Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 57^
FRÉTTIR
International-danskeppnin f Brentwood
Karen og
Adam
unnu til
brons-
verðlauna
ATVINNUDANSPARIÐ Karen
Björk Björgvinsdóttir og Adam
Reeve vann til bronsverðlauna í
sígildum samkvæmisdönsum í
nýliðaflokki atvinnumanna í Int-
ernational-danskeppninni í
Brentwood miðvikudaginn 11.
október sl. 109 pör hófu keppni.
Daginn áður kepptu þau í
suður-amerískum dönsum, í
sama flokki, og komust í 12
para undanúrslit af 84 pörum.
Einnig kepptu þau í flokki at-
vinnumanna í sigildu dönsunum
á miðvikudeginum og komust
þar í 48 para úrslit sem gaf
þeim réttindi til þess að keppa á
fimmtudeginum í Royal Albert
Hall í London. í Royal Albert
Hall var síðan keppt til úrslita
og höfðu þá bestu danspör
heims bæst í hópinn. Karen og
Adam komust áfram inn I 24
para úrslit sem er betri árangur
en þau náðu í Blackpool í vor.
Karen og Adam tóku þátt í
heimsmeistaramótinu í sigildum
dönsum í Graz í Austurríki
laugardaginn 6. október fyrir
Islands hönd. Þar náðu þau 18.
sætinu af 55 pörum sem tóku
þátt.
Næstu mót þeirra verða í 10 dönsum 8. og 9. desember í
Evrópumeistaramótið í suður- París og Evrópumeistaramótið í
amerískum dönsum 28. október 10 dönsum 16. og 17. desember í
í Englandi, Heimsmeistaramótið Köln í Þýskaiandi.
Ráðstefna um personuvernd
í viðskiptum og stjórnsýslu
ÞAÐ er óvist að vinnuaðferðir og
verklag við meðhöndlun persónu-
legra upplýsinga sem hér hafa
tíðkast - til dæmis víðtæk notkun
kennitölunnar - eigi framtíð fyrir
sér. íslensk fyrirtæki og stjórn-
sýsla eru orðin hluti fjölþjóðlegs
umhverfis sem af sögulegum
ástæðum er tortryggið gagnvart
skráningu slíkra upplýsinga. Til-
skipun ESB og ný íslensk löggjöf
um persónuvernd og meðferð per-
sónuupplýsinga gera nauðsynlegt
að brugðist sé við nú þegar. Af því
tilefni halda Staðlaráð Islands og
Skýrslutæknifélag íslands ráð-
stefnu á Hótel Loftleiðum 19. októ-
ber.
Meðal fyrirlesara er Nick Mans-
field, aðalráðgjafi Shell Services
International um öryggi upplýs-
inga og rafræn viðskipti. Mansfield
flytur erindi um persónuvernd og
persónupplýsingar; meginkröfurn-
ar í tilskipun ESB, áhrif hennar á
fyrirtæki og stofnanir og alþjóða-
viðskipti. Mansfíeld mun einnig
ræða hugsanlegar kröfur um vott-
un fyrirtækja og segja álit sitt á
víðtækri notkun kennitölunnar í ís-
lensku viðskiptalífi og stjórnsýslu
með hliðsjón af tilskipuninni.
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, og Páll Hreins-
son, stjórnarformaður Persónu-
verndar, flytja erindi um stefnu og
hlutverk stofnunarinnar í ljósi
nýrra laga og Hlynur Halldórsson
héraðsdómslögmaður segir skoðun
sína á þýðingu laganna fyrir starf-
semi og rekstur íslenskra fyrir-
tækja og stofnana. Þá fjallar
Svana Helen Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stika ehf., um notk-
un væntanlegs íslensks staðals við
að uppfylla kröfur um meðferð
upplýsinga og fjölga sóknarfærum
í viðskiptum.
Ráðstefnunni lýkur með pall-
borðsumræðum um hvort nýjar
kröfur og ný löggjöf muni íþyngja
fyrirtækjum og stofnunum eða
bjóða upp á áður óþekkt tækifæri
og aukið hagræði. Einnig hvort um
réttarbót sé að ræða fyrir almenn-
ing og hvort notkun kennitölunnar
verði áfram möguleg í viðskiptum
og stjórnsýslu.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra setur ráðstefnuna. Fund-
arstjóri er Jóhann Gunnarsson,
ritari ráðgjafarnefndar forsætis-
og fjármálaráðuneyta um upplýs-
inga- og tölvumál.
Ráðstefnan verður fimmtudag-
inn 19. október á Hótel Loftleiðum
frá kl. 13-16.40. Ráðstefnugjald kr.
11. 800. Skráning með tölvupósti
sky@sky.is
Málþmg um
þroskahjálp
MÁLÞING Þroskaþjálfafélags ís-
lands verður haldið 19.-20. októ-
ber að Varmalandi í Borgarfirði.
Yfirskrift málþingsins: Þjónusta
við fólk með fötlun, stefnumótun á
nýjum tímum.
Þroskaþjálfafélag íslands stend-
ur fyrir málþingi um framtíðarsýn
og stefnumótun í þjónustu við fólk
með fötlun. Flutningur málefna
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga er
fyrirhugaður á næstu misserum,
samkvæmt frumvarpi til laga um
félagslega þjónustu sveitarfélaga
sem tekið verður til umræðu á yf-
irstandandi þingi. Þá hefur um-
ræða um einkavæðingu á þjónustu
við fólk með fötlun aukist. Á mál-
þinginu verður tekið á þessum
málum, auk þess sem unnið verður
að gerð ályktana og mótun hug-
myndafræði um búsetuþjónustu
við fatlaða á nýjum tímum. Ýmsar
leiðir hafa komið til tals hvað varð-
ar útfærslu á þjónustu við fólk
með fötlun í framtíðinni, segir í
fréttatilkynningu.
Á málþinginu verður leitast við
að svara spurningum eins og:
Hver er framtíðarsýn í þjónustu
við fólk með fötlun? Hver er
reynslan af yfirfærslu félagslegrar
þjónustu frá ríki til sveitarfélaga?
Eru þjónustusamningar í velferð-
arþjónustu raunhæfur möguleiki?
Er einkavæðing lausnin á vandá
þjónustunnar?
Meðal fyrirlesara á málþinginu
eru m.a. einstaklingar sem hafa
mikla reynslu af félagsþjónustu.
Lára Björnsdóttir, félagsmála-
stjóri Reykjavíkur, mun gera
grein fyrir framtíðarsýn sinni á
málefni fólks með fötlun, Bragi
Guðbrandsson, framkvæmdastjóri
Barnaverndarstofu, mun fjalla um
þjónustusamninga og Þór Garðar
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu Reykjaness, fjall-
ar um einkavæðingu.
Kynning í dag og á morgun
Kynnum einnig ART OF SPA tvær nýjar
líkamslínur, sem veita kraft frá toppi til
táar eða fullkomna slökun, allt eftir
þínum óskum.
Við bjóðum þig velkomna í verslunina
og minnum á glæsilega kaupauka. Hamraborg
6 6 6 e sími 564 2011
SNYRTIVERSLUNIN
BYLGJAN
1.
Verslunin hættir
í Nóatúni 17
Troðfull búð
af fatnaði og skóm
á stórlækkuðu verði
SPAR SP0RT
TOPPMERKI A LAGMARKSVEROl
Regngallar m/útöndun S-XXL
áður kr. 14.900, nú kr. 7.900
Úlpur frá kr. 1.990
Innanhússkór 500-1.990
NÓATÚN 17
▼
S. 511 4747
FILA
pumn
SPEEDO
vá Jl
casall oái^s
jjjj^