Morgunblaðið - 01.10.2000, Page 43

Morgunblaðið - 01.10.2000, Page 43
MUKli U W BL,Á±Ji±J öUJNiNUUAUrUK i. OKTÓBER2000 43 MINNINGAR ' Undii-felli í Vatnsdal sumarið 1926 var rafmagn ekki komið í sveitir og hafði hún sjálf síðar orð á því, að mesta breytingin í lífi sveitafólks hefði einmitt verið rafmagnið, því að þá var mvrkrinu bægt burt. Hún mundi líka, þegar fyrsti bíllinn kom í sveitina hennar og þegar fólk safnað- ist saman til að hlusta á fyrsta út- varpstækið. Þessi kynslóð vann hörð- um höndum og skilaði íslandi bættu og breyttu í hendur okkar, sem nú yrkjum landið. Faðir Ástu, Hannes Pálsson frá Undirfelli, var þjóðkunnur maður á sinni tíð. Hann háði marga hildina í Austur-Húnavatnssýslu, þar sem hann var fjórum sinnum í framboði til þings fyrir Framsóknai-flokkinn. Seg- ir hann frá því í bók sinni, Vopnaskipti og vinakynni. Þar var síðan bróðir Hannesar, Björn á Löngumýri, sem vann sýsluna fyiir Framsóknarflokk- inn í sögulegri kosningu sumrið 1959. Annar bróðir Hannesar, dr. Halldór búnaðai-málastjóri, var líka þjóð- kunnur. Systir þeirra, Hulda, er móð- ir Páls Péturssonai-, ráðheiTa. Asta Hannesdóttir var eindreginn framsóknannaður, eins og hún átti ættir til. Hún gekk í héraðsskólann á Laugarvatni og í Kennaraskólann, en í báðum skólunum sveif andi ung- mennafélaganna yfir vötnum. Kjör- orð ungmennafélagshreyfingarinnar, Ræktun lands og lýðs, var eins og tal- að út úr hennar hjarta. Eftir að um hægðist á heimili hennar og bömin komin upp hóf hún kraftmikið starf í Framsóknarflokknum í Kópavogi jafnframt kennslu, lengst í Breið- holtsskóla. Hún var árin 1987-1989 formaður Framsóknarkvennafélags- ins Freyju í Kópavogi og sat enn fremur lengi í stjóm félagsins. Hún var líka lengi í stjóm Framness í Kópavogi og lagði dijúgan skerf til fé- iagsheimilis Framsóknarmanna við Digranesveg í Kópavogi. Um skeið var hún varabæjaríúlltrúi og einnig sat hún í mörgum nefndum á vegum flokksins. Vai- hún ætíð boðin og búin að leggja flokknum lið. Hún sótti ófáa miðstjórnarfundi og kjördæmisráðs- fundi og var jafnan ódeig að taka til máls og leggja gott til mála. Hún var kjamyrt og kryddaði mál sitt gaman- semi þegar það átti við og jafnan vai- vel hlustað þegar hún var í ræðustóli. Þegar við nú kveðjum Astu Hann- esdóttur verður mér hugsað til þeirra hliða stjómmálanna sem mér hafa fundist jákvæðastar, sem er að kynn- ast fólki eins og Ástu, fólki sem býr yfir leiftrandi hugsjónaeldi og einlæg- um vilja til að láta gott af sér leiða. Kjami stjómmálastarfs er einmitt að láta gott af sér leiða. Ásta var framúrskarandi dæmi um hugsjóna- mann sem vildi vinna þjóðinni og flokki sínum gagn. Hún var ein af þeim sem aldrei slógu af í braráttunni við að byggja upp betra og réttlátara samfélag hér á Islandi. I þeirri bar- áttu var aldrei kvartað þótt mikið þyrfti að leggja á sig, jafnvel eftir langan vinnudag, og aldrei leiddi hún hugann að því að fá í staðinn umbun eða viðurkenningu.Tvö orð lýsa best starfi Ástu Hannesdóttur íyrii’ Fram- sóknarflokkinn: Ósérhlífni og sjálf- stæði. Hún lét engan segja sér fyrir verkum, heldur hafði kjark til að segja skoðun sína umbúðalaust. Eitt er víst að hún hafði áhrif. Með hennar vinnu og þúsunda annarra höfum við byggt upp betra samfélag. Ásta vissi betui- en flestir að þ\ú starfi lýkur aldrei. Ásta lést á líknardeild Landsspítal- ans eftir að hafa háð langvinnt dauða- stríð af æðruleysi, eins og hennar kynslóð er líkt. Hún lætur eftir sig fjögur böm, Hannes Hólmstein, Salvöru Kristjönu, Kristin Dag og Guðrúnu Stellu, og fimm bamaböm og votta ég þeim innilega samúð mína fyrir hönd Framsóknarflokksins. Halldór Ásgrímsson. Ásta Hannesdóttii' vai- vinkona mín í blíðu og stríðu í tæpa hálfa öld. Eig- inmaður minn, Eii-íkur Gíslason, var stjúpbróðir Gissurar Jömndar Krist- inssonar og haustið 1952 bjuggum við öll í húsi föður hans, Kristins Guð- bjartssonar vélstjóra, á Óðinsgötu 25. Þá kom Gissur Jörundur blaðskell- andi einn góðan veðurdag og vildi kynna mig fyrir unnustu sinni. Hún reyndist vera brosmild og hnellin stúlka úr Húnaþingi, Ásta Hannes- dóttir. Við Ásta settumst niður, drukkum saman kaffi og urðum strax góðar vinkonur og féll síðan aldrei styggðaryrði á milli okkar. Þau Giss- ur hófu skömmu síðar búskap í næstu íbúð við okkur og á Óðinsgötu fædd- ust þrjú eldri börn þeirra, Hannes, Salvör og Kristinn. Hafði Ásta hætt kennslu, sem hún hafði stundað næstu ár á undan, til að ala bömin upp. Man ég enn, hversu alvarlega hún tók móðurhlutverkið, ekki síst í byrjun, og hversu mikið hún lagði jafnan á sig fyrir bömin sín. Árið 1957 fluttust báðar fjölskyldumar, min og hennar, á Laugamesveg 100, þar sem yngsta dóttir Ástu, Guðrún, fæddist. Nokkur frumbýlingsbragur var þá í Laugamesinu, götur ómalbikaðar, mörg hús lengi ófrágengin og barna- grúi í flestum þeirra. Þetta var erfið- ur en um mai'gt skemmtilegur tími. Ásta hóf aftur kennslu árið 1967 eftir að hafa bætt við sig handavinnukenn- ai’aprófi. Þau Ásta, Gissur og bömin bjuggu á Laugarnesvegi fram til 1970, þegar þau fluttust í einbýlishús í Kópavogi. Má nærri geta, að ég kynntist Ástu og fjölskyldu hennar vel í þessu nær tveggja áratuga sam- býli. Ásta Hannesdóttir var í fæstum orðum stórkostleg kona, sem gaf mik- ið af sjálfri sér og hafði líka mikið að gefa. Hún var greind og vel menntuð og sérlega glaðlynd og hláturmild. Tók ég enn fremur tii þess, hversu vinnusöm hún var og kappsöm, að hverju sem hún gekk, jafnvel áköf. Er óhætt að segja, að henni hafi aldrei fallið verk úr hendi. Þótt hún hefði ákveðnar skoðanir, einkum á stjórn- málum, var hún umburðarlynd, víðsýn og fijálslynd. Hún var í senn hörð og viðkvæm. Hún var hörð í þeim skilningi, að hún var sterk og haggaðist lítt jafnt í mótlæti sem meðbyr. En hún var líka viðkvæm undir niðri, mátti ekkert aumt sjá og bar mikla umhyggju fyrir öðrum, ekki síst þeim, sem áttu undir högg að sækja. Hún sagði stundum, að hún hefði tekið út sorgina í sínu lífi, þegar systir hennar, Guðrún, sem hún kall- aði Diddu, féll skyndilega frá aðeins fjórtán ára að aldri. Höfðu þær systur verið mjög samrýndar. Ég sá Ástu síðast í brúðkaupi dótturdóttur minn- ar, mánuði áður en hún féll frá, og var hún þá glöð og kát að vanda, þótt hún hefði þá glímt við erfiðan sjúkdóm í nokkra mánuði. Ég skrapp til útlanda skömmu eftir þetta og nokkrum dög- um áður en Ásta dó vitjaði hún mín þar ytra í draumi og sagðist vera að fara í langt ferðalag, en hún legði ekki af stað fyrr en eftir helgi, eins og hún orðaði það. Þriðjudaginn eftir þetta var hún öll. Síðustu mánuðina hafði hún notið frábæiTar umönnunar á líknardeild Landspítalans, en böm hennar létu sér líka öll mjög annt um hana. Var það Ástu ætíð óblandin ánægja að hitta dæturdætur sínar og annast um þær. Ástu Hannesdóttur verður sárt saknað, en hún mun lifa í minningu allra þeÚTa, sem þekktu hana. María Haraldsdóttir. Ég dey og ég veit, nær dauðann að ber. Ég dey, þegar komin er stundin. Ég dey, þegar ábati dauðinn er mér. Ég dey, þegar lausnin mér hentust er og eilifs lífs uppspretta er fundin. (Stefán Thorarensen.) „Mér finnst það tillitsleysi af skaparanum að láta mig kafa snjóinn í vetur ef hann lofar mér ekki að lifa sumarið.“ Þetta voru orð alþýðuhetj- unnar Ástu Hannesdóttur í fyrsta símtalinu sem við áttum saman eftir að ljóst var að hún væri helsjúk. Hún var létt í tali eins og venjulega, gerði grín að veikindum sínum og sagðist svo sem vera tilbúin að fai-a - búin að ljúka sínu dagsverki - en blóm sum- arsins væru svo falleg. Ásta fékk að njóta blóma sumarsins. I hennai- erf- iða dauðastríði heyrði ég hana aldrei kvarta enda ekki henni líkt að bera harm sinn á torg. Þetta lýsir Ástu mjög vel. Hún var raunsæ og sann- gjöm baráttukona. Enda þótt sérhver kona sé einstök vai- Ásta alveg einstök. Hún var ein af þessum dyggðum prýddu konum, sem samferðamennimir leituðu til vegna þess að þeir treystu henni. Hún var kennari af lífi og sál. Hún hafði ákveðnar skoðanir á skólamálum sem og öðrum þjóðfélagsmálum og rök- festa Ástu var engu lík. Hún var kona sem þorði að segja skoðanir sínar jafnt í ræðustól sem við eldhúsborðið, enda virt af þeim sem hana þekktu. Hún var hlý, úrræðagóð, heiðarleg, hjálpfús og góðum gáfum gædd hvort sem var til hugar eða handa. Hún var mjög framsýn og fylgdist vel með öllu sem verða mátti til framfara. Sem dæmi um það er að hún talaði um gagnsemi þess að leggja jámbraut frá Keflavík til Reykjavíkur fyrir mörgum áram. Þá hlustuðu fáir en nú er talað um jámbraut í fullri alvöru. Ásta hafði mikla trá á æsku þessa lands, treysti henni til að erfa landið. Kímni brá fyrir á andliti hennar þeg- ar bemskubrek bai- á góma. Hún skildi að litlir fingur þurfa að fá að snerta og var þess fullviss að „enginn verður óbarinn biskup". Ásta var eitt af hinum fjölmörgu „skúffuskáldum" samtímans, prýðilega hagmælt en flíkaði því aldrei. Ég veit að hún orti sig frá vandamálum líðandi stundar og í glettinni ferskeytlu fékk ólgandi skap hennar oft útrás. Ásta var ákaflega glaðlynd og bros- mild kona og hún hafði þann hæfileika sem ekki er öllum gefinn, að brosa til að breiða yftr;ama. Ég kveð Ástu Hannesdóttur með virðingu og þökk fyiir allt. Fyrir mig var það einn af stóra vinningunum í happdrætti lífsins að fá að kynnast þessari einstöku merkiskonu. Bömum, tengdabömum, bama- bömum og öðram syrgjendum votta ég mína dýpstu samúð og vona að þau geti glaðst í hjarta sínu yfir að hafa átt svo trausta og trygga konu við hlið sér á lífsveginum. Ó blessuð stund, er hátt í himinsölum minn hjartans vin ég aftur fæ að sjá og við um okkar ævi saman tölum sem eins og skuggi þá er liðin hjá (Matth. Joch.) Guð blessi minningu Ástu Hannes- dóttur. Sigurbjörg Björgvinsdóttir. Það er með miklum frega að ég kveð vinkonu mína, Ástu Hannesdótt- ur. Hugurinn reikar til baka til sum- arsins 1994. Um 1.300 íslenskar kon- ur skunda á kvennaráðstefnuna í Turku í Finnlandi. Þúsundir kvenna af Norðurlöndunum kynnast hag og menningu hver annarrar um leið og þær skemmta sér undir fmnskri ágústsólinni. Ásta Hannesdóttir var ein íslensku kvennanna. I Turku átt- um við saman góðar og gjöfular stundir. Mér er afar minnisstætt er við sátum þar tvær saman, ræddum heimsmálin, stjómmálin á Islandi og hlutverk Framsóknarflokksins. Ásta varð á þeirri stundu einn af örlaga- völdunum í mínu lífi. Hún tók sér langan tíma í að ræða við mig um þörf og mikilvægi þess að konur létu meira til sín taka í stjórnmálum, það væri Framsóknarflokknum og samfélag- inu nauðsynlegt. Konur þyrftu að taka sér tak og skunda fram. „Þú átt að hella þér út í landsmálin, Siv, það er ekkert mál. Skelltu þér í slaginn og við kerling- amar skulum styðja við bakið á þér,“ sagði hún kampakát og sannfærandi. Hvatning Ástu vó þungt í þeirri ákvörðun minni að taka þátt í stjóm- málum á landsvísu. Síðan hafa hún og Freyjukonur stutt mig gegnum þykkt og þunnt í stjómmálastöríúnum. Ásta Hannesdóttir var einstök manneskja. Um leið og hún var hlý og einlæg í samskiptum sínum við annað fólk var hún hörð á sínu. Ásta var afar félagslynd. Það var gaman og gefandi að vinna við hlið hennar. Því kynntist ég í gegnum starf hennar innan Freyju, félags fi-amsóknai-kvenna í Kópavogi. Þar stóð Ásta í broddi fylk- ingar um árabil ásamt þeim Sigur- þjörgu Björgvinsdóttur og Bimu Amadóttur. Kraftur Freyjukvenna í Kópavoginum hefur verið aðdáunar- verður. Freyjukonur hafa verið hvað virkastar og duglegastar í flokks- starfinu í Reykjaneskjördæmi. Ásta mætti á flestalla fundi í Framsókn- ai’húsinu við Digranesveg. Um leið og hún hellti upp á og tók til kaffi- veitingamar tók hún þátt í umræðum og kom með sínar athugasemdir jafnt úr eldhúsinu sem úr ræðustól. Ásta var frábær ræðumanneskja. Þegar hún talaði lögðu allir við hlustir. Hún talaði af krafti og beitti það sterkum og hnyttnum rökum að ræður hennar urðu oft hin mesta skemmtan þrátt fyrir að undirtónninn væri há- pólitískur. Þegar ég kynntist Ástu vissi ég það eitt að hún væri vön að standa upp á kjördæmaþingum Framsóknar- flokksins á Reykjanesi og segja þar meiningu sína umbúðalaust. Hún hafði sterkar skoðanir á málum, nán- ast sama hvar borið var niður. Sýn hennar á mennta-, félags- og sjávar- útvegsmálin var skýr og margir fram- sóknarmenn á Reykjanesi minnast Ástu fyrir óbilandi áhuga hennai- á jámbraut milli Keflavíkur og Reykja- víkur. Mér er eins afai’ minnisstætt þegar Ásta kom á einu kjördæmis- þinginu upp í ræðustól. Umræðan snerist um skattamál og sá hún öll tormerki á hugleiðingum fyrri ræðu- manna. Spurði hún, með hárbeittri kímni, hvaðan í ósköpunum menn hefðu fengið þessar hugmyndir og hvernig það væri, hvort menn kynnu ekki lengur að reikna í þessu landi? Ástu vai’ illa við allan undirlægjuhátt, menn áttu að bera höfúð sitt hátt hvað sem á gengi og standa fast á sínu. Orðið uppgjöf var ekki til í hennar orðabók, enda var Ásta bjartsýn að eðlisfari. Ásta sýndi samferðafólki sínu mikla ræktarsemi. Garðurinn hennar í Hjallabrekkunni með sínum lit- skráðugu blómum bar einmitt þessari ræktarsemi Ástu glöggt vitni. Ég naut þessa eiginleika Astu ríkulega. Allt frá því að hún hvatti mig til þess að hella mér út í stjómmálin af krafti á kvennaráðstefnunni í Turku sýndi hún mér þessa ræktarsemi. í próf- kjöri, sem þingmaður og nú síðast sem ráðherra. Alltaf naut Ástu Hann- esdóttur við, þar sem hún hvatti mig áfram með ráðum og dáð. Undir það síðasta, þegar hún var þrotin að kröft- um, kom hún hvatningarorðum sínum áleiðis til mín í gegnum Bfrnu Áma- dóttur, vinkonu okkar. Mig langar í þessum kveðjuorðum að þakka Ástu Hannesdóttur fyrir samfylgd hennar og stuðning í minn garð á liðnum áram. Stuðningur hennar og hvatning hafa verið mér ómetanleg. Framsóknarmenn eiga henni mikið að þakka fyrir allt það starf sem hún innti af hendi í þágu flokksins, styrk hennar og þraut- seigju. Við sem voram svo lánsöm að eiga Ástu að munum sakna hennar sárt. Bömum hennar, þeim Hannesi Hólmsteini, Salvöra Kristjönu, Kristni Degi og Guðránu Stellu, ásamt öðrum ættingjum og samfylgd- armönnum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi minning Ástu lifa um ókomna tíð. Siv Friðleifsdóttir. Nú í haust eru liðin 57 ár frá því að kynni okkar Ástu hófust. Ekki leist okkur nú of vel hvorri á aðra við fyrstu sýn. Við lentum saman á fjög- urra stúlkna herbergi á Laugai’vatns- skóla. Það vai’ liðinn smátími frá skólasetningu þegar hún kom í skól- ann og það átti að vera skólaball um kvöldið. Ég rétt heilsaði henni og hélt svo áfram að búa mig, greiða mér og mála mig og púðra. Ásta sagðist hafa hugsað með sér að ég væri nú meiri pjattrófan og ég hugsaði að hún væri nú meiri fitubollan. Við hinar þrjár voram allar svo grannar. En þegar við hittumst mörgum árum seinna og höfðum verið duglegar við að bæta á okkur aukakílóum sagði Ásta: „Svei mér þá, ég held að ég sé bara orðin grennst af okkur.“ Og svo hló hún sín- um gleðigjafahlátri. Margar skemmtilegar minningar era frá þessum skólaáram, það vai- dásamlegur tími. Ásta fór svo í Kenn- araskólann en ég fór að vinna og vin- átta okkar hélt áfram í Reykjavík. Tveimur áram seinna tók ég mér frí úr vinnu og fór með henni norður í Guðlaugsstaði i kaupavinnu, en þar bjuggu afi hennar og amma og fóður- bróðir. Auðvitað vildum við komast á þau fáu böll sem vora í boði yfir sum- arið. Ég man hvað mér leist illa á kláf yfir Blöndu til að komast á ball í Bólstaðarhlíð. En Ásta sagði mér bara að stíga upp í kláfinn og loka augunum, hún skyldi draga okkur yf- ir og það gerði hún. Mikið var hún líka búin að hlakka til að fara á ballið í Vatnsdalnum, en þar var hún fædd og uppalin. Hún var hins vegar búin að lofa að vera hjá frænku sinni þegar , hún eignaðist bam og bamið þurfti x endilega að fæðast á sama tíma og ballið var. Ég fór og var í reiðbuxum og rássastígvélum, en farið var á hestum yfir í Vatnsdal. Ég kallaði það „Fjallabaksleið". Þegar á ballið kom vora allar stúlk- ur í sumarkjólum og á spariskóm. Þá vantaði mig minn góða ráðgjafa til að segja mér til og taka með mér kjól og skó. I Ástu eignaðist ég mína bestu vin- konu. Það er vandfundin manneskja sem er eins mörgum kostum búin og hún var. Þess fékk ég að njóta öll þessi ái’ frá skóladögum okkar. Ásta kenndi í einn vetur eftir að hún lauk skóla og giftist síðan og eignaðist fjögur börn. Seinna fór hún í handa- vinnukennaradeildina og kenndi eftír það handavinnu. Eftir að við maður- inn minn fluttumst úr Reykjavík í Neistastaði heimsótti hún mig þang- að. Hún kom með bömin með sér og meðan hún dvaldi þar hjálpaði hún mér að sauma á mig og bömin mín. Nærvera hennar og félagsskapur var ekki síðri en hjálpin. Það kom sér líka vel að eiga Ástu fyrir vin, eftir að við fluttum aftur til Reykjavíkur. Einu sinni þegar maðurinn minn var nýkominn heim af spítala og ég var svo lasin að ég treysti mér ekki út til að versla fyrir heimilið hringdi dyra- bjallan. Og hver var þá komin nema Ásta? Ég sagði að það væri eins og hún hefði fengið hugskeyti og hún sagði að sér hefði fundist að hún þyrfti að skreppa til mín. Nú er okkar samverastundum lok- ið, en minningamar á ég sem fjársjóð sem ekkert fær grandað. Blessuð sé minningÁstu Hannesdóttur. Bömum hennar og bamabömum og öðrum vandamönnum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Margrét Bjömsdóttir frá Neistastöðum. Góður starfsfélagi og vinur er fall- inn frá eftir erfið veikindi. Glaðlynd og góðhjörtuð kona sem helgaði líf sitt kennslu og uppeldi íslenskra skólabama í marga áratugi. Ásta var kennari af hugsjón. Hún var þeirrar skoðunar að kennsla væri göfugt en vanmetið starf. Hún lagði sig alla fram til að nemendur hennar fengju þá menntun og það uppeldi sem er besta veganesti sérhvers ein- staklings þegar út í lífið er komið. Dugnaður og ósérhlífni einkenndu hana og ef upp komu vandamál í dagsins önn leysti hún úr þeim með . bros á vör. Bömunum sem hún kenndi þótti vænt um hana og þau fylltust öryggi í návist hennar. Hún var sannur mannvinur sem gott var að umgangast. Ásta hóf kennslu við Breiðholts- skóla þegar hann hóf starfsemi í sept- ember 1969. Fyi’stu árin einkenndust af húsnæðisþrengslum vegna mikils fjölda nemenda og mótunar starfs, siða og venja sem núverandi skóla- starf byggist á. Elja, dugnaður og starfsgleði fyrstu starfsmannanna lagði granninn að því farsæla skóla- starfi sem einkennt hefur skólann. Ásta var frumkvöðull í handavinnu- kennslu og vann þar starf sem aldrei verður fullþakkað. Lífsgleði hennar og kraftur smitaði út frá sér til allra. Líflegar umræður um líðandi stund voru iðulega á kennai’astofunni í frí- mínútum. Ásta tók afstöðu í flestum málum sem rædd vora og lá ekki á skoðunum sínum. Þegar sá gállinn var á henni var tilgangslaust fyrii’ samkennara hennar að reyna að snúa henni yfir á sitt band. Ásta hafði ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og fór ekki leynt með þær. Hún barðist í kjara- og réttindabaráttu kennara um langt skeið og kennarastéttin á henni margt að þakka. Ásta var tryggur samstarfsmaður^ og virtur félagi. Við upphaf hvers skólaárs kom hún brosandi til starfa með blómvönd úr garðinum sínum til að skreyta kennarastofuna. Þessi sið- ur hennar var táknrænn fyiir þá virð- ingu sem hún bar fyrir staifi sínu. Ásta lét af störfum við Breiðholts- skóla vorið 1996 eftir 27 farsæl ár við skólann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.