Morgunblaðið - 26.11.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 31
FRÉTTIR
Stofnfundur Islenska
bútasaumsfélagsins
STOFNFUNDUR íslenska búta-
saumsfélagsins verður haldinn
þriðjudaginn 28. nóvember nk. kl.
20 í Norræna húsinu.
Áhugahópur um bútasaum hefur
unnið að undirbúningi um stofnun
íslensks félags um bútasaum en slík
félög eru starfandi á hinum Norð-
urlöndunum og víðar. Tilgangur fé-
lagsins verður m.a. að styrkja
áhuga og útbreiða þekkingu á búta-
saumi og halda uppi samstarfi milli
bútasaumsfélaga og klúbba á ísl-
andi. Enn fremur efla samstarf og
vera tengiliður við hliðstæð félög í
öðrum löndum. Tilgangi sínum
hyggst félagið ná með útgáfu
fréttabréfs, sýningum, samkeppn-
um, fyrirlestrum og námskeiðum
um bútasaum.
Félagið verður opið öllu áhuga-
og fagfólki um bútasaum. Þeir sem
vilja gerast stofnfélagar eru hvattir
til að mæta á fundinn.
SKARTGRIPA VERSL UN
FYRST OG FREMST
Guiismiðja Heigu
Laugavegi 45 • Sími 561 6660
_______www.gulikunst.is
Fyrirlestur
um nor-
rænt menn-
ingarnet
JÓHANNA Fjóla Ólafsdóttir lektor
heldur fyrirlestur á vegum Rann-
sóknarstofnunar Kennaraháskóla
íslands næstkomandi þriðjudag, 28.
nóvember, kl. 16.15. Fyrirlesturinn
verður haldinn í stofu M 301 í aðal-
byggingu Kennaraháskóla Islands
við Stakkahlíð og er öllum opinn.
Jóhanna Fjóla mun kynna í máli
og með stafrænum myndum nor-
ræna menningametið, Fælles nord-
isk kulturnetværk, og gefa innsýn í
það hvaða leiðir voru notaðar haustið
1999 til að ná settum markmiðum
þess með samvinnu háskólanema og
kennara frá Danmörku, Finnlandi,
Færeyjum, Grænlandi, Islandi, Nor-
egi og Svíþjóð.
Aðalmarkmið menningarnetsins
er að styrkja boðskipti í sambandi
við uppeldislega þekkingu innan:
listar og menningar í félagslegri
samvinnu, samnorræns menningar-
skilnings, listsköpunar og menning-
armiðlunar.
Undanfarin ár hefur Jóhanna
Fjóla verið tengiliður Kennarahá-
skóla íslands við Fælles nordisk
kulturnetværk og tekið virkan þátt í
starfsemi þess.
------HH--------
Nýr for-
maður
Hvatar
STEFANÍA Óskarsdóttir stjórn-
málafræðingui- var kjörinn nýr for-
maður Hvatar, félags sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, á aðalfundi
félagsins sem haldinn var nýlega.
Auk Stefaníu voru kjömar í stjórn
Hvatar Ásthildur Sturludóttir, vara-
formaður, Rúna Malmquist, Elísa-
bet Þorvaldsdóttir, Kolbrún Ólafs-
dóttir, Aðalheiður Kristjánsdóttir,
Björg Anna Kristinsdóttir, Sólveig
Halldórsdóttir og Hilda Björk Jóns-
dóttir.
Markmið Hvatar er að stuðla að
aukinni þátttöku kvennna í stjórn-
málum og vinna fylgi við hugsjónir
sjálfstæðisstefnunnar. Hvöt vinnur
einnig að því að styrkja hag fjöl-
skyldna og heimila á öllum sviðum.
mbl.is
ÉISA
APS
mync
méð aðdráttarlmsu. Hlaut hin
eftirsóttu EISAverðlaun 2000-2001
í flokki APS myndavéla. Fjölmargir
möguleikar í myndatöku.
Verð: 21.900.-
APS
Canon IXUS L1
Ein sú minnsta og léttasta
sem völ er á. Nett og þunn bygging
vélarinnar gerir hana nentuga í vasa.
Þú tekur þessa með þér hvert sem
er, hvenær sem er.
Jólatilboð: 16.900,- með tösku.
Reykjavík: Verslanir Hans Petersen, Myndval í Mjódd, Beco ehf. Kópavogur: Hans Petersen. Carðabær: Framköllun Garðabæjar ehf.
Hafnarfjörður: Filmur & Framköllun. Keflavík: Verslunin Hljómval. Vestmannaeyjar: Bókabúðin - Penninn. Selfoss: Hans Petersen. Akureyri: Pedromyndir.
Sauðárkrókur: Bókabúð Brynjars. isafjörður: Penninn - Bókaverslun Jónasar Tómassonar ehf. Akranes: Penninn - Bókabúð Andésar Nielssonar.
Canon
Canon IXUS »11
Léttasta APS vélin (aðeins 115g).
Álíka stór og hefðbundið greiðslukort.
Einföld og meðfærileg.
Jólatilboð: 12.900,- með tösku.
m
%#s»
APS L . ’ JHPjfLs,,..........-
Canon Prima Zoom 76
Falleg og stílhrein myndavél á
frábæru verði. Fer veí í hendi og
er einföld í notkun. Aðdráttarlinsa
fyrir nærmyndir sem og landslags-
myndir.
Jólatílboð: 10.990.-
(12.390.- með dagsetningu).
LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ
FYLGIR HVERRI MYNDAVÉL