Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 19
Lífslista-
maðurinn
MYJVPLIST
Listasafn Kópavogs
LISTMÁLARINN
SIGFÚS HALLDÓRSSON
Opið alla daga frá 12-18. Lokað
mánudaga. Til 17. september. Að-
gangur 300 krónur í allt húsið.
Á FÖSTUDAGSKVÖLD var opn-
uð sýningin Listmálarinn Sigfús
Halldórsson.
Listasafn Kópavogs hefur með at-
hafnir þessa fjölhæfa lífslistamanns í
návígi við pentskúfinn að gera. Sigfús
Halldórsson hefði orðið áttræður 7.
september næstkomandi og sýning-
unni komið á laggirnai’ í því tilefni, en
hann var heiðursborgari Kópavogs
og er hér á ferð lofsverð ræktarsemi
við minningu listamannsins sem lést
1996. Allir íslendingar þekktu til
þessa manns, því ekki er ofsagt að
hann hafi víða komið við í leik og
starfi, lífi og list. Varð fyrst kunnur
íyrir athafnir sínar á leiksviði, eink-
um revíum og hóf þó listferil sinn 16
ára með þvi að hantéra málaragræj-
urnar í málaraskóla þeirra Bjöms
Bjömssonar gullsmiðs og Marteins
Guðmundssonar myndhöggvara, og
telst það vænlegur þroskaaldur til að
hefja slíkt nám. Áður hafði hann
komist í beina snertingu við pensla og
liti er honum einhverra hluta vegna
var falið að mála Landlæknishúsið og
Torfuna, en þaðan blasti skóli þeirra
félaga við á mótum Skólastrætis og
og kann að hafa haft smitandi áhrif.
Það var svo vegna vinnu sinnar í
Útvegsbankanum, þar sem leikarar á
borð við Brynjólf Jóhannesson og
Indriða Waage voru fyrir, að áhugi
Sigfúsar beindist að leiklist og svo
einhvem veginn og rökrétt að leik-
tjaldamálun. í tónlistinni var Sigfús
að mestu sjálfmenntaður, en innan-
búðar í Iðnó, þar sem Leikfélag
Reykjavíkur var til húsa, var píanó
sem hann mátti hamra á og slíkir
voru náttúruhæfileikamir að innan
tíðar var ungi maðurinn orðinn und-
irleikari hjá vinsælum revíusöngvur-
um og skemmtikröftum á borð við
Brynjólf Jóhannesson og Alfreð And-
résson. Rýnirinn man glögglega eftir
hinni miklu stemmningu í kringum
revíurnar sem vom stóra kikkið í höf-
uðborginni þá hann var að komast til
nokkurs þroska, leikaramir heims-
stjömur tímanna er allir litu upp til
og hér féll maðurinn með hlýja og
gáskafulla brosið vel inn í hópinn.
Árið 1944 hóf Sigfús nám í leik-
tjaldamálun við Slade fagurlistaskól-
ann í London, og lauk því með láði,
jafnframt var hann tíður gestur í
helstu leikhúsum borgarinnar og var
þannig mjög tengdur leikhúsheimin-
um, hefur og án efa sótt listasöfnin
sem þá þegar voru með þeim bestu í
Evrópu, en í hve miklum mæli veit ég
ekki. Heim kominn 1947 hélt hann
fyrstu sýningu á vinnubrögðum leik-
tjaldamálara sem haldin hafði verið á
landinu og þótti merkilegt framtak.
Sem nemandi á fyrsta ári í Handíða-
og myndlistaskólanum var skrifari
farinn að skoða allar sýningar og
framníngur Sigfúsar fór sannarlega
ekki framhjá honum. Menn báru
drjúga virðingu fyrir manninum og
tU hans voru gerðar miklar vænting-
ar, en meðbyrinn svo ekki sem skyldi
og kom til ósætti við þá grónu leik-
tjaldamálara er fyrir voru. Mun þeim
hafa fundist hinn ungi maður nokkuð
brokkgengur, að hefja feril sínn á
heilli sýningu eins og hann ætlaði að
gleypa þá með húð og hári, og galt
hér fyrir stórhug og bjartsýni. Eng-
um getur þó blandast hugur að í Sig-
fúsi bjó efni í drjúgan leiktjaldamál-
ara og þótt sumar sviðsmyndir hans
þyki yfirmáta hefðbundnar og gamal-
dags er svo er komið, fitjaði hann upp
á nýjungum sem komu við kaunin á
íhaldssamari starfsbræðrum hans.
Sigfús var því knúinn til að vinna
fyrir sér á almennum vettvangi jafn-
framt því sem hann málaði leiktjöld
fyrir frjálsa sýningarhópa, sem sumir
flökkuðu reglulega um landið við
ómældar vinsældir. Á skattstofu
Reykjavíkur vann hann frá 1957-
1968 og minnist ég hve gott var að
hafa þennan ljúfa mann innanbúðar á
þeim ískyggilega stað í Alþýðuhúsinu
á mótum Ingólfsstrætis og Hverfis-
götu. Greiddi þar götu listamanna og
var mjög uppsigað við yfirboðara
sína ef honum fannst álögur á þá mik-
ilvægu menn óréttmætar, talaði um
ofsóknir á hendur þeim. En hann bar
toppunum þó yfirleitt vel söguna og
sagði eitt sinn kankvíslega við mig, að
þrátt fyrir allt fengi hann alltaf frí til
að fara í jarðarfarir, jafnvel þótt vera
kynni að einhverjum fyndist þær
grunsamlega margar.
Sigfús undi þó ekki á staðnum og
svo fór að hann hóf að kenna mynd-
og handmennt við Langholtsskóla og
sinnti því til 1981, og var eðlilega afar
vinsæU hjá ungu kynslóðinni. Hann
lagði sig allan fram, hefur fundist
starfið ólíkt andríkara en á skattstof-
unni, minnist þess að hann sótti nám-
skeið undir minni stjóm í litafræði
við Myndlista- og handíðaskólann, og
var mjög áhugasamur, einkum var
honum skemmt þegar ég útskýrði
ýmis glópalán í samræmdum litasam-
setningum húsa á höfuðborgarsvæð-
inu. Eftir að Sigfús hætti kennslu
helgaði hann sig allan hugðarefnum
sínum og hélt meðal annars reglulega
málverkasýningar fram í andlátið.
Persónuleg kynni okkar hófust á
þeim timum er Sigfús var enn leik-
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
í Gijútaþorpi, 1970, vatnslitur, 41x53 sm.
Magnús Pálsson, leiktjaldamál-
ari og myndlistarmaður, 1959,
þurrkrít, 81x63 sm.
tjaldamálari og naut ég hér Sveins
bróður míns, en ævilöng vinátta
þeirra hófst er þeir urðu samferða í
ferju milli Stokkhólms og Helsing-
fors seint á fimmta áratugnum. Naut
ég þess á ýmsan hátt þótt leiðir okkar
sköruðust ekki oft, en einna minni-
stæðast er mér þá hann kallaði á mig
á hótelherbergi sitt í Ósló snemm-
vetrar 1952. Hjá honum var þá
Magnús Ásgeirsson skáld og þýðandi
og fleira fólk kom þangað sem horfið
er fullkomlega úr minni mínu, en þai’
situr Magnús, lífsgleðin og gáskinn í
Sigfúsi kyrfilega skorðuð. En frá því
hef ég sagt áður og endurtek ekki
hér.
í minn hlut hefur fallið að skrifa
um þó nokkrar sýningar Sigfúsar og
hyggst ég ekki endurtaka þær um-
sagnir mínai’ hér, lesa frekar í eitt
eða fleiri verk meðan á sýningunni
stendur. En slá má föstu að hér er um
mjög skilvirkt úrval verka lista-
mannsins að ræða og sem flestar
hliðar hans dregnai- fram. Og þrátt
fyrir að Sigfús hafi öðru fremur verið
málari gamalla húsa, eins konar sjón-
rænn skrásetjari þeirra, bera ýmis
myndverk annarra viðfangsefna með
sér að með honum bjuggu miklir
óþjálfaðir hæfileikar. Margar sinna
bestu mynda málar hann til að
mynda í skugga brauðstritsins, og
um starfslaun til að móta og dýpka
vinnubrögðin meðan hann var upp á
sitt besta var ekki að ræða. Vinnu-
brögðin eru þannig æði misjöfn, en
ég held að slá megi föstu að verðmæt-
ust séu þau í myndum er hann fer
sparlega með liti en tónar þá þess
meira líkt og sér stað í myndaröðinni
á endavegg Austursalar nr. 12-23,
sem og fleirum í líkum dúr,-
Sem málari kemur Sigfús sterkari
frá þessari sýningu en nokkurri ann-
arri áður, og nú er kominn timi tii að
menn safni saman bestu húsamynd-
um hans og gefi út í bók og þá má
búast við að ýmsir verði hissa.
I tilefni sýningarinnar hefur verið
gefin út vönduð sýningarskrá með
nokkrum litmyndum. Guðni Stefáns-
son, formaður stjómar Listasafns
Kópavogs, ritar inngang, en um list-
málarann Sigfús Halldórsson skrifar
Halldór Bjöm Runólfsson listsögu-
fræðingur og ferst það vel úr hendi.
Bragi Ásgeirsson
Nýkomin sending af sófasettum
ú góðu verði!
Vandað Mantelassi
leðursófasett, alklaett leðri
3+1 + 1. - Litir Vínrautt,
grænt, dökkkoníaksbrúnt
og Ijóskoníaksbrúnt V
• II
Hjá okkur eru Vlsa- og
Euro-raðsamningar
ávísuná staðgreiðslu
___________I
usqoqn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Síml 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
Grunnnám tréiðna - Húsasmíði / húsgagnasmíði
Hér er allt sem tengist tréiðnaði, bæði húsgögnum,
innréttingum og byggingum.
Grunnnám rafiðna
- Rafvirkjun / Rafeindavirkjun 3. önn
Ef þú vilt vinna við raflagnir, rafstýringar, sjónvörp,
tölvur eða hljómtæki.
Tölvufræðibraut
Helstu áfangar em: forritun, tölvufræði, hönnun,
stýringar, gagnasafiisfræði, netkerfi.
Hönnunarbraut
Byijunaráfangar í: teikningu, hönnunarsögu,
hstasögu, hta- og formfræði og málmsuðu.
Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina
Nýtt og spennandi gmnnnám fýrir: Grafíska miðlun,
vefsmíð, ljósmyndun, netstjóm, prentun, bókband
og prentsmíð.
Meistaraskóli
Allar almennnar-, rekstrar- og stjómunargreinar.
Faggreinar í klæðaskera- og kjólasaum.
I byggingagreinum og hársnyrtiiðn.
Almennt nám
Bókfætsla 102, danska 102/202, enska 102/202/212/303,
eðlisfræði 103, efnafræði 103, felagsfræði 102,
íslenska 102/202/242/252, stærðfræði 102/112/122/
202/243/323, þýska 103, fríhendisteikning 102/202/302,
grannteikning 103/203, hta- og formfræði 104,
listasaga 103, myndskurður 106, tölvufræði 103,
tölvuteikning 103/202, ritvinnsla 103.
Einnig má velja áfanga af þeim sérbrautum skólans
sem í boði eru (kvöldskóla Iðnskólans.
Námskeið
Ýmis námskeið verða í boði á haustönn og verða
þau auglýst síðar.
Innritun
Innritað verður 21., 22. og 23. ágúst kl. 16-19.
Kennsla hefst 28. ágúst.
Verð
Hver eining er á kr. 3.000, þó aldrei hæni upphæð
en kr. 27.000. Auk þess er fast innritunargjald kr. 3.000.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um þátttöku.
Upplýsingar í síma 552 6240
www.ir.is • ir@ir.is
W IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Skólavörðuholti • 101 Reykjavík