Morgunblaðið - 24.11.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 25
VIÐSKIPTI
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins sefflr þróun í kjölfar síaukinna útlána vera óviðunandi
Stjórnendur
þurfa að taka
hættumerkin
alvarlega
MIKIL aukning útlána
undanfarin tvö ár er
varhugaverð þróun að
mati Fjármálaeftirlits-
ins og telur Páll Gunn-
ar Pálsson forstjóri
FME að slík útlána-
aukning langt umfram
aukningu þjóðar-
framleiðslu geti ekki
staðist til lengdar. Ár-
leg útlánaaukning frá
árinu 1998 hefur að
jafnaði verið 25-30% á
meðan sambærileg
aukning útlána áranna
1996 og 1997 var um
12%, og segir Páll að í
ljósi aðstæðna sé þróun á eigin-
fjárhlutfalli lánastofnana óviðun-
andi.
Þetta kom m.a. fram í ræðu Páls
Gunnars á ársfundi Fjármálaeftir-
litsins í gær, þar sem kynnt var
fyrsta ársskýrsla FME. í ræðu
sinni taldi Páll Gunnar nauðsynlegt
að gera útlánavöxt og eiginfjár-
stöðu lánastofnana að sérstöku um-
talsefni og sagði að Fjármálaeftir-
litið hefði gert margvíslegar
athugasemdir við útlánavöxt og
þróun eiginfjárhlutfalls og áhættu-
stýringu því tengda.
Páll Gunnar sagði að auk þess
sem hröð útlánaaukning yki af-
skriftaþörf skapaði hraðvaxandi
umsvif einnig hættu á að ekki væri
nægilega vandað til útlánaákvarð-
ana og áhættugreiningar. Hann
sagði jafnframt að með hliðsjón af
fyrirliggjandi spám um minnkandi
hagvöxt mætti ætla að afskriftar-
framlög væru nú í lágmarki, en ef
arðsemi eigin fjár breyttist ekki
yrði ekki svigrúm til að auka af-
skriftarframlögin
nema með því að auka
tekjur eða draga úr
kostnaði.
Innra eftirlit setið
á hakanum
„Við þessar aðstæð-
ur er því nauðsynlegt
fyrir lánastofnanir að
sýna sterka eiginfjár-
stöðu. Vandinn er
hins vegar sá að af-
leiðing hinna auknu
umsvifa er lækkun
eiginfjárhlutfalla.
Lögboðið eiginfjár-
hlutfall viðskipta-
banka og stærstu sparisjóða hefur
í heild lækkað úr 12,7% i 9,4% frá
árslokum 1995 til miðs árs 2000.
Víkjandi lán, sem talin eru með í
útreikningi á eiginfjárhlutfalli, hafa
aukist verulega á þessu tímabili
eða úr 2,2 milljörðum króna í 15,3
milljarða króna. Eiginfjárhlutfall
án víkjandi lána hefur því lækkað
enn meira en hið lögboðna eigin-
fjárhlutfall, eða úr 11,7% í 6,6% á
tímabilinu. Þessi þróun eiginfjár-
hlutfalls er óviðunandi," sagði Páll
Gunnar.
Þá sagði Páll Gunnar að Fjár-
málaeftirlitið hefði gert athuga-
semdir við skipulag og eftirlit varð-
andi markaðsáhættu fjármála-
fyrirtækja, en sú áhætta hefði
vaxið mjög hratt og að innra eftir-
lit hefði setið á hakanum í ýmsum
tilfellum. Markaðsbréfaeign
stærstu fjármálafyrirtækjanna
jókst úr 20 milljörðum króna í 96
milljarða króna frá árslokum 1995
til ársloka 1999 og er því sífellt
stærri hluti eigna þessara fyrir-
Páll Gunnar Pálsson
Fjármálaeftirlitið hefur undanfarið gert athugasemdir við skipulag og eftirlit varðandi markaðsáhættu fjármála-
fyrirtækja, en vaxandi hluti eignaþeirra er bundinn í markaðsverðbréfum sem eru háð gengissveiflum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
tækja bundinn í markaðsverðbréf-
um, sem eru háð gengissveiflum á
markaði. Þessi þróun leiðir til þess
að fjármálafyrirtækin eru við-
kvæmari en áður fyrir ytri áhrifum
á efnahag og rekstur og sagði Páll
Gunnar mikilvægt að eiginfjárstaða
þeirra væri nægilega sterk til að
mæta óvæntum áföllum og tæki á
hverjum tíma mið af áhættustigi
viðkomandi fjármálafyrirtækis.
Þróunin ekki sýnt
breytingu til batnaðar
„Á kynningarfundi Fjármálaeft-
irlitsins fyrir rúmu ári var vikið
sérstaklega að þróun útlána, þróun
framlaga í afskriftareikning og
þróun eiginfjárhlutfalla, með og án
víkjandi lána. Bent var á að
áhættustig fjármálafyrirtækja væri
mismunandi eftir einstökum fyrir-
tækjum og því eðlilegt að gera mis-
munandi kröfur um lágmarkseigin-
fjárhlutfall.
Síðan þá hefur þróunin hér á
landi ekki sýnt breytingu til batn-
aðar. Fjármálaeftirlitið telur þessa
stöðu óviðunandi og vill brýna fyrir
stjórnendum fjármálafyrirtækja að
taka alvarlega þau hættumerki
sem í þessari þróun felast," sagði
Páll Gunnar.
I máli hans kom fram að Fjár-
málaeftirlitið hefði m.a. brugðist
við þessari þróun með því að huga
sérstaklega að áhættustýringu og
innra eftirliti lánastofnana og gert
athugasemdir og hvatt til úrbóta.
Þá hefur FME ma. lýst því yfir að
stærstu lánastofnanir hér á landi
með virka áhættustýringu og innra
eftirlit skuli stefna að því að eigin-
fjárhlutfall samkvæmt lögum sé á
hverjum tíma að lágmarki 10% í
stað 8%, og að þær aðstæður sem
nú væru uppi gerðu þetta mjög
brýnt. Jafnframt væri ljóst að
margar lánastofnanir þyrftu að
setja sér hærri markmið um eigið
fé í samræmi við áhættu í starf-
semi sinni.
í ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins
kemur fram að margt bendi til
þess að afkoma lánastofnana fari
versnandi, en afkoman á fyrri hluta
ársins 2000 samsvarar einungis 9%
arðsemi eigin fjár miðað við heilt
ár, sem er svipuð arðsemi og var
árið 1996. Á árunum 1995-1999
batnaði hins vegai- heildarafkoma
helstu fjármálafyrirtækja stöðugt,
og var arðsemi eigin fjár banka og
stærstu sparisjóða 7% árið 1995 og
18% árið 1999.
I skýrslunni kemur fram að
versnandi afkoma á fyrri hluta
þessa árs skýrist að hluta til af
matsverðsbreytingu fjárfestingar-
skuldabréfa í tengslum við óhag-
stæða þróun markaðsvaxta á lang-
tímamarkaði, en án gjaldfærslu
vegna þeirra breytinga hefði arð-
semi eigin fjár orðið um 13% í stað
9%. Önnur meginskýring er sam-
dráttur í öðrum rekstrartekjum en
vöxtum, einkum gengishagnaði af
skuldabréfaviðskiptum.
www.microtouch.com
SNERTISKJÁIR
IÐNAÐARTÆKNI ehf.
Þverholti 15A, sími 562 7127
MONSOON
M A K E U P
litir sem lífga
m-twvsKi t altt að 36 mánuðt
öílcUhöfðt 20 l 10 Reykjavík simi $10 SOQ0 www husgagnahollin.U
Amerískur lífstíll
Borðstofuhúsgögnin frá
EBACO, eru klassísk og
vönduð. Smáatriðunum er
gefið gaum (hönnuninni,
falleg smámunstur, og
bogadregnar línur eru
einkennandi. Komdu í
Húsgagnahöllina þegar þú
ætlar að velja þér húsgögn
til framtíðar.
Teg. Bristol Cherry:
Borðstofusett með
6 stólum og glerskáp
kr. 367.630,-
HÚSGAGNAHÖLLIIU
VISA