Morgunblaðið - 18.10.2000, Síða 24
24 MIÐVTKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Neyðarástand á ftalíu vegna flóða
Nær 30 manns látnir
og rúmlega 20 saknað
Tórínó, Milanó, Piacenza, Gondó, Síon. AP, AFP,
NEYÐARÁSTAN D ríkti í héruð-
unum Piedmont og Liguríu og
Aosta dalnum á NV-Italíu í gær
vegna flóða og skriðufalla af völd-
um mikilla rigninga undanfarið.
Alls hafa nær 30 manns látið lífið í
hamförunum, Italir og Svisslend-
ingar. Enn er yfir tuttugu manns
saknað. Mest manntjón varð um
helgina en vegna flóðahættu í bæj-
um við ána Pó og þverár hennar
var um 20.000 manns gert að yfir-
gefa heimili sín í gær. Þá höfðu alls
um 40.000 ítalir yfirgefið heimili
sin.
Fjárhagslegt tjón af völdum flóð-
anna er talið gífurlegt eða mörg
hundruð milljónir Bandaríkjadala.
Yfirborð Pó hefur ekki verið
hærra í hálfa öld en unnið var
sleitulaust að því að reyna að koma
í veg fyrir að hún rynni yfir bakka
sína í gær, það tókst þó ekki að öllu
leyti. Áin rennur um helstu iðnað-
ar- og landbúnaðarhéruð Italíu en
fjölmörgum verksmiðjum hefur
verið lokað í kjölfar flóðanna. Upp-
skerutjón ítalskra bænda er einnig
talið vera afar mikið en margir
þeirra neituðu að yfirgefa heimili
sin eins og farið var fram á í gær.
í borginni Piacenza var yfirborð
Pó 15 cm hærra en þegar hún olli
gífurlegu tjóni á bænum árið 1951.
Varnargarðar hafa hins vegar ver-
ið bættir svo mjög nú að ekki var
Reuters.
búist við miklu tjóni. 2.000 íbúum í
grennnd hennar var hins vegar
gert að yfirgefa heimili sín.
Vegir og brautar-
spor lokuð
Um 170 vegir á N-Ítalíu voru
taldir lokaðir í gær. Þar á meðal
var hraðbrautinni og brautarspor-
um milli Mílanó og Tórínó lokað og
raunar öllum hraðbrautum út frá
Mílanó. Margir bæir og borgir
voru auk þess án rafmagns og
drykkjarvatns. Mjög gekk á matar-
birgðir sums staðar í gær eftir að
íbúar höfðu birgt sig upp af vistum.
Alls hafa yfír 11.000 sjálfboðalið-
ar hafa tekið þátt í björgunarað-
gerðum á NV-Italíu. Margir ein-
angruðust í húsum sínum í kjölfar
flóðanna og hefur björgunarliðið
unnið að því að bjarga þeim.
Björgunaraðgerðum í bænum
Gondo í Sviss var haldið áfram í
gær. Aurskriða féll yfir hann á
laugardag og jafnaði þriðjung bæj-
arins við jörðu á innan við tíu sek-
úndum. Fjögur lík hafa fundist og
ellefu er saknað.
Stytt upp í fyrsta sinni
í hálfan mánuð
Yfirborð Maggiore-vatnsins sem
er á landamærum Sviss og Ítalíu
mældist í gærmorgun það hæsta í
160 ár. Ibúar í þorpum næst vatn-
Reuters
Vatnselgurinn rennur í gegnum bæinn Ivrea sem stendur við rætur
itölsku Alpanna.
Reuters
Hraðbrautin milli Tórínd og Mílanó fór í sundur eftir að áin Dora Baltea
flæddi yfir bakka sína.
inu var sagt að yfirgefa heimili sín.
Þegar Morgunblaðið hafði í gær
samband við Rögnu Völu Kjartans-
dóttur, sem býr í þorpinu Bosko
ásamt eiginmanni sínum, Antony
Oldani, fyrir ofan Maggiorevatn,
hafði í fyrsta skipti í hálfan mánuð
stytt upp þar um slóðir. „Ég bý í
400 m hæð yfir vatninu þannig að
við höfum ekki þurft að flytja okk-
ur eins og íbúar næst því.“ Ragna
Vala sagði ummerki rigninganna
mikil og margir fjallvegir í ná-
grenni Bosko lokaðir. „Það er
reyndar mjög algengt að það rigni
mikið hér á haustin en vegna þess
hve hlýtt hefur verið undanfarið
hefur snjórinn í Olpunum bæst
við.“ Ragna Vala benti einnig á að
tjón hafi sennilega verið minna en
ella á hennar slóðum vegna þess
hve mikið hafi verið unnið í gerð
varnargarða í kjölfar flóða fyrir
átta árum.
Flóðin eru þau verstu á Ítalíu
síðan 1994 en þá létust 68 manns.
Kosovo verði
lýðveldi í
Júgóslavíu
Podgorica. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN er áfram
um að hin nýja stjórn Júgóslavíu
veiti Kosovo-héraði réttindi lýð-
veldis, sem ásamt Serbíu og Svart-
fjallalandi myndaði sambandsríkið
Júgóslavíu, að því er AP-fréttastof-
an hefur eftir vestrænum stjórnar-
erindrekum.
Júgóslavía samanstendur nú af
Serbíu, sem er stærra og valda-
meira lýðveldið, og hinu litla Svart-
fjallalandi. Kosovo er hérað í Serb-
íu, en meirihluti íbúanna, sem er af
albönsku bergi brotinn, er fylgj-
andi því að það verði lýst sjálfstætt
ríki. Ekkert ríki hefur lýst stuðn-
ingi við sjálfstæði Kosovo, og þar
sem bæði Serbar og Kosovo-Alban-
ir virðast enn vera tilbúnir að berj-
ast um örlög héraðsins, télja ýmsir
að eina leiðin til að afstýra átökum
sé að veita Kosovo réttindi sem
lýðveldi innan Júgóslavíu.
Ýmsar hindranir eru þó í vegin-
um. Áður en þessi áform geta orðið
að veruleika verða bæði Kosovo-
Albanir og Svartfellingar að gefa
upp drauminn um algjört sjálf-
stæði, og Serbar verða að fallast á
að láta eftir full yfirráð í Kosovo,
en héraðið hefur mikla þýðingu í
serbneskri sögu og þjóðarvitund.
Vestrænir stjórnarerindrekar
sögðust samt sem áður í viðtali við
AP binda vonir við að þetta gengi
eftir, og sögðu Bandaríkjastjórn
telja að þetta væri besta leiðin til
að koma á stöðugleika á Balkan-
skaga og koma í veg fyrir frekari
ófrið. „Kosovo-búar vilja ekki vera
hluti Serbíu áfram, það er ljóst. En
Kosovo gæti orðið hluti af nýrri
Júgóslavíu," hafði AP eftir ónafn-
greindum diplómat.
Veltur á Svart-
fellingum
Til að þetta gangi eftir verða
Svartfellingar að skuldbinda sig til
að lýsa ekki yfir sjálfstæði. James
C. O’Brien, sendimaður Banda-
ríkjastjórnar á Balkanskaga, lýsti
því yfir í síðustu viku að Banda-
ríkjamenn væru mótfallnir sjálf-
stæði Svartfjallalands, og telja
ýmsir yfirlýsinguna renna stoðum
undir orð þeirra sem telja að
Bandaríkjastjórn vilji að Kosovo
verði gert að sambandslýðveldi.
En íbúar Svartfjallalands hafa
bæði lengi og eindregið látið í ljós
vilja sinn til aðskilnaðar frá Serbíu
og líkur eru á að ofangreind skila-
boð Bandaríkjastjórnar mælist illa
fyrir hjá stjórn lýðveldisins, sem
og hjá almenningi. Forsetinn Milo
Djukanovic hefur gefið til kynna að
enn sé mögulegt að Svartfellingar
lýsi yfir sjálfstæði, þrátt fyrir
stjórnarskiptin í Júgóslavíu, og ef
slitnar upp úr viðræðum hans við
Vojislav Kostunica, hinn nýskipaða
forseta sambandsríkisins, kann að
fara svo að Djukanovic boði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði.
„Ef við finnum ekki leiðir til að
starfa saman kemur vissulega til
greina að spyrja þjóðina álits,“
sagði Filip Vujanovic, forsætisráð-
herra Svartfjallalands, í viðtali við
AP-fréttastofuna.
Hugmyndin upphaflega komin
frá Kosovo-AIbönum
Að sama skapi á eftir að reynast
þrautin þyngri að sannfæra Kos-
ovo-Albani um ágæti þessarar hug-
myndar. Eftir tilraunir Slobodans
Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíu-
forseta, til að útrýma albönskum
íbúum Kosovo eða flæma þá úr
landi eru þeir enn fullir tortryggni
gagnvart Serbum og hafa miklar
efasemdir um hvers konar sam-
starf við þá.
Þó er ekki loku fyrir það skotið
að Kosovo-Albanir sættist á þessa
lausn, ekki síst í ljósi þess að þeir
vöktu fyrstir máls á því fyrir margt
löngu að héraðið yrði sjálfstætt
sambandslýðveldi. Kommúnista-
stjórnin í Belgrad hafnaði því, af
ótta við að reita Serba til reiði.
Handtökur
vegna Om-
agh-árásar
ÍRSKA lögreglan kvaðst í gær
hafa handtekið þrjá menn í
tengslum við rannsóknina á
sprengjutilræðinu í Omagh á
Norður-írlandi í ágúst 1998.
Mennirnir eru allir á þrítugs-
aldri og þeim er haldið í gæslu-
varðhaldi í bænum Monaghan,
nálægt landamærunum að
Norður-írlandi.
Tugir manna hafa verið
handteknir og yfirheyrðir
vegna rannsóknarinnar en að-
eins einn maður hefur verið
ákærður fyrir aðild að tilræð-
inu sem kostaði 29 manns lífið.
Er þetta mannskæðasta árás í
sögu átakanna á Norður-ír-
landi.
Tobin skip-
aður iðnað-
arráðherra
JEAN Chretien, forsætisráð-
herra Kanada, skipaði í gær
Brian Tobin, fyrrverandi for-
sætisráðherra Nýfundnalands,
iðnaðarráðherra kanadísku
stjórnarinnar. Tobin tekur við
embættinu af John Manley,
sem verður utanríkisráðherra í
stað Lloyds Axworthys, en
hann hefur ákveðið að draga
sig í hlé eftir 27 ára stjórn-
málaferil.
Búist er við að boðað verði til
þingkosninga í Kanada 27. nó-
vember og talið er að markm-
iðið með því að fá Tobin í
stjórnina sé að bæta stöðu
flokks Chretiens, Frjálslynda
flokksins, í Atlantshafsstrand-
héruðum landsins.
Búa sig
undir að
kanna flak
Kúrsk
HÓPUR rússneskra og
norskra kafara býr sig nú und-
ir að hefja tilraunir til að ná
upp líkamsleifum 118 sjóliða
sem fórust þegar rússneski
kjarnorkukafbáturinn Kúrsk
sökk í Barentshafi í ágúst.
Gert er ráð fyrir því að sér-
stakur pallur, sem notaður
verður við þessa vandasömu
aðgerð, verði kominn á slys-
staðinn á morgun eða föstudag.
Talsmaður rússneska sjóhers-
ins sagði í gær að kafararnir
myndu fyrst kanna hvort hægt
væri að komast inn í kafbátinn
sem liggur á 105 m dýpi.
Vopnabróðir
„Sjakalans“
fyrir rétt
HANS-Joachim Klein, 52 ára
Þjóðverji, var í gær leiddur
fyrir rétt vegna gíslatökunnar
á fundi olíumálaráðherra sam-
taka olíuútflutningsríkja,
OPEC, í Vín fyrir tæpum 25
árum. Klein var ákærður fyrir
morð á þremur mönnum og til-
raun til að myrða þrjá til við-
bótar þegar hann hélt 70
manns í gíslingu, þar af ellefu
ráðherrum, ásamt fimm öðrum
hermdarverkamönnum undir
stjórn „Sjakalans Carlosar“.
Klein var handtekinn fyrir
tveimur árum í frönsku þorpi
þar sem hann hafði búið undir
fölsku nafni.