Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 26
26 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Helen Fielding hefur skrifað
tvær metsölubækur um
kvenhetju □Idamótastúlkna
út um ollan heirn, Bridget
Jones. Það sem byrjaði sem
lítill brandaradálkur í The
Independent er orðið sjólfs-
hjálparbók karlmanna til
að skilja konur betur og
hefur hjálpað konum út um
allan heim að skilja að for-
ritið Photoshop og förðun
getur gert alla sæta í
Cosmopolitan og Vogue.
Bókin hefur vakið athygli úti
um allan heim og er Bridget
Jones orðin kvenhetja nú-
tímakonunnar. Hetja með
sömu vandamál og við, of
feit, enginn elskar hana, hún
reykir og drekkur of mikið
og kann ekki á feng shui.
Loksins hefur verið ráðist i
gerð kvikmyndar um líf
Bridget Jones og sló Elisa-
bet Ólafsdóttir á þráðinn
til Helenar og spurði hana út
í lífið, tilveruna og Bridget.
FYRRI bókin heitir „Bridget
Jones’s diary“ og kom út 1996
en sú seinni heitir „The edge
of reason“ og kom hún út hér
á landi um síðustu jól. Bæk-
urnar eru skrifaðar í dagbókarformi
og byrjar hver dagur á því að
Bridget telur upp syndir sínar;
„Mánudagur 17. apríl 56,1 kg,
alkóhóleiningar 6 (drekkja sorgum),
sígarettur 9 (svæla út sorgir), kalór-
íur 3983 (kaffæra sorgir í fljótandi
spiki), jákvæð hugsun 1 (m.g.).
Segist Helen hafa fengið þá hug-
mynd einfaldlega með að glugga í
eigin dagbók frá skólaárunum þann-
ig að blaðakona fær á tilfinninguna
að hún sé að tala við Bridget sjálfa,
sem er mjög skemmtilegt.
Helen byrjaði að skrifa lítinn dálk
undir dulnefni um Bridget í The
Independent eins og kom fram áðan,
til að fjármagna fyrstu bókina sína,
sem hét Cause Celeb, en hún vakti
litla athygli. Þáð var ekki fyrr en all-
ir fóru að lofa dálkinn um Bridget að
Helen lét alla vita að þetta væri hún
sem væri að skrifa, mjög grunn-
hyggin að eigin sögn.
Núna er verið að taka upp kvik-
myndina um Bridget Jones í Nott-
ing Hill í Englandi og fer Reneé
Zellweger (Jerry Maguire; My, my-
self and Irene) með hlutverk Bridg-
etar, Hugh Grant með hlutverk
Daníels Cleaver en hann er kyn-
þokkafullur en tilfinningalega heft-
ur yfirmaður Bridgetar. Svo fer
enginn annar en Colin Firth með
hlutverk Marks Darcy’s en við
þekkjum hann úr þáttum eins og
Hroki og hleypidómar (Pride and
Prejudice). Eitt aukahlutverk sem
vert er að nefna er besta vinkona
Bridgetar, feministinn Shazzer eða
Sharon og fer Sally Phillips með
það, en hún er ljóshærða gellan með
þunnu varirnar í grínþáttunum
„Smack the pony“ sem voru sýndir
síðasta vetur við frábærar undir-
tektir.
Blaðakona hefur verið aðdáandi
Helenar Fielding um nokkurt skeið
og var því mjög stressuð þegar tól-
inu var lyft með titrandi hendi, og
svo þegar heyrðist á hinum endan-
um: „Hello“, var öll enskukunnátta
náttúrlega rokin út í veður og vind.
Helen var mjög viðkunnaleg og
hjálpaði blaðakonu á sporið með því
að byrja viðtalið með spurningum
um ísland og segja hvað hana lang-
aði til að koma í helgarferð og við
það fór stressið og viðtalið gat byrj-
að.
Hve lengi varstu með dálkinn áð-
ur en þú skrífaðir bókina?
„Ég byrjaði á dálkinum í The In-
dependent 1995 og fyrsta bókin kom
út 1996. Kvikmyndin er byggð á
fyrstu bókinni og hún verður
frumsýnd í febrúar á næsta ári.“
Skrifaðir þú einnig handrítið að
myndinni?
„Já, ég skrifaði hluta af því. Ég
byrjaði á því en það voru nokkrir
aðrir sem hjálpuðu mér mikið með
það og góður vinur minn Richie
Curtis (sem skrifaði handrit kvik-
myndanna Fjögur brúðkaup og
jarðarför og Notting Hill) setti loka-
punktinn á það. Ég hef þekkt hann í
fjölda ára og unnið mikið með hon-
um þannig að ég treysti honum jafn-
vel fyrir Bridget og sjálfri mér.“
Ert þú þátttakandi í gerð myndar-
innar, þetta ernú þín hugarsmíð?
„í rauninni ekki. Þegar þú ert að
skrifa þarftu annað hvort að vera al-
gjörlega með í öllu sem fram fer eða
halda þig fyrir utan batteríið og
treysta samstarfsfólkinu þínu. Ég
ákvað að taka þann pól í hæðina
enda treysti ég Richie fullkomlega
þar sem hann hjálpaði mér með gerð
bókarinnar fyrir fjórum árum, þau
vita nákvæmlega hvað ég vil. Samt
er ég nú svolítið stressuð, maður
veit aldrei nákvæmlega hvernig fer
með þessar bíómyndir.“
Bandarísk Bridget
Viðbrögð aðdáenda voru misjöfn
þegar fréttist að bandarísk kona
skyldi leika Brídget, var hún þitt
fyrsta val?
(Heyrst hefur að Helen hafi kúpl-
að sig út úr ferlinu eftir að Reneé
fékk hlutverkið en hún blæs á það.)
„Ég sá náttúrlega ekki um að
setja fólk í hlutverk en ég held að
hún eigi eftir að standa sig með
prýði. Um leið og hún fékk hlutverk-
ið flutti hún til Englands, fór í fitun
og æfði sig í að tala með því að vinna
hjá útgáfufyrirtæki.“
Bridget gegnir einnig því starfi.
„Þetta er nú ekkert tiltökumál,
Scarlett O’Hara í Á hverfanda hveli
(Gone with the wind) var bandarísk
en leikin af enskri konu og Gwyneth
Paltrow lék enska konu í Shake-
speare ástfanginn (Shakespeare in
love) þannig að ég hef nú afar litlar
áhyggjur af því að Reneé skuli vera
bandarísk, hún á eftir að vera fín
Bridget. Svo finnst mér Hugh Grant
vera frábær Daníel, hann er mjög
fyndinn að eðlisfari og svo er hann
náttúrlega einstaklega kynþokka-
fullur og hefur alltaf einhvern
stríðnisglampa í augunum. Það var
aðeins einn leikari myndarinnar sem
ég krafðist þess að fá og það er Colin
Firth. Hrifning Bridgetar á Mr.
Darcy í Hroki og hleypidómar er
eins konar rauður þráður í gegnum
báðar bækurnar og svo kynnist hún
Mark Darcy sem er hennar eigin
Mr. Darcy og ég varð að fá Colin
Firth til að leika Mark Darcy. Kar-
akterinn er náttúrlega byggður á
hinum upprunalega Mr. Darcy sem
hann lék í þáttunum þannig að ég er
viss um að hann á eftir að vera alveg
æðislegur. Ég fór meira að segja í
kvikmyndaverið þegar var verið að
taka upp atriði með honum og það
var ótrúleg tilfinning að sjá Colin
Firth segja það sem ég hafði skrifað
...draumi líkast,“ segir hún og and-
vaiyar dreymin.
I seinni bókinni fær Brídget það
skemmtilega verkefni að taka viðtal
við Colin Firth vegna nýútkominnar
bíómyndar (Fever Pitch) sem hann
leikur aðalhlutverkið í. Hún rústar
því svona nett með því að spyrja
bara um eitt ákveðið atriði þar sem
hann fer úr skyrtunni og dýfir sér í
stöðuvatn í einum þætti Hroka og
hleypidóma (mjög fyndið). Fékkstu
einhver viðbrögð frá honum sjálfum
eftir það?
„En fyndið að þú skyldir spyrja
mig um það, ég tók nefnilega þetta
viðtal í alvörunni. Ég var náttúrlega
búin að skrifa fyrri bókina og þar
sem Bridget finnst hann vera svo
mikið æði bað ég um raunverulegt
viðtal þar sem ég þóttist vera Bridg-
et og hann var voða alvarlegur leik-
ari sem gat ekki beðið eftir að klára
viðtalið. Þannig að ég fór til Rómar,
hitti hann og við fengum okkur
flösku af léttvíni og byrjuðum svo.
Við gátum varla gert viðtalið, við
hlógum svo geðveikislega mikið, og
ég notaði það næstum allt í seinni
bókina.“
Er hann eins heillandi og Brídget
segir hann vera?
„Ó, já. Algjörlega. Hann er meira
en draumur, hann er æðislegur,"
segir Helen og andvarpar enn
harkalegar en áðan. Greinilega mjög
skotin.
Hvor er sætarí, Mark Darcy eða
Hr. Darcy?
„Þetta er náttúrlega sami karakt-
erinn og hugmyndin um Darcy er
orðin post-modernískur ruglingur
inni í hausnum á mér, ég ruglast
sjálf á Hr.Darcy, Mark Darcy og
Colin Firth. Grunnhugmyndin að
Mark Darcy er Hr. Darcy úr þáttun-
um Hroki og hleypidómar sem Colin
Firth leikur. Og Colin Firth leikur
svo Mark Darcy í kvikmyndinni.
Mark Darcy er frægur lögfræðingur
sem Bridget kynnist í gegnum vini
foreldra sinna og er að keppa við
Daníel Cleaver um hjarta Bridgetar