Morgunblaðið - 20.08.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 53 .
FRETTIR
Hvað er stjórn-
málasaga?
DAGSKRÁ hádegisfunda Sagnfræð-
ingafélags íslands hefst á ný þriðju-
daginn 22. ágúst. Það er dr. Auður
Styrkársdóttir stjórnmálafræðingur
sem ríður á vaðið og flytur fyrirlest-
ur sem hún nefnir: „Stjórnmálasaga:
Vald var það, heillin." Fundurinn
verður haldinn í Norræna húsinu í
hádeginu kl. 12.05-13 og er hluti af
nýrri fyrirlestraröð Sagnfræðingafé-
lagins sem nefnd hefur verið: Hvað
er stjórnmálasaga?
Auður Styrkársdóttir er doktor í
stjómmálafræði og kenndi lengi við
félagsvísindadeild Háskóla Islands.
Rannsóknir hennar hafa einkum
beinst að hlut kvenna í stjómmálum,
þátttöku þeirra og áhrifum, og dokt-
orsritgerðin fjallaði um hið sögulega
efni gömlu kvennalistanna í Reykja-
vík og hvaða lærdóma stjómmála-
fræðin geti dregið af rannsóknum á
stjórnmálaþátttöku kvenna. Nýút-
komið er ritið Equal Democracies?
sem var samvinnuverkefni á vegum
Norðurlandaráðs um stjómmála-
þátttöku kvenna og áhrif þeirra á
Norðurlöndunum og sjálfsstjórnar-
svæðunum, en Auður var einn rit-
stjóra bókarinnar.
í fyrirlestrinum mun Auður fjalla
um samvinnu sagnfræðinnar og
stjórnmálafræðinnar, sundmngu
þeirrar samvinnu og varfærnislegar
þreifíngar á seinustu áram. Hún
mun einnig fjalla um þýðingu sagn-
fræðinnar fyrir stjórnmálafræðina
og þýðingu stjómmálafræðinnar fyr-
ir sagnfræðina, a.m.k. þar sem vald
kemur við Söguna. Þróunin á íslandi
verður rædd og hverjar framtíðar-
horfur eru.
í hönd fara níu fyrirlestrar um
spurninguna „Hvað er stjómmála-
saga?“ og af því tilefni hefur félagið
gefið út veglegt veggspjald með efni
fundanna og öðra sem verður á dag-
skrá félagsins í vetur. Veggspjaldinu
hefur verið dreift til félagsmanna
auk þess að liggja frammi á opinber-
um stöðum ókeypis.
Athygli skal vakin á að nú eins og
á síðasta starfsári má hlýða á fyrir-
lestra í fundaröðinni á heimasíðu
Sagnfræðingafélagsins (www.aka-
demia.is/saga) og einnig má lesa þá í
Kistunni, vefriti um hugvísindi á
slóðinni: www.hi.is/~mattsam/Kist-
an. I Kistunni er einnig að fmna
skoðanaskipti fyrirlesara og áhuga-
samra fundarmanna.
Hornafjörður
Fjallað um orsak-
ir eyðingar
grððurlenda
Á NÆSTA fyrirlestri á jöklasýning-
unni á Homafirði, þriðjudaginn, 22.
ágúst, mun Egill Jónsson, fyrrver-
andi alþingismaður og bóndi á Selja-
völlum í Nesjum, fjalla um orsakir
eyðingar gróðurlenda í Hornafírði
og Sveinn Runólfsson, landgræðslu-
stjóri ríkisins, fjalla um endurheimt
landgæða í Skógey.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru í
máli og myndum og við lok þeirra
verða oft líflegar umræður. Fyrir-
lestramir eru hluti af jöklasýning-
unni Vatnajökull, náttúra saga
mennining, sem er samstarfsverk-
efni Homafjarðar og Reykjavík
menningarborg Evrópu árið 2000.
Fyrirlestrarnir eru haldnir í
Sindrabæ og hefjast kl. 20.
Ótrúlegur árangur
$
NAILVITAL
Sterkar neglur á 2-3 vikum.
15% afsláttur
Tilboðið gildirtil 10. sept.
^ lyf&heilsa
B E T R I L í 0 A N
Fornsala Fornleifs — aðeins ó vefnum
Netfang: antique@simnet.is Sími 551 9130, 692 3499
Vef f ang:www.simnet.is/antique
__ __ _______________ r
Golfdagur Æskulínunnar og GSI
í samstarfi við Útilíf
Laugardaginn 26. ágúst verður haldinn golfdagur á „Ljúflingnum,“ æfingavelli Golfklúbbs Oddfellowa í
Urriðavatnsdölum í Heiðmörk.
Golfmót fyrir hádegi. Fyrir krakka 9-12 ára (fædd 1988-1991) sem eru vanir golfí. Leiknar verða 9 holur
og fyrstu keppendur eru ræstir út kl. 9. Skilyrði fyrir þátttöku er að vera skráður í golfklúbb.
Keppendur þurfa að koma með eigin kylfur.
Golfþrautir og golfæfingar frá kl. 13 eftir hádegi. Fyrir alla krakka 12 ára og yngri, byrjendur sem
lengra komna. Þátttakendur geta fengið lánaðar kylfur og boðið verður upp á tilsögn í golfi.
Ekkert þátttökugjald
Allir þátttakendur fá glaðning frá Æskulínunni
Verðlaunaafhending kl. 15
Verðlaun frá Útilífi
Nokkrir íbúar Latabæjar koma í heimsókn
Ball með hljómsveitinni Þotuliðinu kl. 15-16
Allir fá íspinna frá Kjörís
Skorkortahappdrætti. Öll skorkort úr golfmóti
og golfþrautum fara í pott, sem dregið verður úr
Þetta er tilvalið tækifæri til að kynnast skemmtilegri íþrótt. Hafið hraðann á og skráið ykkur sem fyrst
því fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Skráning er á Netinu, www.bi.is,www.krakkabanki.is eða í síma 525-6342 í markaðsdeild Búnaðarbankans.
Skráningin hefst mánudaginn 21. ágúst kl. 9.
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
k KU
L-í-n-a-n
ÚTILÍF