Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1889, Page 60

Skírnir - 01.01.1889, Page 60
62 RÚSSLAND. zollernættinni og rammþýzkur, orðið að láta vini Rússa skipa ráðaneyti. í Búlgariu heldur reyndar StambúlofF enn þá stjórn Ferdínands af Kóburg uppi, en Grikkir eru, eins og þeir hafa lengi verið, vinir Rússa og Tyrki hafa Rússar í vasanum meðan þeir hafa ekki borgað skuldirnar frá ófriðnum 1877—78, því þeir hóta þá og þegar að taka eitthvert fylki sem veð fyrir fénu, ef Soldán borgar ekki það sem tiltekið er árlega. í fylkjunum við Eystrasalt býr fjöldi þjóðverja og háskól- inn i Dorpat á Liflandi er að mestu leyti þýzkur. Verzlunin í Riga, Libau og öðrum bæum við Eystrasalt er í höndum þjóðverja og þeir vaða uppi, því að Rússar i þessum héruðum eru fátækir, þó þeir séu miklu fjölmennari. Nú er hin rússn- eska stjórn farin að þröngva kostum þjóðverja á ýmsa vegu. Við háskólann verður að kenna á rússnesku. Hinir þýzku, lútersku prestar eru reknir burt, ef þeir ekki hlýða hinni rétt- trúuðu rússnesku kirkju o. s. frv. þjóðverjar kvarta sáran, en dönsku blöðin segja, eins og satt er, að þeir skuli lita nær sér og fara betur með Dani i Norður-Slésvík, en Rússar fara með þjóðverja við Eystrasalt. Tolstoj (sjá Skírni 1888 bls. 57—58) heldur áfram að rita ritlinga fyrir almúga, og græðir hann ekki einn eyrir á þeim bókum, því hann lætur selja þær fyrir litið sem ekkert verð. Og þó gæti hann, sem um alla Evrópu er talinn hinn ágætasti höfundur sem nú er uppi, grætt ógrynni fjár, ef hann vildi rita bækur fyrir peninga. Stead ritstjóri segir, að Tolstoj gangi duglega að heyvinnu á sumrin á búgarði sínum, Jasnaja Poljana og sé mikill sláttumaður. A veturna býr hann til stígvél og skó og er það allt selt; hann er afbragðs skósmiður. þannig ver þessi ritsnillingur nú æfi sinni i þarfir almúgans, en 99/ioo hlutar af hinni rússnesku þjóð er líka almúgi. Nú hefur keisari fallist á hið mikla stórvirki, sem Rússar hafa í hyggju, að leggja járnbraut um þvera Norður-Asiu til Vladivostokk við Kyrrahafið. Höfnina við Vladivostokk leggur ekki á veturna og Rússar geta sent herlið eptir brautinni austur þangað jafnfljótt og Kinverjar, sem eru á næstu grösum, en Kínverjar eru líka járnbrautarlausir. Finnar eru ánægðir með stjórn Rússa. Svíar ráða minna

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.