (2), en annars eru litirnir dökkir, blæbrigða- og safaríkir, formin samþjappaðri, heildstæðari og sterkari. Ér hér vís- að til vatnslitamyndanna en þar er listakonan á heimavelli hvað öryggi og sköpunargleði snertir, jafnframt eru þau hnitmiðuðust í myndbygg- ingu. Ég man ekki eftir að hafa séð jafn heildstæðar myndir eftir hana og er þá nokkuð sagt, og þrátt fyrir að gengið sé út frá sömu grunntón- unum er um mikla fjölbreytni og hugmyndaauðgi að ræða í hinni bundnu útfærslu myndheildanna. Þetta heitir að beisla innri lífæðar Þess má geta að árið 1991 var Martin valinn „Flytjandi ársins" af tímaritinu Opernwelt Yearbook fyrir þátttöku sína í óperunni Rottu- veiðarinn frá Hameln í Þýskalandi. „Það er mjög óvanalegt að hljóð- færaleikari hljóti slíkan titil hjá blaði sem sérhæfir sig í umfjöllun um óp- eru,“ segir Þórarinn kíminn Frumflutningur á færeysku tónverki Þeir félagar Martin og Þorsteinn Gauti munu fi-umflytja verk eftir færeyska höfundinn Kristian Blak. „Þetta er nútímaverk og nokkuð erf- itt,“ segir Þorsteinn Gauti. Þórarinn kveður það stefnu í Nordvest Musik að frumflytja ný verk frá þessum þremur löndum. myndflatarins og það tekst ekki fyrr en eftir áralanga þjálfun skynsviðs- ins, í raun þjónar pensillinn þá mun frekar skynjun listamannsins á við- fangsefninu hverju sinni en fastmót- aðri reglufestu, hugmyndafræði eða tækni. Tæknin er hér einungis með- al í þjónustu skynjunarinnar sem gerir myndirnar eitthvað svo himin- hrópandi sjálfsagðar og eðlilegar. Þær eins og kveikja líf í þeim sem skoðar því viðbrögðin láta ekki á sér standa og væri svo einnig þótt þær væru ekki trúarlegs eðlis, myndflöt- urinn iðar af lífi, forvitni og spurn um tilgang lífsins. Gerandinn hefur þannig merkilega ríka þörf fyrir að læða að áleitinni spurn á myndflet- inum, hann lætur áhorfandann ekki í friði sem ósjálfrátt fer að leita svara og haldfestu. Þannig upplifði ég sterkari viðbrögð hjá skoðendum við fyrstu yfirferð en ég hef orðið „Það var frumflutt stórt verk eftir Átla Heimi í maí og því komið að því að flytja verk frá Færeyjum." Hrifínn af verkum íslenskra tónskálda Martin segist vera hrifinn af verk- um íslenskra tónskálda og vonast til að hitta eitthvert þeirra á meðan heimsókninni stendur. Hann mun alltént ekki fara á mis við íslenska náttúru því þegar hér var komið sögu hafði hann farið í Bláa lónið, í reiðtúr og skoðað Gullfoss og Geysi. „Vanalega stoppa ég ekki svona lengi í þeim löndum sem ég spila í,“ segir Martin sem er mjög bókaður um heim allan á næstu vikum. Tónleikamir í íslensku óperunni í kvöld hefjast kl. 20.30 vitni að áður og hvers getur lista- maður óskað sér frekar. Þarna var til að mynda ungt par, sennilega út- lendingar, sem dokaði lengi við hverja mynd fyrir sig niðursokkið í óskilgreindar samræður, þó frekar myndirnar sjálfar en boðskapinn í þeim ef ekki hvorttveggja. Ekki er mögulegt að gera upp á milli dökku vatnslitamyndanna sem eru hver annarri hrifmeiri en vafa- lítið er myndin „Uppstigningardag- ur“ (1), áhrifamest í byggingu. Hér er helst aðdáunarvert hve vel Karó- línu Lárusdóttur tekst að rækta sinn garð og í engum miðli hennar sér eins mikillar blæbrigða- og tjáningarauðgi stað og í vatnslita- myndunum, það er hennar heimur og hér skipar hún sér í raðir bestu myndlistarmanna þjóðarinnar. Bragi Ásgeirsson Reuters Uppboð á verkum im- pressionista undirbúið Uppstigningardagurinn ■ Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson. Fyrirheit, vatnslitir, 101 x 67 sm.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.