Morgunblaðið - 20.08.2000, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 13/8-19/8
► INNKAUPASTOFNUN
Reykjavíkur samþykkti á
mánudag að bjóða út alla
gagnaflutnings-, ljai -
skipta- og símaþjónustu
borgarinnar.
► SAMÞYKKT var ein-
róma í borgarráði á þriðju-
dag að hafna fyrirliggjandi
fimm ára samningi borgar-
ráðs milli Fræðsluráðs og
Línu.Nets um ljósleiðara-
tengingu grunnskóla
Reylqavíkur. Meirihlutinn
samþykkti gerð eins árs
samnings.
► SKIPULAGSSTOFNUN
hefur fallist á tillögu um
áætiun um mat á umhverf-
isáhrifum Kárahnjúka-
virkjunar. Áætlað er að
framkvæmdir geti hafist
sumarið 2002.
► ÚTLIT er fyrir að sauð-
fjárbændum fækki veru-
lega í haust, einkum í Eyja-
fírði og á Vesturlandi.
► LIFRARBÓLGA C er
orðin að faraldri meðal
sprautufíkla hér á landi.
200 af um 500 virkum
sprautufíklum hér á landi
eru smitaðir.
► SKAFTÁ hljóp siðustu
helgi, í annað sinn á viku-
tíma. Hlaupið, sem kom úr
eystri sigkatlinum, náði
hámarki við Sveinstind um
miðnætti á Iaugar-
dagskvöld og mældist
rennsli þá 1.300 rúmmetr-
ar á sekúndu en er vana-
lega 100-150 rúmmetrar á
sekúndu.
► ÍSLENDINGAR unnu
sinn fyrsta sigur á Svíum í
49 ár í iandsleik í fótbolta
sl. fimmtudag. fslendingar
unnu leikinn með tveimur
mörkum gegn einu.
Giftusamleg björgun
úr Jökulsá á Fjöllum
ÞRETTÁN manns var bjargað af
þaki rútu, sem sat föst í beljandi jök-
ulfljóti þar sem Lindaá og Jökulsá á
Fjöllum renna svo til samsíða
skammt norðan Herðubreiðalinda,
sl. miðvikudag. Rútan festist í ánni
eftir að vegkantur gaf sig og gróf áin
undan honum á skömmum tíma.
Bílstjórinn synti í land eftir hjálp
og hafði öllum verið bjargað af þaki
rútunnar rúmlega þrjú, eftir þriggja
tíma veru á rútuþakinu. Tveir land-
verðir héldu á slysstað og sigldu bát
að rútunni. Honum hvolfdi við rút-
una og komust þeir við illan leik upp
á þakið og biðu björgunar ásamt hin-
um.
Þrír létust af
völdum slysa
KONA lést er hún féll niður í Jökuls-
árgljúfur á föstudag. Konan, sem var
frá ísrael, féll ofan í gljúfrin við
Dettifoss og hafnaði á undirlendi við
fossinn. Það er 40-50 metra fall.
Banaslys varð í Þorskafirði á Barða-
strönd síðdegis á fimmtudag þegar
fólksbíll valt út af veginum.
Þýskir feðgar voru í bílnum og lést
sonurinn, sem var sextán ára. Á
mánudag lést stúlka sem slasaðist
lífshættulega í bílslysi á Suðurlands-
vegi 9. ágúst.
Afangi í rannsóknum
á alzheimer
VÍSINDAMÖNNUM íslenskrar
erfðagreiningar hefur tekist, í sam-
ráði við íslenska öldrunarlækna, að
kortleggja erfðavísi á litningi sem
talinn er hafa umtalsverð áhrif á
myndun alzheimer-sjúkdómsins.
Fyrirtækið hefur fengið áfanga-
greiðslu frá Hoffmann-La Roche
vegna þessa áfanga.
Rússneskur kafbátur
sekkur í Barentshaf
RÚSSNESKAR björgunarsveitir
hafa alla vikuna reynt að bjarga áhöfn
rússneska kjamorkukafbátsins Kúrsk
sem legið hefur á hafsbotni í Barents-
hafi frá því á laugardag í síðustu viku.
Allar tilraunir til þess að festa björg-
unarkúlu við skrokk Kúrsk hafa mis-
tekist sökum slæmra skilyrða ofan-
sjávar og neðan og legu bátsins. 118
manna áhöfn er um borð í kafbátnum
og þykir líklegt að hluti eða öll áhöfnin
hafi farist er slysið átti sér stað. Enn
er ekki ljóst hverjar orsakir slyssins
voru en hallast slysarannsóknarmenn
helst að því að Kúrsk hafi rekist á ótil-
greindan hlut á siglingu. Gæti sá hlut-
ur hafa verið ofansjávar eða neðan. Þá
hafa sérfræðingar sagt að sprenging
hefði getað orðið í framenda bátsins,
þar sem flugskeyti eru geymd.
Rússar hafa lýst því yfir að um leið
og kafbáturinn sökk hafi kjamorku-
kljúfamir tveir, sem knýja Kúrsk,
slökkt sjálfkrafa á sér og að engin
hætta stafi af þeim. Þá hafa þeir enn-
fremur fullyrt að engir kjarnaoddar
hafi verið á flugskeytunum í bátnum.
Umhverfisvemdarsamtök hafa þó lýst
yfir áhyggjum sínum vegna slyssins og
telja að gjöful fiskimið í Barentshafi
geti verið í hættu.
Erlend ríki buðu strax fram aðstoð
sína er fregnaðist af slysinu í Barents-
hafi á mánudag en Rússar þáðu ekki
hjálp fyrr en á miðvikudag, fjómm
dögum eftir atburðinn. Bretar og
Norðmenn bmgðust skjótt við og
sendu Bretar þegar sérbúinn björgun-
arkaibát, LR5, áleiðis á slysstað. Var
hann væntanlegur þangað í dag. Þá
sendu Norðmenn sérsveit kafara á
staðinn til að aðstoða bresku sveitina.
Rússneskir ráðamenn og yfirstjórn
flotans hafa sætt mikilli gagnrýni
rússnesks almennings og fjölmiðla
vegna viðbragða við slysinu. Þykir
ámælisvert hversu lítið Vladimír Pútín
Rússlandsforseti hafði sig í frammi á
sumardvalarstað sínum við Svartahaf.
► AL Gore, varaforseti og
frambjóðandi Demókrata-
flokksins til næstu forseta-
kosninga, tók á fímmtudag
formlega við útnefningu
flokks síns og lagði í ræðu
sinni áherslu á framtíðina.
Hlaut Gore yfírleitt góða
dóma fyrir ræðu sína á
fíokksþingi demókrata í
Los Angeles í vikunni og á
föstudag virtist sem skoð-
anir fólks á ræðunni birt-
ust í fylgisaukningu við
framboð demókrata.
Mældist fylgi repúblikan-
ans George W. Bush 47% á
meðan Gore hlaut 42%. Er
þetta minni munur en áð-
ur.
► Flugmálayfirvöld í
Bretlandi og Frakklandi
lögðu til á þriðjudag að
flughæfísskírteini Con-
corde-þotna verði aftur-
kallað og stöðvaði breska
flugfélagið British
Airways því allt flug
Concorde-þotna félagsins.
Enn er verið að rannsaka
orsakir Concorde-fíug-
slyssins í Frakklandi í síð-
asta mánuði og sagði yfir-
maður British Airways að
rannsóknarnefnd flugslysa
myndi mælast til þess að
flughæfisskírteinið yrði
ógilt.
► UPPBOÐI þýska ríkis-
ins á rekstrarleyfum í
væntanlegu UMTS-far-
símakerfí lauk á fímmtu-
dag eftir 173 umferðir á 14
uppboðsdögum. Þegar upp
var staðið skilaði uppboðið
sem svarar 3.660 milljörð-
um króna og verður ágóð-
anum varið í að grynnka á
skuldum þýska ríkisins.
FRÉTTIR
Skotveiðimenn halda á gæsaveiðar í dag
Morgunblaðið/Omar
Þessar grágæsir þurfa að vanda val á lendingarstað afar vel ætli þær ekki að lenda í klðm skotveiðimanna.
Beðnir um að draga
úr veiðum á grágæs
SKOTVEIÐIMENN halda nú á gæsa-
veiðar en veiðitími fyrir grágæs og
heiðagæs hefst um allt land á sunnu-
dag og stendur fram til 15. mars.
Veiðar eru hins vegar bannaðar á
flestum friðlýstum svæðum. Á eign-
arlandi eru veiðar háðar leyfí land-
eiganda. Skotveiðar á blesgæs og
helsingja hefjast 1. september en
helsingi er friðaður í Skaftafellssýsl-
um til 25. september.
Grágæs hefur fækkað
Amór Þórir Sigfússon, fuglafræð-
ingur hjá Náttúrufræðistoftiun Is-
Iands, segir að ástand gæsastofnanna
sé enn ekki að fullu Ijóst. Talning fer
fram á Bretlandseyjum að hausti og
tölur frá síðasta ári, sem venjulega
berast í bytjun ágúst, hafa ekki enn
skilað sér. „Heiðagæsastofnhm hefur
verið í jafhvægi, í kringum 230 þús-
und fuglar í þessum talningum und-
Piltarnir enn
í öndunarvél
PILTARNIR tveir, sem lentu í
flugslysinu í Skerjafirði hinn 7.
ágúst, er enn haldið sofandi í
öndunarvél.
Samkvæmt upplýsingum frá
gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi er líðan piltanna, sem
báðir eru 17 ára gamlir,
óbreytt.
anfarin ár, og ég á ekki von á öðru en
það haldist. Grágæsin hefur hins
vegar verið á niðurleið,“ segir Am-
ór. Frá 1996-1998 hefur grágæsar-
stofninn þó verið í jafnvægi, í kring-
um 80 þúsund fuglar. Amór segir
ástæðu til að fylgjast vel með stofn-
stærð grágæsarinnar enda sé veiði-
álag á stofninn meira en á heiðagæs-
ina. „Við höfúm hvatt veiðimenn til
að sýna hóf í veiðum á grágæsinni en
sækja frekar í heiðagæsina," segir
Amór. Það hafí þó ekki borið mikinn
árangur. Hann segir að það gæti
komið að því að draga þyrfti úr veið-
um á grágæs með aðgerðum. Það
flæki þó málið að grágæsin er veidd í
öðmm löndum, t.a.m. í Bretlandi.
Rannsóknir standa nú yfir á áhrifum
veiða á grágæsastofninn. Gæsir hafa
verið merktar hér á landi sl. fímm ár.
Hlaðnir bjartsýni
Upplýsingar um afföll af stofnin-
um ættu að liggja fyrir á næsta ári.
Ef ástæða þykir til mun Náttúm-
fræðistofnun leggja það til við um-
hverfisráðherra að gripið verði til
aðgerða til að minnka veiðar.
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotvíss, félags skotveiðimanna,
segir að um 5000 manns fari til
gæsaveiða á hveiju hausti. „Við er-
um alltaf hlaðnir bjartsýni í byijun
veiðitímans," segir Sigmar. Mönn-
um sýnist sem gæsavarpið hafi
heppnast vel og gæsastofhar því
sterkir. Sigmar segir að veiðiálagið
á grágæs sé þó heldur mikið. Við því
sé í raun lítið að gera. Grágæsin sé
hændari að mönnum og sæki gjam-
an í ræktað land. Heiðagæsin er
styggari og því erfiðara við hana að
eiga. „Ég hef það á tilfinningunni að
veiðimenn séu í æ ríkara mæli að
snúa sér að heiðagæsinni," segir
Sigmar. Ástæðan er m.a. sú að
þrengt hefur að möguleikum höfuð-
borgarbúa að komast í grágæsaveiði
þar sem margir eru um hituna á til-
tölulega litlu svæði.
Sigmar er alls ekki á því að veiði-
álag á íslenska fuglastofna sé of
mikið. Á vissum svæðum, sérstak-
lega í nágrenni Reykjavíkur, geti þó
veiðar verið orðnar of miklar enda
búi meirhluti íslendinga þar. Hann
telur að reyndir veiðimenn sæki í
auknurn mæli sækja út á lands-
byggðina til veiða.
Borgaði 6.400 krónur til þess
að komast fram fyrir í röð
VIÐSKIPTAVINI Tæknivals var
komið í opna skjöldu þegar honum
BOKJi
ÞVERSKURÐUR
AFÍSLENSKRI
BYGGINGARLIST
Úrvals leiðsögurít um fslenska
byggingarlist þar sem um
150 byggingar frá ýmsum
tímum eru kynntar.
Bókina prýðir fjöldi litmynda,
teikninga og korta.
Bókin er fáanleg á íslensku,
ensku og þýsku.
Mál og menning
malogmennlng.is
Laugavegl 18 • Sfmi 515 2500 • Síðumúla 7 • Síml 510 2500
var boðið að borga 6.400 krónur auk
viðgerðarkostnaðar til þess að fá
gert við tölvuna sína sem fyrst. Að
sögn mannsins nam heildarkostnað-
ur viðgerðarinnar um 13 þúsund
krónum og var aukagjaldið tæpur
helmingur af því, en maðurinn gat
einungis verið án tölvunnar í stuttan
tíma og var því boðið að greiða fyrr-
greinda upphæð til þess að komast
fram fyrir röðina. Að sögn mannsins
hefði hann annars þurft að bíða í viku
eftir tölvunni.
„Þarna er um að ræða hraðþjón-
ustu,“ sagði Árni Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Tæknivals, í samtali
við Morgunblaðið. Að sögn Áma er
gefinn upp áætlaður viðgerðartími
og er tekið mið af því hve mikið ligg-
ur fyrir hjá viðgerðarmönnum.
„Hins vegar ef viðkomandi þarf á
tölvunni að halda fyrr er boðið upp á
svokallaða hraðþjónustu," sagði Árni
og að hans sögn er þama einungis
verið að ræða um eðlilega viðskipta-
hætti sem tíðkast hafa lengi. Hann
sagði ennfremur eðlilegt að bjóða
upp á mismunandi þjónustustig.
„Það er væri annað og mikilvægara
mál ef við væram að skila tölvunni án
þess að hafa gert við hana,“ sagði
Ámi.