Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 66
68
DANMÖRK.
konungur kom til ríkis og 100 ár síðan danskir bændur voru
leystir úr ánauð. Hinn 8. apríl 1888 var Kristján níundi sjötugur
að aldri. Dönsku blöðin lofuðu hann öll og Ploug, sem var versti
mótstöðumaður hans 1863, orti kvæði um hann og slíkt hið sama
gerðu mörg önnur skáld. |)ó ætt hans, Glucksborgarættin, sé
þýzk, þá var hann þó ætíð með Dönum löngu áður en hann hafði
nokkur útlit til að verða konungur i Danmörk. Hinn 15. nóv-
ember voru 25 ár síðan hann kom til ríkis. þann dag var
Höfn uppljómuð um kveldið og mikið um dýrðir. Vinstrimenn
héldu enga hátíð. Allar sveitir i Danmörk höfðu sent honum
ljósmyndir af þvi sem helzt var og merkilegast i þeim. Stjórnin
sýndi sáttfýsi sína með þvi, að nema úr gildi bráðabirgðalög
2. nóv. 1885 eða «Presseprovisoriet» svo kallaða. f>au lög
bundu bæði rit- og mál-frelsi.
Hinn 14. ágúst rákust á hvort annað úti í Atlantshafi, tvö
dönsk gufskip «Thingvalla» (þingvellir) og «Geiser» (Geysir).
Thingvalla náði höfn en Geysir sökk og drukknuðu af farþegj-
um og hásetum nær 100 manna. Gufuskipafélag það, sem
kennt er við þingvelli «Thingvallaselskabet», er mesta óláns-
félag; á hverju ári hlekkist einhverju aí skipum þess á, meir
eða minna.
Danir eru hræddir við hið nýja Eyrarsund (sjá Skírni
1888 bls. 83) og ætla að gera Höfn að «frihöfn», sem svo
kallast, eins og Hamborgarar og fl. til þess að laða útlend skip
til að fara um Eyrarsund hið gamla.
Félag, sem vill leggja tolla á útlendar vörur og verknað,
eins og Svíar hafa gert, hefur verið stofnað hér og má sín
mikils.
Af mannalátum 1888 er helzt að geta þessara. Biskup
Kierkegaard, bróðir hins alkunna heimspekings Sören Kierke-
gaards, Sponneck greifi, sem var einn af helztu stjórnvitringum
Dana. Skáldið K. F. Molbech. Kveðskapur hans fór í hina eldri
stefnu, sem var ofan á hjá Dönum á undan 1870. Hall, sem
stýrði ráðaneyti Dana um mörg ár og kom latínuskólum þeirra
í það horf, sem þeir eru nú í.
Landi vor, háskólakennari Gísli Brynjúlfsson, lézt á þessu
ári, og hafði hann verið háskólakennari síðan 1872.