Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 DAGBOK MORGUNBLAÐIÐ í dag er miðvikudagur 18. október, _______292. dagur ársins 2000.______ Orð dagsins: Og ég segi yður: Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð fínna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. (Lúkas 11,9.) Skipin Reykjavíkurhöfn: Snorri Sturluson, Ás- björn RE-050, Gjafar VE-600, Koryo Maru no.5, Chokyu Maru no. 1 li Selfoss, Maersk Biscay og Kinsho Maru no. 18 koma í dag. Snorri Sturluson, Shin- ei Maru no. 8 og Sel- foss fara í dag. Fréttir Styrkur, samtök krabbameinssj úklinga og aðstandenda þeirra. Svarað er í síma Krabbameinsráðgj afar- innar, 800-4040, frá kl. 15-17. Mæðrastyrksnefnd Reykjavi'kur, Sólvalla- giútu 48. Flóamarkaður og fataúthlutun. Opið frá kl. 14-17. Áheit. Kaldrana- neskirkja á Ströndum á 150 ára afmæli á næsta ári og þarfnast kirkjan mikilla endurbóta. Þeir sem vildu styrkja þetta málefni geta lagt inn á reikn. 1105-05-400744. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-16.30 klippimyndir, útsaumur o.fl., kl. 13 smíðastofan opin og spilað í sal, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Máiverkasýning Eiríks Árna Sigtryggs- sonar og Júlíusar Sam- úelssonar er opin alla daga og einnig laugar- daga kl. 14-16. Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulín, kl. 12 hádegismatur, kl. 13 vinnustofa og postu- iín, kl. 15 kaffi. Flensu- sprauta í dag kl. 11-13. Sjálfsbjörg, félags- heimili Hátúni 12. í dag kl. 19.30 verður félags- vist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8- 13 hárgreiðsia, kl. 8- 12.30 böðun, ki. 9-12 vefnaður, kl. 9-16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 10 banki, kl.13 spiladagur, kl. 13 vefn- aður. Félagsstarf aidraðra Dalbraut 18-20. kl. 9 kaffi og dagblöð, böðun, hárgreiðslustofan og handavinnustofan opn- 9f, ki. 11.15 matur, kl. 13 opin handa- vinnustofan, kl. 15 kaffi. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15- 16 og skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30-18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting og verslunin opin til kl. 13, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ, glerlist kl. 10 og 13, tréskurður kl. 13, bútasaumur kl. 16. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Myndmennt kl. 13:00. Piíukast og frjáls sgiia- mennska kl. 13:30. í fyrramálið er púttæfmg í Bæjarútgerðinni kl. 10-12. Á morgun fellur opið hús niður en verð- ur næsta fimmtudag 26. okt. í staðinn. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10:00-13:00. Matur í hádeginu. Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10.00 í dag. Söngfélag FEB kóræf- ing kl. 17.00. Línudans- kennsla Sigvalda fellur niður i kvöld, hefst aft- ur 25. október, Undan- farin ár hefur Félag eldri borgara í Reykja- vík og nágrenni staðið fyrir fræðslufundum undir yfirskriftinni „Heilsa og hamingja á efri árum“ sem fjalla um ýmsa sjúkdóma, sem helst hrjá eldra fólk. Fræðslufundimir verða haldnir þrjá daga. Dagskrá fyrsta dagsins er sem hér segir: Laug- ardaginn 21. október kl. 13.30. Gigtarsjúkdómar: Fyrirlesarar eru Helgi Jónsson og Arnór Vík- ingsson. Fræðslu- fundirnir verða haldnir í Ásgarði Giæsibæ, fé- lagsheimili Félags eldri borgara. Ailir eru vel- komnir. Gerðuberg, félagsstarf, kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar hjá Helgu Þórarinsdóttur, kl. 11.20 böm úr Öldu- selsskóla í heimsókn, frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 13.30 Tónhornið, veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Allar upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Starf aldraðra Bú- staðakirkju. I dag kl. 13.30 verður spilað, fondrað og boðið uppá kaffi. Allir velkomnir. Kvenfélagið Aldan. Að- alfundur verður haldinn í kvöld miðvikudag 18. okt. í Borgartúni 18, 3. hæð, kl. 20.30. Ath. Breyttur fundarstaður. Konur fjölmennið. ITC-deildin Korpa, Mosfellsbæ, heldur kynningarfund í kvöld miðvikudag kl. 20 í Safnaðarheimili Lága- fellssóknar, Þverholti 3, Mos. Allir velkomnir, upplýsingar gefur Aðal- heiður s. 5666552 Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10-17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb og tréskurður. Fyrirhuguð er jóla- og tækifæriskortagerð. Kortin er hægt að búa til úr t.d. laufum, kvist- um, steinum, þangi, blómum o.fl. á pappírs- renninga. Þátttöku- skráning fer fram í Gjá- bakka í s: 554-3400. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Mat- arþjónusta er á þriðju- og fóstud. Panta þarf fyrir kl. 10 sömu daga. Fótaaðgerðastofan opin frá kl. 10. Leikfimi kl. 9 og 10, vefnaður kl. 9, keramikmálun kl. 13, enska kl. 13.30. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 bútasaumur, 9-12 útskurður, kl. 9-17 hár- greiðsla, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hæðargarður 31. Kl. 9 opin vinnustofa, og fóta- aðgerð, kl. 13 böðun. Hvassaleiti 58-60. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, hárgreiðsla, keramik, tau- og silkimálun og jóga, kl.ll sund í Grensáslaug, kl. 15 teiknun og málun. Norðurbrún 1. Kl. 9-16 fótaaðgerðarstofan opin, kl. 9-12.30 útskurður, kl. 9-16.45 hand- avinnustofurnar opnar, kl. 10.10 sögustund, kl. 13 bankinn og félags- vist. Vesturgata 7. kl. 8.30 sund, kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 aðstoð við böðun, myndlistarkennsla og postulínsmálun, kl. 13-16 myndlistar- kennsla og postulíns- málun, kl. 13-14 spurt og spjallað. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 bankaþjónusta, kl. 10 morgunstund, bókband og bútasaum- ur, kl. 13 handmennt og kóræfing, kl. 13.30 bók- band, kl. 14.10 verslun- arferð. ITC-deildin Fífa heldur fund í kvöld á Digra- nesvegi 12, Kópavogi kl. 20.15. Gestir velkomnir. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530-3600. Mínningarkort Heilavernd. Minningar- kort fást á eftirtöldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holtsapó- teki, Vesturbæjar- apóteki, Hafnarfjarð- arapóteki, Keflavíkur- apóteki og hjá Gunn- hildi Elíasdóttur, ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Parkin- sonsamtakanna á Is- landi eru afgreidd í sjma 552-4440 og hjá Áslaugu í síma 552-7417 og hjá Nínu í síma 564- 5304. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9-13, s. 562-5605, bréfsími 562- 5715. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RlTSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hvað ungur nemur ÉG sá það í Mogganum 30.9. að 7 af hverjum 10 hefðu viljað hækka aldur þeirra sem taka bílpróf. Það þýðir að ef lögum væri breytt nú á haustþingi gæti sá sem væri 17 ára á gaml- ársdag fengið bílpróf en sá sem yrði 17 ára á nýársdag ekki og yrði þvi að bíða í eitt ár. Svona hundakúnstir löggjafans finnst mér vart við hæfi, en hvort það hafi verið rétt að lækka aldurinn á sínum tíma, það er svo annað mái. Bflaflotinn er orðinn svo mikill að göturn- ar bera ekki umferðina og allir að flýta sér, þannig að þó maður sé á hámarks- hraða sigla þeir framhjá manni eins og skeri. Stór- lega vantar beygjuljós eins og á Miklubraut þar sem allir eru að troða sér inn á hana og lögregla svo fáliðuð að hún sést lítið. Það sýndi sig á þeim eina degi sem hún sást að þá urðu aðeins þrír árekstrar í bænum. Á Breiðholtsbraut þar sem mikið er af ljósum með beygjum á alla vegu hef ég aldrei séð árekstur og fer ég þó oft þar um og allt er það ljósunum að þakka. Það besta sem hægt er að gera til að laga umferðar- menninguna er að stórauka fræðsiu í skólum og það strax í leikskólum, hvernig á að ganga yfir götu og hin- um eldri hvernig á að hjóla og aka og leggja í stæði, því það er algengt að sjá bíla taka tvö stæði. Að sýndar væru myndir úr umferðinni og leiknar myndir. Ég held að það myndi skila árangri þegar til lengri tíma væri litið. Ekki fyndist mér það nema eðlilegt að trygginga- félögin legðu sitt af mörkum við gerð umferðarkvik- myndar í skólum. Það gæti sparað þeim útgjöld í fram- tíðinni og þá gætu olíufélög- in sem hafa tekjur sínar af umferðinni líka lagt eitt- hvað af mörkum. Við eigum ekki að ijúka til og hækka bílprófsaldurinn heldur auka fræðslu og gera þá ungu að góðum bílstjórum og vonandi þeim bestu þeg- ar fram líða stundir. Það kom líka fram í könnun nú á dögunum að það eru ekki yngstu bílstjórarnir á sínu fyrsta ári sem flestum slys- um valda í umferðinni held- ur þeir sem hafa náð 18 ára aldri. Á þá að hækka aldur- inn ennjiá meir og hversu hátt á þá að fara? Höfum það í huga að hvað ungur nemur, gamall temur. Það er málsháttur sem enn á við. Guðmundur Bergsson, Sogavegi 178. Við mótmælum ÉG horfði í síðustu viku á hann Pétur Blöndai á Stöð 2 reyna að gera umræðuna um fátækt óti-úverðuga. Hann talaði um að óreglu og óreiðu væri um að kenna þar sem erfitt er. Þetta var sem blaut tuska í andlit margra sem hér líða skort vegna fátæktar. Margir urðu sárir og reiðir út í þingmanninn og finnst mér ekki furða. Forsætisráð- herra sagði síðan í samtali við Stöð 2 að fréttamaður hefði lagt honum orð í munn og gripið fram í fyrir hon- um. Þetta er engin afsökun. Það er sorglegt að svona lagað skuh gerast, að fólki skuli vera sýnd svona óvirð- ing. Síðan að Samtök gegn fátækt voru stofnuð hefur mikil] fjöidi haft samband, sem hefur það mjög erfitt vegna lágra launa og bóta og sífellds niðurskurðar rík- isstjórnar. Hver lifir af 50.000-60.000 krónum á mánuði? Samtök gegn fá- tækt viija harðlega mót- mæla þessum ummælum Péturs Blöndal. Sigrún Á. Reynisdóttir, formaður Samtaka gegn fátækt. Kínverskt nudd og nálarstunga ÉG hef verið afar slæm af vöðvabólgu í baki og niður í hendur. Ég var farin að fá doða í hendurnar. Þá sá ég auglýsingu frá stofu í Hamraborg í Kópavogi sem heitir Kínverskt nudd og nálarstungur. Ég ákvað að prófa og nú er ég búin að fara í nokkur skipti og er að verða góð. Ég vil endilega benda fólki á að prufa þetta. Þetta hefur reynst mér ákaflegavel. Esther Magnúsdóttir. Ljdst seðlaveski hvarf frá Jómfrúnni LJÓST seðlaveski hvarf frá Smurbrauðstofunni Jóm- frúin í Lækjargötu 4, laug- ardaginn 14. október sl., á milli klukkan 16.30-17. Veskið er varpað með brúnu og merkt með stöfun- um S.E. I veskinu eru öll skilríki og pappírar, sem eru eig- andanum afar kærir. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að skila veskinu á Smurbrauðstofuna Jóm- frúin Lækjargötu 4. Dýrahald Kanúiur vantar heimili TVÆR kanínur, ársgamlar, vantar gott heimili sem fyrst. Búr og allir iylgihlutir fylgja. Upplýsingar í síma 567 4840 eða 564 5133. Krossgáta LÁRÉTT: 1 erfiðleikarnir, 8 verður fljótt mótt, 9 enda, 10 fugl, 11 snaga, 13 stal, 15 heilbrigð, 18 spilið, 21 ótta, 22 sorp, 23 hindra, 24 skjail. LÓÐRÉTT: 2 rík, 3 ávöxtur, 4 álítur, 5 ástundun, 6 hneisa, 7 opi, 12 lofttegund, 14 kyn, 15 vatnsfall, 16 Evrópubúa, 17 þekktu, 18 óskunda, 19 nafnbót, 20 askar. LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kusan, 4 kolla, 7 kyrrt, 8 regns, 9 afl, 11 röng, 13 iðin, 14 ræðið, 15 strá, 17 nagg, 20 orm, 22 rætur, 23 eisan, 24 tunna, 25 nærir. Lóðrétt: 1 kækur, 2 sýran, 3 nota, 4 karl, 5 logið, 6 aus- an, 10 fæðir, 12 grá, 13 iðn, 15 strút, 16 rætin, 18 ansar, 19 ganar, 20 orga, 21 mein. Víkveiji skrifar... FARSÍMAR gætu hugsanlega fyllt í það skarð í þroskaferli unglinga sem reykingar hafa stund- um gert, var haft nýlega eftir bresk- um læknaprófessor í bandaríska tímaiitinu Newsweek. Ræddi hann málið á læknaþingi einhvers staðar í útlandinu og var á því að farsímarnir gerðu það sama fyrir unglingana (sérstaklega stúlkur) og talið er að sígarettur hafi löngum gert, að gefa þeim þá tilflnningu að þeir væru full- orðnir. Víkverja fínnst þessi tilgáta allrar athygli verð. Sé það rétt að ungling- ar byrji að reykja bara til að sýnast fullorðnir þá er farsímaleiðin náttúr- lega miklu skárri. Þar er þó í það minnsta ekki verið að anda að sér skaðlegum efnum eða spúa þeim yfir aðra. Sumir halda því reyndar fram að farsímabylgjur séu ekki hollar en þær eru áreiðanlega ekki jafn áhrifa- mikill skaðvaldur og tóbakið nema notkunin taki út yfír allan þjófabálk og menn séu kannski með símann við eyrað allan sólarhringinn. Farsíma- notkunin er þó sama marki brennd og tóbakið að hún kostar talsverða fjármuni. Hafi menn farsíma við höndina er oft alltof þægilegt að grípa í hann og hringja út og suður, innanlands sem utan, og er reikning- urinn þá reyndar fljótur að rjúka upp. En einhvern veginn finnst Vík- verja símaánauðin vera skárri en tóbaksfíknin. xxx FYRIR nokkru greindi Víkverji frá óförum sínum á Norður- landi, nánar tiltekið í umdæmi lög- reglunnar á Blönduósi, þegar hann var gripinn glóðvolgur við að fara yf- ir velsæmismörk og leyfileg í hraða. Gerði hann enga tilraun til að út- skýra eða afsaka framferði sitt, vissi að hann hafði sprett um of úr spori á viljugum bílnum. Niðurstaðan varð krafa um sektargreiðslu sem Vík- verji samþykkti orðalaust. Eða eins og það heitir á máli yfirvalda „er yð- ur hér með gefinn kostur á að ljúka máli þessu án dómsmeðferðar með greiðslu sektar". Huggun harmi gegn. Vikurnar liðu ein af annarri og ekki kom gíróseðill. Var hinn brot- legi farinn að leyfa sér að trúa því að eitthvað hefði dottið uppfyrir í bók- haldinu hjá þeim fyrir norðan. Nærri fjórar vikur og aldrei kom neitt. En loksins. Það hlaut að vera og gat ekki verið að menn sýndu neina linkind. Gíróseðill, innheimta gegnum Seðla- bankann, fyrir sýslumanninn á Blönduósi: Krónur 10 þúsund en af- sláttur ef greitt er fyrir 10. nóvem- ber. Það er bót í máli. Hægt að fara í bíó fyrir afsláttinn og kannski líka kaupa nammi í hléi. Önnur bót í máli er að hinn brotlegi verður ekki skráður á sakaskrá og er það til- greint á seðlinum góða frá Seðla- bankanum: „Afgreiðsla málsins með þessum hætti færist ekki í sakaskrá en brotið varðar 1 punkti sbr. reglu- gerð um ökuferilsskrá og punkta- kerfi vegna umferðarlagabrota nr. 431/1998.“ Víkverji verður því að sætta sig við punktinn. Sá fyrsti - og vonandi eini - því ekki ætlar hann að láta þetta henda sig aftur. Spurning er hins vegar hvort ekki er líka hægt að fá afslátt af punktunum. Af því hann er sá fyrsti. Væri það svo frá- leitt?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.