Morgunblaðið - 01.10.2000, Síða 8

Morgunblaðið - 01.10.2000, Síða 8
8 SUNNUDAGUK 1. OKTUBEK 2UUU FRETTIR MUKGUNKLAUHJ Kvenréttindafélag íslands gagnrýnir Uss, þið eruð nú meiri horkerlingarnar. Morgunblaðið/Þorkell Landgræðsluverðlaun afhent. F.v.: Egill Jónsson og Halldóra Hjaltadóttir á Seljavöllum, Guðlaugur Jónsson og Sæbjörg Tyrfíngsdóttir á Voðmúlastöðum, Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Guðmundur Þorsteinsson og Gyða Bergþórsdóttir á Efri-Hreppi, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Elín Jóhannesdóttir og Páll Sam- úelsson frá Páli Samúelssyni ehf. og Jóhann Már Jóhannsson og Þórey Jónsdóttir í Keflavík í Hegranesi. Fimm fá viðurkenningu fyrir landgræðslu GUÐNI Ágústsson landbúnaðar- ráðherra afhenti í gær land- græðsluverðlaunin í höfuðstöðvum Landgræðslu rikisins í Gunnars- holti. Verðlaunin komu í hlut þriggja bænda sem stundað hafa landgræðslu svo og búnaðarfröm- uðar og athafnamanns sem stutt hafa landgræðslustarfíð. Hlutverk landgræðslu verðlaun- anna er að kynna og efla enn frek- ar það mikla sjálfboðaliðastarf sem unnið er að landgræðslu víðsvegar um landið. Þau eru veitt einstakl- ingum og/eða félögum og fyrir- tækjum fyrir framúrskarandi störf í þágu landgræðslu og gróður- verndar. Egill Jónsson á Seljavöllum í Hornafirði, fyrrverandi ráðunaut- ur og alþingismaður, fékk verð- launin meðal annars fyrir sinn mikla þátt í uppgræðslu víðáttum- ikilla sanda og mela 1 Austur- Skaftafellssýslu. Guðlaugur Jónsson og Sæbjörg Tyrfingsdóttir, bændur á Voðmúla- stöðum í Austur-Landeyjum, fengu verðlaunin fyrir að hafa ræktað upp hundruð hektara af söndum og meium á jörð sinni. Guðmundur Þorsteinsson og Gyða Bergþórsdóttir, bændur í Efri-Hreppi í Borgarfirði, fengu verðlaunin meðal annars fyrir að vera brautryðjendur í að nota áburð i litlum skömmtun til að koma af stað náttúrulegum móa- gróðri í örfoka landi og þróa að- ferðir við að nota haustbeit hrossa á skógræktarlandi til að minnka eldhættu og flýta fyrir þróun vall- lendis í blómlendi í skógarbotnum. Jóhann Már Jóhannsson og Þór- ey S. Jónsdóttir, bændur í Keflavík í Hegranesi í Skagafirði, eru verð- Iaunuð fyrir stórfelldar landbætur á landrýrri leigujörð, meðal annars sem þátttakendur í verkefninu Bændur græða landið. Páll Samúelsson, forstjóri P. Samúelssonar ehf. - Toyota- umboðsins, og Elín Jóhannesdóttir kona hans fá verðlaunin m.a. fyrir að hafa lagt fjölmörgum grænum málefnum lið með fjárstuðningi og á ýmsan annan hátt. Alþjóðadagur kennara Víkkandi sjón- deildarhringur Agla Ástbjörnsdóttir ITILEFNI af alþjóða- degi kennara hinn 5. október nk. mun Kennarasamband Islands og Félag íslenskra leik- skólakennara vera með opið hús í Kennarahúsinu við Laufásveg frá klukkan 17 til 22 þann sama dag. Agla Ástbjömsdóttir kennari á sæti í undirbún- ingsnefnd vegna alþjóða- dags kennara hér sem haldinn er undir yíir- skriftinni: Víkkandi sjón- deildarhringur kennara. „Við kennarar fögnum því að eiga dag sem gefur okkur tækifæri til þess að minna á hlutverk okkar í samfélaginu." - Hvert er það hlutverk aðþínu mati? „Hlutverk okkar er að liðsinna nemendum okkar og leggja dag- lega okkar af mörkum til þróa samkennd, auka þekkingu og veita góða menntun." -Hvernig víkkar sjóndeildar- hringur kennara? „Alþjóðasamband kennara hef- ur heitið að vinna að menntun í þágu friðar og er þemað valið með hliðsjón af því. í öllu skóla- starfl skiptir miklu máli að sam- skipti nemenda einkennist af samkenndj umburðarlyndi og skilningi. I skólastofum um allan heim er að finna þverskurð þess fjölþjóðasamfélags sem við lifum í. Kennarar þurfa að vera opnir fyrir fjölbreytileika einstaklinga og virða nemendur sína án tillits til kynferðis, litarháttar og trúar, svo eitthvað sé nefnt. Ymsum kann að virðast sem þetta sé fjarri þeim raunveruleika sem ís- lenskir kennarar búa við, þ.e.a. segja, við þurfum varla að glíma við vandamál sem tengjast t.d. kynþáttaárekstrum. Staðreyndin er samt sú að á íslandi starfa kennarar með börnum af ólíku þjóðemi. Kennarar verða að vera opnir fyrir fjölbreytileika ein- staklinga, hvort sem þeir vinna með börnum af ólíku þjóðerni, eð- ur ei. Það eru ekld allir eins og það búa ekki allir við sömu að- stæður.“ - Hvað um hlutverk skólans í nútímasamféiagi? „í dag á skólinn að veita öllum nemendum menntun við hæfi. I því sambandi má nefna að nem- endur með ýmsar sérþarfir eru í almennum skólum, en slíkt þekktist vart fyrir nokkrum ár- um.“ - Er þetta erfítt í framkvæmd? „Það geta komið upp vandamál meðal nemenda sem rekja má til skorts á umburðarlyndi og þá er mikilvægt að kennurum takist í samvinnu við þá að byggja upp traust og samkennd. Námsgrein- in lífsleikni, sem er að koma inn með nýrri aðalnámskrá, er til þess fallin að opna augu nemenda fyrir mikilvægi friðsamlegrar sambúðar þeirra á meðal.“ - Gerir skólinn nægilega mikið í því að búa nemendur undir lífíð? „Lífsleikni, kristin- fræði og samfélags- fræði stuðla að því að nemendur séu betur undir það búnir að taka þátt í samfélag- inu. Sjálf hef ég kennt námsefni sem heitir: Að ná tökum á tilver- unni. Nemendur mínir voru mjög áhugasamir um þetta efni. Það gefur þeim tækifæri til þess að setja sig í spor annarra. Námið fer mikið fram í formi leikrænnar tjáningar, það hjálpar börnum til að upplifa aðstæður, leysa úr ► Agla Ástbjömsdóttir fæddist í Reykjavík 9. október 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum i Árinúla 1987 og BA-prófi í mannfræði frá Háskóla íslands 1992. Eftir það tók hún B.ed.-prófi frá Kenn- araháskóla fslands 1996. Hún hefur starfað sem kennari við Melaskólann í Reykjavík frá 1997. Hún er fulltrúi í samninga- nefnd fyrir hönd grunnskóla- kennara. Agla er í sambúð með Haraldi Emi Jónssyni arkitekt og eiga þau tvö börn. ágreiningsmálum og leita lausna á vandamálum sem upp koma þegar þau standa frammi fyrir t.d. vali. Mikilvægt er að börn geti valið úr öllu því sem er í boði í samfélaginu í dag, þannig að þau þroskist sem sjálfstæðir einstakl- ingar og komist heil til full- orðinsára. Mér finnst mikilvægt að skólinn leggi áherslu á uppeldi og menntun til friðar. Friðsamleg sambúð manna og þjóða verður aldrei að veruleika ef við byrjum ekki á bömunum okkar. Alþjóða- dagur kennara er liður í þessu.“ -Hvað verður á dagskrá hjá kennurum á alþjóðadaginn 5. október nk. ? „Kennarasamband íslands og Félag íslenskra leikskólakennara hafa hvatt kennara um allt land til að koma saman og halda dag- inn hátíðlegan. í Reykjavík verð- ur opið hús í Kennarahúsinu við Laufásveg, sem áður sagði. Þang- að em kennarar hvattir til að koma, hitta félaga sína í stéttinni og eiga saman notalega stund. Dagskráin er á þann veg að klukkan 18 mun kór Félags kenn- ara á eftirlaunum heiðra okkur með nærvera sinni og söng. Guð- rún Pétursdóttir félagsfræðingur verður með erindi sem hún nefn- ir: Fjölmenningarlegt skólasam- félag á íslandi og Bjarni Ólafsson menntaskólakennari flytur ávarp. Klukkan 20 flytur Oddfríður Steindórsdóttir leikskólastjóri ávarp. Helga Þórólfsdóttir félags- ráðgjafi mun segja frá starfi sam- starfsnefndar Reykja- víkur í máleftium nýbúa og Kristín Vals- dóttir tónlistarkennari ætlar að leiða okkur í tónlistarspuna. Það er von okkar sem störfum í undirbúningsnefnd alþjóðdags kennara að kennarar leggi leið sína í Kennarahúsið á fimmtudaginn og fagni deginum, sem er vissulega mikilvægur og til þess fallinn að stuðla að sam- kennd meðal kennara hér og um heim allan. Að lokum vil ég óska kennuram til hamingju með 5. október, hann er okkar dagur.“ Alþjóðasam- band kennara vinnur að menntun í þágu friðar I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.