Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 27
Morgunblaðið/Sigurgeir
Loðna flokkuð fyrir frystingu í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum í gær.
Bræla á loðnumiðunum út af Vestfjörðum
Fyrsta loðnan til
V estmannaeyj a
Kúfískskipið Fossá ÞH fyrsta
íslenska skipið frá Kína
Siglingin heim tekur
um sex vikur
KÚFISKSKIPIÐ Fossá ÞH verður
væntanlega afhent nýjum eigendum
í næstu yiku og hefst þá siglingin frá
Kína til íslands, en hún tekur um sex
vikur að sögn Jóhanns A. Jónssonar,
framkvæmdastjóra Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar.
Fossá er sérhannað kúfiskskip
fyrir íslenskan kúfisk hf., sem er
dótturfyrirtæki Hraðfrystistöðvai'
Þórshafnar hf. og jafnframt í eigu
bandaríski-a aðila, smíðað hjá Hu-
angpu-skipasmíðastöðinni í Gung
Zhou-borg í Kína, en hannað af Ráð-
garði - Skiparáðgjöf. Skipið er 38
metrar að lengd og kostar um 141
milljón króna að smíða það.
Samkvæmt samningi átti að af-
henda skipið í febrúar sem leið en
Jóhann segist eiga von á að það verði
afhent í næstu viku. Verið sé að
leggja lokahönd á fráganginn og er
áhöfnin til taks í Kína.
Siglingin heim tekur um 45 daga
en siglt verður vestur um Súez-
skurð og standist áætlaður afhend-
ingartími má gera ráð fyrir að skipið
verði á Miðjarðai-hafinu um jólin.
Hraðfrystistöð Þórshafnar gerir
út nótaskipin Júpiter og Neptúnus
auk frystiskipsins Stakfells sem er
reyndar á söluskrá.
Atlantshaf
INNAN við 10 bátar voru á loðnu-
miðunum út af Halanum í gær og lít-
ið að fá enda veðrið leiðinlegt. „Nú er
bræla og spáð brælu næstu viku,
held ég,“ sagði Sævar Þórarinsson,
skipstjóri á Erni KE, sem á eftir um
1.000 tonn af kvótanum.
Nokkur skip héldu áleiðis í land í
fyrrakvöld en þá kom Örninn á mið-
in. „Við lentum í mjög blandaðri
loðnu sem ekki hefur verið að undan-
förnu en svo fórum við suður með öll-
um kantinum og til baka án þess að
sjá nokkuð,“ segir Sævar.
Fryst á Þórshöfn
Júpiter ÞH landaði um 800 tonn-
um á Þórshöfn í gær og Björg Jóns-
dóttir ÞH kom þangað í gærkvöldi
með um 750 tonn. Að sögn Jóhanns
A. Jónssonar, framkvæmdastjóra
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf., er
búið að frysta milli 200 og 300 tonn af
loðnu á vertíðinni hjá Hraðfrystistöð
Þórshafnar og hafa afurðimar farið
jafnóðum á Rússlandsmarkað.
Brynjar Jónsson, fyrsti stýrimað-
ur á Björgu Jónsdóttur, segir að
ágætis veiði hafi verið aðfaranótt
miðvikudags og þá hafi þeir fengið
um 600 tonn en síðan um 200 tonn í
einu kasti í fyrrakvöld. „Eftir ágæta
veiði þvældum við þarna fram og aft-
ur en veðrið var orðið leiðinlegt þeg-
ar við fórum. Við vorum með rifna
nót, gátum ekki gert almennilega við
hana og urðum að fara í land. “
Fyrsta loðnan til Eyja
Mikið hefur verið að gera hjá
Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyj-
um og hefur verið unnið á þrískipt-
um vöktum en fyrsta loðnan á vertíð-
inni kom þangað í gær. Þá var tekið á
móti um 500 tonnum af loðnu úr ís-
leifi VE og fór allt í vinnslu en síðan
kom Kap VE með 900 tonn og að
sögn Guðna Guðnasonar útgerðar-
stjóra var stefnt að því að taka allt í
frystingu. Vinnslustöðin er með tvo
netabáta og hefur verið ágætis fisk-
irí en áhöfnin á öðrum þeirra, Guð-
jóni VE, er líka á Kap, þannig að
þegar farið er á loðnu hætta þeir á
netum.
Sighvatur Bjarnason VE hefur
landað um 2.800 tonnum af síld hjá
Vinnslustöðinni á rúmum mánuði og
hefur iiún ýmist verið ílökuð eða
heilfryst fyrir Rússlandsmarkað.
„Það er svakalega gott að fá loðnu og
loðnufrystingu á þessum tíma, því
við notum sömu frystitækin og notuð
eru í síldarvinnslunni," segir Guðni.
„Tækin geta því ekki nýst betur.“
Opið til kl. 18:00 um helgina