Morgunblaðið - 25.06.2000, Page 40

Morgunblaðið - 25.06.2000, Page 40
x 40 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Bróðir minn, GUÐMUNDUR PÉTURSSON bifreiðarstjóri, Ásenda 10, Reykjavík, lést þriðjudaginn 20. júní. Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 26. júní kl. 10.30. Anna Margrét Pétursdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA S. S. JÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsunginn frá kapellu Fossvogskirkju mánudaginn 26. júní kl. 13.30. Jóna L. Marteinsdóttir, Steinar Marteinsson, Salgerður S. Marteinsdóttir, Sigurður Böðvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, SIGURGEIRS GUNNARSSONAR húsasmfðameistara, Unufelli 25, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins fyrir frábæra umönnun og vináttu. Hrafnhildur Gísladóttir. Kristján Sigurgeirsson, Anna María Sigurðardóttir, Anna Brynja Sigurgeirsdóttir, Stellan Ragnar, Andrea Kristín og Lísa Katla. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, bróður og afa, GUNNLAUGS MATTHÍASAR JÓNSSONAR, Beykilundi 13, Akureyri. Jón Birgir Gunnlaugsson, Baldur Gunnlaugsson, Sævar Gunnlaugsson, Margrét Jónsdóttir, Eðvarð Jónsson Kolbrún Erna Magnúsdóttir, Elva Dröfn Sigurðardóttir, Kristín Dögg Jónsdóttir, Magnús Ottóson, og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, PÁLU KATRÍNAR EINARSDÓTTUR frá Hörgslandi. Guðmundur E. Björgvinsson, Már Á. Björgvinsson, Ragnheiður B. Björgvinsdóttir. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, ELSE AASS. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sidsel Aass Bergland. JÓNA ÞORFINNSDÓTTIR + Jóna Þorfinns- dóttir fæddist í Reykjavík 12. sept- ember 1929. Hún lést á heimili sínu á Dalbraut 27 í Reykjavík 19. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Þorfinnur Jú- líusson, f. 27. mars 1884, d. 5. ágúst 1931, og Hólmfríður Jónsdóttir, f. 19. jan- úar 1891, d. 9. júní 1964. Systkini Jónu Ólafiu voru Hjalti, f. 15. apríl 1919, Hulda Dagmar, f. 13. maí 1920, d. 14. mars 1991, Hólmfríður, f. 18. nóvember 1921, d. 22. sept. 1980, Lilja, f. 15. jan- úar 1923, d. 29. sept. 1997, kjör- foreldrar hcnnar voru Guðrún Katrín Jónsdóttir, f. 18. febrúar 1876, d. 20. júlí 1927, og Halldór Steinsen, f. 31. ágúst 1873, d. 25. des. 1961, Júlíana, f. 1. des. 1924, Sólveig, f. 1. des. 1924, d. 18. maí 1976, Liija, f. 11. des. 1925, og Ás- Tengdamóðir mín, Jóna Þorfinns- dóttir, lést á heimili sínu, Dalbraut 27,19. júní sl. eftir löng og erfið veik- indi.. Jóna fæddist í Reykjavík 12. sept- ember 1929 og var því liðlega sjötug þegar hún lést. Jóna var yngst 10 systkina og missti föður sinn er hún var á öðru ári. Móðir hennar sat þá uppi með barnahópinn og reyndi að halda hon- um saman, sem tókst í nokkur ár eða allt þar til móðir hennar missti heils- una. Þá var heimilið leyst upp er 5 systkim voru enn ófermd. Var Jónu þá komið í fóstur á nokkrum stöðum og meðal annars hjá elstu systur sinni, Huldu, þar sem henni leið vel. Hún saknaði ætíð samvistanna við móður sína og held ég að það hafi alla tíð sett mark sitt á hana. Sextán ára laug, f. 2. maí 1927. Þorfinnur átti tvær dætur fyrir, þær Ulf- hildi, f. 14. mars 1911, d. 15. des. 1971, og Sólveigu Sigurrós, f. 21. sept. 1912, d. 5. apríl 1974. Hólmfríð- ur átti einn son fyrir, Hilmar Hafstein, f. 15. apríl 1913. Jóna Ólafía giftist 12. sept. 1959 Friðriki Hafsteini Sigurðssyni, f. 27. aprfl 1929, d. 25. júní 1993. Þau slitu samvistir. Jóna og Friðrik Hafsteinn eign- uðust þijú börn: 1) Guðbjörgu Huldu, f. 26. ágúst 1947, maki Gunnar Árnmarsson, f. 20. febrúar 1946, þau eignuðust fjög- ur börn, a) Sigurð, f. 30. nóvem- ber 1968, maki Iðunn Saga Björnsdóttir, f. 22. júlí 1968, þau eiga Árna Gunnar, f. 19. mars 1999 og Sunnevu Líf, f. sama dag. Sigurður átti fyrir Aron Andra, f. 23. sept. 1989, b) Árna Jón, f. 22. var henni komið fyrir í vist í Keflavík þar sem hún kynntist manni sínum, Friðriki Hafsteini Sigurðssyni. Þar stofnuðu þau heimili ung að árum og eignuðust þrjú böm. Þau slitu sam- vistir 1967. Tengdamóðir mín var tíguleg kona, prúð í fasi og framkomu og lét sér annt um útlit sitt allt íram á hinsta dag. Ég átti því láni að fagna að fá að kynnast henni er ég kynntist syni hennar, Sigurði Friðrikssyni, sem síðar varð eiginmaður minn. Frá fyrstu tíð var mér tekið opnum örmum af vináttu og hlýhug sem aldrei bar skugga á. Jóna var kjörkuð og kraftmikil kona í því sem hún tók sér fyrir hendur. Á meðan heilsan leyfði vann hún við ýmis störf, meðal annars í frystihúsum í Keflavík og við framreiðslustörf hjá Loftleiðum á des. 1969, d. 4. febrúar 1993. Hann eignaðist Heiðu Kristínu, f. 4. janúar 1992, c) Jónu Sigríði, f. 16. febrúar 1982 og d) Maríu Björk, f. 23. nóvember 1984. 2) Hólmfríði, f. 13. des. 1948, maki Gunnar Ingvarsson, f. 11. aprfl 1947, þau eiga eitt bam a) Hafdisi Jónu, f. 22. janúar 1966, maki Snorri Magnússon, f. 23. júní 1964, þau eiga Gunnar Dag, f. 6. mars 1984, Snorra Halldór, f. 26. janúar 1989, og Dagmar Ýri, f. 19. des. 1990. Snorri ættleiddi drenginn Gunnar Dag. 3) Sigurð, f. 27. ágúst 1951, maki Sigríður María Pétursdóttir, f. 1. febr. 1950, þau eiga þrjú böm, a) Lindu Björk, f. 1. mars 1973, hún á dreng f. 31. maí 2000, b) Pétur, f. 19. júní 1977, unnusta Malena Birna Baldursdóttir, f. 19. nóvem- ber 1977, og c) Helgu Rán, f. 9. ágúst 1979. Sigurður átti son fyrir, Ragnar, f. 26. aprfl 1972. Jóna var lengst af heimavinn- andi húsmóðir í Keflavík en vann einnig við fiskvinnslu hjá Atlantor í Keflavík, hjá Loftleiðum á Kefla- víkurflugvelli og sem matráðs- kona í mötuneytum þar til hún missti heilsu. Útfór Jónu fer fram frá Foss- vogskirkju á morgun og hefst at- höfnin klukkan 15. Keflavíkurflugvelli þar sem hún var þekkt fyrir dugnað og snyrtimennku í vinnubrögðum. Allt hennar hand- bragð bar vott um fágun og fæmi þar sem sérhver þráður hafði sitt hlut> verk. Tengdamóðir mín var fremur dul í skapi og flíkaði ekki tilfinningum sín- um. Nægjusemi og útsjónarsemi voru henni í blóð borin og hún lifði samkvæmt þeirri hugsun að sælla væri að gefa en þiggja. Kom það ber- lega fram í allri þeirri umhyggju sem hún bar fyrir bömum sínum, bama- bömum og langömmubömum allt fram á síðasta dag. Jóna bjó í Kefla- vík allt til ársins 1989 en flutti þá til Reykjavíkur. í september sl. flutti Jóna, farin að heilsu, á Dalbraut 27 þar sem hún naut góðrar aðhlynning- ar og umönnunar. Þórhallur Björnsson fædd- ist á Víkingavatni í Kelduhverfi í N- Þing. 9. janúar 1910. Hann lést á hjúkrun- arheimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 16. júni siðastliðinn og fór útför hans fram frá Digraneskirkju 22. júní. Með Þórhalli Björnssyni er horfinn af sjónarsviðinu glæsi- legur fulltrúi þeiiTar kynslóðar, sem á síðustu öld helg- aði samvinnufélögunum starfs- krafta sína. Allt frá unglingsárum starfaði hann hjá Kf. Norður-Þing- eyinga á Kópaskeri. Hann var í starfi hjá Sambandinu í Kaup- mannahöfn og í Reykjavík 1930- 1931 og hjá Kf. Eyfirðinga 1932- 1935. Arið 1947 tók hann við starfi kaupfélagsstjóra hjá Kf. Norður- Þingeyinga af föður sínum, Birni Kristjánssyni, alþingismanni. Þór- hallur stýrði KNÞ af annáluðum skörangsskap allt til ársins 1966, en þá hvarf hann til starfa hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga í Reykjavík. Þar var hann lengst af aðalféhirðir, en síðustu þrjú árin fulltrúi forstjóra, uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1981. Þórhallur kom til starfa í Reykjavík réttu ári áður en ég tók aftur að starfa hjá Sambandinu í Reykjavík eftir nokkurra ára dvöl erlendis. Tókst strax með okkur góður kunningsskapur, sem síðar þróaðist upp í einlæga vináttu. Það hefur stundum verið sagt að Norð- ur-Þingeyingar séu mestir heimsborgarar allra íslendinga og sé þetta rétt, þá er það víst að Þórhallur Björnsson var gott dæmi um þessa mann- gerð. Hann var gædd- ur afar fágaðri fram- komu, manna skemmtilegastur í við- ræðu, enda fjölfróður, einkum um það er varðaði viðskipti og at- vinnumál. Talnaglögg- ur var Þórhallur með afbrigðum og kom það sér vel í starfi hans hjá Samband- inu. Á starfstíma hans hygg ég að Sambandið hafi haft meira umleikis en nokkurt annað fyrirtæki á Is- landi, en fjármál nær allra deilda vom þá í höndum forstjóra og aðal- féhirðis. Uppgjör á landbúnaðar- afurðum þóttu löngum í flóknara lagi og var stundum sagt, bæði í gamni og alvöru, að enginn maður á landinu öllu skildi þá reiknings- list til jafns við Þórhall Björnsson. Um og upp úr 1970 starfaði ég hjá þeirri deild Sambandsins, sem sinnti málefnum kaupfélaganna. Á þessum árum veittist mér sú sér- staka ánægja að fara með Þórhalli í heimsókn til kaupfélaga á Norð- austurlandi. Þetta var.að sumar- lagi, þegar dagur er lengstur, og ók Þórhallur okkur í jeppa sínum af Scout-gerð. Við fómm fyrir Mel- rakkasléttu, frá Kópaskeri til Rauf- arhafnar, með viðkomu í Leirhöfn. Einnig fórum við Öxarfjarðarheiði og raunar alla leið til Vopnafjarðar, og ekki má gleyma lokaáfanganum, sem var upp með Jökulsá á Fjöll- um vestanmegin. Þórhallur miðlaði mér miklum fróðleik um byggðina, sem var honum svo kær, og um þá sem þar höfðu lifað og starfað, og sumt af þessu er mér raunar enn í fersku minni. En ofar áhrifum frá fögm landslagi og sögulegum fróð- leik lifir þó endurminningin um þá miklu virðingu sem Þórhalli var auðsýnd, hvar sem okkur bar að garði. Mér gat ekki dulist að ferða- félagi minn og leiðsögumaður var héraðshöfðingi, kominn að sækja heim sitt fólk. Þó að Þórhallur væri hættur að sinna daglegum störfum lét hann sér mjög annt um málefni kaupfélaganna, Sambandsins og skyldra fyrirtækja. Hann kom reglulega í heimsókn til mín og áreiðanlega fleiri Sambandsmanna og lét sig miklu varða framgang þeirra mála, sem efst vom á baugi hverju sinni. Síðasta heimsóknin mun hafa verið fyrir fjórum til fimm árum og hann sagði mér síð- ar, þegar ég leit til hans í Hamra- borg, að það hefði verið síðasta ferð hans af bæ „undir eigin afli“ eins og hann orðaði það. Eftir- minnilegt verður okkur níræðisaf- mæli hans í janúar sl., þar sem stór hópur mannvænlegra afkomenda, tengdabörn og vinir söfnuðust sam- an til að votta hinum aldna heiðurs- manni virðingu sínu. Heilsunni var að sönnu tekið að hraka, en höfð- ingleg framkoman og ljúfmennskan vom söm við sig. Að leiðarlokum minnumst við Inga með þakklæti og virðingu margra ljúfra samvemstunda með Þórhalli og konu hans Margréti Friðriksdóttur, sem lést árið 1989. Hinum stóra afkomendahópi send- um við innilegustu samúðarkveðj- ur. Ég veit að ég mæli fyrir munn þeirra mörgu, sem áttu samleið með Þórhalli á vettvangi samvinnu- félaganna, þegar ég þakka honum ómetanleg störf hans á því sviði. Blessuð sé minning Þórhalls Bjömssonar. Hvíli hann í friði. Sigurður Markússon. ÞÓRHALLUR BJÖRNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.