Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 27
ENGLAND.
29
þetta á milli, hafa þeir samt ætíð haft hlýjan bróðurhug hvor
til annars. Að Gladstone er vel ern enn þá, sést á því að
í nóvembermánuði hélt hann ð ræður á 8 dögum í Birming-
ham; tvær af þeim stóðu hvor um sig i tvær klukkustundir.
Seinasta ræðan var haldin fyrir fleirum en hann hefur haldið
ræðu fyrir nokkru sinni. það hefur margt drifið á dagana fyrir
honum síðan Macaulay 1839 kallaði hann «framtíðarvon hinna
ósveigjanlegu Torya». Giadstone var Tory þangað til hérum-
bil 1865. þá varð hann Whig og fór að eiga mikið við Ir-
iands mál. Svo byrjar þriðja timabilið í æfi hans 1885. En
Gladstone ritar lika mikið, um sögu, heimspeki, guðfræði,
fornfræði, og ritdóma o. s. frv. Fyrsta rit hans var um riki
og kirkju, og síðasta rit, sem nú hefur komið eptir hann, er
um Elizabet drottningu og kirkju Englands. Hann hefur ætíð
átt mikið við kirkjuleg málefni og hann les ætíð upp kirkju-
bænina i Hawarden þar sem hann býr. En hann skrifar
líka um margt annað en þetta, um hjónaskilnað, um skáld-
sögur o. s. frv, Hann verður því unglegri sem hann eldist
meir og öll síðustu rit hans eru skrifuð með miklu meira fjöri
og ákafa en hin fyrstu. Hann hefur fyrir skömmu ritað
kennslubók um Hómer fyrir skóla. Yfirhöfuð er hann ólikur
öllum öðrum i því, að hann færist í aukana með framfarir allar
og framsókn þvi eldri sem hann verður.
Walesbúar eru farnir að heimta heimastjórn (Homerule).
þeir hafa sitt mál og sina siði. Á hverju ári hafa þeir stóra
fundi (Eisteddfod) og eru þar flutt fram kvæði og haldnar
ræður. Hin beztu kvæði og hinar beztu ræður eru sæmdar
verðlaunum, Gladstone hélt ræðu á ársfundi þeirra 1888 en
ekki var hann verðlaunum sæmdur, því ræðurnar og allt fer
fram á walesisku (völsku).
Dufferin jarl á Indlandi, sem er lslendingnm að góðu
kunnur, sagði af sér og er nú sendiherra Englendinga i Róma-
borg. I hans stað varð jarlinn yfir Canada, Lansdowne jarl á
Indlandi. Englendingar hafa átt í ófriði á þrem stöðum utan-
til við Indland, austur í Birma. norður i Sikkim og við fjaila-
þjóðirnar vestantil og borið hærra hlut alstaðar. í Sikkim