Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Einkavæðing á fjármála- og fjarskiptamarkaði rædd á hádefflsfundi Verslunarráðs Islands
Sala á Lands- og Búnaðar-
banka dragist ekki lengnr
Morgunblaðið/Kristján
Jón Björnsson, sparisjóðssjóri Sparisjóðs Norðlendinga, og Sveinn Torfi
Pálsson hlýða á framsögur á fundi Verslunarráðs.
VERSLUNARRÁÐ íslands telur
að sala á Lands- og Búnaðarbanka
megi ekki dragast lengur. Verði
bankamir sameinaðir áður en til
sölu kemur er mikilvægt að söluferl-
inu verði flýtt en um leið þurfl að
tryggja að ákvörðun verði tekin um
lok einkavæðingar. Þá telur ráðið
farsælla að markaðnum sjálfum
verði falið að hagræða á fjármála-
markaði og að mikilvægt sé að er-
lendar fjármálastofnanir komi að
ferlinu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Verslunarráðs íslands um einka-
væðingu á fjármála- og fjarskipta-
markaði en Sigríður Ásthildur Ánd-
ersen lögfræðingur ráðsins kynnti
hana á hádegisfundi ráðsins á Ákur-
eyri í gær. Skýrslan er afrakstur
vinnu vinnuhóps Verslunarráðs um
einkavæðingu.
í skýrslunni er fjallað um fjar-
skiptamarkaðinn og sjónum einkum
beint að Landssímanum. Fram
kemur að afar brýnt sé orðið að
rekstur Landssímans verði losaður
frá ríkisrekstrinum og fyrirtækinu
komið í hendur markaðarins. Sigríð-
ur sagði ýmis rök fyrir því að selja
Landssímann og það núna strax,
ekki á morgun eins og hún orðaði
það. Fyrirtækið hefði lengi verið
eitt á markaðnum og hefði ákveðið
forskot á önnur félög á þessu sviði
og því væri mikilvægt að drífa söl-
una af svo þetta forskot myndi ekki
vinda enn meira upp á sig. Verslun-
arráðið leggur til að fyrirtækið verði
allt selt og geldur varhug við því að
skilja ljósleiðarakerfið frá einka-
væðingu þess, ríkisfyrirtæki um
ljósleiðarakerfið myndi fyrr eða síð-
ar lenda í samkeppni við einkafyrir-
tæki um rekstur slíks grunnnets.
Niðurstaða vinnuhópsins er því sú
að Landssímann eigi að selja strax,
einkavæða eigi alla starfsemi hans og
einnig þurfi að einkavæða önnur op-
inber fjarskiptaíyrirtæki. Niður-
staða hópsins varðandi ríkisbankana
er sú sama en Verslunarráð hvetur
stjómvöld til að selja hluti í Búnaðar-
banka og Landsbanka og láta mark-
aðinn velja hagkvæmustu leiðina til
hagræðingar. Bent er á að mikilvægt
sé að erlendir aðilar taki þátt til að fá
inn í landið fjármagn og þekkingu en
slíkt gerist síður ef litlir hlutir verða
boðnir til sölu. Eigi þeir að verða að
eftirsóknarverðum fjárfestingar-
kosti fyrir erlenda aðila þurfi að
tryggja að nokkuð stórir hlutir verði
í boði þannig að Verslunarráðið geld-
ur varhug við því að bankamir verði
seldir í smáskömmtum.
Ekki eðlilegt að bankarnir
séu á Verðbrófaþingi
Sævar Helgason, framkvæmda-
stjóri íslenskra verðbréfa á Akur-
eyri, sagði í sinni framsögu á fundin-
um að hagkvæmast yrði að selja
hlut ríkisins í bönkunum og láta
markaðinn velja hagkvæmustu leið-
ina til hagræðingar en ljóst væri af
framvindu mála síðustu daga að sú
leið yrði ekki farin. Sævar sagði
mjög mikilvægt að fyrir lægi skýr
stefna um það með hvaða hætti stað-
ið verður að sölu á hlut ríkisins í
sameinuðum banka og yfirleitt
hvort um sölu yrði að ræða á næsta
ári. „Þangað til skýr stefna er komin
um það og Samkeppnisstofnun búin
að skila áliti sínu verður verðmynd-
un á sameinuðum banka aldrei
raunhæf og í raun ekki eðlilegt að
Verðbréfaþing íslands heimili það
að bréfin séu höfð á skrá, sagði
Sævar og benti á nauðsyn þess að
strax og búið væri að sameina bank-
ana yrði farið í að selja hlut ríkisins í
þeim.
Sævar sagði það sína skoðun að
ríkið auki ekki verðmæti sameinaðs
banka með því að stuðla að hagræð-
ingu sem ekki væri víst að einka-
aðilar myndu standa að með sama
hætti, alls ekki væri víst að ríki og
einkaaðilar hefðu sömu sýn á það
með hvaða hætti ætti að hagræða og
væri því um óþarfa vinnu og um-
stang að ræða af hálfu ríkisins, sér-
staklega ef ætti að selja bankann
strax eftir hagræðingu. Þannig gæti
ríkið hugsanlega verið að skemma
fyrir sér og öðrum hluthöfum og
lækka verðmæti bankans með því að
fara út í óþarfa aðgerðir. Sævar lýsti
eftir raunverulegri stefnu ríkisins í
málinu svo auka mætti tiltrú fjár-
festa og annarra á þeim aðgerðum
sem hafnar væru. Skýr stefna
myndi auka áhuga fleiri og ríkið
myndi fá betra verð fyrir sinn hlut.
Sævar taldi fullvíst að kaupendur
væru fyrir hendi bæði á bönkunum
og Landssímanum en þeir þyrftu
tíma og ráðrúm til að fara yfir málið.
Sævar óttast að sala Landssímans
gleymist í umræðu næstu mánaða
um sameiningu bankanna.
Hátt í 70 starfsmenn bank-
anna á Akureyri
Varðandi sameiningu bankanna
nefndi Sævar að um væri að ræða
nokkuð áhyggjuefni varðandi Akur-
eyri því bankarnir starfræktu tvö
stór útibú í bænum og því til viðbót-
ar tvær afgreiðslur. Líklega væru
hátt í 70 störf á svæðinu tengd þess-
um tveimur bönkum. „Fljótt á litið
mætti áætla að a.m.k. þriðjungur
þeirra starfa verði ekki til eftir sam-
einingu komi ekki til tilfærsla á ein-
hvers konar mið- og bakvinnslu
hingað norður sem viðskiptaráð-
herra hefur reyndar gefið í skyn að
muni gerast, sagði Sævar.
Kári Arnór Kárason, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norð-
urlands, sagði að frá sjónarmiði
fjárfestis væri nauðsynlegt að vita
strax í upphafi hver áform ríkisins
væru varðandi einkavæðingu. Það
gæti skipt sköpum varðandi verð-
gildi þeirra. Fyrir fjárfesta væri
mörgum spurningum ósvarað í mál-
inu.
Mikilvægt að hraða
einkavsðingu
Hann sagði að ekki þyrfti að hafa
mörg orð um mikilvægi þess að
hraða einkavæðingu bæði bankanna
og Landssímans því engu fyrirtæki
væri til til góðs að dragast inn í um-
ræðu sem oft hefði á sér hefðbundið
þrasform stjórnar og stjórnarand-
stöðu þar sem markmiðið væri að
koma höggi á pólitískan andstæðing
frekar en komast að rökstuddri nið-
urstöðu um besta fyrirkomulag.
Fram kom í máli Kára Arnórs að
einkavæðing Fjárfestingabanka at-
vinnulífsins hefði einkennst af mis-
tökum, þ.e. ekki einkavæðingin sjálf
heldur út frá sjónarmiðum hag-
stjómar, þjóðin hefði í kjölfarið lent
á fjárfestingafylleríi. Einkavæðing
bankans hefði þannig komið upp á
óheppilegum tíma í hagsveiflunni og
ekki væri búið að bíta úr nálinni
hvað það varðar.
Kári Arnór sagði ríkisvaldið ekki
eiga að standa í samkeppnisrekstri,
hvorki á sviði fjármála né fjarskipta,
hlutverk þess væri að skapa ramm-
ann og fara með eftirlit, gæta þess
að farið væri að leikreglum.
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR
SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA
í ÞRÓUNARFÉLAGI ÍSLANDS HF
Mánudaginn 8. janúar árið 2001 verða hlutabréf í Þróunarfélagi íslands hf. tekin til
rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu fslands hf í samræmi við ákvörðun stjórnar
Þróunarfélagi íslands hf þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í íyrirtækinu í samræmi
við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa. Nánar tilgreint verða
öll hlutabréfa í Þróunarfélagi íslands hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru í tveimur
flokkum, auðkennd með J1-J433 og 1-2710 og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið
á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að
eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Þróunarfélags íslands hf að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Þróunarfélags íslands hf, Suðurlandsbraut 22, 108
Reykjavík eða í síma 568-8266. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið
skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s.
veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefiir aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands
hf, fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og
því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar
skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í
félaginu.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með
eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta.
Hluthafar munu fá sendar tilkynningar og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar
nr. 397/2000. Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta bréfleiðis.
Stjórn Þróunarfélags íslands hf. •> Þróunarfélag MSáSÍÆ
Búnaðarbankinn álitlegur fjárfest-
ingarkostur að mati Kaupþings
Gæti átt mögu-
leika á fulltrúa
í bankaráði
KAUPÞING hf. á hugsanlega
möguleika á að koma manni í
bankaráð Búnaðarbanka íslands
hf. Fyrirtækið hefur um nokkurt
skeið verið að auka hlut sinn í
bankanum og á nú 7,19%.
Stefán Pálsson, aðalbankastjóri
Búnaðarbankans, segir að Kaup-
þing þyrfti samning við annan eða
aðra hluthafa ef fyrirtækið hefði
hug á að koma manni í bankaráðið.
Hann segir að Kaupþing sé þó
komið með sterka stöðu og sé orð-
ið næst stærsti hluthafi bankans,
næst á eftir ríkissjóði. Eftirlauna-
sjóður starfsmanna bankans eigi í
sameiningu með starfsmönnum
svipað hlutfall hlutafjár og Kaup-
þing nú, eða kringum 7%, og það
hlutfall dugi þeim til að eiga í sam-
einingu nú einn mann í bankaráð-
inu.
Heildarhiutafé bankans
4.350 milljónír króna
Aðspurður um hve stóran eign-
arhluta þurfi til að tryggja hlut-
höfum fulltrúa í bankaráði Búnað-
arbankans segir Stefán ekki hægt
að segja til um það. Það fari eftir
drefingu hluthafa en fjöldi þeirra
síðastliðinn föstudag var 28.568.
Hann segir að til þessa hafi ekki
farið framhlutfallskosning við kjör
manna í bankaráðið heldur hafi
verið gert samkomulag þar um.
Fjórir bankaráðsmenn séu full-
trúar ríkisins en einn sé fulltrúi
annarra hluthafar. Eftirlaunasjóð-
ur starfsmanna bankans ásamt
starfsmönnum hafi til þessa farið í
sameiningu fyrir stærsta hlutanum
fyrir utan hlut ríkisins.
Að sögn Stefáns fara hugsanleg-
ir möguleikar Kaupþings á að fá
mann í bankaráðið jafnframt eftir
því hvernig það 250 milljóna króna
hlutafé að nafnvirði, sem hluthafa-
fundur bankans samþykkti í fyrra-
dag að auka hlutafé bankans um,
muni skiptast. Eftir þá aukningu
verður heildarhlutafé bankans 4,35
milljarðar króna að nafnvirði.
Fjárfesting á fjárhags-
legum forsendum
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir að kaup Kaup-
þings á hlutafé í Búnaðarbankan-
um eigi sér fyrst og fremst fjár-
hagslegar forsendur. Það sé mat
Kaupþings að hvernig sem þróunin
verði á fjármálamarkaði hér á
landi muni Búnaðarbankinn spila
lykilhlutverk í þeirri þróun.
Hann segir að með þeirri hag-
ræðingu sem geti orðið á íslensk-
um bankamarkaði sé Búnaðar-
bankinn álitlegur fjárfestingar-
kostur.