Morgunblaðið - 01.10.2000, Page 12
12 SUNNUDAGUR1. OKTÓBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Hillary Clinton og Rick Lazio sættast á takmörkun kosningasjóða
Reuters
Hillary Clinton og Rick Lazio tókust fyrir skömmu á í fyrstu kappræðum sínum vegna öldungadeildarkosning-
anna í New York.
Atök um framlög
og næturgesti
Barátta Hillary Clintons og Ricks Lazios í New
York vegna öldungadeildarkosninganna í nóvem-
ber snýst þessa dagana aðallega um fjárframlög í
kosningasjóði. Ragnhildur Sverrisdóttir segir að
kjósendur hafí lítinn áhuga á málinu, nema þegar
það snýst um næturgesti Clintons undanfarið ár.
Repúblikanar segja Clinton misnota aðstöðu sína
með því að hýsa stuðningsmenn í forsetabústöðum,
en Hillary segir ekkert óeðlOegt við að vinir þeirra
hjóna fái að halla þar höfði á kodda.
HILLARY Clinton og Rick
Lazio eru nokkuð jöfn í
kapphlaupinu að öldunga-
deildarsætinu, en demó-
kratinn Clinton þó sjónarmun á und-
an repúblikanum. I nýrri skoðana-
könnun sem CBS News og New York
Times gerðu meðal líklegra kjósenda
sögðust 48% þeirra ætla að kjósa
Clinton, en 39% Lazio. Skekkju:
mörkin í þeirri könnun voru 3%. í
annarri könnun, sem unnin var af
Marist Institute of Public Opinion,
var niðurstaðan hins vegar sú að þau
væru hnífjöfn, bæði með 48% fylgi.
Þegar óákveðnir kjósendur í þessum
hópi voru beðnir um að svara því að
hvorum frambjóðandanum þeir höll-
uðust frekar varð heildamiðurstaðan
sú að 50% ætluðu að kjósa Clinton, en
48% Lazio. Skekkjumörkin í þessari
könnun voru hins vegar 4%, svo mun-
urinn er ekki marktækur.
Slagurinn á milli frambjóðendanna
er um fátt frábrugðinn öðrum slíkum
nema fyrir þá sök að Clinton og Lazio
komust nýlega að samkomulagi um
að hvetja flokka sína og ýmis samtök
stuðningsmanna til að hætta að beita
miklu fjármagni sínu í auglýsingar í
þágu frambjóðendanna.
Komast framhjá takmörkunum
í Bandaríkjunum eru engar tak-
markanir á hve miklu frambjóðandi
eða flokkur má kosta til kosninga og
auðugur frambjóðandi getur lagt eins
mikið af eigin fé fram og honum sýn-
ist. Dæmi um það er auðkýfingurinn
Steve Forbes, sem fjármagnaði mis-
heppnaðar tilraunir sínar til að ná út-
nefningu sem forsetaefni Repúblik-
anaflokksins að miklu leyti sjálfur.
Það eru heldur engin takmörk á þeim
upphæðum sem einstaklingar geta
gefið til sjálfstæðra samtaka sem
styðja frambjóðendur eða ákveðin
málefni með auglýsingum. Hins veg-
ar eru fjárframlög einstaklinga beint
til einstakra frambjóðenda takmörk-
uð við 1000 dollara, eða um 83 þúsund
krónur, og ekki má gefa meira en
5000 dollara, eða um 415 þúsund
krónur til samtaka ýmissa hagsmuna-
aðiia, sem síðan veita fénu áfram til
frambjóðenda. Slíkum samtökum
hefur fjölgað mjög, enda er það ein
leiðin til að komast framhjá reglum
um takmörkuð framlög til hvers og
eins þeirra.
Til að komast framhjá laga-
ákvæðum leggja stuðningsmenn
fram óbein framlög sem á ensku eru
kölluð „soft money“ eða mjúkt fé. A
síðasta áratug varð það hugtak al-
þekkt í stjórnmálalífi Bandaríkjanna
og lýsir þeim ótakmörkuðu framlög-
um einstaklinga, fyrirtækja og hags-
munasamtaka sem renna til stjóm-
málaflokka eða -félaga í hverju ríki.
Nauðsynlegt þótti á sínum tíma að
heimila slík framlög til að byggja upp
flokksstarfið, en þar sem flokkamir
þurfa ekki að gera grein fyrir þessu fé
hafa þeir getað veitt því áfram til ein-
stakra frambjóðenda. Þar með vakn-
ar hættan á að rausnarlegir stuðn-
ingsmenn flokkanna geti haft bein
áhrif á frambjóðendur og „soft mon-
ey“ er helsti þymir í augum þeirra
sem viija endurbætur á lögum um
fjárframlög í kosningabaráttu.
Lazio meö meira fé
Samkomulag Clintons og Lazios
gengur út á að hvorugur frambjóð-
andinn styðjist við óheft framlög af
þessu tagi í auglýsingaherferðum
kosningabaráttunnar. Bæði hafa þau
að vísu sankað að sér nokkrum fjár-
hæðum eftir þessum leiðum, en sam-
komulagið gerir ráð fyrir að ekki
þurfi að skdla þeim upphæðum. Þá eru
nokkrir fyrirvarar á samkomulaginu,
til dæmis telja frambjóðendumir ekki
raunhæft að stöðva póstsendingar
stuðningsmanna þeirra til almenn-
ings.
Clinton mun standa höllum fæti
eftir samkomulagið, ef aðeins er litið
til þeirra framlaga sem stíft eftirlit er
haft með. Framboð hennar hefur
nefnilega skilað háum fjárhæðum í
kassa Demókrataflokksins, en hún
hefur ekki verið jafn iðin við að næla
sér í persónuleg framlög. Þar hefur
hún náð að draga saman rúmar 7
milljónir dollara, eða um 580 milljónir
króna, en Lazio hefur úr rúmum 10
milljónum dollara að moða, eða um
830 milljónum. Hann hefur lýst því yf-
ir að samkomulagið geti haft gríðar-
lega þýðingu og sýni að ekki þurfi
lagasetningu til að tryggja að New
York ríki geri það sem rétt sé.
Efast um að samkomu-
lagið haldi
Stjómmálaskýrendur í Bandaríkj-
unum segja samkomulag frambjóð-
endanna marka tímamót, enda hafa
frambjóðendur til þings í jafnstóru
ríki og New York aidrei gert sam-
bærilega tilraun til að hefta peninga-
flæði í kosningabaráttu. Margir
stjómmálaskýrendanna efast reynd-
ar um að samkomulagið haldi þegar
enn meiri harka færist í baráttuna.
Þeir benda á þá staðreynd, að fram-
bjóðendumir hafa ekkert yfir þessu
fé að segja. Bæði Clinton og Lazio
hafa hvatt sitt fólk til að láta vera að
beita framlögum af þessu tagi þeim til
framdráttar, en meira geta þau ekki
gert. Og ýmis samtök, til dæmis þau
sem styðja rétt kvenna til fóstureyð-
inga og em andvíg repúblikanum
Lazio, segja af og frá að hægt sé að
þagga niður í þeim með þessum hætti.
Það vom hinir fjölbreytilegustu,
pólitísku fimleikar sem leiddu til sam-
komulagsins. Hillary Clinton hafði
lýst því yfir að hún væri fús til að
ræða möguleikann á því að banna
óbein framlög í kosningabaráttunni
og í kappræðum hennar og Lazios í
sjónvarpssal á dögunum gekk hann
með tilþrifum úr ræðustól sínum yfir
til hennar og krafðist þess að hún
skrifaði undir samkomulag þess efnis
svo hægt væri að stöðva þetta pen-
ingaflæði í eitt skipti fyrir öll. Þar
þótti mörgum hann ganga of langt,
enda ekki í þeirra valdi að stöðva eitt
eða neitt með undirskrift á staðnum.
Clinton sagði að ekkert yrði af sam-
komulagi nema Lazio teldi fjórtán
samtök stuðningsmanna sinna á að
hætta að kosta auglýsingar sem
beindust að sér. Lazio tók hana á orð-
inu og krafðist þess að hún gerði slíkt
hið sama. Þar með var samkomulagið
í höfn.
Frúin og næturgestimir
Annað mál, sem tengist kosninga-
baráttunni í New York, hefur verið
mjög í fréttum í Bandaríkjunum að
undanfömu, en það snýst um það
hvort stuðningsmenn Hillary hafi
fengið að gista í Hvíta húsinu eða
Camp David, sem umbun fyrir stuðn-
inginn. Það er alkunna að stuðnings-
menn forsetans og flokks hans fá að
gista í þessum forsetabústöðum og ef
marka má frásagnir er fátt eftirsókn-
arverðara en að bæla kodda í Lincoln-
herberginu í Hvíta húsinu eða njóta
sveitasælunnar í Camp David. Þeir
sem þeirrar sælu njóta eru ekki heim-
ilislaust fólk, heldur alls konar auð-
kýfingar og kvikmyndastjömur.
Þetta hefur lengi viðgengist, en
málið horfir auðvitað öðmvísi við ef
forsetafrúin notar þessa bústaði til að
umbuna stuðningsmönnum sínum í
kosningabaráttunni í New York.
Hvíta húsið birti á dögunum lista yfir
það fólk, sem hefur gist hjá Clinton-
hjónunum frá því í júlíbyijun í fyrra
og fram til loka ágústmánaðar sl. Á
þessum 13 mánuðum var gestkvæmt,
404 hvíldu lúin bein í Hvíta húsinu eða
Camp David. Birt vom nöfn 361
þeirra, en hinir 43 vom sagðir vera
„fjölskylda og vinir“ forsetadóttur-
innar Chelsea.
Af gestunum nafiigreindu höfðu 99
greitt í kosningasjóði Hillary, þar af
um 800 þúsund krónur í bein framlög
til hennar og um 40 milljónir króna til
samtaka sem styðja hana. Hillary
sagði ekkert fréttnæmt við þetta, þau
hjón ættu fjölda vina og stuðnings-
manna. Repúblikanar vilja hins vegar
fá nýjan lista, sem sýnir hvenær þetta
fólk gisti forsetabústaðina, því þeir
telja ólíklegt að forsetafrúin hafi allt-
af verið á staðnum til að sinna gest-
gjafahlutverkinu og þar með séu yfir-
lýsingar hennar um gistinætur vina
að engu hafandi.
Rick Lazio birti svo strákslegan
lista yfir næturgesti á heimili sínu.
Hann sagði tvo gestanna hafa lagt
fram fé í kosningasjóði, en það hafi
reyndar verið tengdaforeldra hans.
Einn sjálfboðaliði hafi einnig gist á
heimilinu, en það hafi verið móðir
hans. Þá neitaði hann að gefa upp
hveijir hefðu gist „Pókemon-svít-
una“, en sagði þá gesti alla vera undir
9 ára aldri. Það væri ekkert frétt-
næmt við þetta, þau hjónin ættu
fjölda vina og stuðningsmanna.
Mörgum þótti þessi tilraun Lazios
til fyndni heldur misheppnuð og sum-
ir sögðu hann ekki gera annað en að
staðfesta að hver og einn hýsti sína
vini og kunningja og þau Hillary væm
þar á sama báti. Því er hins vegar
ekki að neita að hún gerir það á kostn-
að skattborgaranna og það er merg-
urinn málsins.
Utrýming-
arhættan
eykst
London. AP.
UM ÞAÐ bil 11.000 dýra- og plöntu-
tegundir em í verulegri útrýmingar-
hættu, samkvæmt ítarlegustu rann-
sókn sem gerð hefur verið á sviði
náttúraverndar í heiminum.
Á meðal þeirra tegunda sem gætu
orðið útdauðar em villtir kettir sem
flakka um Iberíuskaga, höfmngar
við strönd Nýja-Sjálands, styrjur
sem veiddar eru vegna hrognanna
og mnni þakinn rauðum blómum í
fjöllum Máritíus, að því er fram
kemur í skrá náttúmverndarsam-
takanna World Conservation Union
yfir dýra- og plöntutegundir í út-
rýmingarhættu.
Samtökin segja að stækkun
borga, eyðing skóga af mannavöld-
um, landbúnaður og ofveiði séu á
meðal þeirra þátta sem stofni líf-
fræðilegum fjölbreytileika í heimin-
um í hættu. Um það bil 816 þekktar
tegundir hafi dáið út síðustu 500 árin
og aðrar séu aðeins til í dýragörðum.
I skránni kemur einnig fram að á
síðustu fjómm ámm hefur spen-
dýrategundum í útrýmingarhættu
fjölgað úr 169 í 180 og fuglategund-
um úr 168 í 182.
---------------
Barnaklámi
í fréttatíma
mótmælt
Róm.AP.
NOKKRIR af yfirmönnum ríkis-
sjónvarpsins á Ítalíu, RAI, sögðu af
sér í gær eftir að sjónvarpið sýndi
bamaklám, sem dreift hafði verið á
Netinu, í aðalfréttatíma sínum á mið-
vikudagskvöld. Talið er að ellefu
milljónir manna hafi horft á útsend-
inguna.
Dagblaðið L’Osservatore Romano
í Páfagarði fordæmdi RAI fyrir að
sýna „ítölskum fjölskyldum óvirð-
ingu“ undir því yfirskyni að barna-
klámið væri fréttaefni. „Myndimar
sem vom sýndar í fréttatímanum
em ekki aðeins móðgun við áhorf-
endur, heldur fyrst og fremst við öll
þau böm sem fjallað var um, fómar-
lömb sem vom misnotuð aftur þegar
þau hefðu átt að njóta verndar,“
sagði blaðið.
Fréttastjóri, tveir aðstoðarfrétta-
stjórar og tveir yfirmenn þeirra
sögðu af sér eftir að útsendingin
hafði sætt harðri gagnrýni á þinginu.
RAI sýndi klámefnið þegar fjallað
var um hóp bamaníðinga sem var
staðinn að því að dreifa bamaklámi á
Netinu. Átta ftalir og þrír Rússar
hafa verið handteknir vegna málsins
og lögreglan hefur lagt hald á þús-
undir mynda, m.a. af pyntingum og
morðum á börnum. 1.700 ítalir hafa
einnig verið yfirheyrðir vegna gmns
um að hafa keypt myndir á Netinu.
-----LH--------
Norður-Irland
Hermönnum
fækkað
Belfast. Reuters.
BRESKI herinn tilkynnti í gær, að
héldi ástandið á Norður-írlandi
áfram að skána, yrðu 5.000 hermenn
fluttir þaðan. Yrðu þá eftir um 8.000.
Skýrt var frá þessu er Sir Ronnie
Flanagan, lögreglustjóri á N-ír-
landi, tilkynnti, að sex herstöðvar við
landamærin að írlandi yrðu rifnar en
þær hafa nú þegar verið yfirgefnar.
Era stöðvar breska hersins í hérað-
inu nú 64 en stefnt er að því, að þær
verði ekki nema 20.
Kaþólskt fólk á N-írlandi hefur
lengi litið á vem bresku hermann-
anna sem ögmn við sig en flestir
vom þeir 1972, um 30.000. Talsmað-
ur Sinn Fein, pólitísks ai-ms IRÁ
írska lýðveldishersins, fagnaði þess-
um fréttum í gær en sumir mótmæl-
endur kölluðu fyrirhugaða fækkun
„heimskulega".