Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 11

Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 11
MORGUNBLÁÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 11 FRÉTTIR Góður árangur af verkefni við sáttaumleitanir sérfræðinga í umgengnismálum Ráðherra telur mikilvægt að halda áfram á sömu braut TILRAUN sýslumannsins í Reykja- vík um ráðgjöf fyrir foreldra, sem eiga í ágreiningi um umgengni við böm sín, hefur þótt takast það vel að Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- heri-a hefur ákveðið að leggja frum- varp fyrir ríkisstjóm og Alþingi tO breytinga á bamalögum sem felui- m.a. í sér að lögfest verði skylda ríkis- ins til þess að bjóða öllum foreldrum, sem eiga í umgengnis- og forsjárdeil- um, upp á slíka ráðgjöf sérfræðinga. í minnisblaði dómsmálaráðherra, sem kynnti málið í ríkisstjóm í gær, kemur fram að ráðgjöfinni sé ekki að- eins ætlað að vera til hagsbóta fyrir foreldra og böm, heldur einnig að leiða til fækkunar á stjómvaldsúr- skurðum og dómum í þessum málum. Forsaga málsins er sú að fyrir ári ákvað dómsmálaráðherra að setja tO- raunaverkefni í gang hjá embætti sýslumannsins í Reylqavflt, tíl að stuðla að því að sem flestum ágrein- ingsmálum lyki með farsælum hætti í stað stjómvaldsúrskm-ðar. Verkefnið fólst í því að öllum foreldmm sem áttu í ágreiningsmálum var boðið upp á ráðgjöf, einskonar sáttaumleitan sem hafði að markmiði að hjálpa foreldr- unum að leysa ágreining með samn- ingi, með hagsmuni barnsins að leið- arljósi. Frá janúar tO júlí á þessu ári komu 46 foreldrar tO sálfræðingana, sem óskað höfðu eftir úrskurði sýslu- manns. I yfir 90% þessara tilfella náð; ist samningur múli foreldranna. í 80% tilfella hefur gengið vel eða sæmilega að halda samninginn en í 20% tOvika hefur það gengið illa eða alls ekki. I um 95% tOvika leið börn- unum vel eða sæmOega vel með fram- kvæmd samningsins. Þekkt úrræði á Norðurlöndum Sólveig Pétursdóttir sagði í samtali við Morgunblaðið að niðurstöðurnar væra jákvæðar og mikilvægt væri að ná að hjálpa foreldrum að leysa ágreiningsmál með samningi. Hún sagði að vegna frumvarpsins væri nánari útfærsla á lagabreytingunni tO umfjöllunar í dómsmálaráðuneytinu. Of snemmt væri t.d. að segja til um hversu margir sérfræðingar komi að þessum rnálum í framtíðinni. I þessu Yfirlýsing frá Gunnari Inga Gunnars- syni vegna ágreinings við Sverri Her- mannsson um Frjálslynda flokkinn Hafnaði tillögu um að skipta þingmennsku GUNNAR Ingi Gunnarsson hefur sent Morgunblaðinu greinargerð varðandi „höfuðatriði hins siðferði- lega ágreinings milli hans og Sverr- is Hermannssonar, formanns Frjálslynda flokksins, og þar með aðalforsendur afsagnar hins fyrr- nefnda“ og birtist hún hér: „1. Þann 21. maí, 1999, biður Valdimar Jóhannesson undirritaðan að hitta sig einan á Hótel Esju um kvöldið sama dag. Á fundinum lýsir Valdimar því yfir (þótt hann hafi reyndar neitað því staðfastlega áð- ur) að hann hafi sjálfur kostað prentun á bæklingi nokkrum (óhróðursbæklingi um framsóknar- menn) - sem síðar kom til umfjöll- unar í fjölmiðlum - og hafi prentun- in kostað 300.000 kr. Valdimar sagðist hafa gert þetta með vitund og samþykki formannsins, Sverris Hermannssonar, sem hafi auk þessa lofað sér endurgreiðslu síðar. 2. Þann 22. júní, 1999, rétt fyrir kvöldfund miðstjórnar Frjálslynda flokksins, segir Valdimar Jóhannes- son öðrum miðstjórnarmanni ná- kvæmlega það sama og rakið er hér að ofan, en bætir því við að á mið- stjórnarfundinum stuttu síðar ætli formaðurinn, Sverrir Hermanns- son, að láta miðstjórnina afgreiða áðurnefnda 300.000 kr. endur- greiðslu til Valdimars undir því yfir- skini að með slíkri samþykkt væru menn að styrkja málarekstur Valdi- mars fyrir Hæstarétti. Miðstjórnar- maðurinn treysti sér ekki á fundinn. 3. Á miðstjórnarfundinum um kvöldið bar Svemr Hermannsson svo fram áðurnefnda tillögu um fjár- hagsstuðning uppá 300.000, alveg eins og Valdimar hafði áður lýst sem væntanlegri leikfléttu formannsins. Undimtaður taldi sig skynja þessa leikfléttu Sverris og mótmælti kröftuglega, enda vildi undirritaður hvorki tengja ílokkinn við siðleysi þeirra Valdimars og Sverris for- manns, né heldur hitt, að grunlausir miðstjórnarmenn yrðu látnir sam- þykkja yfir sig prentunarkostnað hins illræmda bæklings. Á þessu stigi íhugaði undirritaður alvarlega afsögn og ræddi um hana við Sverri Hermannsson. Formaðurinn hætti við að láta flokkinn borga brúsann og kvaðst útvega peninga eftir öðr- um leiðum. 4. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra eru árlegar op- inberar greiðslur til Frjálslynda flokksins um kr. 6.000.000. Heildar- launagreiðslur til framkvæmda- stjórans eru um 330.000 á mánuði og munu þingmenn flokksins hafa samið við hann um þessi starfskjör. Á ársgrundvelli mundu því launa- greiðslur til framkvæmdastjóra spanna um 66% af opinberum stuðn- ingi við flokkinn. Undirritaður hefur hvorki séð þennan samning né kom- ið að honum með nokkrum hætti. 5. Miklum tíma hefur verið varið í að afla flokknum tekna, en lítil um- ræða hefur verið um föst útgjöld, eins og nauðsynlegt umfang starfs framkvæmdastjóra og eðlileg starfskjör hans. Þess í stað hefur allt verið gert til þess að flokkurinn geti til dæmis staðið undir launum hans, eins og um fjölskyldufyrirtæki væri að ræða. 6. En þann 10. september síðast- liðinn tók loks steininn úr í sam- skiptum undirritaðs og Sverris Her- mannssonar formanns þegar hann leggur fyrir undirritaðan eftirfar- andi tillögu sína til að bæta stöðu flokksins og framkvæmdastjórans: • Að hann segi af sér þing- mennsku • Að undirritaður og fram- kvæmdastjórinn skipti með sér þingsetu til jafns • Að undirritaður greiði Frjáls- lynda flokknum nettólaun sín alla þá mánuði sem Alþingi situr ekki • Að formaður verði áfram for- maður og starfsmaður flokksins með aðsetur á skrifstofu og greidd- an síma. Þar með gafst undirritaður end- anlega upp á öllu samstarfi við Sverri Hermannsson og sagði af sér varaformennsku og vék úr mið- stjórn." sambandi benti Sólveig á að fjöldi sérfræðinga, s.s. sálfræðingar, lækn- ar og félagsráðgjafar, væru víða starfandi í þjóðfélaginu og þeir hefðu lagt sitt af mörkum í þessum málum. Sólveig sagðist, aðspurð, ekki geta svarað því af hveiju úrræði sem þessi hefðu ekki áður staðið til boða hjá emb- ættum sýslumanna. Hún sagði þetta úrræði vera þekkt hjá ýmsum ná- grannaþjóðum, m.a. á Norðurlöndum. Á síðasta ári hefði verið haldinn fundur sérfræðinga hér á landi, með þátttöku annarra þjóða, um sáttaumleitanir í forræðisdeilum og sá fundur hefði verið kveikjan að fjrniefndri tilraun. Sólveig benti á að fram kæmi í nið- urstöðunum að flestir foreldrar treystu sýslumannsembættinu vel. Einnig skipti máli að foreldramir hefðu verið vel undirbúnir af hálfu embættisins fyrir viðtöl með sérfræð- ingunum. Þá sagði Sólveig að aðstöðu hefði verið komið upp í húsnæði sýslu- manns í Skógarhlíð, hlýlegu herbergi sem hefði gefið góða raun. Greni úr Heiðmörk í gólf STARFSMENN Skógræktarfélags Reykjavíkur og Viðarmiðlunar Skógræktar ríkisins hafa sagað niður greni úr Heiðmörk og er ætlunin að þurrka viðinn og vinna í gólfborð. Gólf nýrrar Fræðslustofu Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn verð- ur lagt með þessu efni en það verður þurrkað og heflað í Húsa- smiðjunni. Efni sem fellur til í grisjun í Heiðmörk hefur lítillega verið notað í útivistargögn og girðingarstaura en þetta er í fyrsta sinn sem það er tekið og unnið í svo miklum mæli. Morgunblaðið/Jim Smart Ræða Halldórs Blöndal umfjöllunarefni hjá sagnfræðingum Ekki algengt að stjórn- málamenn ræði um hlut- verk fornbókmennta ÁRNI Daníel Júlfusson sagnfræð- ingur gerir ræðu Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, á Hólahátíð í ágúst sl. að umtalsefni í nýlegu Fréttabréfi Sagnfræðingafélags íslands. Segir Ámi það vera athyglisvert hvernig Halldór ræðir um hlutverk fom- bókmennta í nútímanum og hvemig hann noti þá umfjöllun til að veija Sigurbjörn Einarsson biskup fyrir þeim „árásum“ sem hann hafi orðið fyrir í fjölmiðlum í tengslum við kristnihátíð. „Halldór er forseti Alþingis, fróð- ur maður og skemmtilegur og ber ræðan því glöggt vitni,“ segir Ámi m.a. um ræðu Halldórs sem hann hélt á Hólum f Hjaltadal hinn 13. ágúst sl. „Mesta athygli í fjölmiðlum vakti umfjöllun hans um kristnihá- tíðina á Þingvöllum, einkum þó þau ummæli að það hafi ekki verið vegna andúðar á kirkjunni að ekki fleiri sóttu hátíðina. Halldóri er mjög umhugað um að veija Sigur- bjöm Einarsson biskup fyrir þeim „árásum" sem hann hefur orðið fyr- ir í fjölmiðlum í tengslum við kristni- hátfð og í því sambandi ræðir hann um sannleiksgildi íslendingabókar og Landnámu." Árni vitnar því næst í ræðu Hall- dórs þar sem segir m.a.: „Það hefur ... komið mér í opna skjöldu að ís- lendingabók skuli nú sett á hillu með riddarasögum eða Fornaldarsögum, efnisatriði véfengd eða látið eins og hún sé ekki til, að því er virðist til að koma höggi á Sigurbjörn Einarsson biskup og kirkju hans. Samkvæmt söguskilningi hans voru fyrstu landnemamir kristnir þótt engar minjar finnist hér um þá, stendur skrifað í einu dagblaðanna fyrir tveimur dögur og látið í það skfna í þrætubókarstíl að dvöl papa á ís- landi sé ný uppfinning í staðinn fyrir að birtast ljóslifandi á blöðum ís- lendingabókar...Trúverðugleiki fs- lendingasagna og Landnámu er orð- inn að sérstakri fræðigrein og þótt skrýtið sé hefur mér stundum fund- ist sem fslenskir fræðimenn beri kinnroða fyrir þær. Því hefur m.a. verið haldið fram að Egill Skalla- grímsson hafi ekki ort Sonartorrek heldur ókunnur maður löngu sfðar. Það er auðvitað merkileg hugmynd ... sem vissara er að taka ekki of al- varlega." Fræðiraenn þekkja efasemdir Árni segir að Halldór lýsi þarna þeim efasemdum sem fyrir nokkuð löngu sfðan fór að bera á meðal fræðimanna í íslenskum fræðum um sannleiksgildi íslendingasagna. „Sagnfræðingar þekkja vel þessar efasemdir,“ segir Árni. „f sögutúlk- un Jónasar frá Hriflu voru hetjur Is- lendingasagna ljóslifandi persónur og enginn efi komst að um að þessar persónur hefðu raunverulega verið til. Enginn vafi var heldur á því að hér höfðu verið papar og flúið und- an villtum víkingum þegar þeir komu. Annað hljóð kom f strokkinn síðar á öldinni og þegar undirritað- ur hóf nám í sagnfræði við Háskól- ann var búið að útrýma íslendinga- sögum úr námsefninu, eingöngu var gert ráð fyrir að Sturlungasaga og aðrar samtíðarsögur væru mai'k- tækar sem sögulegar heimildir. Síð- an hafa bókmenntafræðingar bent á að óvarlegt sé að taka Sturlungu eins bókstaflega og menn hafa gert, ýmislegt bendir nefnilega til þess að hún sé jafnsjálfstæð gagnvart „raunveruleikanum“ eins og Islend- ingasögur. Það er hins vegar mjög athyglis- vert hvemig Halldór tekur á málinu. Það er ekki algengt að stjórnmála- mcnn ræði þannig um hlutverk fom- bókmennta í nútímanum, hér em Is- lendingabók og Landnáma komnar f brennidepil dægurmálaumræðunn- ar. Og gagnrýnendur kristnihátíðar nota efasemdir um tilvist papa á 9. öld til að koma höggi á forystumenn þjóðkirkjunnar við árþúsundamót.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.