Morgunblaðið - 01.10.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000 25
Jón Jóhannes Jónsson dósent
RANNSÓKNIN MARK-
VERTINNLEGG SEM
ÞURFTIAÐ GERA
JÓN Jóhannes Jóns-
son, dósent í lífefna-
og sameindalíffræði
við Læknadeild Háskól-
ans, hefur verið leiðbein-
andi við rannsóknir Hans
Tómasar í um tvö ár. Jón
telur rannsóknir Hans
vera metnaðarfullar og
með viðameiri rannsókn-
um sem nemandi í læknis-
fræði hafi ráðist í við
Læknadeildina.
„I rannsóknum sínum hefur
Hans reynt að skoða erfðamengið
sem slíkt sem líffræðilegt fyrir-
brigði og hvað það er sem stjómar
uppbyggingu erfðamengisins. Það
má því segja að viðfangsefni hans
hafí verið að kynna sér líffræði
erfðamengisins," segir Jón Jó-
hannes þegar hann er beðinn að
lýsa í stuttu máii rannsókn nem-
anda síns.
„Það er enn ekki ljóst hvort sú
tilgáta sem sett var fram í upphafi
er rétt eða ekki,“ heldur Jón
áfram. Getgátur eru uppi um að
það sé virk bæling í frumum
manna sem hindri að hreyfanlegir
hlutar erfðaefnis, svokallaðir
stökklar, geti færst úr stað. í sam-
ræmi við þær getgátur settum við
fram tiigátu um að samband væri
mUli magns stökkla nálægt genum
og ákveðinna tegunda af stökk-
breytingum. Gætum við sýnt fram
á slíkt samband myndi það styðja
getgátur okkar.“
Þegar byi'jað var á þessu verk-
efni fyrir tveimur árum var í raun
og veru ekki hægt að prófa þetta
sökum þess að erfðaefnisraðimar
sem voru aðgengilegar í erlendum
gagnabönkum voru einfaldlega of
stuttar til að vera fullnægjandi
sem gögn. Síðan þá hefur mikið
breyst og þegar við endurtókum
rannsóknina á þessu ári
reyndist unnt að finna
erfðaefnisraðir sem voru
miklu aðgengilegri og
lengri og því var í fyrsta
sinn með góðu móti hægt
að framkvæmda þessa
rannsókn."
Jón telur rannsóknina
athyglisverða og sér vitan-
lega hafi hún ekki verið
gerð áður. „Hún er mark-
vert innlegg í þennan þátt lækna-
vísindanna og hana þurfti að
gera,“ segir hann.
„Hans Tómas þurfti að þróa
nýjar aðferðir til að vinna gögn úr
þessum gagnabönkum, draga þau
saman og vinna úr þeim með þeim
hætti að athuga mætti hvort þetta
samband væri til staðar eða ekki.“
Jón bendir á að 4. árs lækna-
nemar taki að sér rannsóknar-
verkefni, sumir vinni áfram að því
verkefni yfir sumartímann og
jafnvel að hluta til samhliða námi
þar á eftii-. „í tilfelli Hans Tómas-
ar hefur hann unnið flest sumrin
að einhvers konar verkefnum, líka
samhliða námi. Þetta er vissulega
með viðameiri rannsóknum sem
íslenskur læknanemi hefur tekist
á hendur. Ekki er síður merkilegt
að samhliða hefur hann unnið að
annari rannsókn á sama sviði, sem
snýr beint á prófun virkni stökkla í
frumum. Það verkefni hefur verið
unnið í samstarfi við vísindamenn
sem áður voru við Yale-háskóla í
Bandaríkjunum en eru nú við Há-
skólann í Toronto í Kanada.“
Leiðbeinandinn og hinn ungi
vísindamaður hafa að undanförnu
unnið að greinargerð um rann-
sóknir sínar. „Hún er í handrits-
formi og verður senn tilbúin til
birtingar í erlendu fagtímariti,"
segir Jón Jóhannes.
JónJóhannes
Jónsson
að sú reynsla hafi verið ómetanleg
og kynnt íyrir sér undraveröld líf-
tækninnar.
„Þegar lengra kom í náminu fann
ég hversu mikinn áhuga ég hafði á
sameindalíffræðinni. Eg hafði því
samband við Jón Jóhannes og hann
tók mér opnum örmum og leyfði
mér að velja verkefni á þessu sviði.
Þessar rannsóknir þóttu mér mest
heillandi."
Hann segir að rannsóknarvinnan
hafi verið geysilega skemmtileg, en
jafnframt erfið. Sér finnist mikil-
vægt að koma að fleiri þáttum en
einungis náminu og störf við rann-
sóknir henti sér afar vel.
„Ég hef áhuga á að fara frekar út í
rannsóknir með læknisfræðinni á
næstu árum. I „útópískum" heimi
vildi ég helst sinna hvoru tveggja í
framtíðinni, læknastörfum og rann-
sóknum, og hver veit nema það
gangi eftir. Erlendis er það vel
þekkt, þótt minna fari fyrir því hér-
lendis. Þetta er hið minnsta draum-
urinn, að sinna grunnrannsóknum
að verulegu marki. Líf og starf vís-
indamannsins hefur mér alltaf þótt
mjög heillandi," segir Hans Tómas
Bjömsson að lokum, en hann hygg-
ur á landvinninga í Bandaríkjunum
að loknu námi í vor og eins árs
starfsnámi á hérlendu sjúkrahúsi.
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur
árangur!"
„Loksins kom krem þar sem virknin
finnst þegar það er borið á húðina og
jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli
eindregið með Silhouette fyrir konur á
öllum aldri og eftir barnsburð er það al-
veg nauðsynlegt.
Nýja Body Scrubið er kærkomin
viðbót og tvöfaldar virkni Silhouette-
kremsins á húðina."
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
I
Lo^atqjnniry á ‘Río-
ferðinni 15.-23. otf.
í %10 - fegurstu borg heims
TOPPUR TILVERUNNAR!
Sunnud. I. okt. kl. 13.30 á HÓTEL BORG
GYLLTA SAL (inng. suðurdyr).
/
Ingólfur Guðbrandsson forstj. segir frá %10 og sýnir
nýja kvikmynd af fegurstu borg heims.
BEINTBREIÐÞOTUFLUG Á GJAFVERÐI!
ATH. Fáein forfallasœti seld í lok kynningar á sértilboði.
Skrifstofan Austurstræti 17 opin 14.30-16.00.
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN TRAVEL
NETWORK, fyrir frábærar ferðir.
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Tónleikar
í hvert sinn sem hönd þín nálgast BeoCenter 2300
opnast glerhurðirnar hljóðlega og dauft Ijós kviknar.
BeoCenter 2300 er fullkomið hljómflutningstæki
með geislaspilara og FM/AM útvarpi.
Það er alltaf notalegt að nálgast BeoCenter 2300.
BeoCenter 2300 frá Bang & Olufsen: 108.500 kr.
Heimabíó
BeoVision Avant 28" eða 32" breiðtjaldssjónvarp á
rafknúnum snúningsfæti með innbyggðu fjölkerfa
Nicam stereo myndbandstæki og öflugum hátölurum.
Með BeoVision Avant kemstu ekki nær því að fara í
bíó án þess að standa upp úr hægindastólnum.
BeoVision Avant frá Bang & Olufsen: 419.000 kr.
Málfrelsi
BeoCom 6000 er ekki eingöngu þráðlaus sími. Hann sýnir
þér hver er að reyna að ná í þig og þú ákveður hvort þú
svarar. Einnig geturðu tengt allt að 5 önnur simtæki við
sömu línuna og haft þína eigin símstöð á heimilinu.
Með BeoCom 6000 fær fjölskyldan eitthvað að tala um.
BeoCom 6000 frá Bang & Olufsen: 30.900 kr.
BANG 5. OLUFSEN
Síöumúla 21. Reykjavík.
Sími 581 1100.