Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1889, Side 68

Skírnir - 01.01.1889, Side 68
70 NOREGUR OG SVÍMÓÐ. öllum kveðskap. Stórþingið sendi Ibsen heillaóskir. Um jólin kom út leikrit eptir hann «Fruen fra Havet» (Konan við sjó- inn). Hann lítur þar meir á hinar bjartari hliðar mannlífsins en hann er vanur að gera, og var þetta leikrit strax leikið um þýzkaland og öll Norðurlönd. Ibsen fór til Berlinar um það leyti og var þar í viku. þá viku var ekki meir um annað talað og ritað en Ibsen, og var hún kölluð Ibsens vika. I Lundúnum og Parisarborg á að leika ýms leikrit hans, f>að er í orði að senda Dr. Friðþjóf Nansen sumarið 1890 að leita norðurpóls jarðarinnar; á hann að fara á skíðum yfir Frans Jósefs land og reyna að komast eins langt norður á leið og hann getur. í Svíþjóð hafa tollvinir ráðið mestu árið 1888. Hæsta- réttardómur um Stokkhólms þingmennina (sjá Skírni 1888 bls. 65) var tollinum 5 vil, og urðu þannig 22 tollvinir þingmenn Stokkhólms. I báðum þingdeildum höfðu þeir nú fleiri atkvæði en tollféndur. Themptander sá sér nú ekki annað fært en segja af sér forstöðu ráðaneytis og skipaði Bildt nýtt ráða- neyti 6. febrúar. Nú voru lagðir tollar á útlenda kornvöru og áttu lögin um þá ,að gilda frá 14. febrúar. Útlendingar fluttu ósköpin öll af kornvöru inn í Svíþjóð næstu dagana á undan tolllaust og græddu mikið á því. Brennivínstollur var hækkaður og tollvinir ætluðu nú að ná sér niður og leggja tolla á fleiri aðfluttar vörur. En vinnumenn héldu fund út um land til að mótmæla tollunum. Hedlund, ritstjóri blaðsins Göteborgs Handels- och Sjöfarts-Tidning, barðist duglega móti þeim. Hedlund hefur lika tekið málstað Jóhanns Sverdrups móti Björnstjerne Björnson og öðrum í Noregi. Tollvinir vilja losast úr sambandinu við Norðmenn og segja að Norðmenn hafi allan haginn af þvi. þeir kaupi vörur ódýrt og flytji þær tolllaust inn i Svíþjóð. Óskar konungur heldur í hemilinn á þessum tollheimtu- mönnum, því hann er frjálslyndur maður. Hann vill láta þá verja nokkru af fé því sem tollarnir gefa af sér til að bæta kjör vinnumanna. Á hinn bóginn eru vinnumenn margir óánægðir með tollana, þannig má segja um tollheimtumenn i Sviþjóð eins og um Jóhann Sverdrup i Noregi: ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.