Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 35
:
I
I
I
I
I
I
I
I
Gleymdir staðir
x Morgunblaðið /Amaldur
Hópurinn frá Oslo undirbýr sig af kappi.
Kaupmannahafnarhópurinn skemmtir sér yfir hjólbörunum.
Vinna arkitekta
Reykjavík er frekar ung sem
borg, hér eru fáar tilvitnanir í
miðaldir og endurreisn, margar í
bifreiðar og nútíma. Það endur-
speglar að sjálfsögðu sögu okkar
og stöðu síðustu aldir. Hverfin
standa sem lifandi frásagnir um
efnahag, mannlegar áherslur og
hugsjónir hverrar kynslóðar. Vinna
arkitekta felst ekki síst í að túlka
þessar hræringar 1 yfirveguðu
formi og rými. Rétt eins og Hall-
dór Laxness átti stóran þátt í
ákveðnum sjálfsskilningi þjóðar-
innar með skrifum sínum um sjálf-
stætt fólk í harðbýlu landi og
Jóhannes Kjarval túlkaði ófrjó-
samar hraunbreiður með pensli og
litum, svo þjóðin sá fegurðina í
þeim, þannig getur arkitektúr tjáð
og styrkt sjálfsímynd lítillar þjóðar
við sérstakar aðstæður. Arkitekta-
nemar eru ekki síst fánaberar til-
raunastai’fsemi og þreifinga á púlsi
samtíðarinnar. I náminu gefst færi
á að taka ekkert sem gefið og leika
sér með ýmsar hugmyndir og
form, nálgast viðfangsefnin á
óvenjulegan hátt og velta upp nýj-
um sjónarhornum á umhverfið. A
tímum hraða og skyndilausna er
kannski sérstaklega nauðsynlegt
að styrkja skilning fyrir samhengi
hlutanna - vinna áfram og þróa
það sem vel hefur verið gert sam-
tímis því að finna nýjar leiðir fyrir
ný viðfangsefni.
Kortlagning gleymdra staða
Vinna arkitektanemanna í þess-
ari lotu getur aldrei verið annað en
spor í sandi. Tilgangurinn er að
nema og túlka rými og vekja at-
hygli á tilvist staða sem hafa
gleymst eða jafnvel aldrei verið
uppgötvaðir. Því má kannski líkja
við tiltekt í kjallaranum, fram í
dagsljósið koma löngu liðnir at-
burðir og hlutir sem má nota í nýju
samhengi. Það skerpir á athyglinni
og tilfinningu okkar fyrir því um-
hverfi sem við lifum og hrærumst
í, sem er nauðsynlegt til að borgin
megi þróast með virðingu fyrir
sjálfri sér.
Höfimdurinn er útskrifaður arkitekt
frá Arkitektskolen i Aarhus, Dan-
mörku 1994. Hún hefur unnið sem
arkitektá teiknistofum í Árðsum og
sem kennari í arkitektúr og miðlun
við Arkitektskolen i Aarhus, en
starfar núá teiknistofunni GIánm-
Kím samfara setu í stjðm ÍSARK.
Námskeiðið Gleymdir
staðir er haldið í sam-
vinnu við Norrænu arki-
tektaakademíuna, með
48 þátttakendur frá 8
arkitektaskólum á
N orðurlöndunum.
Markmið námskeiðs Is-
lenska arkitektaskólans
segir Dagur Egg-
ertsson vera að stuðla
að auknum skilningi á
menningu og hinu
byggða umhverfi
-
á Islandi.
ÍSARK - íslenski arkitektaskólinn
er sjálfstætt starfandi félag, stofn-
að af Arkitektafélagi íslands 1994
til að vinna að mótun kennslu í arki-
tektúr á íslandi. Síðstu vikuna hef-
ur skólinn gengist fyrir sumarnám-
skeiði fyrir arkitektanema af
Norðurlöndum og er verkefnið lið-
ur í dagskrá Reykjavíkur - menn-
ingarborgar árið 2000. Námskeiðið
er haldið í samvinnu við undirritað-
an og Samtök norrænu arkitekta-
skólanna undirbúið samvinnuverk-
efni arkitektanema með yfir-
skriftina „Gleymdir staðir“.
Yfirskrift námskeiðs Islenska
arkitektaskólans var Gleymdir
staðir - landnám tómra bæjarrýma.
Hugmyndin var að fá nemendurna
til að takast á við ónumda staði og
svæði sem orðið hafa út undan við
þróun Reykjavíkurborgar. Staðir
sem þessir eru fyrirbæri sem fyrir-
finnast í meiri eða minni mæli í öll-
um borgum heimsins.
Hér á landi hefur lítið verið tekið
á þeim skipulagslegu vandamálum
sem skapast í kring um staði sem
þessa. Framþróun Reykjavíkur-
borgar byggir enn þá að miklu leyti
á þeirri þenslustefnu sem réð ríkj-
um í borgarskipulagi vestrænna
þjóða eftir iðnbyltinguna og allt
fram undir lok 7. áratugarins. Víða
erlendis hefur athyglin í ríkari
mæli beinst að þéttingu byggðar og
nýtingu hinna ónumdu og illa skipu-
lögðu staða. A námskeiðinu voru
nemendurnir þvi fengnir til að
rannsaka byggðavef Reykjavíkur,
sögu hans og þróunarferli. Þeim
var gert að velja sér ákveðna staði
til að vinna með og gera tillögur að
framþróun á.
Lokaniðurstöðurnar voru hóp-
amir svo látnir einfalda og byggja í
steinsteypu, að öllu leyti eða að
hluta til. I fyrsta hluta verkefnisins,
sem fór fram frá febrúar til júní, fór
söguskoðunin og hönnunarvinnan
fram. Hóparnir þróuðu með sér að-
ferðir til landnáms hinna gleymdu
staða, hver í sínum skóla. Vinnan
byggðist að miklu leyti á könnun
korta og loftmynda, en einnig sögu-
legra heimilda sem lágu fyrir.
Staðarval hópanna var af ýmsum'
toga. Margir fengu augastað á stöð-
um við strandlengjuna, aðrir tókust
á við svæði í tengslum við borgar-
mörkin og enn aðrir réðust til at-
lögu við minni staði inni í byggðavef
borgarinnar. í síðari hiutanum
komu hóparnir til íslands. Voru
staðirnir skoðaðir, stikaðir út og
steypuvinnunni hrint af stað.
Vinnuaðstaðan var í húsnæði
Myndlistaskólans í Reykjavík í JL
húsinu.
Islenski Arkitektaskólinn stóð
einnig fyrir fyrirlestrum sem opnir
voru fyrir almenning ásamt sýn-
ingu á verkum nemendanna sem
opnaði í Listasafni Reykjavíkur í
gær og stendur til 2. júlí.
Höfundur var faglegur stjómandi
námskeiðs íslenska arkitektaskðlans
og er menntaður sem arkitckt frá
Arkitektaskðlanum í Óslð 1992 og M.
Arch. frá Tækniháskðlanum íHels-
inki 1996. Hann stundar kennslu-
störf við Arkitektaskðlann í Óslð og
hefurrekið eigin arkitektastofu þar
i borg undanfarin ár.
Horft yfir hafnarsvæðið í átt til Viðeyjar.
menn tekið markvisst á þessum þátt-
um og menntað fólk til að takast á við
þetta stórbrotna landslag sem um-
lykur fólk. Skóli gæti einmitt verið
ein af þeim miðstöðvum í íslensku
menningarlífi þar sem hægt væri að
nálgast gæði og sérkenni umhverfis-
ins. Með þá meðvitund að leiðarljósi
er hægt að tjá allt hið íslenska í arki-
tektúr og hinu manngerða umhverfi.
A Islandi er til aragrúi af byggingar-
efni sem menn geta, með tíð og tíma,
fært sér í nyt og jafnframt því þróað
þau efni og aðferðir sem tíðkast enn
þann dag í dag. Steinsteypa er eitt af
þessum efnum sem inniheldur ótal
ónýtta möguleika."
Fredrik Lund: „Á komandi árum
er það brýnt verkefni fyrir íslend-
inga að endurtaka ekki þau mistök
sem gerð voru víðast hvar um
Evrópu á 9. áratugnum, þegar
markmiðið var að byggja bæði fljótt
og ódýrt. Samfélagslegar hugsjónir
fyrri áratuga hurfu og hið byggða
umhverfi varð mjög sundurleitt.
Með stofnun náms í arldtektúr getur
maður spornað við þessum hugsun-
arhætti og stuðlað að aukinni með-
vitund almennings á samhengi
mannsins og umhverfisins."
Regin Schwaen: „Skóli er heimur
rannsókna og tilrauna. Ef hann vant-
ar í menningarsamfélag eins og Is-
land, þá bitnar það á menningarlegu
gildi arkitektúrs."
Stökktu
Benidorm
4. júlí
frá kr. 24.955
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Benidorm 4.júlí á hreint ótrúlegum kjörum. Þú bókar núna
og tryggir þér síðustu sætin í sólina júlí. 4 dögum fyrir
brottför hringjum við svo í þig og látum þig vita hvar þú
gistir. Sumarið er komið á fúlla ferð í júlí, 30 stiga hiti alla
daga, og þú getur valið um úrval spennandi kynnisferða með
fararstjórum Heimsferða.
Verð kr.
24.955
M.v. hjón með 2 böm, 7 nætur,
4. júlí
Verð kr.
44.990
M.v. 2 í íbúð/stúdíó, 2 vikur,
4. júlí
Verð kr.
34.990
M.v. 2 í stúdíó/íbúð, vikuferð,
4. júlí
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is