Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR18. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐÍÐ
LISTIR
BÓKAÚTGÁFA Máls og menn-
ingar sendir frá sér mikinn fjölda
bóka á þessu ári, 106 titla í frum-
útgáfu og 61 endurútgáfu eldri
verka. Hér er getið þess helsta af
útgáfu ársins.
Islenskar skáldsögur
Myndin af heiminum er skáld-
saga eftir Pétur Gunnarsson. Um
leið og sögumaður brýtur til
mergjar miklar spurningar um
hinstu rök þarf hann að kljást við
þær í eigin lífi - svo úr verður
spennandi og gefandi saga.
Draumar á jörðu eftir Einar
Má Guðmundsson er sjálfstætt
framhald metsölubókarinnar Fót-
spor á himnum. á fyrri hluta 20.
aldar.
Strengir eftir Rögnu Sigurðar-
dóttur er saga Boga og Maríu
Myrká. Þau eru ung, allt er leyfi-
legt, allar dyr standa þeim opnar
og framtíðin er óskrifað blað.
Ósýnilega konan, SG tríóið
syngur og leikur er skáldsaga
eftir Sigurð Guðmundsson. Kynin
þrjú takast á í einum manni,
horfa á líf hans og list og fæða af
sér frjóar myndir af tilvist okkar.
Galdur er söguleg skáldsaga
eftir Vilborgu Davíðsdóttur. Hér
er tekist á um völd og virðingu,
ást og trú af blindum metnaði og
óbilgirni.
Byltingarbörn eftir Björn Th.
Björnsson sækir efnivið sinn til
16. aldar. Ungir kennimenn und-
irbúa siðaskipti með leynd í Skál-
holti.
Klór eftir Þorstein Guðmunds-
son geymir samtengdar sögur úr
Reykjavík nútímans.
Annað líf eftir Auði Jónsdóttir
segir frá verkamanni sem veitir
taílenskri fegurðardís húsaskjól
meðan hún kemur undir sig fót-
unum í nýjum heimi.
Hvíta kanínan eftir Árna Þór-
arinsson er sjálfstætt framhald
bókarinnar Nóttin hefur þúsund
augu.
Morðið í sjónvarpinu er ný
sakamálasaga eftir Stellu
Blómkvist og gerist í Reykjavík.
Rauðamyrkur eftir Hannes
Pétursson er nú endurútgefin
með nýjum formála höfundar.
Dalalíf eftir Guðrúnu frá
Lundi, kemur nú út í þriðja sinn í
vandaðri kiljuútgáfu.
Ljóð og leikrit
Hægan, Elektra eftir Hrafn-
hildi Hagalin Guðmundsdóttur.
Leikritið var sýnt í Þjóðleikhús-
inu sl. vetur.
Ljóðasafn Stefáns Harðar
Grímssonar geymir öll ljóð Stef-
áns Harðar Grimssonar sem eru
prentuð í útgefnum ljóðabókum
hans, sex að tölu. Launkofi er
önnur Ijóðabók Gerðar Kristnýj-
ar. Öll fallegu orðin er fjórða
ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur,
heildstæður ljóðabálkur um ást,
söknuð og sársauka. Græna
skyggnishúfan eftir Sigurlaug El-
íasson er sjöunda Ijóðabók hans
og geymir heildstæðan ferðaljóða-
bálk. Að snúa aftur er safn ljóða-
þýðinga eftir allmarga samtíma-
höfunda sem Gyrðir Elíasson
hefur valið og þýtt. Söngfugl að
sunnan er safn ljóðaþýðinga frá
hendi Þorsteins Gylfasonar, ljóð
eftir Shakespeare, Goethe og
Púshkín, Píet Hein og Tove Ditl-
evsen. Síðari hluti bókarinnar er
helgaður Bertolt Brecht. Sonnett-
ur eftir John Keats í þýðingu
Sölva B. Sigurðarsonar sætir tíð-
indum í útgáfu á íslandi. Sérstak-
ur dagur eftir Kristínu Ómars-
dóttur og Nönnu Bisp-Búchert.
Ljóðskáldið og ljósmyndarinn
leggja saman í bók. Vorflauta eft-
ir Ágústínu Jónsdóttur. Þetta er
fimmta ljóðabók hennar. Fjögur
ljóðskáld kemur út í endurútgáfu,
úrval ljóða eftir fjögur skáld ný-
rómantíkurinnar: Jóhann Gunnar
Sigurðsson, Sigurð Sigurðsson frá
Arnarholti, Jóhann Sigurjónsson
og Jónas Guðlaugsson. Hannes
Pétursson skáld valdi ljóðin og
ritaði inngang að safninu og hefur
hann sérstaklega endurskoðað
innganginn fyrir þessa útgáfu.
Þýdd skáldverk
Djöflarnir eftir Fjodor Dostoj-
Fjölbreyttur útgáfulisti Máls og menningar
Eitt hundrað og
sex nýjar bækur
á þessu hausti
Árni Ragna
Þórarinsson Sigurðardóttir
Hrafnhiidur Stefán Hörður
Hagalín Guð- Grímsson
mundsdóttir
evskí í þýðingu Ingibjargar Hara-
ldsdóttur er eitt af sígildum
meistaraverkum 19. aldar. Æsku-
mynd listamannsins er persónu-
legasta verk James Joyce og hafa
sumir nefnt hana mögnuðustu
æskulýsingu heimsbókmenn-
tanna. Sigurður A. Magnússon
þýddi. Dóttir gæfunnar eftir Isa-
bel Allende hefur að baksviði
gullæðið í Ameríku. Kolbrún
Sveinsdóttir þýddi. Bara sögur
eftir Ingo Schulze í þýðingu Elísu
Bjargar Þorsteinsdóttur gerist í
Austur-Þýskalandi um og upp úr
1990. Aska Angelu eftir Frank
McCourt segir sögu drengs á ír-
landi sem elst upp við fáfræði,
trúarofstæki og hungur. Árni
Óskarsson þýddi. Fáfræðin er
nýjasta skáldsaga Milans Kund-
era. Friðrik Rafnsson þýddi. Sjö
bræður eftir Aleksis Kivi í þýð-
ingu Aðalsteins Davíðssonar er sí-
gilt verk finnskra bókmennta.
Skreytt myndum Akseli Gallen-
Kallela, __ eins mesta listamanns
Finna. Öreindimar eftir Michel
Houllebecq í þýðingu Friðriks
Rafnssonar er berorð og djörf
saga sem vakið hefur deilur og
umtal víða um heim. Frjálsar
hendur er sakamálasaga eftir
einn fremsta höfund ítala á því
sviði, Carlo Lucarelli. Kolbrún
Sveinsdóttir þýddi. Sá er úlfinn
óttast eftir Karin Fossum er
þriðja sagan sem kemur út á ís-
lensku um lögregluforingjann
Konrad Sejer. Erna Árnadóttir
þýddi. Síðasta mál Morse eftir
Colin Dexter er í flokki sagnanna
um Morse lögreglufulltrúa. Sverr-
ir Hólmarsson þýddi. Glataðir
snillingar eftir William Heinesen
er nú endurútgefin í tilefni af ald-
arafmæli hins færeyska meistara.
Þorgeir Þorgeirson þýddi.
Atburðir við vatn eftir Kerstin
Ekman hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1994 og var
gefinn út á íslensku 1995. Sverrir
Hólmarsson þýddi. Homo Faber
eftir Max Frisch.. Eysteinn Þor-
valdsson og Ástráður Eysteinsson
þýddu söguna sem kom fyrst út á
íslensku 1987.
Fræðirit og kennslubækur
Hálendið í náttúru íslands eftir
Guðmund Pál Ólafsson er fræðirit
handa almenningi, tilraun til að
opna sýn á náttúru hálendisins í
allri sinni dýrð. Bókina prýðir
mikið safn stórbrotinna ljós-
mynda.
Upplýsingaröldin, úrval úr
bókmenntum 18. aldar geymir
úrval íslenskra texta frá einum
mesta umbrotatíma íslenskrar
menningarsögu. Ritstjórar eru
Víkingur Kristjánsson og Þor-
finnur Skúlason. Reykjavík mála-
ranna geymir Ijósmyndir af 40
myndverkum eftir 34 listamenn.
Hrafnhildur Schram valdi mynd-
irnar og ritar texta bókarinnar
sem einnig er á ensku og þýsku.
Bókin er gefin út í samvinnu við
Reykjavík, menningarborg
Evrópu 2000. Arkitektúr á ís-
landi eftir Birgit Abrecht er
handhægt leiðsögurit í máli og
myndum á íslensku, ensku og
þýsku. Situations er listaverka-
bók með verkum Sigurðar Guð-
mundssonar. Guðbergur Bergs-
son og Michaela Unterdörfer rita
formálsorð. Kuml og haugfé úr
heiðnum sið á íslandi eftir Krist-
ján Eldjárn. í þessa nýju útgáfu,
sem Adolf Friðriksson fornleifa-
fræðingur ritstýrir, er aukið vitn-
eskju um þau kuml sem fundist
hafa frá því að bókin kom fyrst
út. 400 myndir eru í bókinni.
Wagner og Völsungar eftir Árna
Björnsson er samanburðarrann-
sókn þar sem höfundur leiðir í
ljós að langstærstur hluti aðfeng-
inna hugmynda í Niflungahring-
num er sóttur í íslenskar bók-
menntir. Islandssaga í stuttu máli
eftir Gunnar Karlsson prófessor
er heildstætt og handhægt yfirlit
íslandssögunnar. Bókin kemur
einnig út á ensku. Kristnitakan á
Þingvöllum eftir sr. Gunnar
Kristjánsson er saga þessa merka
atburðar. Bókina prýðir fjöldi
ljósmynda. Fluguveiðisögur eftir
Stefán Jón Hafstein. Þroskasaga
fluguveiðimanns. Landafræði -
Maðurinn, auðlindirnar og um-
hverfið eftir Peter Östman fjallar
m.a. um kortagerð, lýðfræði,
berggrunn jarðar, vatnsbúskap
o.m.fl. Jónas Helgason þýddi.
Fjölmiðlafræði eftir Lars Peters-
son og Áke Petterson fjallar um
fjölmiðla almennt, eðli þeirra og
uppruna, áhrif og vald. Ádolf Pet-
ersen þýddi og jók við íslensku
efni. Hvað ungur nemur eftir
Dorothy Einon er leiðarvísir fyrir
foreldra sem vilja fylgjast með
þroska barnanna sinna. Kolbrún
Sveinsdóttir þýddi. Stjörnufræði
fyrir byrjendur eftir Jacqueline
og Simon Mitton útskýrir flóknar
staðreyndir alheimsins á skýran
og einfaldan hátt. Guðjón A.
Kristinsson þýddi. The Wineland
Millennium, Saga and Evidence
eftir Pál Bergþórsson er ensk út-
gáfa bókarinnar Vínlandsgátan
sem kom út árið 1997. Anna Yates
þýddi.
Minningar - ævisögur
Einn á ísnum er saga Haralds
Arnar Ólafssonar af göngu hans á
norðurpólinn sl. vor. Prýdd rúm-
lega 200 Ijósmyndum af nyrstu
slóðum heims. Launhelgar lyg-
anna er sjálfsævisaga konu sem
kallar sig Baugalín. Hún átti
átakanlega æsku og segir frá
reynslu sinni af einlægni og hisp-
ursleysi. Þjóðsögur Jóns Múla
Árnasonar eru þriðja bindi minn-
inga hans sem vakið hafa mikla
athygli á liðnum árum. Undir
dagstjörnu nefnast minningar
Sigurðar A. Magnússonar frá ár-
unum á Morgunblaðinuog storma-
sömum samskiptum hans við for-
ráðamenn blaðsins. Róska er bók
um sérstæða og hæfileikaríka
listakonu sem lést um aldur fram
fyrir nokkrum árum. Bókin er
gefin út í samvinu við Nýlista-
safnið. Ritstjóri er Hjálmar
Sveinsson. í leiftri daganna er
annað bindi minninga Agnars
Þórðarsonar. Þar segir hann frá
kynnum sínum af bókum og bóka-
mönnum. Jesús Kristur eftir J.R.
Porter fjallar í senn um Jesú sög-
unnar og Krist trúarinnar. Ing-
unn Ásdísardóttir þýddi.
Orðabækur, landakort, hand-
bækur
Islensk orðabók í tölvuútgáfu
sætir tíðindum í íslenskri menn-
ingarsögu. Þetta er þriðja útgáfa
íslenskrar orðabókar en verulega
endurbætt. Ritstjóri er Mörður
Árnason. Frönsk-íslensk tölvu-
orðabók er byggð á Fransk-ís-
lenskri orðabók sem kom út 1995.
Learning Icelandic er byrjenda-
bók í íslensku fyrir útlendinga.
Kortabók íslands geymir
landshlutakort sem prentuð eru í
náttúrulegum litum og geyma
nýjustu upplýsingar um vegi
landsins og ferðaþjónustu. Bókin
hlaut alþjóðlegu verðlaunin Besta
kortabók heims 2000. Kortasett
af íslandi er ferðakort í mæli-
kvarða 1:600 000 og fjögur fjórð-
ungskort í mælikvarða 1:300 000.
Þessi íslandskort hlutu alþjóðlegu
verðlaunin Besti kortaflokkur
heims 1999. Bókin um London
eftir Dag Gunnarsson er leiðsögu-
bók um heimsborgina, prýdd
fjölda ljósmynda. Krydd eftir
Þráin Lárusson matreiðslumann í
Oaxaca í Mexíkó. Fitusnautt og
freistandi eftir Sue Kreitzman.
Helga Guðmundsdóttir þýddi.
íslenskar barna- og unglinga-
bækur
Af fjölbreyttu úrvali frumsam-
inna íslenskra verka fyrir börn er
fyrst að nefna söguna um Hnoðra
litla eftir Önnu V. Gunnarsdóttur
sem líka gerir myndirnar af ung-
anum við Reykjavíkurtjörn. Brian
Pilkington segir söguna af Hlunki
og skreytir hana óviðjafnanlegum
myndum. Bókin kemur bæði út á
ensku og íslensku. Þá kemur út
ný Stafabók fyrir krakka sem eru
að byrja að sýna bókstöfunum
áhuga, myndskreytt af Ragnheiði
Gestsdóttur. Einnig er bók henn-
ar Klappa saman lófunum, með
nýjum og gömlum kvæðum, end-
urútgefin. Þulur Theodóru Thor-
oddsen eru sígildar perlur ís-
lenskra bókmennta, endurút-
gefnar með gamalkunnum
myndskreytingum eftir Guðmund
Thorsteinsson, Mugg, og Sigurð
Thoroddsen. Sigrún Eldjárn
sendir frá sér nýja sögu um
Hörpu og Hróa og nefnist hún
Drekastappan. Höfundurinn
myndskreytir sögur sínar að
vanda. Saga Sigrúnar, Langafi
drullumallar, kemur aftur á
markað eftir að hafa verið ófáan-
leg í rúman áratug. Dýrin í Tóna-
dal nefnist saga Olgu Bergmann
sem hún myndskreytir sjálf _ og
Eldþursar í álögum er eftir Ólaf
Gunnar Guðlaugsson, beint fram-
hald sögunnar um Benedikt búálf,
en Ólafur gerir sjálfur myndir við
sögur sínar.
Fyrir eldri börn segir Kristín
Helga Gunnarsdóttii' söguna af
Móa hrekkjusvíni sem er stór-
hættulegur kúreki, rafmagnssnill-
ingur og sitthvað fleira. Margrét
E. Laxness myndskreytir söguna.
Valgeir Skagfjörð sendir frá sér
sína fyrstu bók, Saklausir sólar-
dagar, um Lúkas sem er 10 ára
og frábrugðinn öðrum krökkum í
útliti, með hrafnsvart hár, brún
augu og dökkur á hörund. Guðjón
Ketilsson gerði myndirnar.
Barnapiubófinn, Búkolla og bók-
arránið nefnist saga Yrsu Sigurð-
ardóttur um Freyju_ og systkini
hennar. Arngunnur Yr Gylfadótt-
ir myndskreytti. Brúin yfir
Dimmu er ævintýrasaga eftir Að-
alstein Ásberg Sigurðsson, en
Halldór Baldursson myndskreytir
bókina. Af íslenskum verkum er
loks að nefna söguna Fingurkoss-
ar frá Iðunni eftir Hallfríði Ingi-
mundardóttur, saga um ljósar og
döxkar hliðar mannlífsins eins og
það horfir við fimmtán ára stelpu.
Þýddar barna- og unglinga-
bækur
Fyrir yngri börn er fyrst að
nefna Vængjað myrkur eftir
William Heinesen í þýðingu
Hannesar Sigfússonar, eina af
perlum norrænna barnasagna.
Edward Fuglo myndskreytti. Eft-
ir Astrid Lindgren koma út Lína
heldur afmælisveislu og Barna-
dagur í Ólátagarði í þýðingu
Sigrúnar Árnadóttur. Ilmandi
bækur eiga sína fulltrúa í bókun-
um Ilmurinn úr garðinum og Ilm-
urinn af matnum í þýðingu Hild-
ar Hermóðsdóttur, bækur sem
aðeins þarf að klóra til að finna
ilminn. Kisur og Hvolpar í þýð-
ingu Sigríðar Þóru Jafetsdóttur
eru sögur af Bröndu og Pésa og
Káti og Kollu. Og Frans, besti
vinur íslenskra lestrarhesta, er
söguhetjan í bók Christine Nöstl-
inger Sjónvarpssögur af Frans í
þýðingu Jórunnar Sigurðardóttur.
Stúart litli eftir E.B. White í þýð-
ingu Önnu Snorradóttur kemur út
í endurátgáfu en nýlega var gerð
kvikmynd eftir þessari sögu. Und-
ir berum himni er annað ævintýri
nálfanna eftir Terry Pratchett
sem kemur út á íslensku. Þor-
gerður Jörundsdóttir þýddi. Illa
byijar það eftir Lemony Snicket,
í þýðingu Snorra Hergils Krist-
jánssonar, er sorgleg saga og
hentar ekki þeim sem hneigjast
að skemmtisögum. Af öðrum toga
er Bókin um risaeðlur eftir risa-
eðlufræðinginn David Lambert í
þýðingu Árna Óskarssonar.
Af bókum fyrir stálpaðri börn
og unglinga er fyrsta að nefna
söguna Markús og stelpurnar eft-
ir Klaus Hagerup um hinn 14 ára
og ástsjúka Markús. Anna Sæ-
mundsdóttir þýddi. Glötuð eftir
Mats Wahl í þýðingu Hilmars
Hilmarssonar er hluti af þríleik
Mats Wahl um sænska blökku-
drenginn John-John. Og að lokum
Gyllti áttavitinn eftir Philip
Pullman sem er fyrsta bókin í
margverðlaunuðum bókaflokki um
átök góðs og ills. Anna Heiða
Pálsdóttir þýddi.