Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 28
28 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
*
Mikið hefurfarið fyrirfrióarviðræðum leiðtoga ísraela og Palestínumanna f fjölmiólum. Minna hefur verió fjailaó
um þá fjölmörgu sem vinna að því meðal almennra borgara að undirbúa jarðveginn fyrir þær breytingar sem frióur
hefði í för meó sér. Sigrún Birna Birnisdóttir kynnti sér starf bandarísku samtakanna Seeds of Peace, sem hafa
það aó markmiði að sá friðarfræjum meöal ísraelskra og palestínskra ungiinga, og hitti þá Ned Lasarus og Sami
Al-Jundi sem hafa að miklum hluta byggt upp starf samtakanna í ísrael og á palestínsku sjálfstjórnarsvæöunum.
Hatrið hverfur ekki við
undirskrift leiðtoganna
SAMTÖKIN Seeds of
Peace voru stofnuð að
frumkvæði bandaríska
blaðamannsins John
Wallach árið 1993. Wall-
ach hafði þá starfað sem fréttastjóri
erlendra frétta hjá Hearst-fjöl-
miðlakeðjunni um árabil og sérhæft
sig í málefnum Mið-Austurlanda.
„John hafði fjallað um uppreisn
Palestínumanna Intifada og allar
þær styrjaldir sem háðar voru fyrir
botni Miðjarðarhafs frá árinu
1973,“ segir Ned Lasarus, verkefn-
isstjóri samtakanna í Israel. „Hann
var staddur í New York þegar
sprengja sprakk í heimsverslunar-
miðstöðinni World Trade Center
árið 1993 og sagði síðar að við
sprenginguna hefði eitthvað gefið
sig innra með honum. Hann hafi
verið búinn að fá nóg af því að
skrifa um endalausa hringiðu of-
beldis og fundist tími til kominn að
gera eitthvað í málinu.“
Wallach taldi vænlegast til ár-
angurs að vinna með ungu fólki sem
hefði enn ekki tekið virkan þátt í
átökunum. Hann ákvað að reyna að
skapa skilyrði til þess að þau gætu
notið samvista á jafnréttisgrund-
velli og rætt málin á opinskáan og
heiðarlegan hátt áður en þau stæðu
frammi fyrir því að taka þátt í átök-
um. „Starfs síns vegna var hann í
sambandi við áhrifamenn bæði í
Bandaríkjunum og fyrir botni
Miðjarðarhafs og hann ákvað að
nýta sér það til að koma á fót sum-
arbúðum fyrir ungt fólk frá Mið-
Austurlöndum," segir Ned. „Öll
undirbúningsvinna var unnin á ör-
fáum mánuðum og fyrsti hópurinn
kom saman í Maine í Bandaríkjun-
um sumarið 1993.“
I hópnum voru 42 ísraelskir, pal-
estínskir og egypskir strákar en
Reuters
Ungir Palestinumenn ganga að hermannasið við útskrift úr sumarbúðum herskárra Palestínumanna í Nablus á Vesturbakkanum en í búðunum eru
þátttakendur meðal annars þjálfaðir í því að ræna ísraelum. í sumarbúðum bandarfsku friðarsamtakanna Seeds of Peace er áhersla hins vegar lögð á
það að Israelar og arabar læri að lifa saman í friði.
Sami Al-Jundi sat í ísraelsku fangelsi í tíu ár
Sannfærðist um
ágæti friðsamlegra
baráttuaðferða
SAGAN sýnir að markmið
nást ekki með styrjöldum
heldur friðarsamningum,"
segir Sami Al-Jundi sem er alinn
upp í gömlu borginni í Jerúsalem.
Sami var handtekinn árið 1980
fyrir að tilheyra ungliðahreyfingu
Frelsissamtaka Palestínumanna,
sem þá var ólögleg, og sat 1 fangelsi
í tíu ár. Hann var átján ára er hann
var handtekinn og segist ekki hafa
unnið nein ofbeldisverk. Hann hafi
hins vegar verið hlynntur róttæk-
um aðgerðum enda hafi hann litið
svo á að Palestínumenn hefðu eng-
in önnur úrræði en að gera vopnaða
byltingu. „Eg trúði því að við yrð-
um að berjast fyrir heimalandi
okkar,“ segir hann. „í fangelsinu
komst ég síðan í kynni við hug-
myndir mikilmenna á borð við
Gandhi og sannfærðist um ágæti
friðsamlega baráttuaðferða."
Sami sat í fangelsi með öðrum
samviskuföngum og kynntist þar
mörgum helstu hugsuðum Palest-
ínumanna. Hann segir samvistirnar
við þessa menn hafa verið mjög
gefandi enda hafi þeir verið mjög
skipulagðir og staðráðnir í að nýta
tímann til þess að mennta sig og
bæta í stað þess að eyða honum.
„Þeir bentu mér á að þótt ég gæti
ekki farið út úr fangelsinu gæti ég
fengið umheiminn til mín með bók-
um,“ segir hann.
Fangamir skipulögðu námskeið
þar sem meðal annars var fjallað
um heimspeki, sögu og menningu
Palestínumanna og nágrannaþjóða
þeirra. Menntaðir fangar héldu fyr-
irlestra og miðluðu þannig þekk-
ingu sinni til annarra fanga en auk
þess lásu Sami og félagar hans
ógrynni af bókum sem þeir ræddu
og deildu hver með öðrum.
„Þegar ég losnaði úr fangelsinu
stóð uppreisn Palestínumanna, Int-
ifada, sem hæst,“ segir hann.
„Þrátt fyrir að ég hafi snúist gegn
ofbeldi stóð ég enn í þeirri mein-
ingu að uppreisn Palestínumanna
væri nauðsynleg og ég tel alrangt
að tala um ofbeldi í því sambandi.
Ég kalla grjótkast unglinga gegn
vopnuðum hennönnum ekki of-
beldi. Hafi einhver ofbeldisverk
verið framin voru þau framin af
ísraelskum hermönnum sem beittu
táragasi og gúmmíkúlum af
minnsta tilefni. Þeir þurftu ekki
annað en að sjá palestínskan fána
blakta við hún til að grípa til að-
gerða gegn óbreyttum borgurum.
Intifada beindist hins vegar gegn
hermönnum og landnemum en ekki
gegn almennum borgurum."
Eftir að Sami losnaði úr fangelsi
flutti hann fyrirlestra hjá hlutlaus-
um stofnunum á borð við Rauða
krossinn og ísraelsku friðarsamtök-
in Peace Now. Hann kynntist síðan
Ned árið 1996 og fór í framhaldi af
þvi að vinna með „Seeds of Peace“.
„Til að byrja með var ég ráðinn
sem bílstjóri en síðan bauðst mér
að taka þátt í skipulagningu starfs-
ins,“ segir hann. „Ég hugsaði málið
og sló síðan tíl.“
„Ósáttur við breytingar
á starfi samtakanna"
Hann segir marga vini sína eiga
erfitt með að sætta sig við að hann
vinni með Seeds of Peace. Þeir telja
starfsemi samtakanna miða að því
að gera hernámsástandið að eðli-
legu ástandi og þar með varanlegt.
„Eg er hins vegar bjartsýnismaður
og hef trú á að með starfi okkar
getum við stuðlað að nauðsynlegum
breytingum,“ segir hann. „Bæði
Palestínumenn og ísarelar þjást
vegna ástandsins. Fólk er þreytt á
átökunum og þarfnast friðar en það
veit ekki hvernig það getur stuðlað
að breytingum. Það þekkir engan
hinum megin víglínunnar og hefur
engin pólitísk áhrif. Þeir sem hafa
tekið þátt í starfi Seeds of Peace
þekkja hins vegar fólk hinum meg-
in víglínunnar og þeir hafa fengið
þjálfun í að koma tilfinningum sín-
um og hugsunum í orð. Þeir ættu
því að vera betur í stakk búnir að
stuðla að breytingum.“
Hann telur einnig gott fyrir pal-
estínsk ungmenni að komast í
kynni við samtökin vegna þeirra
tækifæra sem þau hafi upp á að
bjóða, svo sem námsstyrkja. Þá tel-
ur hann gott fyrir þau að fara til