Skírnir - 01.01.1889, Síða 72
74
AFRÍKA.
reka með til matar. Emin sagði að Egyptar þeir, sem þar
byggju, vildu ekki fara með sér og hafði ýmsar viðbárur.
Stanley hafði skrifað bréf til Tippú Tibs 17. ágúst 1888,
en það var stutt og ógreinilegt. þann dag hitti hann menn
sína í Banalya og segir sjálfur þannig frá tali sínu við Bonny
hinn eina Evrópumann, sem var á lífi. Hvar er Barttelott?
Hann var skotinn fyrir rúmum mánuði. En Jamieson? Hann
fór til Stanley Falls að fá fleiri menn frá Tippú Tib (hann
veiktist og dó á leiðinni). Og Troup? Hann er farinn heim
fárveikur. þetta voru ill tíðindi fyrir Stanley; 71 lifðu eptir af
257 og 52 voru göngufærir en þó skinnhoraðir eins og beina-
grindur. í 43 daga höfðu þeir verið að fara jafnlanga leið
og Stanley hafði farið í 16 daga og þó farið þá braut, sem
hann hafði rutt. þeir höfðu haldið að Stanley væri dauður;
menn sem höfðu stolizt frá Stanley báru þá fregn. þeir sendu
alla muni hans heim til Evrópu nema 2 hatta og 4 skó.
Stanley kvaðst vera eins töturlega til fara og Livingstone forð-
um, þegar hann fann hann. Stanley hafði ekki verið nema
82 daga á leiðinni frá Albert Nyanza til Bunalya.
Hinn mikli skógur, sem hann fór um, kvað hann vera einar
246,000 enskar ferhyrningsmilur að stærð, og hinn mesta skóg
i Afríku; hann likist Brasiliuskógunum og er eins stórkostlegur.
Landinu hallar vestur á bóginn frá Albert Nyanza til Congó
og er hálendið 5200 fet á hæð við vatnið.
Aruwimifljótið hefur mörg nöfn; Ituri er það nafn, sem
optast er notað. Ituri er 680 milur (enskar) frá mynninu 380
feta breitt og 9 feta djúpt. Uppsprettur þess eru i Junker,
Schweinfurt og Spekefjöllum. Mörg stórfljót renna i Ituri og það
er sjálft hérumbil 800 mílur á lengd. Vér fórum fram með því
og á þvi 680 mílur fram og aptur. Á þvi svæði eru töluð 5
ólik mál og í skóginum og dalnum, sem kendir eru við Ituri,
búa mannætur. Aruwimifljótið hefur eitthvað 5 nöfn, og er
eitt af stórfljótum Afríku.
Fernt er merkilegast af því sem Stanley hefur fundið á
þessari glæfraferð. Hann hefur fundið 1) hvar hið mikla fljót
Aruwimi rennur, 2) hið mikla skóglendi, sem hann fór um, 3)
fjall 17—18,000 feta á hæð fyrir sunnan Albert Nyanza. Hinn
25. mai, sama daginn og hann skildi við Emin Pasja, benti