Morgunblaðið - 01.10.2000, Síða 53

Morgunblaðið - 01.10.2000, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000 53 FRÉTTIR Kringlan býður í leik- hús í dag KRINGLUVINIR er fjölskyldu- klúbbur Kringlunnar og er öllum velkomið að taka þátt og koma og horfa á skemmtilega leiksýningu. Dagskráin verður á hverjum sunnu- degi í vetur kl. 13 stundvíslega í Borgarleikhúsinu. Lögð er áhersla á fjölbreytta dagskrá þar sem skemmtun og fræðsla mun ráða ríkjum. Öllum stendur til boða að skrá sig sem Kringluvin og eru þeir nú um 1000 talsins. Þeir sem skrá sig fá með- limakort og þegar þeir mæta fá þeir stimpil á þjónustuborðinu á fyrstu hæð í Kringlunni eftir hverja sýn- ingu. Þegar stimplarnir eru orðnir 8 talsins í meðlimakortinu fær við- komandi Kringluvinur verðlaun. Venni og Snælda verða í forsvari fyrir klúbbinn, en Venni er hjóla- sendill í Kringlunni og Snælda er besta vinkona hans sem passar upp á að hann geri ekki vitleysur. Meðal þess sem er á dagskránni á sunnudaginn kemur er myndband með Venna, Bjarni töframaður kemur í heimsókn, Snældufréttir verða á sínum stað, leikjakeppni að hætti Venna þar sem Valgeir Skag- fjörð og dóttir hans Anna Hjördís keppa, Ragnheiður Davíðsdóttir frá VIS kynnir Venna og öllum sem mæta reglurnar um hjólabretti, línuskauta og hlaupahjól og margt fleira skemmtilegt, segir í fréttatil- kynningu. Niðjamót NIÐJAMÓT afkomenda Stefáns Jónssonar frá Klifstöðum, Loð- mundarfirði og fyrri konu hans Ólínu Þóreyjar Ólafsdóttur frá Litlu-Hlíð, Vesturdal, Skagafirði, og seinni konu hans Halldóru Sig- urðardóttur frá Helgafelli í Svarf- aðardal, verður laugardaginn 4. nóv. nk., í Kiwanishúsinu Engja- teigi 11, Reykjavík, kl. 14-17. Hægt er að fá nánari upplýsingar og tilkynna þátttöku til eftirfarandi: Sigríður Gunnarsdóttir Hnausum II, V-Húnavatnssýslu, Bryndís Tómasdóttir/Eyjólfur Hermanns- son Hjálmholti 1, Rvk., Sigrún Páls- Frostafold 6, Rvk. og Ólína Gunn- arsdóttir Fagrahvammi 2c, Hf. Hreinlætistæki í úrvali M Ifö cera m. setu, innbyggður stútur í gólf kr. 20.122- stgr. Ifö cera m. setu, stútur í vegg kr. 19.959,- stgr. ^ Gustavsberg m. setu, stútur í vegg kr. 21.402,- stgr. §2 Porsan m. setu, innbyggður stút- ur í gólf eða stútur í vegg kr. 12.916,- stgr. Verslið þar sem úrvalið er. wM§ww&w4¥9*%fínSww fsrff¥* Ármúla 21, m sími: 533 2020. EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR SKRÁNINGARTÖFLUR • Er til eignaskiptayfirlýsing yfir þína fasteign? • Er viðhald fasteignar þinnar framundan? • Eru hlutfallstölur réttar? Jl Eignaskipting ehf. SERHÆFÐIR I GERÐ EIGNASKIPTAYFIRLYSINGA Símar 587 7120 og 865 8493 • Veffang: www.mmedia.is/eignir Þýsk eðalbifreið í sérflokki Til sölu glæsilegur M. Benz C 200 elegans árg. 1995, ekinn 95.000 km. hvítur, viðarinnrétting, sjálfskipting, tvívirk sóllúga, rafdrifnar rúður, að- fellanlegir speglar, álfelgur. Frábærlega lipur og skemmtilegur bíll. Verðið er sanngjamt, aðeins kr. 1.850. þús. Upplýsingar í síma 893 4284. IJ II |l || Kanrho Kanebo Kanebo 1 IB IB IB Kanebo IB MMNC UW<ON I Kanebo IB Kanebo IB Kanebo Kanebo IB IB •WK rnuuoMi nSŒoíila Kanebo IB er ætlað að gleðja skilningarvitin og annast lífheim húðarinnar til þess að endur- heimta kjörástand hennar. Húðvísindi á sviði rakamyndunar innan frá, rannsóknir á vítamínum, silkitækni og ilmtækni sameinast hér um að ganga lengra í umönnun húðarinnar. HÚÐSNYRTILÍNA Látið ekki streitu dagsins í dag draga úr fegurð morgundagsins. Endurheimtið innri fegurö og jafnvægi húðarinnar með hjálp hins besta úr náttúrunni og tækni og þekkingar Kanebo.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.