Morgunblaðið - 18.10.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 51
MINNINGAR
GUÐJON BOÐVAR
JÓNSSON
+ Guðjón Böðvar
Jónsson fæddist
á Sólheimum í
Grindavík 26. maí
1929. Hann lést á
Landspítalanum 2.
október síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Bústaða-
kirkju 12. október.
12. október sl. var til
moldar borinn ástkær
vinur minn og bróðir
Guðjón Böðvar Jóns-
son tónmenntakennari.
Guðjón fæddist
kreppuárið mikla 1929 í Sólheimum
í Grindavík. Hann var miðjubarn
fimm systkina sem upp komust, en
tvö eldri systkini létust í frum-
bernsku. A barnsárum sínum
kynntist Guðjón því þeirri fátækt
sem ríkti í litlu sjávarplássi á Islandi
á kreppuárunum, þótt fjölskylda
hans væri e.t.v. með þeim betur
stæðu, þar sem tvær fyrirvinnur
voru á heimilinu, Jón Sigurðsson
trésmiður og sjómaður og Guðríður
Einarsdóttir ljósmóðir. Fjölskyldan
flutti til Reykjavíkur 1943, þar sem
Guðjón ól aldur sinn allt til dauða-
dags.
Sem 13 árum yngri litli bróðir
man ég sem barn eftir Guðjóni bróð-
ur, fyrir margra hluta sakir. Er þar
fyrst að telja hversu vinmargur
hann var og alltaf skemmtilegur og
hávær í þeirra hópi. Einnig vinstri-
sinnaðar stjórnmálaskoðanir hans,
ásamt ákafa hans og rökfestu í þeim
efnum, er þau mál voru til umræðu.
Síðast en ekki síst minnist ég
söngelsku, listaáhuga og bóhemlífs
Guðjóns er hann var á sínum sokka-
bandsárum.
Guðjón gekk í barnaskóla í
Grindavík, í gagnfræðaskóla í Reyk-
holti og síðar í Ingimarsskólann í
Reykjavík, þaðan sem hann tók
gagnfræðapróf, sem var stúdents-
próf þeirra tíma.
Eftir það tók lífsstritið við, að
þeirra tíma hætti. Guðjón þótti sér-
staklega lagtækur og var eftirsóttur
til starfa á hinum ýmsu
sviðum, enda stundaði
hann hin margvísleg-
ustu störf á næstu
tveimur áratugum, t.d.
við hreingerningar,
húsamálun, múrverk,
rafiðnaðarstörf og raf-
lagnateiknun svo eitt-
hvað sé nefnt.
Áhugasviðið var þó á
öðrum nótum. Á ungl-
ings- og manndómsár-
unum snerist líf Guð-
jóns einkum um tvo
hluti, listir og stjórn-
mál.
Hann var ef segja má „meðlimur“
í s.k. listamanna- og menntamanna-
klíku sem átti sér samastað í veit-
ingahúsi á Laugavegi 11 um nokk-
urra ára skeið um miðja öldina, sem
frægt varð. Þarna mótuðust mjög
viðhorf Guðjóns til lífsins og tilver-
unnar, í samræðum og kappræðum
við upprennandi listamenn og and-
ans jöfra þeirrar kynslóðar. A þess-
um vettvangi stofnaði Guðjón til
kynna við fjölmörg skáld, leikara,
tónlistarmenn og ekki síst tónskáld,
sem margir hverjir urðu vinir hans
til æviloka. í þessum hópi þróaðist
áhugi hans á listum almennt, eink-
um og sér í lagi á samtímabók-
menntum Laxness og Þórbergs,
sem Guðjón var sérfræðingur í, og á
tónlist og sönglist, sem síðar varð
hans ævistarf.
Á vettvangi stjórnmála voru höf-
uðstöðvarnar Týsgata 1, þar sem
Sósíalistaflokkurinn og Æskulýðs-
fylkingin voru þá til húsa. Guðjón
var um árabil virkur þátttakandi í
stjórnmála- og verkalýðsstarfi og
eignaðist í þeim störfum fjölmarga
vini og kunningja.
Hann var alla tíð trúr sínum
vinstrisinnuðu stjórnmálaskoðunum
og sannur félagshyggjumaður til
æviloka.
Guðjón hóf nám í sönglist og
píanóleik við Tónlistarskóla Reykja-
víkur upp úr 1950 og stundaði það
meðfram vinnu um nokkurra ára
skeið. Eflaust hefur fjárskortur og
AGUSTÞOR
ÞÓRSSON
+ Ágúst Þér Þórs-
son fæddist í
Reykjavík 9. desem-
ber 1972. Hann lést
af slysförum 1. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Bústaðakirkju
10. október.
B
Það kom eins og
þruma úr heiðskn-u
lofti þegar við bræð-
umir fréttum að Gústi
frændi hefði látist í um-
ferðarslysi. Kvöldið áð-
ur höfðum við átt
ánægjulega stund með Gústa í fimm-
tugsafmæli hjá pabba hans.
Margar góðar minngar eigum við
um Gústa frá því að við vorum litlir
guttar.
Oft hittum við Gústa og Bjössa hjá
Ágústu ömmu þar sem við brölluðum
ýmislegt saman. Samband okkar var
mjög náið á þessum árum og má
segja að við höfum verið eins og
bræður. Enda alltaf mikið tilhlökk-
unarefni að hitta Gústa og Bjössa.
Eftir að við bræðurnir fluttum ut-
anhittumst við frændurnir sjaldnar,
en það voru alltaf miklir fagnaðar-
fundir þegar við hittumst. Þrátt fyrir
að einhver tími liði milli þess að við
hittumst áttum við auðvelt með að ná
saman á ný. Það síðasta sem við
ræddum um við Gústa og Bjössa hina
örlagaríku nótt var að hittast ásamt
kærustunum okkar um næstu helgi.
Það tekur okkur bræðurna sárt að
missa okkar ástkæra frænda. Það
var ávallt stutt í brosið og góða skap-
ið hjá Gústa og hann átti auðvelt með
að smita þá með gleði
sína sem voru kringum
hann. Það er mikill
missir að gleðigjafa
eins og Gústi var og
mun minning hans lifa í
hjarta okkar.
Það var okkur mikil
ánægja að sjá hversu
mikil hamingja ríkti hjá
Gústa og Erlu Rut og
virtist framtíðin blasa
við þeim.
Kæra Erla Rut,
Bjössi, Helga, Þór,
systkini og ástvinir,
guð veiti ykkur styrk til
þess að takast á við þessa erfiðu
tíma.
Þínir frændur,
Kjartan og Pétur.
síðar annir við brauðstritsstörf átt
þátt í að ekki varð meira úr þá, eins
og algengt var í þá tíð.
Guðjón var á þessum árum með-
limur og mjög virkur þátttakandi í
Pólýfónkórnum og Liljukómum,
þar sem hann undi sér vel og hæfi-
leikamir nutu sín. Hann lauk síðan
prófi sem tónmenntakennari frá
Tónlistarskóla Reykjavíkur 1967og
starfaði upp frá því við tónmennta-
kennslu, í ýmsum skólum í fyrstu,
en síðan við Breiðholtsskóla frá
stofnun hans um 1970 og samfellt til
dauðadags, eða í 30 ár.
Um 14 ára skeið var Guðjón
stjómandi kórs Trésmiðafélags
Reykjavíkur. Þetta var tímafrekt og
krefjandi verkefni, sem veitti hon-
um þó mikla lífsfyllingu og gleði.
Á fjölskyldusviðinu var Guðjón
afar giftusamur. Hann fór fremur
seint af stað í þeim efum.
Fmmburðinn Þór, sem nú er bif-
vélavirki, eignaðist Guðjón með
Kristínu Aðalsteinsdóttur ferða-
málafrömuði 1958. Þau bjuggu ekki
saman.
Hann hóf sambúð með eiginkonu
sinni, Birnu Elíasdóttur kennara,
árið 1961 og eignuðust þau þrjú
börn, Börk tölvufræðing 1962, Gná
fulltrúa í alþjóðadeild Ríkislög-
reglustjóra 1963 og Brján kerfis-
fræðing 1969. Birna átti fyrir soninn
Sigurjón, sem varð bifvélavirki og
verkstjóri, fæddur 1961. Guðjón
gekk honum í föðurstað.
Fjölskyldan bjó frá upphafi í eigin
húsnæði í Safamýri 35, þar sem
Börkur og fjölskylda ráða nú hús-
um. Guðjón og Bima vom einkar
samhent við uppeldi barnanna og
stýrðu þeim mildilega, en með ör-
uggri hendi gegnum barnæsku- og
unglingsárin. Það var og er mikil
samheldni í þessari fjölskyldu.
Birna lést langt fyrir aldur fram
árið 1993 og var Guðjóni og allri fjöl-
skyldunni mikill harmdauði. Sigur-
jón sonur hennar lést síðan af slys-
fömm 1994, þannig að mikið var á
fjölskylduna lagt á stuttum tíma.
Kæri bróðir og vinur. Þar sem þú
varst svo heilsuhraustur og ætíð
hress og kátur var það okkur ást-
vinum þínum mikið áfall, að frétta af
skyndilegu brotthvarfi þínu úr okk-
ar tilvist hinn 2. október sl.
Það er þó huggun harmi gegn að
maður með þína skaphöfn sleppi við
langveikindi og að vera upp á aðra
kominn.
Ég þakka þér samfylgdina og
minnist uppfræðslu þinnar um hin
ýmsu málefni, auk fjölmargra gleði-
stunda sem við áttum saman í leik
og starfi.
Ég mun sakna þess að geta ekki
borðað með þér þjóðlega rétti svo
sem saltfisk, eða saltkjöt og baunir
og eiga við þig skemmtilegar við-
ræður.
Mest sakna ég þó hinnar háværu
barítónraddar og hins dillandi hlát-
urs, sem hvort tveggja mun ævin-
lega hljóma með mér, í minningunni
um þig.
Gunnar Þór Jónsson.
Blómabwði
n
,om
v/ Possvo0sl<i»*kjiÁgapð
SUWu 554 0500
ÚTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
'útfararstjðri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi, sonur minn, bróðir okkar og
mágur,
PÉTUR J. KJERÚLF
lögfræðingur,
Faxatúni 28,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði föstudaginn 20. október kl. 13.30.
Hafdfs Ágústsdóttir,
böm, tengdabörn og barnabörn,
Guðlaug P. Kjerúlf,
systur hins látna og fjölskyldur.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er auðsýndu samúð og vinarhug
vð andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
EINARS G. GUÐLAUGSSONAR
frá Búðum í Hlöðuvfk,
Álakvfsl 1.
Kristjana M. Finnbogadóttir,
Finnbogi Þórsson, Unnur R. Jóhannesdóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir, Tom Granerud,
Grfmur Th. Einarsson, Anna R. Jóhannesdóttir,
Guðlaugur Einarsson, Jakobfna H. Einarsdóttir,
Margrét B. Einarsdóttir, Stefán Ingólfsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
áttu við andlát og útför
VILHJÁLMS BOGA HARÐARSONAR,
Vindási 3,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær sr. Þór Hauksson, prestur
í Árbæjarsókn.
Gabríel Sveinn Vilhjálmsson,
Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Örn Guðmarsson,
Hörður Þorvaldsson, Ingibjörg Þ. Hallgrimsson
Svanhildur Valdimarsdóttir,
Ásgerður Á. Pétursdóttir,
Hrönn Harðardóttir, Magnús R. Guðmundsson,
Höskuldur Örn, Gunnar Ingi,
Hörn og Þorgeir Orri,
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs sambýlismanns, föður, fósturföður,
tengdaföður, fóstursonar, afa og frænda,
HALLDÓRS A. HALLDÓRSSONAR,
Múlavegi 6,
Seyðisfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Jónborg Valgeirsdóttir,
Björn Björgvin Halldórsson, Harpa R. Jakobsdóttir,
Erla Dögg Ragnarsdóttir, Arnaldur Haraldsson,
Rósa Skarphéðinsdóttir Jón Sigurðsson,
Kristinn Halldór Einarsson, Guðrún K. Einarsdóttir,
Sigrfður S. Einarsdóttir, Sólveig Einasdóttir,
Þórey Björg Einarsdóttir, Einar B. Jónsson,
Danfel J. Björnsson,
Urður Eir og Elmar Freyr Arnaldsbörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu
og hlýhug við fráfall og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SVEINS ÓLAFS SVEINSSONAR
húsasmfðameistara,
Sævangi 41.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum
A-5 og gjörgæslu Landspítalans Fossvogi.
Guð blessi ykkur öll.
Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir,
Ólöf Brynja Sveinsdóttir, Bjarni Ragnar Guðmundsson,
Aðalsteinn Sveinsson, Stefanfa Skarphéðinsdóttir,
Gunnar Örn Sveinsson,
Jónfna Björk Sveinsdóttir, Sveinn Vilhjálmsson,
Þorbjörg Sandra Sveinsdóttir, Heiðar Bergur Jónsson
og barnabörn.