Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 29
FRÉTTIR
Viðbygging við Héraðshælið á Blönduósi
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Erlendur G. Eysteinsson
formaður Héraðsnefndar A-Hún (til hægri) ásamt skrifstofustjóra Heil-
brigðisráðuneytisins Sveini Magnuússyni, glaðbeitt eftir að hafa gengið
frá samningi um verklok á viðbyggingu við Héraðshælið á Blönduósi
Reglur um viðlagatryggingu
Sjálfsábyrgð
falli niður
Takmark
í augsýn
eftir 22 ár
Blöndutísi..Morgunblaðið.
INGIBJORG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra og Erlendur G.
Eysteinsson formaður Hérað-
snefndar A-Húnavatnssýslu undir-
rituðu á föstudag samning um Iok
á framkvæmdum við viðbyggingu
á Héraðshælinu á Blönduósi.
Samningurinn tekur til lokafrá-
gangs á kjallara þar sem komið
verður upp aðstöðu fyrir sjúkra-
þjálfun, kapellu og aðstöðu fyrir
kistulagningu.
Verkið verður boðið út í haust
og er gert ráð fyrir því að kostnað-
ur nemi um 24 milljónum króna og
skiptist þannig að ríkið greiði 45%
Skipaður í
embætti Seðla-
bankastjóra
SKIPUN Eiríks
Guðnasonar í
embætti Seðla-
bankasljóra hefur
verið framlengd í
fimm ár frá 1. maí
síðastliðnum.
Eiríkur var
skipaður banka-
stjóri við Seðla-
banka Islands til sex ára frá 1. maí
1994 og lauk fyrsta skipunartímabili
hans því í lok apríl síðastliðins.
kostnaðar, framkvæmdasjóður
aldraðra 40% og Héraðsnefnd A-
Hún. 15%. Með undirritun þessa
samnings hillir undir verklok á 22
ára framkvæmdum á stækkun Hér-
aðshælisins á Blönduósi en gert er
ráð fyrir þvf að þessum lokafram-
kvæmdum ljúki í mars á næsta ári.
ÁRNI Johnsen, fyrsti þingmaður
Simnlendinga, hyggst beita sér fyrir
breytingum á reglum um viðlaga-
tryggingu en hann kveðst vilja að
sjálfsábyrgð vegna tjóns sem fellur
undir viðlagatryggingu verði afnum-
in. Arni sagði að hann hefði ekki enn-
þá fengið botn í það hvort breyta
þyrfti lögum, eða hvort reglugerðar-
breyting væri nóg, en að hann myndi í
öllu falli beita sér fyiir nauðsynlegum
breytingum við fyrsta tækifæri.
Skv. lögum um Viðlagatryggingu
íslands er sjálfsábyrgð þeirra sem
verða fyrir tjóni sem fellur undir við-
lagatryggingu 5% en að lágmarki
51.600 kr. Bætir Viðlagatrygging að-
eins beint eignatjón.
A fundi þingmanna Suðurlands
með sveitarstjórum og oddvitum í öllu
lqördæminu á Hellu á fimmtudag
lýsti Jónas Jónsson, oddviti á Hellu,
þeirri skoðun að sjálfsábyrgð á innbúi
sem orðið hefði vegna jarðskjálftanna
á Suðurlandi væri óeðlileg. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að hann hefði viljað koma athuga-
semdum sínum á framfæri á þessum
fundi þar sem hann vissi að þar yrðu
allir þingmenn kjördæmisins.
Sjálfsábyrgðin óeðlilega há mið-
að við aðrar tryggingar
Jónas sagði að sér fyndist sjálfsá-
byrgðin óeðlilega há á viðlagatrygg-
ingu. Hún væri mun hærri en al-
mennt gerðist, t.d. væri engin
sjálfsábyrgð á foktjóni og hún væri
aðeins ellefu þúsund krónur vegna
brunaskemmda. Þetta væri ekki síst
óeðlilegt þegar það væri haft í huga
að allir fasteignaeigendur væru
skyldugir samkvæmt lögum til að
brunatryggja fasteignir, en hluti
þeirrar greiðslu rennur í viðlaga-
tryggingasjóð.
Jónas kvaðst einkum beina sjónum
sínum að sjálfsábyrgð vegna
skemmda á innanstokksmunum, hon-
um þætti nefnilega ekki óeðlilegt í
sjálfú sér að 5% sjálfsábyrgð væri á
fasteigninni. Hitt væri óeðlilegt að
fólk þyrfti að borga að lágmarki
51.600 krónur vegna innbústjóns, það
væri kannski að glata sjónvarpi, leir-
taui og öðru þess háttar og lágmarkið
væri alltof hátt. Upphæð sem þessi
kæmi nefnilega talsvert við pyngju
fólks.
Eftir tölu Jónasar á fundinum á
Hellu gerði Níels Indriðason, mats-
maður hjá Viðlagatryggingu, grein
fyrir því að reglurnar væru reyndar
þannig að þegar bæði hefði orðið hú-
stjón og innbústjón þá greiddi fólk
sjálfsábyrgð aðeins einu sinni, en ekki
fyrir hvort tjónið um sig.
Jónas segir að þetta hafi ekki áður
komið fram, jafnvel þó að heimamenn
hafi haldið nokkra ftmdi með fulltrú-
um Viðlagatryggingar í vikunni. Þessi
nýju tíðindi breyti sannarlega miklu.
Hitt sé annað mál að í mörgum tilfell-
um hafi ekki orðið skemmdir á fast-
eign í skjálftunum heldur aðeins á
innanstokksmunum.
Um 2.000 manns
í Nauthólsvík
UM 2.000 manns komu saman í
Nauthólsvík sl. fóstudagskvöld
þegar mest var en þar var skipu-
lögð skemmtidagskrá. Að sögn
lögreglu virðist sem erillinn hafi
færst úr miðbænum suður í Naut-
hólsvík því rólegt var í miðbænum
á þessum tíma. Einhverjir pústrar
urðu á staðnum og var einn fluttur
á slysadeild eftir slagsmál.
Þá var lögreglan kvödd að Mið-
dalsvegi í Mosfellsbæ þar sem
maður hafði fallið af hestbaki.
Hann lá meðvitundarlaus í göt-
unni þegar lögreglan kom á stað-
inn um kl. 5 aðfaranótt laugar-
dagsins.
Þá voru sex manns teknir ölvað-
ir við akstur í borginni undir
morgun.
BÍLASALAN
Stærsta vörubíla- og
tækjasala landsins
ífDniini
■ ■■■■■Uflv
Kaplahrauni 2-4, Hafnarfirði,
sími 565 2727, netfang bilhraun@simnet.is,
heimasíða www.simnet.is/hraun/
Benz 309, árg. 1987,
14 manna.
Benz 24.35 6x4, árg. 1989,
með stól.
Benz 24.35 8 hjóla, árg. 1989,
með kassa og kæli.
Liebherr PR 722, árg. 1991.
Fleigur N.P.K 500.10416 og
Contech 450 kg fleigur.
Scania 93
með kassa.
1993,
Scania 142 6x2, árg. 1983,
með stól.
Scania 143 H 6x4, árg. 1991,
með stól.
Man 10.150, árg. 1991,
með kassa og kæli.
Jork flatvagn, 2ja öxla á
fjöðrum, árg. 1984.
O&K, RH6 Beltavél, árg. 1990,
ekinn 10.700 stundir.
Álvagn 3ja öxla á lofti,
árg 1991.
BÍLASALAN
HRAUN
Kaplahrauni 2-4, Hafnarfirði, sími 565 2727,
netfang bilhraun@simnet.is.