Morgunblaðið - 01.10.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000 21
LISTIR
Hið góða gegn hinu illa
KVIKMYNDIR
Regnboginn
MONOKEE PRINSESSA
★ ★Vfe
Lcikstjóri: Hayao Miyazaki. Hand-
rit: Neil Gaiman og Jack Fletcher.
Raddir á ensku: Billly Crudup,
Minnie Driver, Claire Danes, Billy
Bob Thornton, Jada Pinkett og
Gillian Anderson.
ÓHÆTT er að segja að jap-
anska teiknimyndin Monokee
prinsessa, sem sýnd er á Kvik-
myndahátíð, eigi ekki mikið sam-
eiginlegt með hinum áferðarfal-
legu Disney-teiknimyndum sem
við þekkjum svo vel. Hér fjúka
hausar af mönnum, útlimir af-
höggvast, dýr skógarins eru blóð-
ug um skoltana í trylltum árásar-
hug. Ekki kannski beint fyrir
ungviðið á myndræna planinu en
boðskapurinn getur þó varla verið
þeim vænni. Hann tengist um-
gengni okkar við náttúruna eins og
mjög er í tísku í dag og er þarfur
mjög settur inn í umbúðir ævintýr-
isins þar sem andar dýra og skóga
ráða ríkjum en maðurinn er hinn
raunverulegi óvinur.
Ævintýrið gerist í Japan á
miðöldum og fjallar um ungan
dreng, Ashitaka, úr fjarlægu
þorpi, sem heldur á vit ævintýr-
anna eftir bardaga við hið illa í
formi villisvíns. Eitthvað af hinu
illa hefur farið í drenginn og til
þess að bjarga lífi sínu verður
hann að finna uppruna þess og
takast á við það. A leið sinni hittir
hann fyrir járngerðarmenn sem
eyðilagt hafa skóglendi mikið en
andi skógarins, álfar, dýr og sjálf
Monokee prinsessa berjast von-
lausri baráttu gegn eyðilegging-
unni.
Sagan um Monokee prinsessu er
kannski í lengsta lagi en segir
spennandi ævintýri um hetjudáðir
og drengskap með áhugaverðum
hætti. Teikningarnar eru hinar
ágætustu og tekst að góma hið æv-
intýralega í umhverfi og landslagi
og ekki síst hinu dulúðuga og at-
burðarásin er hrífandi og fjörug.
Myndin lýsir á endanum klass-
ískri baráttu góðs og ills þar sem
tekist er á um sjálfa náttúruna en
boðskapurinn er umhverfisvænn.
Við eigum ekki að drepa skógana
og eyðileggja náttúruna heldur lifa
með henni sem órjúfanlegur part-
ur af henni og verndarar hennar.
Átakalítill
aðskilnaður
BRÚIN „UN PONT ENTRE
DEUX RIVES“ ★★%
Leikstjóri: Gérard Depardieu og
Frederic Auburtin. Handrit:
Jacqueline Granier Deferre.
Aðalhlutverk: Gérard Depardieu,
Carole Bouquet, Charles Berling.
kona með syni sínum og
eiginmanni, sem er
óbreyttur verkamaður.
Einn daginn fer hún
með drengnum, sem er á unglings-
aldri, í bíó og kynnist þar myndar-
legum verkfræðingi. Hann býður
henni í glas og dansar við hana og
úr verður ástarævintýri og fram-
hjáhald, sem sonurinn verður vitni
að. Eiginmaðurinn dvelur fjarri
heimilinu nema um helgar og á
meðan hann er í burtu blómstrar
ástarsambandið.
Frakkar geta endalaust fjallað
um ástina í bíómyndum sínum og
KVIKMYNDAHATIÐ I REYKJAVIK
hér er enn eitt tilbrigðið við gam-
alkunnugt stef. Eiginkonan upp-
götvar leyndar ástríður, sonurinn
er miður sín að þurfa að taka þátt
í pukrinu, m.a. að ljúga að föður
sínum, og eiginmaðurinn veit ekk-
ert í sinn haus til þess að byrja
með en tekur brátt að gruna konu
sína um græsku.
Þeir sem eiga von á hádrama-
tísku upphlaupi og rifrildi og
spennu eftir uppbyggingu af þessu
tagi, ganga bónleiðir til
búðar. Myndin lýsir með
iunmii einkar hófstilltum og
lágstemmdum hætti því
sem gerist þegar konan fer frá
eiginmanni sínum og syni til þess
að hefja nýtt líf. Tilfinningar kon-
unnar, sem Carole Bouquet leikur,
eru mjög tempraðar eða bældar og
sömuleiðis á eiginmaðurinn, sem
Depardieu leikur af óvenjulegri
hógværð, í miklum vandræðum
með að reiðast eða sýna aðrar til-
finningar. Þannig verður sagan um
aðskilnaðinn óvenjulega og
skemmtilega hversdagsleg jafnvel
daufleg og kannski um leið raun-
sæ. Hægt er að ímynda sér að úr
þessu yrði meira fjaðrafok en hér
er lýst en allir eru á einhvern hátt
fullir skilnings. Eins og myndin
vilji segja að það sé eðlilegur hlut-
ur af lífinu að slík breyting á lifn-
aðarháttum fólks eigi sér stað.
Myndin gerist árið 1962 og leik-
stjórunum, Gérard Depardieu og
Frederic Auburtin, tekst ágætlega
að fanga þann tíma í umhverfí og
klæðaburði og ekki síst rokkinu í
útvarpinu. Kannski eru þetta laus-
ungartímar. Kannski sá hún
vænna líf með nýjum manni. „Við
vorum á skíðum í Ölpunum," segir
konan við verkamanninn sinn fyrr-
verandi þegar allt er afstaðið og
maður spyr sig, þurfti ekki meira
til?
Arnaldur Indriðason
I FRIÐSÆLUM smábæ í
frönsku sveitinni á öndverðum
sjöunda áratugnum býr falleg
Nýjar bækur
• Klór er eftir Þorstein Guðmunds-
son.
Klór er safn smásagna sem fléttað
er haganlega saman. Lýst er einum
degi í lífi fólks sem allt tengist á ein-
hvern hátt. Klór er fyrsta bók Þor-
steins Guðmundssonar, en hann hef-
ur áður skrifað nokkur leikrit, bæði
fyrir leiksvið og útvarp. Hann er
kunnur fyrir leik sinn í sjónvarps-
þáttunum Fóstbræður og er einn af
höfundum þeirra þátta.
Klór er 149 bls. Kápuna gerði
Harri. Verð: 1.599 kr.
Uglan - íslenski kiljuklúbburinn
gefur bókina út.
Hótel Loftleiða
Matseöill
FORRÉTTIR
VlLLIBRÁÐARSEYÐI • RjÚPUSÚPA • SjÁVARRÉTTAPATÉ
Hreindýrapaté • Andaliframús
Reyksoðinn Lundi
Grafinn Lax • Reyktur Lax • Reykt og Grafin Gæsabringa
Reyksoðinn Lax eða Silungur • Waldorfsalat
Gráðostasalat
AÐALRÉTTIR
Eldsteiktar Hreindýrasteikur • Rjúpur
GæSABRINGUR *VlLLIKRYDDAÐ FjALLALAMB • SvARTFUGL
SÚLA • Skarfur • ÖND
ÁSAMT ÝMSUM SÓSUM OG GRÆNMETI SEM VIÐ EIGA
EFTIRRÉTTAVAGIM
BlÁBERJAOSTATERTA • OSTABAKKI MEÐ ÍSLENSKUM OsTUM
Heit Eplabaka með Rjóma • Bláberjabaka
ís og Ferskir Ávextir • Kaffi eða Tl og Konfekt
SÉRSTAKUR VÍNSEÐILL SEM VALINN ER MEÐ TILLITI TIL
VILLIBRÁÐAR VERÐUR Á BOÐSTÓLUM OG MUNUM VIÐ
AÐSTOÐA GESTI VIÐ VAL Á VÍNUM
Verð kr. 5.550,-
Borðhald hefst kl. 20.00
Maggi Kjartans og Heiga Möller skemmta gestum
Villibráðin verður eftirtalin kvold:
• Föstudaginn 13. okt. • Laugardaginn 14. okt. • Föstudaginn 20. okt. • Laugardaginn 21. okt.
• Föstudaginn 27. okt. • Laugardaginn 28. okt. • Föstudaginn 3. nóv. • Laugardaginn 4. núv.
• FOstudaginn 10. nóv. • Laugardaginn 11. nóv. • Sunnudaginn 12. nóv. - fjolskyldudagur*
-Verðkr. 4.900 - Borðhald hefstkl. 19.00
OSTA-OG
SMJÖRSALAN SF.
ICELANDAIR HOTELS
NÓI SÍRÍUS
FLUGLEIBIR,
Dregnir verða út glœsilegir
vinningar í boði styrktaraðila á
hverju kvöldi
HCttel loftleiðir
IC C L A N DA I H HOTtiS
Jt
JT VEITINGAR
HðTEL LOFTLEiÐUM
Símar: 5050 925 & 5G2 7575 • Bréfasími: 5G2 7573