Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 25
ERLENT
Tvær aftök-
ur í Texas
Huntsville íTexas. AP.
ÁÆTLAÐ var að tveir dæmdir
glæpamenn yrðu teknir af lífi í Texas
í Bandaríkjunum í gærkvöldi, eða
síðastliðna nótt,
að íslenskum
tíma. Er þetta í
þriðja sinn síðan
dauðarefsing var
tekin upp á ný í
Texas 1982 sem
fleiri en einn
dauðamaður er
tekinn af lífi sama
daginn.
Annar mann-
anna, er taka átti
af lífi, var Oliver David Cruz, 33 ára,
sem dæmdur var til dauða fyrir að
hafa rænt, nauðgað og stungið til
bana 24 ára konu í San Antonio 1988.
Andstæðingar dauðarefsinga segja
að Cruz sé þroskaheftur, og hefm-
hann mælst með greindarvísitöluna
63. Hinn maðurinn var Brian Keith
Robertson, 36 ára, sem dæmdur var
til dauða fyrir að hafa stungið til bana
gömul hjón, sem voru nágrannar
hans, í Dallas 1986.
Tilviljun réð því að tveim dauða-
dómum skyldi fullnægt sama dag, að
sögn Heather Browne, fulltrúa
dómsmálaráðherra Texas. Dómarar í
héraði ákveða dagsetninguna hver í
sínu lagi, og hafa ekki samráð sín í
milli. Báðir mennirnir skyldu líflátnir
með banvænni sprautu, fyrst Robert-
son og svo Cruz klukkustundu síðar, í
ríkisfangelsinu í bænum Huntsville.
Þótt tvær aftökur sama dag séu
óvenjulegur atburður kemst hann
varla nærri því þegar fangaverðir í
Texas tóku fimm manns af lífi 8. febr-
úar 1924, er rafmagnsstóllinn var
fyrst tekinn í notkun.
Mál Robertsons og Cruz hafa ekki
fengið eins mikla athygli og aftaka
Gary Graham í Huntsville í júní.
Graham kvaðst saklaus og verjendur
hans sögðu hann ekki hafa fengið
réttláta málsmeðferð. Vakti það at-
hygli á Texas sem helsta aftökustað
Bandaríkjanna og stuðningi Georges
W. Bush, ríkisstjóra í Texas og for-
setaframbjóðanda repúblíkana, við
dauðarefsingar.
Sýknu- og sakaruppgjafaráð Tex-
as hafnaði því einróma að mælast til
þess að Bush frestaði aftökunum á
Robertson og Cruz. Hvorugur þeirra
hefur haldið fram sakleysi sínu, en
báðir segjast hafa verið undir áhrif-
um áfengis eða lyfja er þeir frömdu
glæpina. Cruz sagði í viðtali fyrir
skömmu að hann væri „ekki reiðu-
búinn til að deyja. Það hræðir mig
mest.“ Lögfræðingur Cruz, Jeff Pok-
orak, hélt því fram að kviðdómur í
málinu hefði ekki fengið nægar upp-
lýsingar um að skjólstæðingur sinn
hefði alla ævi verið þroskaheftur. Sá
sem hefur greindarvísitölu undir 70
telst vera að minnsta kosti „nokkuð
þroskaheftur," en saksóknari benti á
að Cruz hefði við fyrri mælingu talist
með greindarvísitölu yfir 70.
I sumum af þeim 25 ríkjum í
Bandaríkjunum, þar sem aftökur á
þroskaheftum morðingjum eru leyfð-
ar, er verið að kanna lagasetningu er
banni slíkt. Þing Texasríkis felldi fyr-
ir skömmu frumvarp um bann við af-
töku á þeim sem mælast með greind-
arvísitölu undir 65, en málið verður
aftur tekið upp á næsta ári.
Mexíkóborg. AFP.
JARÐSKJÁLFTI sem mældist 7,0
á Richter reið yfir Mexíkóborg í
gær. Olli hann ekki teljandi tjóni
en aftur á móti greip um sig mikil
geðshræring meðal íbúa borgar-
innar.
Greint var frá því að rafmagn
fór víða af og í mörgum hverfum
borgarinnar þustu skelfingu lostn-
ir íbúar út á götur.
Skjálftans varð einnig vart á
Harður
skjálfti í
Mexíkó
vesturströnd landsins og greindi
jarðskjálftastofnun Mexíkó frá því
í gær að upptök skjálftans hefðu
verið undan Michoacan-héraði sem
liggur við vesturströnd Mexíkó.
Nokkrir skjálftar hafa riðið yfir
Mexíkóborg og nærliggjandi héruð
að undanförnu og þann 21. síðasta
mánaðar varð þar vart við skjálfta
sem mældist 5,9 á Richter.
í júní á síðasta ári varð skjálfti
sem mældist 6,7 á Richter tugum
manna að bana en fimmtán ár eru
síðan gríðarlegur skjálfti varð um
4,200 að bana í Mexíkó-borg.
J'Jj er Jag !
VI6 rýmum fyrir nýrri vöru
Seljum í dag og næstu daga skjávarpa úr sýningasvæðum okkar með verulegum afslætti.
Verðdæmi
Tegund Upplausn Birta Verð
ASKC1 800x600 700 Ansi lumen 199.000 .-
InFocus Lp 400 800x600 700 Ansi lumen 199.000 .-
3M 8610 800x600 500 Ansi lumen 110.000 .-
3M8730 1024x768 650 Ansi lumen 299.000 .-
ASKA9 1024x768 1000 Ansi lumen 375.000 .-
Varan er til sýnis og sölu í verslun okkar að Borgartúni 37. Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
Tækin eru öll með eins árs ábyrgð. Vinsamlegast hafið samband við Sveinn Þ. Jónsson,
sveinn@nyherji.is eða 569 7606, eða Ágúst Gylfason, agustthor@nyherji.is
eða 569 7681.
Verð er með virðisaukaskatti.
3M InFbcus' Æ4SK
NÝHERJI
Borgartún 37 • 105 Reykjavfk
Sfmi 569 7700 • Fax 569 7799
Ðavid
Oliver Cruz
4
i
5
s
o
Alltaf von á góðu!