Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 27
Steinunn Sigurðardóttir hvílir Iúin bein eins og ferðamóðir gerðu
forðum undir vörðum við Þverárvatnið sem rísa þar úr auðninni á Mel-
kolli og virðast ekki hafa annað hlutverk en að bera þeim er þær hlóðu
þögult vitni um snilli þeirra.
Vörðuþyrping á
Norður-Héraði
Vaðbrekku. Morgunblaðið.
VÖRÐURNAR sem standa vestur
af Þverárvatni á Jökuldalsheiði
eru áhugaverðar að skoða enda
með afbrigðum vel hlaðnar. Vörð-
ur hafa verið vegvísir ferðamóð-
um gegnum árin en svo virðist þó
ekki vera um þessar vörður og
helst er að sjá að þær hafi verið
hlaðnar á þessum stað þar sem
svo gott steintak er í melnum sem
þær standa á.
Þessar vörður hafa að öllum
líkindum verið hlaðnar snemma á
síðustu öld af feðgum sem bjuggu
á Brú mestalla nítjándu öldina og
hétu báðir Einar Einarsson. Vörð-
urnar eru því allt að tvö hundruð
ára gamlar og hafa staðist tímans
tönn vel, utan hvað Halldór Sig-
varðsson bóndi á Brú hressti að-
eins uppá þær um miðja þessa
öld, enda afburða hleðslumaður.
Morgunblaöið/Golli
Gamall símklefí
á nýjum stað
ENDURGERÐ símklefans sem
setti sterkan svip á Lækjartorg frá
fjórða áratugnum og fram á þann
áttunda, hefur verið sett upp utan
við Fjarskiptasafnið í gömlu loft-
skeytastöðinni á Melunum.
Upprunalegi klefinn fór í
geymslu á athafnasvæði Símans á
Jörfa en fauk í ofviðri og brotnaði í
spón. Klefinn er sérstæður í útliti
og af svonefndri pagóðu-gerð, sem
dregur nafn sitt af því að lagið á
þakinu þykir líkjast austurlensku
hofi.
Að sögn Ólafs Þ. Stephensen,
forstöðumanns upplýsingamála hjá
Landssíma íslands, hafði klefinn
verið fenginn frá sænska símanum
og var leitað þangað eftir öðrum
eins til að koma upp við Fjarskipta-
safnið. Svíar áttu hins vegar engan
klefa á lager en vísuðu á þarlent
fyrirtæki sem smíðar gamla sím-
klefa eftir teikningum. Þaðan er
klefinn sem nú stendur á Melunum
fenginn. Fljótlega verður settur
sími í klefann þannig að hann þjóni
sínu gamla hlutverki á ný.
Að sögn Ólafs er fyrirhugað að
koma upp fleiri símaminjum á lóð
Fjarskiptasafnsins, t.d. stagfestum
og bútum sem enn eru til úr loft-
skeytamöstrunum, sem gnæfðu yfir
Melana í hálfan fjórða áratug.
Wm
KJé^
Kældu þig
á ströndinni
Með gjaldeyrinum færðu tösku sem heldur
drykkjunum þínum köldum.
Nú fá allir þeir sem kaupa gjaldeyri hjá Sparisjóði
vélstjóra fyrir 30.000 eða meira glæsilega fjölnota
sumartösku að gjöf!*
Taskan er tilvalin á ströndina því hún heldur bæði
nestinu þínu og drykkjunum köldum í sólinni.
Allt er á sínum stað í sumartösku SPV.
Sparisjóður vélstjóra hefur allar helstu tegundir
gjaldeyris til sölu, allt frá dollara til drökmu.
Verið velkomin á afgreiðslustaði okkar
í Síðumúla 1, Rofabæ 39 og Borgartúni 18.
Sími 575 4000
* Meðan birgðir endast.
< II )
spv
Sparisjóður
vélstjóra
www.spv.is