Morgunblaðið - 01.10.2000, Side 18

Morgunblaðið - 01.10.2000, Side 18
18 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Þorkell l Peter Tompkins óbóleikari og Guðríður Sigurðardóttir pianóleikari. Obó- og píanó- verk frá þremur borgum PETER Tompkins óbóleikari og Guðríður Sigurðardóttir píanó- leikari halda tónleika í Salnum í Tíbrá-tónleikaröð Kópavogs nk. þriðjudagskvöld, 3. október, kl. 20. Verkin fyrir óbó og píanó, sem flutt verða á tónleikunum, eiga upptök sín í þrem borgum - London, Reykjavík og París. Við samsetningu tónleikaskrárinnar hafa flytjendur leitast við að draga fram það sem aðskilur þróunina í þessum þrem borgum, en einnig það sem er sameiginlegt, og um leið sýna, hvernig tónskáldin hafa, hvert fyrir sig, unnið tónsmíðar fyrir óbó og píanó. Peter og Guðríður munu frum- flytja splunkunýtt verk eftir Óliv- er Kentish, en þetta hefur höfund- urinn sjálfur að segja um verkið sem ber heitið Sonatine for Oboe & Piano (1999) „A la Recherche de Temps Perdu“. „Þetta litla verk var samið eftir samtal sem ég átti við Peter Tompkins, þar sem hann lét þau orð falla að ekki væri til mikið af i__________________________________ tónverkum fyrir óbó eftir íslensk tónskáld. Hinn langi undirtitill verksins er fenginn að láni úr verki franska rithöfundarins Marcel Proust, en hann er ekki notaður í þeim tilgangi að segja sögu eða tónverkið hugsað sem sjálfsævisaga, enda ekki stórt í sniðum, ólíkt verki Prousts. Skýr- inguna má miklu heldur rekja til þess, að tónlistin hverfur nokkuð aftur í tímann og er fremur gamal- dags og jafnvel eilítið tilgerðarleg, því markmiðið var ekki að bjóða fram nýju fötin keisarans með því að nota tæknibrellur, sprang og látalæti, heldur leitast við að semja rökrétt og blátt áfram tón- verk, sem verður vonandi áhuga- vert að spila og hlusta á.“ Á efnisskránni eru einnig verk eftir Poulenc, Bozza, Saint-Saéns, Britten og Vaughan-Williams. Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13-18 og tónleika- kvöld til ld. 20. Um helgar er miðasalan opnuð klukkustund fyr- ir tónleika. Miðaverð á Tíbrár- tónleika er 1.500 kr. Brúin út í Viðey afhent Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri tekur við eintaki bókarinnar úr hendi Reynis Ola Smárasonar, nem- anda í Korpuskóla. ÁTTA skáld sem öll búa f Grafarvogi hafa tekið hönd- um saman við Miðgarð - miðstöð fjölskylduþjónustu í hverfinu - og gefið út ný- stárlega bók, Brúna út í Við- ey, til að gefa öllum heimil- um og vinnustöðum innan póstumdæmis 112. Tilgang- urinn er sá að gefa nágrönn- unum fslenskt lesefni, sprott- ið upp meðal þeirra sjálfra í yngsta hverfi borgarinnar. Skáldin eru: Aðalsteinn Ingólfsson, Ari Trausti Guð- mundsson, Einar Már Guð- mundsson, Gyrðir Elfasson, Kristín Marja Baldursdóttir, Hjörtur Marteinsson, Ragn- ar Ingi Aðalsteinsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Oll hafa þau lagt frum- samdar sögur og/eða ljóð án endurgjalds til verksins. Þrír listamenn, þær Guð- björg Lind Jónsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdótt- ir og Kristín Geirsdóttir Icggja til myndskreytingar án endurgjalds. Oddi hf., einn vinnustaðanna f hverfi 112, sér um vinnslu og prentun bókarinnar, end- urgjaldslaust að hluta. Útgáfuathöfn í tali og tónum fór fram í Korpuskóla á föstudag að viðstöddum fjölmörgum skólanem- um, öðrum góðum gestum og skáldunum. Þar var fyrsta eintakið afhent Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur borgarstjóra. Listamennirnir við verk sín. Tveir Suðurnesjamenn SUÐURNESJAMENNIRNIR Árskógar, Árskógum 4, Reykjavík, Eiríkur Árni Sigtryggsson og Júl- á morgun, mánudag. íus Samúelsson opna mynd- Opið virka daga kl. 9-16.30 og listarsýningu í Félagsmiðstöðinni laugardaga kl. 14-16. 60 sýningar á Glanna glæp SEXTUGASTA sýning á barna- leikritinu vinsæla Glanni glæpur f Latabæ er í dag, sem gekk fyrir troðfullu húsi í Þjóðleikhúsinu allt sfðasta leikár. Höfundur verksins er Magnús Scheving, og gerði hann einnig leikgerðina ásamt Sigurði Sigurjónssyni, sem auk þess leikstýrir verkinu. Flest börn landsins þekkja nú- orðið hina ævintýralegu íbúa Latabæjar, Sollu stirðu, bæjar- stjórann, Sigga sæta, HöIIu hrekkjusvín og alla hina, að ógleymdum sjálfum fþróttaálfin- um. Þau lifa glöð og kát í sfnum bæ, rækta sitt grænmeti, lifa holl- ustusamlegu lífi og eru góðir vin- ir. En daginn sem Glanni glæpur birtist í Latabæ eru stórfelld vandræði í augsýn og þá færist heldur betur íjör í leikinn. Leikendur í Glanna glæp í Latabæ eru Stefán Karl Stefáns- son, Linda Ásgeirsdóttir, Rúnar Freyr Gfslason, Vigdís Gunnars- dóttir, Steinn Ármann Magnús- son, Magnús Ólafsson, Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Sigurður Sig- urjónsson, Randver Þorláksson, Kjartan Guðjónsson og Magnús Scheving. Leikmynd gerði Snorri Freyr Hilmarsson, lýsinguna hannaði Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, tónlistin er eftir Mána Svavars- Sunnudagur BÍÓBORGIN Kl. 15.40 Cosi Ridevano, The Straight Story Kl. 15.50 The Loss of Sexual innoeence Kl. 17.50 The Straight Story Kl. 17.55 Cosi Ridevano Kl. 18.00 Scorn Kl. 20.00 Scorn,The Straight Story Kl. 22.00 The Straight Story Kl. 22.10 Sánger frán andra Váningen, The Loss of Sexual Innocence HÁSKÓLABÍÓ Kl. 18.00 Man is not a Bird Ki. 20.00 The Fifth and the Fury Kl. 22.00 The Emperor and the Assassin REGNBOGINN Kl. 14.00 Feliciás Journey Kl. 16.00 Un Pont entre deux Rives Kl. 17.40 Ride with the Devil Kl. 24.00 Crouching Tiger, Hidden Dragon Kl. 22.00 Ride with the Devil Mánudagur BÍÓBORGIN Kl. 15.40 Cosi Ridevano, The Straight Story Kl. 15.50 The Loss of Sexual Innocence Kl. 17.50 The Straight Story Kl. 17.55 The Loss of Sexual Innocence, Cosi Ridevano Kl. 20.00 The Straight Story, Scorn Kl. 22.00 The Loss of Sexual Innocence, Sánger frán andra váningen Kl. 22.10 The Straight Story HÁSKÓLABIÓ Kl. 18.00 Montenegro Kl. 20.00 Kikujiro Kl. 22.15 The Filth and The Fury, Bad Dog REGNBOGINN Kl. 16.00 Crouching Tiger, Hidden Dragon, Cosy dens, Condo Painting Kl. 18.00 Miss Julie, Onegin Kl. 20.00 Crouching Tiger, Hidden Dragon Kl. 22.00 Princess Mononeke Frá sýningu Glanna glæps í Latabæ. son, söngtextar eftir Karl Ágúst Úlfsson, danshöfundur er Ástrós Gunnarsdóttir. Brúðugerð og brúðustjórnun er í höndum Guð- mundar Þórs Kárasonar. Leik- stjóri er sem fyrr segir Sigurður Sigurjónsson. Sýningar eru nýlega hafnar á ný á Glanna glæp og er sýninga- fjöldi í haust takmarkaður. Leik- ritið er við hæfi barna á öllum aldri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.