Morgunblaðið - 18.10.2000, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Draumur um
heimili að heiman
verður veruleiki
Með opnun Norræna hússins á Manhattan rætist
draumur norrænu samtakanna, Amerícan Scandinav-
ian Foundation, um heimili að heiman. Hiilda Stef-
ánsdóttir segir frá hátíðlegri vígslu hússins í gær sem
fram fór að viðstöddum tignum norrænum gestum.
Morgunblaðið/Hulda Stefánsdóttir
Þjóðhöfðingjar og aðrir fulltrúar Norðurlandanna saman komnir við vígsluna í gær.
Richard Holbrook, sendiherra Bandaríkjanna hjá Framhlið Norræna hússins í
Sameinuðu þjóðunum, ræðir við mæðgurnar Silvíu New York. Húsið er hannað af
drottningu og Viktoríu, krónprinsessu Svía. James Stewart Polshek.
NORRÆNA húsið í New York var
formlega tekið í notkun í gær að
viðstöddum forseta íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni, sænsku kon-
ungshjónunum Karli Gústafi og Sylvíu, dóttur
þeirra, krónprinsessunni Viktoríu, Noregs-
prinsessu Mörtu Lovísu, Benediktu prinsessu
af Danmörku, finnska utanríkisviðskiptaráð-
herranum, H.E. Kimmo Sasi, og fulltrúa
bandarískra stjórnvalda, Richard Holbroke,
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Það er Norræna stofnunin í
Bandaríkjunum sem stendur að byggingu
hússins en ríkisstjórn Islands átti frumkvæði
að því að norrænu ríkin styrktu framtakið.
Starfsemi Norræna hússins verður leiðandi í
kynningu á menningu, tækni og viðskiptum
Norðurlanda vestan hafs.
Tilkoma hússins kraftaverki lfkast
„Tilkoma Norræna hússins í New York er
kraftaverki líkast,“ sagði Kristján Tómas
Ragnarsson, læknir og formaður stjórnar
Norrænu stofnunarinnar, í ræðu sinni við
vígslu hússins. „Með þessu er ótrúlegur
draumur að rætast um heimili að heiman til
handa Norðurlöndunum."
Þakkaði hann fjárstuðning og ötula vinnu
fjölda einstaklinga og fyrirtækja síðastliðinna
10 ára auk þess að færa fulltrúum Norður-
landanna við athöfnina sérstakar þakkir fyrir
stuðning norrænu ríkisstjórnanna. Um leið og
Kristján Tómas lýsti yfir vígslu hússins tók
hann fram að vinnu samtakanna væri ekki
nándar nærri lokið og mikilvægt væri að efla
áfram samskipti Norðurlandanna og Banda-
ríkjanna á sviðið menntunar og menningar nú
þegar þessum stóra áfanga í yfir 90 ára sögu
þeirra væri náð.
Lúðrasveit bandaríska herskólans lék þjóð-
söngva Norðurlandanna fimm og Bandarikj-
anna við upphaf athafnarinnar. Þá flutti Karl
Gústaf Svíakonungur stutta tölu og Richard
Holbroke, sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, færði fram hamingju-
óskir og kveðjur Bandaríkjaforseta.
Norðurlandabúar voru áberandi í hópi
gesta við vígsluathöfnina fyrir framan Nor-
ræna húsið, sem stendur á Park Avenue milli
37. og 38. strætis, og veifuðu margir fánum
þjóða sinna.
Hús nýrrar kynslóðar
„Ég held að það sé mikilvægt að ungt fólk á
Norðurlöndunum, hvort sem er á sviði lista,
vísinda eða viðskipta, átti sig á þeim möguleik-
um sem hér eru að skapast. Þetta er fyrst og
fremst hús nýrrar kynslóðar og nýrra tíma,“
sagði forseti íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, í stuttu spjalli eftir að hafa farið skoðun-
arferð um húsið ásamt öðrum tignum gestum.
Sagðist hann telja Norræna húsið í New
York grundvöll fyrir því aðkynna norræna
menningu, hefðir og venjur í Bandaríkjunum.
Arkitektúr hússins, sem hannað er af James
Stewart Polshek, bæri með sér svipmót Norð-
urlanda og væri einstaklega glæsilegur.
„Hingað geta hvers kyns listamenn leitað með
verk sín til kynningar auk þess sem Norræna
húsið getur orðið vettvangur stefnumóta nor-
rænna vísinda-, fræði- og viðskiptamanna við
hérlenda samstarfsaðila," sagði Ólafur Ragn-
ar. „Það er greinilegt að staða norrænar
menningar í Bandaríkjunum er að verða mun
sterkari en áður. Það hefur alltaf verið vanda-
mál hér að Norðurlöndin hafa ekki átt nein
heimkynni en með því að þau hafa nú eignast
þetta heimili skapast í fyrsta sinn grundvöllur
fyrir þvi að vinna norrænum hefðum og venj-
um sess í hugum Bandaríkjamanna."
Islenskir viðburðir
fyrsta mánuðinn
Húsið telur rúma 3.000 fermetra á 8 hæð-
um. Þar er m.a. að finna bókasafn sem kennt
er við Halldór Laxness og tónleika-og ráð-
stefnusal kenndan við danska píanóleikarann
og skemmtikraftinn Victor Borge auk sýning-
arsala, fræðslumiðstöðvar fyrir börn, verslun-
ar og veitingasals. Þá er hluti hússins nýttur
undir skrifstofur Norrænu stofnunarinnar.
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn sem fullorðna
verður jafnan í boði í húsinu en riðið verður á
vaðið með röð íslenskra viðburða fyrsta mán-
uðinn. Hallveig Thorlacius verður með brúðu-
leikhús fyrir börn um næstu helgi og Helga
Amalds flytur leikþátt sinn um Leif heppna.
Þann 29. október verður Caput-hópurinn með
tónleika og í nóvembermánuði verður haldin
íslensk kvikmyndahátíð. Þá verður einnig
opnuð sýning á verkum ungra norrænna
hönnuða. Þann 16. nóvember munu síðan ís-
lensk-ameríska verslunarráðið og amerísk-ís-
lenska verslunarráðið í samstarfi við Kaup-
þing í New York gangast fyrir málþingi þar
sem kynntir verða áhugaverðir fjárfestinga-
kostir á íslandi.
Vígsla Norræna hússins markar upphaf
norrænna daga í New York en Víkingasýning
Smithsonian-safnsins, sem opnuð var í Wash-
ington í apríl sl., hefur nú flust um set til New
York þar sem hún verður opnuð nk. laugardag
í bandaríska náttúrusögusafninu, American
Museum of Natural History.
í kvöld halda Norrænu samtökin enn frekar
upp á opnun Norræna hússins með árlegum
fjáröflunarkvöldverði á Grand Hyatt-hótelinu
á Manhattan að viðstöddum hinum tignu nor-
rænum gestum. Þar verður Ólafur Ragnar
Grímsson aðalræðumaður kvöldsins.
I
Framgangskerfi
f heilsugæslu
Kostnaður
nam um 20
milljónum
KOSTNADUR Heilsugæslunnar í
Reykjavík við framgangskerfi sem
samið var um við hjúkrunarfræð-
inga er um 20 milljónir króna
vegna þessa árs og síðasta. Guð-
mundur Einarsson, forstjóri, sagði
að óskað hefði verið eftir að ríkið
tæki tillit til þessa kostnaðar í fjár-
veitingum líkt og á sjúkrahúsunum.
Hjúki-unarfræðingar á sjúkra- gj
húsunum gerðu á árinu 1998 sam- Jf
komulag við stjórnendur þeirra um
aðlögunarsamninga. Þeir gerðu ráð
fyrir að tekið væri upp svokallað
framgangskei-fi. Guðmundur sagði
að í kjölfarið hefði Heilsugæslan í
Reykjavík samið við hjúkrunar-
fræðinga og ljósmæður á heilsu-
gæslustöðvum.
I heilsugæslustöðvum í Reykja- L
vík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og
Mosfellsbæ starfa um 175 hjúkrun- fi
arfræðingar og ljósmæður í um 130 p
stöðugildum.
Heimsókn
forsætis-
ráðherra
til Kanada
hefst í dag
OPINBER heimsókn Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra og Astríðar
Thorarsensen, eiginkonu hans, til
Kanada hefst í dag, en í gær var
hann viðstaddur hátíðarhöld vegna
landafundaafmælisins í Minneapol-
is í Bandaríkjunum.
Forsætisráðherra sótti m.a. heim
stórverslunina Byerly’s Lund, þar
sem verslunarmaðurinn Tres Lund
hefur á boðstólum margs konar
matvöru frá Islandi, m.a. lax, kav-
íar og lambakjöt sem verið hefur til
sérstakrar kynningar undanfamar
vikur. Með Davíð í Byerly’s Lund
var Jón Asbergsson, framkvæmda-
stjóri Útflutningsráðs.
Síðdegis í gær sóttu forsætis-
ráðherrahjónin hátíðarkvöldverð
kvennaklúbbsins Heklu í Minn-
Reuters/Andy King
Davíð Oddsson forsætisráðherra bragðar á íslensku lambakjöti í Byerly’s-versiuninni í Minneapolis í gær en ís-
lenskar afurðir hafa síðustu vikur verið kynntar í versluninni.
eapolis, en klúbburinn fagnar 75
ára afmæli sínu á þessu ári. Örn
Arnar, aðalræðismaður íslands í
Minneapolis, tók þar á móti þeim
ásamt eiginkonu sinni, Margréti
Arnar.
Frá Minneapolis hélt forsætis-
ráðherra í morgunsárið ásamt
föruneyti sínu til Winnipeg þar
sem hann verður m.a. viðstaddur
opnun íslenska bókasafnsins í há-
skólanum í Winnipeg en hann mun
einnig taka við heiðursdoktors-
nafnbót við skólann. Þá mun for-
sætisráðherra taka þátt í hátíðar-
höldum í Gimli til að minnast
fyrstu íslensku landnemanna sem
þangað komu fyrir 125 árum.