Morgunblaðið - 25.06.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 25.06.2000, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Leikarar og aðstandendur Þjóðleikhússins fóru í reisu til Grænlands Brotið blað í leikhússögu Grænlands LEIKARAR og aðstandendur Þjóðleikhússins fóru í boðsferð til Grænlands í lok maí til að setja upp Brúðuheimili Ibsens á stóra arViði menningarsetursins Katuaqs í Nuuk. Skemmst er frá því að segja að leikhópnum var tekið opnum örmum og vakti sýningin storm- andi lukku. Það er ekki oft sem svo stórar og viðamiklar leiksýningar hafa verið settar á svið í Grænlandi og því vakti hinn íslenski listvið- burður þeim mun meiri athygli. Hefur því jafnvel verið fleygt að blað hafi verið brotið í stuttri leik- hússögu Grænlands, t.a.m. fyrir þær sakir að menningarsetrið Katuaqs er aðeins þriggja ára gamalt og var þetta stærsta at- vinnuleiksýning sem þar hefur ver- ið sett upp og nokkurs konar vígsla fyrir þetta glæsilega hús á svo veigamiklum listviðburði. Stefán Baldursson, þjóðleikhússtjóri og leikstjóri sýningarinnar, var með í för og segir hann að gestgjafarnir hafi litið á heimsóknina sumpartinn sem tilraun og róið í raun blint í sjóinn bæði með hvernig til tækist að setja upp stórt leikverk í húsinu og hverjar viðtökur heimamanna við slíkum menningarviðburði yrðu. Forsætisráðherra lofar sýninguna Það er mál manna að tilraunin hafi tekist með miklum ágætum. Sýningin fékk rífandi aðsókn og dagblöð í Grænlandi fjölluðu ríku- lega um heimsóknina á mjög jákvæðan máta. Jonathan Motz- feldt, forsætisráðherra grænlensku heimastjórnarinnar, gerði hana SumarT.T. 3.júlí Núna líka yfir sumarið 5 vikna hefðbundið TT námskeið +8 vikna opið kort. (Má leggja inn). FRA TOPPITIL TAAR i i Eitt viðurkenndasta námskeið sinnar tegundar fyrir þær sem þurfa að léttast um 15 kg. og meira. Inttnun stenánr yjlt { stnta 581 373° FUNIÍIR - VIGTUN MÆLING - MATARÆÐI PASTAPOTTAR---------------- Pasta-og gufusuðupottur kr. 7.900 7 Itr. 18/10 stál. yjfc Pastavél kr. 4.500. . Il* yPIPAR OG SALT Klapparstíg 44 » Simi 562 3614 I Lágmúia 9 • Stmí 581 3730 Islensku listamennirnir ásamt gestgjöfum fyrir framan móttökuhús landsstjórnarinnar grænlensku. t.a.m. að sérstöku umfjöllunarefni í grein sem hann ritar í grænlenska blaðið Sermitsiak. Þar segir hann að sýningin hafi verið stórkostleg upplifun sem seint muni úr minni renna. Þykur honum sérlega vænt um hversu vel heppnaðist að bjóða bæði upp á danska og grænlenska túlkun á leiksýningunni, sem leik- húsgestum stóð til boða í gegnum heyrnartól. Auk þess að sýna Brúðuheimilið sat íslenski leikhúshópurinn fund með Lise Skifte Lennert, ráðherra- menntamála á Grænlandi, og full- trúum grænlensks leikhússlífs en þar er starfandi einn lítill atvinnu- leikhópur, Silamiut að nafni, sem hingað til hefur einungis sett upp lítil tilraunaverk byggð á græn- lenskri sagnahefð og sögum inuíta frá Kanada og Alaska. A fundinum var ræddur eindreginn vilji græn- lenskra leikhúsfólksins til að ráðast í uppsetningu alvöru leikverka í fullri lengd, verks á borð við Brúðuheimilið. Stefán telur heim- sóknina sumpartinn hafa verið lið- ur í að veita þeirra framfaraþróun brautargengi: „Okkar hlutverk á fundinum var að reyna setja gest- gjafa okkar inn í hvað felur í sér að setja upp eins viðamikla sýningu og Brúðuheimilið, hversu mikil vinna lægi að baki henni og hver kostnaðurinn væri. Þeir voru afar áhugasamir um leikhúsreksturinn og leikhúslífið almennt á íslandi." Gestunum íslensku var tekið sem fyrr segir af miklum höfðingsskap og var mikið gert til að dvöl þeirra yrði sem ánægjulegust. Jonathan Motzfeldt, forsætisráðherra, hélt veglega móttöku og efnt var til vel heppnaðrar hvalaskoðunarferðar. Leikhúsferðin sigursæla var styrkt af menntamálaráðuneytinu, Menningarborginni og norrænu leiklistar- og dansnefndinni. Baldur Trausti Hreinsson og Elva Ósk Óskarsdóttir léku aðalhlutverkin í Brúðuheimilinu en Baldur fór í fyrsta sinn með hlutverkið og fengu bæði lofsamlega dóma. Pálmi Gestsson, Stefán Baldursson, Lise Skifte Lennert, menntamála- ráðherra Grænlands, og Jonathan Motzfeldt forsætisráðherra. Tekur þú É amoti gestum isumarfríinu? Auð hús eru auðfengið fé í augum innbrotsþjófa. Ekki spilla sumarleyfinu með óþarfa áhyggjum. Öryggismiðstöð íslands er starfrækt allan sólarhringinn. Þar fylgjast sérþjálfaðir öryggisverðir með boðum frá öryggiskerfum, brunaviðvörunarkerfum, neyðarkallskerfum og öðrum viðvörunarkerfum. Farandgæsla okkar til eftirlits með húsnæði og tækjabúnaði er sérsniðin að óskum hvers viðskiptavinar. Hafðu samband við öryggisráðgjafa okkar. Síminn er 533 2400 Knarrarvogi 2,104 Reykjavík sími 533 2400, fax 53.3 2412
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.