Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 63
DANMÖRK.
65
höfðu marmaramyndir, ýmsa rafurmuni o. s. frv. og seldu þeir
meir en allir aðrir, sem höfðu muni á sýningunni.
A fiskisýningunni höfðu Norðmenn mikið um sig; þeir
höfðu net og báta, harðan fisk og niðursoðinn o. fl. Hvergi
fæst eins gott þorskalifrarlýsi og í Noregi. Norðraenn flytja
hér um bil 20,000 tunnur á ári af því til annara landa og
selja það dýrum dómum um allan heim. Sviar sýndu margt
frá laxaveiðum sínum.
Rússar sendu líka mikið á sýninguna, og var það fyrir
milligöngu keisarans og keisaradrottningarinnar. þar voru
stór ker úr dýrum steini, skrúðklæði og margir dýrgripir.
Mátti segja, að þar glóði allt í gulli og gimsteinum. Eng-
lendingar höfðu ekkert á sýningunni, nema fáein silfurker frá
Kensingtonsafninu í London.
Hin danska landbúnaðarsýning var mjög fróðleg. Eng-
land eitt kaupir 63°/o eða meir en helming af öllum afrakstri
landbúnaðar sem Danir flytja út. það er fyrst og fremst smér.
Útflutt smér er nærri 60 milióna króna virði, og kaupa Englend-
ingar það allt. það er ekki meir en 8 ár síðan Danir fóru að
nota vélar þær (Centrifuge), sem ná rjómanum betur úr mjólkinni
en strokkur, og nú taka þeir ekki í mál að brúka aðrar vélar,
enda eru Danir nú að tiltölu hin mesta smérþjóð i heimi.
Magurt svínakét, svín, naut og egg flytja þeir líka til Englands,
en hið feita két selja þeir þjóðverjum. þó að sænskur maður,
De Laval, hafi fundið ágæta vél til að skilja rjómann frá mjólk-
inni, þá eru Svíar samt ekki smérþjóð á borð við Dani. Aptur
smíða þeir mikið af vélum og flytja til annara landa, en Danir
smíða ekki sjálfir sínar vélar. I engu landi i heiminum er
jafnmikið af telefónum (hljóðþráðum) eins og í Svíþjóð.
það er stór munur á hvað Danir eru drykkfeldari en Svíar
Og Norðmenn. Að meðaltali drekkur danskur maður 20 potta
af brennivini árlega, sænskur maður 9 og norskur maður 4.
Af bjór koma að meðaltali 81 pottar á danskan mann, 37 á
sænskan mann og 16 á norskan. Danir eru hin roesta drykkju-
þjóð í heimi, en þeir bera líka af öllum þjóðum í tvennu
öðru. I engu landi ráða eins margir menn sjálfum sér bana
5