Morgunblaðið - 01.10.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
225. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar tilbúmr
að miðla málum
Milosevic kemur fram opinberlega
Belgrad, Moskvu. AFP, AP.
VLADIMIR Pútín, forseti Rúss-
lands, lýsti því yfir á laugardag að
Rússar væru reiðubúnir að miðla
málum milli stjómvalda og stjómar-
andstöðu í Serbíu. Bauðst hann til að
senda utanríkisráðherrann fgor ív-
anov til Belgrad í þeim tilgangi.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
fógnuðu yfirlýsingu Pútíns, en
stjómarandstæðingar hafa heitið því
að lama alla starfsemi í Serbíu ef
Slobodan Milosevic viðurkennir ekki
að hafa beðið ósigur fyrir Vojislav
Kostunica í forsetakosningunum um
síðustu helgi. Boðað hefur verið til
allsherj arverkfal ls frá og með mánu-
degi, segi forsetinn ekki af sér, og
mótmælafundir eru skipulagðir víðs
vegar um landið um helgina.
,Afstaða Rússa er skýr. Júgó-
slavneska þjóðin ætti að ákvarða ör-
lög sín sjálf, án utanaðkomandi af-
skipta," sagði Pútín í yfirlýsingu
sinni, en hann hafði ekki áður tjáð sig
um úrslit kosninganna. Rússar hafa
löngum verið bandamenn Serba, en
síðan Pútín var kjörinn forseti í mars
hafa rússnesk stjómvöld fjarlægst
stjórn Slobodans Milosevics.
Milosevic, sem hafði ekki komið
fram opinberlega eftir kosningamar,
reyndi að höfða til yfirmanna hersins
á laugardag, er hann hélt ávarp við
útskrift í herskóla í Belgrad. Minnti
hann útskriftamema á að hemum
bæri skylda til að verja frelsi og sjálf-
stæði landsins. Um 3 þúsund manns
voru viðstaddir útskriftarathöfnina,
en „einungis milli 100 og 150 fögnuðu
Milosevic með lófakiappi", að því er
óháða fréttastofan Beta skýrði frá.
Talið er að hollusta hersins við Mil-
osevic hafi farið dvínandi að undan-
förnu og að forsetinn geti ekki treyst
á stuðning hans til að halda völdum.
Sögusagnir vom á kreiki í Serbíu
um að Milosevic hefði flúið til
Moskvu, þar sem hann hefði ekki
sést opinberlega eftir kosningamar.
Rússneskir embættismenn hafa
hafnað vangaveltum um að hann
hyggist sækja um hæli þar í landi.
AP
Ungir Palestfnumenn kasta steinum að ísraelskum hermönnum á Gaza-svæðinu á laugardag.
Atök á Vesturbakkan-
Forsetakosningar í Baiidarikjimuni
Frambjóðendur deila
um fóstureyðingar
DEILAN um fóstureyðingar er nú
komin í hámæli í baráttunni fyrir
forsetakosningarnar í Bandaríkjun-
um, en frambjóðendur demókrata og
repúblikana em ósammála um þá
ákvörðun bandaríska lyfjaeftirlitsins
að leyfa sölu neyðargetnaðarvarnar-
pillu.
Neyðargetnaðarvörnin kom á
markað í Evrópu fyrir rúmum ára-
tug, en þáverandi Bandaríkjaforseti,
George Bush eldri, kom í veg fyrir að
hún yrði leyfð í Bandaríkjunum.
George W. Bush, sonur hans og for-
setaframbjóðandi repúblikana, hefur
gagnrýnt ákvörðun lyfjaeftirlitsins
harðlega og segir hana munu leiða til
þess að fóstureyðingum fjölgi. Bush,
sem er andvígur fóstureyðingum,
notaði einnig tækifærið og fullyrti að
næsti forseti Bandaríkjanna gæti
með skipun nýrra dómara breytt
hlutfalli andstæðinga og fylgjenda
fóstureyðinga í hæstarétti. Bush hef-
ur áður lýst því yfir að hann muni
hugsanlega taka mið af afstöðu
manna til fóstureyðinga við skipun
hæstaréttardómara.
A1 Gore, varaforseti og forseta-
frambjóðandi demókrata, fagnaði
því hins vegar að konum stæði nú
neyðargetnaðarvömin til boða, en
hann er fylgjandi rétti kvenna til að
láta eyða fóstri. Gore varaði við því
að ef Bush næði kjöri myndi hann
beita sér fyrir því að fóstureyðingar
yrðu bannaðar, en þær voru heimil-
aðar í Bandaríkjunum með úrskurði
hæstaréttar árið 1973.
■ Ólíkar áherslur/6
um og Gaza-svæðinu
Jerúsalem, Nablus, Reylyavík. AFP, AP.
AÐ minnsta kosti tólf Palestínu-
menn biðu bana og um 300 særðust í
átökum við ísraelska hermenn á
sjálfstjórnarsvæðum Palestínu-
manna á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu á laugardag. Fregnir bárust
einnig af skotbardaga milli ísra-
elskra hermanna og palestínskra
lögreglumanna við landnemabyggð
gyðinga á Gaza-svæðinu.
Þúsundir manna höfðu komið
saman á götum úti til að mótmæla
dauða sex Palestínumanna í átökum
á föstudag, en ísraelskir hermenn
reyndu að dreifa mótmælendunum
með því að skjóta að þeim gúmmí-
húðuðum málmkúlum. Lýst hafði
verið yfir sorgardegi vegna þeirra
sem féllu á föstudag. Boðað var til
allsherjarverkfalls á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu, búðir voru lok-
aðar og skólahald lá niðri.
Óeirðimar hófust á fimmtudag,
þegar Palestínumenn mótmæltu
heimsókn leiðtoga Likud-flokksins,
Ariels Sharons, á Musterisfjallið,
sem er einn helgasti staður bæði
gyðinga og múslima. ísraelskir lög-
reglumenn gerðu svo áhlaup á
mosku múslima í elsta hluta Jerúsal-
em á föstudag og skutu á unga Pal-
estínumenn, sem höfðu kastað grjóti
að gyðingum er voru að biðjast fyrir
við Grátmúrinn.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hvatti Israela
og Palestínumenn til að binda enda á
átökin á fréttamannafundi í Reykja-
vík á laugardag. Sagði hún að friðar-
viðræður þjóðanna væru á við-
kvæmu stigi og að óeirðirnar stefndu
þeim í hættu.
Danskir jafnaðarmenn funda um helgina fyrir upphaf þinghalds
Obreytt Evrópustefna og bið á sáttum
Kaupmannahöfn. Morgnnblaöið.
DANSKA stjórnin hyggst ekki
breyta stefnunni í Evrópumálum og
hefja viðræður við talsmenn and-
stæðinga aðildar að evrópska mynt-
bandalaginu þrátt fyrir að danskir
kjósendur hafi hafnað aðild í þjóðar-
atkvæðagreiðslu á fimmtudag. Und-
irbúningur fyrir leiðtogafund
Evrópusambandsins í Niee í desem-
ber, þar sem undirrita á nýjan sátt-
mála ESB, er kominn vel á veg og
Poul Nyrup Rasmussen forsætisráð-
herra segir ekki koma til greina að
breyta framlagi Dana til hans.
„Það er engin ástæða til að hrapa
að ályktunum. Við höfum nægan tíma
til að hugsa okkur um,“ sagði ráð-
herrann er hann var inntur eftir því
hvemig hann hygðist komast til móts
við talsmenn andstæðinga evrunnar.
Þinghald í Danmörku hefst að nýju
á þriðjudag og lokahönd er nú lögð á
stefnuræðu forsætisráðherra, en
heimildarmenn Politiken fullyrða að
endurskrifa verði Evrópukaflann í
ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Ljóst er að forsætisráðherrann og
leiðtogar flokkanna sem börðust fyr-
ir aðild hafa ekki hug á því að leita
ráða hjá talsmönnum nei-hreyfing-
Eignir fslendinga erlendis hafa
margfaldast á skömmum tíma
Lögin stuðla að
því að fjármagnið
fari úr landi
10
Það eru koqmir
gestir
28
MEÐ ALLT MILLI
HIMINS OG JARÐAR
anna svokölluðu. Marianne Jelved
viðskiptaráðherra sagðist þó reiðu-
búin að ræða við vinstriflokkana sem
voru í andstöðu við evruna þar sem
þeir styðja stjórnina á þingi. Ekki
kæmi hins vegar til greina að boða
nei-hreyfingarnar til viðræðna þar
sem þær ættu ekki þingkjörna full-
trúa.
Talsmenn andstöðunnar við evr-
una brugðust ókvæða við þessum
yfirlýsingum. Sagði Holger K. Niel-
sen, leiðtogi Sósíalíska vinstri-
flokksins, stjórnina verða að standa
við orð sín. Pia Kjærsgaard, leiðtogi
danska þjóðarflokksins, kvaðst hafa
orðið fyrir vonbrigðum með þessi
skilaboð stjórnarinnar en sagði þau
þó ekki koma á óvart.
MORGUNBLAÐIÐ 1. OKTÓBER 2000