Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 61
-----------------------------V
Tryggingafélögin tapa á bifhjólatryggingum
Lögbundnar vátryggingar vegna bifhjóla
1995-99 1/n
Tjón—/ t l^tU 1on
Tjón umfram iðgjöld / I c. U mn
3,7 m.kr. 15,8 43,8 17,6 / 91, 3 pn
ou nn
— DU V—40 | 20 n
1995 1996 1997 1998 1999 |
Iðgjöld
standa
undir þriðj-
ungi tjóna
VÁTRYGGINGAFÉLÖGIN
greiddu á síðasta ári liðlega 136
milljónir króna í bætur vegna vél-
hjólaslysa en iðgjöld ársins námu
aðeins þriðjungi þeirrar fjárhæðar,
eða 45 milljónum kr. Tjón, sem
greidd eru af bifhjólatryggingum,
færast í aukana.
Samband íslenskra tryggingafé-
laga hefur tekið saman upplýsing-
ar um iðgjöld og tjón í lögboðnum
tryggingum bifhjóla á síðustu
fimm árum. Er það gert vegna
gagnrýni bifhjólamanna á að gjöld-
in séu óeðlilega há miðað við tjónin
sem biflijólamenn hafa valdið í um-
ferðinni.
Fram kemur að tjónakostnaður
áranna 1995 til 1999 nam samtals
316 milljónum kr. en iðgjöldin 144
milljónum kr. Greiddu trygginga-
félögin því um 172 milljónir króna
í tjónabætur umfram iðgjöld sem
innheimt voru.
I upplýsingum tryggingafélag-
anna kemur fram að þrátt fyrir að
árleg iðgjöld hafi rúmlega tvö-
faldast á þessu tímabili hefur af-
koma trygginganna versnað til
muna vegna þess að tjónakostnað-
urinn hefur margfaldast.
Þá er vakin athygli á því að eina
erlenda vátryggingafélagið sem
hér er með starfsemi á sviði öku-
tækjatrygginga hafni því að
tryggja bifhjól.
Látin er í ljósi sú skoðun að ið-
gjöld bifhjólamanna lækki vart
nema úr tjónum þeirra dragi,
nema þeir séu að biðja um að bif-
reiðaeigendur taki á sig hækkun
iðgjalda til að niðurgreiða iðgjöld
vegna vélhjólanna.
Fyrirlestur
um „landa-
fræði pers-
ónuleikans“
PRÓFESSOR Jiiri Allik flytur opin-
beran fyrirlestur í dag, miðvikudag-
inn 18. október, kl. 18 á vegum fé-
lagsvísindadeildar Háskóla Islands.
asta á sviði þekkingarstjórnunar í
heiminum í dag, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fjórir alþjóðlegir sérfræðingar á
sviði þekkingarstjómunar eru fyrir-
lesarar á ráðstefnunni. Dr.
Leenamaija Otala, alþjóðlegur ráð-
gjafi á sviði þekkingarstjórnunar og
einn af aðalfyrirlesurum á Microsoft-
ráðstefnunni um þekkingarstjórnun
í Bandaríkjunum síðastliðið vor, mun
m.a. fjalla um hvernig hægt er að
skapa fyrirtækjamenningu og starfs-
heilasvörun í talskynjun Finna og
Eistlendinga þar sem sýnt hefur ver-
ið fram á að móðurmálið hefur áhrif
á svörunina. Að undanförnu hefur
hann einnig beitt sér fyrir rannsókn-
um í persónuleikasálfræði í Eistlandi
og samstarfi þeirra sem vinna að
þýðingum á NEO-persónuleikapróf-
inu í mismunandi löndum. Niður-
stöður rannsókna hans hafa birst í
fjölmörgum greinum í alþjóðlegum
tímaritum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 101 í Odda og er öllum opinn.
Ráðstefna um
þekkingar-
stjórnun
RÁÐSTEFNAN Þekkingarstjórn-
un. Markmið, leiðir og árangur á
vegum IMG verður haldin á Hótel
Sögu fimmtudaginn 19. október frá
kl. 9-17. Á ráðstefnunni verður fjall-
að um það nýjasta og athyglisverð-
anda sem styður við nám, flæði þekk-
ingar milli einstaklinga og nýsköpun.
Dr. Otala hefur gefið út fjölda
bóka og fræðigreina um þekkingar-
stjórnun.
Riitta Weiste, vinnusálfræðingur
og yfirmaður starfsmannamála hjá
Nokia, sem er af mörgum talið
fremsta þekkingarfyrirtæki heims,
flytur erindi um innleiðingu þekking-
arstjórnunar hjá Nokia.
Deborah Swallow, stjórnunarráð-
gjafi á sviði þekkingarstjórnunar hjá
mörgum fyrirtækjum, fjallar m.a.
um þekkingarstjórnun í samkeppnis-
umhverfi. Hún hefur hlotið opinbera
viðurkenningu fyi-ir framúrskarandi
fagmennsku og árangur sem ráðgjafi
og er eftirsóttur fyrirlesari í Evrópu.
Michael C. Feltham, sem er búinn
að sérhæfa sig í upplýsingatækni og
rafrænum viðskiptum, tekur m.a.
fyrir stjórnun þekkingar í smærri
fyrirtækjum.
Á ráðstefnunni er eftir hádegi boð-
ið upp á þrjú styttri erindi ásamt um-
ræðum, sem fyrirlesarar á ráðstefn-
unni munu stýra.
Ertu á aldrinum 15-18 ára?
Viltu öðruvísi menntun?
Meiri víðsýni? Meira sjálfstraust?
Erum að taka á móti umsóknum:
• Um ársdvöl í Argentínu, Japan og
Paragvæ og hálfsárs dvöl í
Bandaríkjunum og Brasilíu
með brottför í janúar—mars 2001.
• Til fjölmargra landa með brottför
júní—september 2001.
AFS á fsiandi
Ingólfsstræti 3 | 2. hæð | simi 552 5450 | www.afs.is
Samfylkingin
Kjördæmis-
ráð í SV-kjör-
dæmi stofnað
STOFNFUNDUR kjördæmisráðs
Samfylkingarinnar í Suðvestur-
kjördæmi verður haldinn fimmtu-
daginn 19. október kl. 20 í Stjörnu-
heimilinu við Ásgarð í Garðabæ.
Þar mun undirbúningsnefnd
kynna tillögu að lögum um kjör-
dæmisráð og hún borin fram til at-
kvæða. Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, ávarpar
fundinn og Margrét Sigurðardótt-
ir, söngkona úr Garðabæ, syngur
nokkur lög.
Stofnfundurinn er opinn öllu
Samfylkingarfólki í kjördæminu.
Að honum loknum er gert ráð fyrir
að aðildarfélög kjósi fulltrúa í ráðið
og það komi saman til síns fyrsta
fundar að hálfum mánuði liðnum,
þar sem kosning í stjórn og flokks-
stjórn fer fram.
í Suðvesturkjördæmi eru Mos-
fellsbær, Kjósarhreppur, Seltjarn-
arnes, Garðabær, Kópavogur,
Hafnarfjörður og Bessastaða-
hreppur.