Morgunblaðið - 01.10.2000, Page 20
20 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Hópur leikkvenna Þjóðleikhússins.
„Oður til haustsins“
f LISTAKLÚBBI Leikhúslyallarans
fagna íslenskar listakonur haustinu
í litum, tónum og tali annað kvöld,
mánudagskvöld, kl. 20.30.
Haustið í öllum sínum marg-
breytileik er þema kvöldsins. Leik-
konur flylja uppáhaldsljóðin sín.
Hönnuðir sýna nýjustu tískuna und-
ir hausttónum.
Leikkonurnar eru: Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Guðrún Stephen-
sen, Guðrún Þórðardóttir, Helga
Bachmann, Herdís Þorvaldsdóttir,
Inga María Valdimarsdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Linda As-
geirsdóttir, Margrét Guðmunds-
dóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Marta Nordal, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Tinna Gunnlaugs-
dóttir.
Ilönnuðir: María Ólafsdóttir,
Ásta B. Guðmundsdóttir, Þorbjörg
og Ragnheiður.
Húsið opnað kl. 19.30.
Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson
Eitt af málverkum Karólínu Lárusdóttur úr syrpunni af Hótel Borg:
Geirmundur fær kaffi og kleinur hjá Jórunni í Smurbrauðsstofunni.
Við fyrri spurningunni er það svar
einna næitækast að myndlistar-
menn og áhugamenn um myndlist
eiga erfitt með að sætta sig við frá-
sagnarlist þegar myndlist er annars
vegar. Raunsæisleg frásögn í mynd-
list er andstæð öllu því sem nútíma-
listin boðaði og stóð fyrir, nefnilega
að myndverkið skyldi fjalla um
myndræna hluti en ekki bókmennta-
lega. Af hverju tekur manneskjan
sér ekki bara penna í hönd og gefur
okkur töfraraunsæislega lýsingu á
lífinu umhverfis Jóhannes á Borg?
Sannleikurinn er sá að flestir rit-
höfundar elska myndlist af þeim
toga sem Karólína spinnur og flestir
myndlistarmenn hata þessa ást rit-
höfundanna á anekdótískri myndlist
því þeir segja hana einbera mynd-
skreytingu við ritlistina sem skipi
myndlistinni á óæðri bekk gagnvart
bókmenntunum. Og undirritaður er
ekki viss um nema þeir hafi nokkuð
til síns máls. Það er næsta augljóst
að Tolstoi þótti mikið til frásagnar-
myndlistar koma og hvers vegna?
Af því hann sá að landi sinn, raun-
sæismálarinn Ilya Repin, var ekki
annað en vesæll skugginn af hans
eigin mikilleik og með því var
einsýnt að myndlistin mundi ekki
skáka bókmenntunum í pýramíða
listanna.
En það breytir því ekki að mynd-
list Karólínu - og Botero - hittir al-
menning afar mjúklega beint í
hjartastað. Ástæðan er frásögnin,
eilítið trúðsleg mótun persónanna
og saknaðarkennd lýsingin á fortíð
sem einungis er til í höfði lista-
mannsins sem minning, en mundi
trauðla standast samanburð við
raunveruleikann eins og hann var. A
þessari formúlu sem gengur út á að
sætta okkur við lífið, tilveruna og
endurminningarnar hafa bókmennt-
irnar þrifist best. Hér er brugðið
upp heimi sem við getum hoi'fið til
eins og veraldar utan og ofan við
hinn harða og ljóðlausa heim sem
við göngum gegnum hversdagslega.
Þess vegna er það allmerkilegt að
Karólína skuli nú fyrst vera að gera
upp við þennan heim í syrpu sinni af
Hótel Borg; heim sem hún kynntist
sem barnabam eigendanna. Víst er
að Karólína hefur aldrei gert betur
en einmitt í þessari myndröð. Hér
sést hve langt hún skýtur aftur fyrir
sig öllum eftiröpurunum sem gengið
hafa í smiðju til hennar eftir að hún
setti fyrst fram sinn allegoríska
endurminningaheim.
í þessari ágætu myndröð sinni er
Karólína komin býsna nærri
flæmsku brandarakörlunum, Adrian
Brouwer og félögum, sem smíðuðu
hið sívinsæla tegundamálverk sautj-
ándu aldar af fíflum, fylliröftum og
öðrum skrítnum skrúfum mannlífs-
ins sem þeir þekktu svo vel; elskuðu
og hötuðust við um leið. Hér tala
með öðrum orðum tilfinningar end-
urminninganna enda er Karóh'na
hér, tæknilega séð, mun skarpari og
skynugri en nokkru sinni fyrr.
Halldór Björn Runólfsson
--------------------
Nýjar bækur
• Líffærameistarina fjallar um
frægan lækni og líffærameistara á
Italíu á 16. öld og er eftir Federico
Andahazi.
Þessi bók argentínska höfundar-
ins Andahazi olli miklu írafári þegar
hún kom út í Argentínu árið 1997
vegna bersögli og hispursleysis, en
hefur síðan farið sigurför um heim-
inn.
Kolbrún Sveinsdóttir þýddi. Líf-
færameistarinn er 236 bls. Kápuna
gerði Ingibjörg Eyþórsdóttir. Verð:
1.599 kr.
Uglan - íslenski kiljuklúbburinn
gefur bókina út.
Sagan af hótelinu
MYNDLIST
Listasafn Kópavugs
MÁLVERK
KARÓLÍNA
LÁRUSDÓTTIR
Til 8. október. Opið þriðjudaga til
fimmtudaga frá kl. 11 -17.
KARÓLÍNA Lárusdóttir hefur
valið sér allsérstætt svið í myndlist
sinni. Hún er náskyld kólumbíska
málaranum Fernando Botero, sem
menn annað hvort elska eða hata,
telja alvarlegan myndlistarmann
eða verstu tegund af alþýðusmjaðr-
ara. Tvær spurningar sækja ávallt á
þá sem standa fyrir utan þessa
togstreitu: Hvers vegna amast
menn við þessari tegund málverks?
Hvers vegna er þessi tegund mál-
verks svo vinsæl sem raun ber vitni?
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 5. október — þri. og fim. ki. 19.30
4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar,
fyrir þá, sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga
í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka
á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg. Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun, slökun og
andleg lögmál, sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.
Vilt þú verða jógakennari?
Yoga Studio mun fara af stað með jógakennaraþjálfun nk. október. Kennari verður
Ásmundur Gunnlaugsson, eigandi Yoga Studio, þekktur fyrir “jóga gegn kvíða” námskeiðið.
Þjálfunin er haldin í 7. sínn og er fyllilega sambærileg við það besta sem í boði er erlend-
is. Þetta er tækifæri til að nema af kennara með mikla reynslu og þekkingu á íslenskum
starfsvettvangi. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja gerast jógakennarar heldur einn-
ig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún hentar t.d. öllum sem eru í einhvers
konar vinnu með einstakliriga eða hópa.
Ekki er krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mik.lvægast er áhugi og jákvætt
hugarfar. Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg.
Kynningarfundur verður laugardaginn 7. október kl. 17—18,
Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er
fimmtudagurinn 12. október.
Þjálfunin er alls 6 helgar (auk skyldumætingar í jógatíma);
20.-22. október, 24.-26. nóvember, 26.-28. janúar,
23.-25. febrúar, 27.-29. apríl og 11 .-13. maí.
Kennt erföstud. kl. 20—22, laugard. og sunnud. kl. 9—15.30.
YOGA
STUDIO
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 5-44-55-60.
www.yogastudio.is
HALUR OG SPRUND ehf.
halur@yogastudio.is
Biotone nuddvörur, Oshadhi ilmkjarnaolíur
og Custom Craftworks nuddbekkir
o A K' M 1-2000
Sunnudagur 1. október
HÁSKÓLABÍÓ KL. 14
Sjötíu ára afmælistónleikar
Tónlistarskólans í Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavík fagnar
70 ára afmæli. Afþví tilefni er efnt til
hátíðartónleika í Háskólabíói kl.
14:00. Víkingur Heiðar Ólafsson
leikur píanókonsert eftirJón Nordal,
fluttur verður hátíðarmars Páls ís-
ólfssonar og sömuleiðis sinfónía nr.
4 eftir Tsjakovskí. Stjórnandi erBern-
harður Wilkinson. ítilefni afmælis
Tónlistarskólans verðursett upp sýn-
ing úr safni skólans.
LISTASAFN REYKJAVÍKUR -
HAFNARHÚS KL. 16
cafe9.net
Þóroddur Bjarnason býður til opinnar
umræðu í cafe9.net í tengslum við
verkefni sitt Floating Discussion.
Kaffi og með því fyrirgesti oggang-
andi. Fólk getur einnig nálgast verk-
efnið á
http://www.discussion.is
www.cafe9.net
VIÐEYJARSTOFA KL. 14
Kaþólsk biskupsmessa og
ráðstefna um Ágústínusarregluna
Aloisius Arnstein Brodersen, norskur
munkur af Ágústínusarreglu, flytur
fyrirlestur um Ágústínusarregluna á
miðöldum. Erindið er flutt í tengslum
við sýninguna Klaustur á íslandi,
sem er í Viðeyjarskóla og verður opin
gestum þennan dag. Dagskráin
hefst með biskupsmessu, en að
henni lokinni verða kaffiveitingar,
Brodersen mun því næst flytja erindi
sitt og svara fyrirspurnum.
Ferðir úr Sundhöfn kl. 13,13.30,
15.20.
www.reykjavik2000.is - wap.olis.is
Mánudaginn 2. október
LISTASAFN REYKJAVÍKUR -
HAFNARHÚS KL. 16-18
cafe9.net
Gestgjafar munu kynna verkefni
og hjálpa gestum við að setja inn
efni.
EL FERROL Á SPÁNI
íslandsdagar
Frá 2. til 6. október verða íslands-
dagar í hafnarbænum El Ferrol á
Spáni. Meðal viðburða eru Ijós-
mynda- og skjalasýning um Reykja-
víkurhöfn, tónleikarmeð Guitarls-
lancio, sýningar á íslenskum
kvikmyndum, fyrirlestrar, matarkynn-
ingar, kvikmyndir, og brúðleikhúsið
10 fingur.