Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 49
MINNINGAR "
+ Anna Bára Krist-
insdóttir, verka-
kona á Akureyri,
fæddist að Bratta-
vöilum, Þorvaldsdal
við Eyjafjörð, 29.10.
1915. Hún lést á
heimiii sínu á Eyrar-
vegi 35, Akureyri,
15. nóv. siðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Kristinn
Páisson og Sigríður
Aðaibjörg Jóhanns-
dóttir. Systkini Önnu
voru: Halia, Hall-
grímur, Valgarður,
Björn, Líney, Guðrún, Sumarrós
og Jóhanna. Þau eru öll látin.
Anna var verkakona í Fagraskógi
í 13 ár. Þar kynntist hún maka sín-
um Elí Olsen frá Vági, Suðurey,
Færeyjum. Þau giftust 28. októ-
ber 1945. EIí lést 7. desember
1987. Börn þeirra eru: Örn,
kvæntur Ingibjörgu Elísdóttur,
þau eiga 4 börn; Elspa, hún á 7
böm; Sigurður, hann á 3 böm;
Þegar ég settist niður til að skrifa
nokkur orð um þig, mamma, fann ég
vanmátt minn og tómleika. I þær
þrjár vikur sem ég er búin að sitja
við sjúkrabeð þinn hef ég kynnst þér
betur en öll árin á undan. Ég er inni-
lega þakklát fyrir að okkur tókst að
tala um hluti sem við áttum óupp-
gerða og ég skildi þá baráttu sem allt
þitt líf hefur verið og veit að þú
reyndir að gera þitt besta. Eg veit að
allir sem minnast þín muna þig fyrir
gjafmildi þína. Þó að þú ættir aldrei
mikið af veraldlegum auði fannst þú
alltaf eitthvað til að gefa.
Ég gleðst við minninguna um allar
ferðirnar okkar tii Sauðárkróks til
Friðbergs bróður. Oft var dátt hleg-
ið.
Ég er skapara okkar þakklát fyrir
að stríð þitt varð ekki lengra og
minnist þess hvað þú varst lík sjálfri
þér þegar þú fékkst fréttina um að
þú værir með krabbamein. Þú sagðir
við mig: „Ég vildi heist fá að deyja
heima en ef ég verð mjög veik máttu
ekki ofgera þér við að hugsa um
mig.“ Hverja nótt sem ég var hjá þér
hafðir þú alltaf áhyggjur af mér og
blessuðum stúlkunum sem unnu við
heimahlynninguna og skildir ekkert
í þolinmæði þeirra. Þeim vil ég öllum
þakka fyrir þeirra ómetanlegu að-
stoð.
Elsku Sigrún, Þorbjörg og Bryn-
dís, ég mun aldrei gleyma kærleika
ykkar við okkur. Megi Guð launa
ykkur.
Til enda er gatan gengin hrærir sorg
hjartastrenginn.
Burt varstu fús að fara í ferðina löngu, það
er bara erfitt sára sorg að spara.
Söknuður mér gengur nær.
(Höf. ókunnur.)
Farðu í friði, mamma mín.
Vilborg Elídóttir.
Kveðjuorð til langömmu.
Nú bönkum við ekki lengur á
hurðina þína og hrópum: „Langa, -
rúsínu!“.
Brosandi andlit blasir ekki lengur
við eins og alltaf þegar hurð opnaðist
og hönd laumaðist í skúffu og kom
með þessar langþráðu rúsínur sem
kættu barnssálina.
Elsku langamma, ástai'þakkir fyr-
ir kærleika þinn.
Kveðjur frá
Stefáni Jóni, Viiborgu Indu og
Jóni Svavari.
Fegursta manneskja í heimi sagði:
Gefíð og yður mun gefið verða og svo
gaf hún allt sem hún átti.
Fegursta manneskja í heimi sagði:
Að vera þreyttur eftir heiðarlega
vinnu, það er í lagi en að vera þreytt-
ur af dugleysi...
Fegursta manneskja í heimi sagði:
Börn eiga að vera skítug, um leið og
hún lét renna í bað og tók fram nál
og tvinna.
Vilborg, gift Jóni B.
Jóhannessyni, þau
eiga 3 börn; Geir-
þrúð, gift Ingimar
Víglundssyni, þau
eiga 4 böm; Jonna,
sambýlismaður
hennar er Vigfús
Andrésson, hún á 4
börn; Ragnar,
kvæntur Erlu Helga-
dóttur, þau eiga 3
börn; Hallur, kvænt-
ur Hjördísi Jónas-
dóttur, þau eiga 3
börn. Fyrir átti
Anna Friðberg, Bent
og Líneyju sem iést 1962. Auk
þess ólu Anna og Elí upp Önnu El-
ísu dótturdóttur sína. Anna og Elí
hófu búskap á Akureyri og
bjuggu lengst af í Kaupvangs-
stræti 1. Anna vann við húshjálp
tii 1987 er hún lét af störfum
vegna aldurs.
Útför hennar verður gerð frá
Akureyrarkirlqu 24. nóv. kl.
13.30.
Fegursta manneskja í heimi kunni
að gera ævintýri úr engu og breita
smjörlíki í smjör.
Fegursta manneskja í heimi kunni
að brosa þrátt fyrir allt og alla og
leyfði þér ekki að vola út af engu.
Fegursta manneskja í heimi fram-
kvæmdi kraftaverk án þess að depla
auga og ætlaðist svo til að þú gerðir
eins.
Fegursta manneskja í heimi hlust-
aði alvarleg á alvarlegar umræður og
tók mark á litlu fólki.
Fegursta manneskja í heimi sagði:
þar sem nóg er hjartarúm þar er líka
húsrúm og bjó um gest á eidhús-
gólfinu.
Fegursta manneskja í heimi sagði:
Þú getur allt sem þú vilt og fékk þig
til að trúa því.
Fegursta manneskja í heimi sagði
að góð samviska væri það besta af
öllu og þá langaði þig til að biðjast
fyrirgefningar.
Fegursta manneskja í heimi sagði
að allir væru mikilvægir og svo fóruð
þið saman út til að bjarga flugum úr
kóngulóarvefjum.
Fegursta manneskja í heimi var
hugrökk og hún kunni að gefa hug-
rekki sitt í burtu.
Fegursta manneskja í heimi gerði
stórmál að smámálum og fékk þig til
að hlæja að öllu saman
Fegursta manneskja í heimi horfði
á himininn og óskaði sér að eiga ein-
mitt svona kjól.
Fegursta manneskja í heimi henti
ekki gullinu úr barnsvasa heldur
fann undir það skartgripaskrín.
Fegursta manneskja í heimi trúði
á gömul gildi og sagði: Stattu við þitt
og láttu aðra um sitt.
Fegursta manneskja í heimi dó
eins og hún lifði og hugsaði meira um
aðra en sjálfa sig
Fegursta manneskja í heimi, hún
mamma mín. Hvernig er hægt að
þakka heila ævi?
Anna Elísa.
Upphaf kynna okkar af Önnu
Kristinsdóttur er ekki hægt að tíma-
setja nákvæmlega. Hún kom inn í líf
okkar áður en við munum eftir okk-
ur. Anna var til staðar öll okkar upp-
vaxtarár, hún var snar þáttur í lífi
okkar og markaði þar djúp spor.
Róleg í fasi með glettin tilsvör
kom Anna inn á heimihð og nærvera
hennar var notaleg. í dagsins önn
gaukaði hún að okkur góðum ráðum,
á hógværan hátt og lét okkur trúa
því að við hefðum sjálf uppgötvað
það sem hún ráðlagði.
Á þessum árum vorum við böm og
síðan óharðnaðir unglingar og var
lífið einfalt í hugum okkar. Þarna var
það sem Anna markaði sporin og tók
þátt í að leiða okkur út í lífið. Það er
góð tilfinning að hafa átt slíka kjöl-
festu.
Ekki þótti ráðlegt að efna til
mannfagnaðar eða veisiuhalda af
ýmsum tilefnum nema Anna væri
nærstödd, en hún var fjölhæf til
starfa. Þegar við lítum til baka, til
uppvaxtaráranna, er Anna inni í
þeirri mynd sem við sjáum, hvort
sem það em myndir úr daglegu lffi
eða frá hátíðarstundum í lífi fjöl-
skyldu okkar. Hún var vinur okkar
og tók þátt í gleði okkar þegar vel
gekk og þegar á bjátaði var hún upp-
örvandi. I barnslegri einlægni okkar
héldum við að Anna yrði alltaf til
staðar. Reyndar má það til sanns
vegar færa, því lífsviska hennar og
umhyggja er sjóður sem við enn get-
um sótt í, þótt Anna hafi lokið lífs-
göngu sinni. Það verður fátæklegra í
hugum okkar brottfluttra að hugsa
sér Akureyri og Eyjafjörð án henn-
ar.
Þótt við yxum úr grasi, hleyptum
heimdraganum og fjölskyldan
stækkaði þá rofnuðu ekki tengslin
við Önnu, en samverustundunum
fækkaði. Nýir fjölskyldumeðlimir
áttu því láni að fagna að fá að kynn-
ast Ónnu. Þeir muna hana sem kær-
an fjölskylduvin.
Anna var skemmtileg í samræðum
og skopskynið var einstakt. Hún sá
spaugilegar hliðar á hversdagsleg-
um hlutum og aðstæðum. Skopskyn
hennar auðgaði líf okkar og enn er í
fjölskyldunni gjarnan gripið til
skemmtilegra tilsvara hennar og
orðatiltækja. Anna er okkur öllum
ógleymanleg.
Við þökkum fyrir það lán að hafa
fengið að eiga Önnu Kristinsdóttur
að vini. Aðstandendum hennar send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guðmundur Kari,
Olga Björg,
Nanna Ingibjörg,
Jón Ingvar.
Margseraðminnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margs er að sakna
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friðurguðsþigblessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Við munum minnast þín með virð-
ingu oghlýju.
Og við þökkum þér fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman.
Megi góður Guð geyma þig.
Kristinn og Hrafnhildur.
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþj ónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
- Á t
Sverrir ^4 iii- aj j
Einarsson Sverrir
tógl ll útfararstjóri, Olsen
sítni 896 8242 útfararstjóri. Æm
iBaklur
] Frederikscn
I úlfararstjóri,
jsími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
ANNA BARA
KRISTINSDÓTTIR
MAGNI
BALD URSSON r
+ Magni Baldurs-
son fæddist á
Akureyri 17.1. 1942.
Hann iést á
Landspítalanum
Fossvogi fimmtu-
daginn 16. ndvember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Baldur
Svanlaugsson, bif-
reiðasmíðameistari,
f. 24.7. 1909, d. 15.6.
1970, og Sigurlaug
Elín Guðmundsdótt-
ir, skrifstofumaður,
f. 29.9. 1912, d. 18.3.
1999. Systur Magna
eru Svanlaug, f. 31.7. 1940, Hall-
gerður, f. 6.10.1945, Ásgerður, f.
6.10. 1945 og Sigurlaug Hösk-
uldsdóttir, f. 18.7. 1953.
Magni kvæntist 2.9. 1967 Bryn-
hildi Þorgeirsdóttur, þýðanda, f.
22.3. 1944. Dætur þeirra eru: 1)
Vala, leikhúsfræðingur, f. 10.1.
1968. 2) Nanna, lögfræðingur, f.
10.3. 1973, sambýlismaður Gísli
S. Jensson, veitingamaður, f. 6.5.
1972. Magni stund-
aði nám í arkitektúr
við Polytechnic of
North London á ár-
unum 1966-1972
(Dipl. Arch.). Hann
starfaði á bygginga-
deild London
County Council
1965-66 og hjá
Tripe & Wakeham
Architects, London,
1969-70. Hann
starfaði sem arki- V
tekt hjá Hammet &
Norton Architects í
London 1972-74 og
hjá Arkitektastofúnni EHF í
Reykjavík firá 1974.
Magni var í stjórn lffeyrissjóðs
Arkitektafélags íslands 1976-79,
formaður 1978-79 og varamaður
í stjórn sjóðsins 1980-83. Hann
var í laganefnd félagsins frá
1995.
Utför Magna fer fram frá
Háteigskirkju og hefst athöfnin
klukkan 10.30.
Stynur j örð við stormins óð
ogstráinkveðadauð,
hlíðin er hljóð,
heiðinerauð.
- Blómgröf, blundandi kraftur,
við bíðum, það vorar þó aftur.
Kemur skær í skýjum sólin,
skín i draumum um jólin.
Leiðir fuglinn í for
ogfleyiðúrvör.
Vakna lindir, viknar ís
ogverðurmeiraljós.
Einhugarís
rekkurogdrós.
- Æska, ellinnar samtíð,
við eigum öll samleið - og framtíð.
Aftni svipur sólar er yfir,
sumarið í hjörtunum lifir.
Blikarblómsyfirgröf,
slærbrúyfirhöf.
(EinarBenediktsson.)
Með þökk fyrir samleið í þessu lífi.
Heiðrún og Benedikt.
Magni Baldursson, arkitekt, vinur
minn og samstarfsmaður í fullan ald-
arfjórðung er látinn, langt um aldur
fram. Hann hefði orðið fimmtíu og níu
ára í janúar á næsta ári, en það er ekki
hár aldur nú til dags, sérstaklega ef
menn eru fullir lífsorku eins og Magni
var þegar hann greindist með illkynja
krabbamein um mitt síðasta sumar. Sú
lífsorka endurspeglaðist vel eftir að
hann byijaði að glíma við sjúkdóminn.
Hann gekk að störfum sínum og
áhugamálum eins og þrek hans entist
til og var ákveðinn í að beijast til
hinstu stundar, sem hann og gerði.
Þessa afstöðu má kalla lýsandi fyrir
lundarfar Magna, sem einkenndist
jafnan af bjartsýni, dugnaði, sam-
viskusemi og kjarki. Þessum eiginleik-
um kynntumst við starfsfélagar hans
vel á löngum, sameiginlegum ferli.
Magni lauk prófi í ai'kitektúr frá
Polytechnic of North London á Eng-
landi árið 1972 og starfsréttindaprófi
þar í landi ári síðar. Með námi og í tvö
ár að því loknu vann hann á arkitekt-
astofum í London, en hóf störf á arki-
tektastofu okkar Ömólfs árið 1974.
Tildrög þess vom þau að bróðir
minn vakti athygli mína á að kominn
væri til landsins ungur arkitekt frá
Englandi, sem hann reyndar þekkti
ekki, en vissi að væri kvæntur Bryn-
hildi, skólasystur sinni, og hlyti að
vera eitthvað í þann mann spunnið
sem næði slíkum kvenkosti. Þetta var
á uppgangstímum og mikið byggt
rétt eins og nú. Er ekki að orðlengja
það að Magni réðst til starfa með okk-
ur og vann hér á stofunni, allt þar til
yfir lauk.
I störfum Magna nutum við starfs-
félagamir sem og viðskiptavinir okk-
ar í ríkum mæli mannkosta hans og
góðra hæfileika. Öll störf hans eim
kenndust af vandvirkni, nákvæmni og
kunnáttu. Menn fundu fljótt að
Magna mátti treysta, bæði orðum
hans og verkum.
Of langt yrði upp að telja öll þau
verk sem Magni kom að á löngum
starfsferli sínum, en ég vil minna á ör-
fá þeirra, sem hann átti stóran þátt í
og þá ekki síst í samskiptum við verk-
kaupann, bæði á hönnunar- og fram-
kvæmdastigi: Ýmis mannvii-ki fyrir
Hitaveitu Suðumesja, Blönduvirkj-
un, Öskjuhlíðarskóla og Fellaskóla í
Reykjavík, Menntaskólann og
íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum og
sjúkrahúsin á Blönduósi og í Keflavík.
Magni tók virkan þátt í starfi Arki-
tektafélags Islands. Hann átti meðal
annars sæti í laganefnd og í stjórpr
Lífeyrissjóðs Arkitektafeálgs íslands
þar sem hann var formaðm' um skeið.
Þótt störf Magna séu ómetanleg er
það hinn góði drengur og félagi sem
við söknum nú þegar hann er ailur.
Fyrir hönd okkar starfsfélaganna á
Arkitektastofunni votta ég Brynhildi
og dætrunum, Völu og Nönnu, innileg-
ustu samúð okkar. Þeirra er missirinn
mestur og söknuðurinn sárastur.
Ormar Þór Guðmundsson.
f
|
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
’^ág sólarhringinn.
• ‘a*"*TÍ) *
í I í
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
mMMf
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.